Morgunblaðið - 11.03.1975, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975
Vonir Armenninga litlar
eftir óvænt tap íyrir Val
ÞAÐ sannaðist enn betur hversu
erfitt er að reikna Valsliðið út
fyrirfram. Eftir tapleik gegn
botnliðinu IISK á laugardag gerði
Valur sér lítið fyrir og vann Ár-
mann daginn eftir. Að vísu var sá
sigur eins naumur og hugsast gat,
en sigur var það engu að síður.
Ármenningar hafa því tapað báð-
um leikjum sfnum fyrir Val í
mótinu.
Síðustu mín. þessa leiks voru
æsispennandi. Þá skiptust liðin á
um að hafa yfir eftir að Ármann
var búiö að vinna upp forskot
Vals, og var t.d. jafnt 66:66 þegar
3 og hálf mín. voru til leiksloka.
Þá skoraði Björn Ghristenssen 3
stig fyrir Armann og var svo
rekinn af velli með 5 villur, og
Válur komst yfir 70:69. Jón
Sigurðsson jafnaði úr vftum, en
Kári Marísson komVal ennyfirog
voru nú eftir 30 sek. Jón Sig.
skorar úr víti og Jóhannes síðan
fyrir Val úr öðru, en þegar 7 sek.
•voru eftir af leiknum jafnaði Jón
Sigurðsson fyrir Armann 73:73 og
var þá almennt reiknað með þvi
að framlengja þyrfti leikinn. En
Kári Marísson var ekkert á þeim
buxunum. Hann tók boltann og
þaut með hann upp allan völlinn,
gaf síðan góða sendingu á Haf-
stein Hafsteinsson sem þurfti
ekkert annað að gera en setja
boltann upp í körfuna og það
gerði hann þegar 2 sek. voru eftir
af leiktímanum. 75:73 fyrir Val og
þeir fögnuðu mikið enda þykir
Valsmönnum alltaf gaman að
vinna Ármann í körfubolta.
Jóhannes Magnússon var
maður Valsliösins að þessu sinni.
Hann átti stórleik í vörn og sókn,
og var engin leið fyrir Ármenn-
inga að stöðva hann þegar hann
var kominn af stað. Jóhannes er í
blóma þessa dagana, gagnstætt
mörgum öðrum sem eru á niður-
leið í lok keppnistímabils. Þá var
Kári góður að venju, og Torfi
Magnússon með góða spretti. Þór-
ír Magnússon fékk dæmdar á sig
tvær villur i einu um miðjan s.h.
og sú síðari var hans 5. í leiknum.
Þórir skoraði aðeins 8 stig, og
man ég ekki eftir því að hann hafi
spilað áður án þess að koma með
tveggja stafa tölu frá leik.
Sem fyrr voru það þeir Jón
Sigurðsson og Símon Ólafsson
sem báru af í Ármannsliðinu, og
ekki væri liðið í hópi þeirra bestu
ef annan hvorn þeirra vantaði. —
En innáskiptingar þjálfara Ar-
manns koma ávallt furðulega
fyrir. Þegar Ármann virtist vera
að greiða Val rothöggið i byrjun
leiksins og staðan var orðin 19:10
fyrir Ármann skipti hann þremur
af byrjunarleikmönnum liðsins
útaf, og Valur jafnaði strax. Það
er ekki hægt að fullyrða að þetta
hafi skipt sköpum, en óneitanlega
virðist svo.
Stighæstir. Valur: Jóhannes 25.
Torfi 15, Kári 12.
Armann: Jón Sig. 27, Símon 20.
— Þessi úrslit gera allar vonir
Armenninga um sigur i mótinu að
engu, hér eftir stendur keppnin
eingöngu milli KR og IR.
gk.
Agnar Friðriksson, skoraði 27
stig I leiknum við stúdenta og átti
mjög góðan leik.
ORUGGURIR-SIGUR
IR-INGAR áttu ekki i miklum
erfiðleikum með að sigra afar lé-
legt lið IS. Fyrirfram hafði þó
verið reiknað með spennandi
viðureign, en þegar á hólminn var
komið voru stúdentar eins og
börn í höndum ÍR-inga sem léku
af mikilli ákveðni og festu alit frá
fyrstu til síðustu mínútu. IR var
11 stig yfir í hálfleik, og sigraði í
leiknum með 96 stigum gegn 81
stigi ÍS.
Það er alveg furðulegt hvað ÍS
liðinu hefur farið aftur nú upp á
síðkastið, liðið sem gat sigrað
hvaða lið sem var fyrr í mótinu er
I dag óþekkjanlegt, og leikmenn
eins og t.d. Bjarni Gunnar er eins
og byrjandi langtímum saman.
Hann var eins og byrjandi miðað
við Jón Jiirundsson sem átti að
venju mjög góðan leik fyrir ÍR.
Jón lék hann oft mjög grátt, enda
Bjarni ekki svipur hjá sjón miðað
við fyrri getu.
Eftir að staðan hafði verið 12:12
fljótlega í fyrri hálfleik tóku ÍR-
ingar öll völd í sínar hendur og
breyttu stöðunni í 32:14. Þá gat
þjálfari ÍR leift sér að fara að
skipta inná og lék IR aldrei með
allt sitt sterkasta lið inn á það sem
eftir var. Staðan í hálfleik var
47:36 fyrir IR.
Um síðari hálfleikinn þarf ekki
að fara mörgum orðum. Forskot
IR varð þá mest um 20 stig, og
leikið var á fullri ferð allan
tímann með varamennina í bland
við hina reyndari. Jafnvel það gat
IS ekki notfært sér og ÍR sigraði
því örugglega.
Þeir Jón Jörundsson og Agnar
Friðriksson voru bestu menn IR i
þessum leik. Agnar með sín
frægu langskot af öllum mögu-
legum lengdum sem oftast fóru
beint í körfu, Jón hins vegar mjög
góður i vörninni, og í sókninni réð
engirm neitt við hann. Jón sýnir
einna mestar framfarir allra leik-
manria í 1. deild.
Það var einna helst baráttujaxl-
inn Ingi Stefánsson sem stóð upp
úr i stúdentaliðinu, flestir hinna
virtust þreyttir.
Stighæstir: IR: Agnar 27, Jón
Jör. 19, Kolbeinn 15. ÍS: Ingi
Stefánsson 21, Bjarni 18, Steínn
Sveinsson 14.
Bjarni Jóhannsson f baráttu við Einar Guðmundsson undir körfunni.
KR vann UMFN
ENN EINN 200 stiga ieikurinn
var leikinn um helgina, og að
venju var KR annar aðilinn. Þetta
er þriðji leikurinn f röð sem KR
skorar meir en 100 stig, en tví-
vegis hafa þeir einnig fengið á sig
100 stig. Svo var í leiknum gegn
UMFN, en hann endaði 111:101
fyrir KR.
Það var ljóst strax í upphafi
hvert stefndi, stigunum rigndi
HSK lagði Val
niður jafnt og þétt á báða bóga, en
KR-ingar höfðu alltaf yfir. Staðan
í hálfleik var orðin 59:56 fyrir
KR. Enn fylgdust liðin að
framundir miðjan siðari hálfleik,
en þá fór KR að síga fram úr. Þeir
komust mest 9 stig yfir, og svo 11
stig stuttu fyrir leikslok 103:92.
Bjarni Jóhannsson skoraði nú
mest fyrir KR alls 30 stig, en ekki
gat hann þó fremur en venjulega
leikið nær allan tímann. Fékk
hann strax i upphafi leiksins 3
villur, enda með afbrigðum
óheppinn með villur sínar ávallt
og var hann þá tekinn útaf. Hann
lék hins vegar allan síðari hálf-
leik, og skoraði þá mikið. Kol-
beinn Pálsson var með 26 stig og
heldur sæti sínu sem stighæsti
maður mótsins. Bragi Jónsson
skoraði 16 stig og átti mjög sæmi-
legan leik, svo og Gísli Gíslason
sem skoraði 12 stig.
Hjá UMFN VORU ÞAÐ „hinir
fimm stóru“ sem skoruðu nær öll
stigin. Gunnar Þorvarðarson var
nú stighæstur með 26 stig, Stefán
Bjarkason 23, Brynjar Sigmunds-
son 16 og Einar Guðmundsson og
Sigurður Hafsteinsson 12 hvor.
gk.
IISK hlaut sín fyrstu stig í Is-
landsmótinu um helgina með því
að sigra Val í sfðari leik liðanna.
Er nú Ijóst, aö leikur IISK við
Snæfell um næstu helgi kemur til
með að segja til um það hvort
liðið fellur 1 2. deild. Ekki er
gerlegt að spá fyrir um úrslit þess
leiks, liðin virðast svo áþekk að
getu.
Það hafði sitt að segja fyrir
HSK í þessum leik að Þröstur
Guðmundsson lék nú með liðinu
að nýju. Hann og Hilmar Viktors-
son gengu báðir úr KR yfir í HSK
fyrir stuttu, og léku nú sinn
fyrsta leik með nýja félaginu.
Um leikinn er það að segja, að
hann var yfirleitt mjög jafn,
Valur komst yfir í byrjun 14:7, en
HSK hafóí jafnað um miðjan hálf-
leikinn 20:20. Síðan komst Valur
yfir aftur, mest 6 stíg, en í hálf-
leík var staðan 42:41 fyrir HSK.
Það leit ekki út fyrir annað en
Valssigur, því Valur komst strax
yfir í upphafi síðari hálfleiks og
hafði ávallt yfir. En með miklu
harðfylgi tókst IISK að jafna
metin þegar 6 mín. voru til leiks-
loka 70:70. Og þeir gerðu betur,
komust yfir 84:78, og þaö var of
mikill munur til að Val tækist að
vinna það upp lokakaflann. Loka-
tölur 89:86.
Þessi sigur HSK er liðinu mjög
dýrmætur, þeir eiga nú betri
stöðu en áður þegar þeír mæta
Snæfelli í hinum þýðingarmikla
fallbaráttuleik um næstu helgi,
og nægir að öllum líkindum að
sigra til að halda sér uppi. Það var
mikil barátta I liðinu I þessum
leik, virtist sem koma Þrastar
hefði mjög hvetjandi áhrif á liðs-
mennina. Anton Bjarnason var sá
sem allt snerist um í leik liðsins,
og hann átti stórleik. Sterkur í
vörnínni, skoraði mikið sjálfur,
og byggði upp allt spil liðsins
ásamt Bírki Þorkelssyni. Gunnar
Jóakimsson barðist mjög vel og
hafói oft betur I viðureigninni víð
miðherja Vals. Birkir hefur oft
verið meira áberandi en að þessu
sinni. Þröstur lék ekki með nær
allan leiktímann, en stóð sig vel
meðan hann var inná.
Það er dálítið furðulegt með
Valsliðið. Það getur hvenær sem
er veitt sterkustu liðunum í deild-
inni harða keppni og unnið þau,
en þess á milli hrapað niður á
jafnlélega leikieinsoghéráttisér
stað. Þetta er ekki sagt til að gera
lítið úr leik HSK, en óneitanlega
var þetta með slakari leikjum
Vals í mótinu. Kári og Jóhannes
voru langatkvæðamestir I liðinu,
og Jóhannes virðist þessa dagana
í sínum besta ham.
Stighæstir: HSK: Anton
Bjarnason 23, Gunnar Jóakims-
son 21, Þröstur Guðmundsson 18,
Birkir Þorkelsson 15.
Valur: Kári Marísson 25,
Jóhannes Magnússon 20, Þórir
Magnússon 17, Hafsteinn
Hafsteinsson 10.
gk.
STAÐAN
URSLITIN i leik ÍR og Ármanns eru
ekki með i þessari tóflu, en verða
sett inn þegar línur eru komnar á
hreint með kærumálið vegna þess
leiks. stig.
ÍR 11 10 1 922:834 20
KR 12 10 2 1098:989 20
Ármann 11 7 4 916:850 14
UMFN 12 7 5 972:949 14
is 12 6 6 920:912 12
Valur 13 5 8 1087:1070 10
Snæf. 1 1 1 10 748:914 2
HSK 12 1 11 868:1013 2
Stighæstir:
Kolbeinn Pálsson KR, 285
Þórir Magnússon Val, 264
Jón Sigurðsson Ármann. 243
Stefán Bjarkason UMFN, 239
Kristinn Jorundsson ÍR, 231
Kári Marisson Val, 226
Simon Ólafsson Ármanni, 220
Agnar Friðriksson ÍR, 218
Byrnjar Sigmundsson UMFN 212
Einar Sigfússon Snæf. 211
Vitaskot (35 skot eða fleiri);
Kolbeinn Pálsson KR,
81:59 = 72,8%.
Simon Ólafsson Á,
70:50 = 71,4%.
Þórir Magnússon Val,
41:28 = 68,3%.
Gunnar Þorvarðarson UMFN,
59:40 = 67,9%.
Jón Sigurðsson Á.
49:33 = 67,3%.
Jón Jörundsson ÍR,
52:35 = 67,1%.
Kristinn Jörundsson ÍR,
82:53 = 65,8%.
Stefán Bjarkason UMFN,
42:27 = 64,3%.
Ingi Stefánsson ÍS.
68:43 = 63,2%.
Birkir Þorkelsson HSK,
52:32 = 61,6%.