Morgunblaðið - 11.03.1975, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.03.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975 33 7 hik rambaði ég loks á mjög fallega dagstofu. Ég steig inn, en hikaði þó við. Mér fannst Holt ofurstafrú enn magrari og veiklulegri en dóttir hennar. Hún lá í hvíldarstól og ég hafði þvi gott tækifæri til að virða hana fyrir mér. En ættarmótið leyndi sér ekki með þeim mæðgum. Hún var ungleg og fín- leg en hrukkurnar við augu og munn komu upp um aldur hennar. Hún rétti fram höndina biðjandi og gaf mér bendingu um að koma til min. — Þökk fyrir, hvað þér voruð elskulegar við Agnetu! Þetta ... var ægilegt áfall fyrir hana.... Ég settist á skemil við hliðina á henni og var satt að segja yfir- máta þakklát fyrir að hún skyldi vita málavöxtu. — Það hefur væntanlega verið voðalegt fyrir yður líka. Hver ságði yður frá þvi? — Agneta... rétt áðan. Ég hafði satt að segja ekki hugmynd um .... Hún var náföl í framan og mjög þreytuleg, en augun sem störðu á mig án afláts voru þurr. — Þér eruð kona Einars Bure, er það ekki? Mikið var leiðinlegt að þetta skyldi einmitt þurfa að gerast, þegar þið voruð að koma hingað i leyfi. Þessi sérkennilega hugsunar- semi minnti mig aftur á minar eigin áhyggjur vegna málsins og ég tautaði ósjálfrátt: — Þetta er leiðinlegast fyrir föður minn. Honum hefði ekki veitt af hálfsmánaðarhvíld eftir allar þær grafir, sem hann hefur opnað .... Af svipbrigðum ofurstafrúar- innar mátti ráða að hún varð mjög hissa. — Múmíur, meina ég, bætti ég við — Konungagrafir. Éaðir minn er fornleifafræðingur. — Ætlið þér kannski að segja mér að Johannes Ekstedt sé faðir yðar. Svipur hennar breyttist snögglega, hún var ekki lengur ráðvillt, heldur ljómaði andlit hennar nú af óskiljanlegum fögn- uði. — Ég hef lesið hverja einustu línu, sem um hann eða eftir hann kemur í blöðunum, um rannsókn- ir hans. Störf hans virðast vera fádæma merkileg. En hvað mig langar til þess að hitta hann; haldið þér við gætum ekki komið því í kring? Ég kinkaði kolli og nú var sann- ariega komin röðin að mér að undrast. Þegar höfð er hliðsjón af þvi að hún var blíð, alúðleg mið- aldra kona, sem hafði fáeinum stundum áður misst einkason sinn var framkoma hennar væg- ast sagt einkennileg. Að vísu er það margsannað mál, að fólk bregst við harmi á mjög mismun- andi hátt. . . en samt. . . Sennilega sá hún á mér, hversu hissa ég varð því að hún greip hlýlega um handlegg mér og hvislaði blíðróma: — Yður finnst ég víst einkennileg móðir, er það ekki. Og það getur vel verið rétt. En ég skal segja yður að hann Tommy hefur valdið okkur svo ómældum áhyggjum... og auk þess, hún lækkaði róminn. .. var hann alls ekki sonur okkar. Við tókum hann til okkar, þegar hann var fimm ára gamall. Ég hef reynt heiðarlega og í einlægni að láta mér þykja jafn vænt um hann og Agnetu, en þaó hefur aldrei tek- izt. Hann gerði heldur ekki mikið til að hjálpa mér .. . Þvi þykist ég ekki finna til einhverrar nistandi sorgar, sem fær ekki staðist. Hvað Agnetu varðar horfir málið öðru- visi við. Þau eru alin upp saman og hann var stóribróðir, sem hún dáðist alltaf mjög að. — Aha! sagði ég og spurði síðan án þess að fyrir mér vekti nokkuð sérstakt: — Hvað var hann gamall? — Agneta er tvítug. Tommy var fjórum árum eldri. Sú Agneta, sem kom nú inn í stofuna, leit óneitanlega út fyrir að vera meira en sextán ára eins og ég hafði haldið. Hún hafði greitt hárið aftur i hnút i hnakk anum, og kvíðasvipur var á fölu andliti hennar. Hún kastaði feimnislega kveðju á mig og varð enn vandræðalegri, þegar ofursta- frúin stakk upp á því fagnandi, að við yrðum dús. Agneta hafði sýni- lega ekki í hyggju að ávarpa mig hvorki á einn né neinn veg, en þar sem mig langaói til að spyrja hana um eitt atriði notaði ég tæki- færið sem bauðst: — Segðu mér Agneta, hvernig vissir þú hvað hafði komið fyrir. Sagði Svenson lögregluþjónn þér frá þvi. Hún fitlaði vandræðalega við kjólinn sinn. — Ég heyrði hann segja við pabba að hann ætti að koma strax út að Árbökkum, þvi að það hefði dálítið komið fyrir. Svo að ég læddist á eftir honum og hitti Huldu. Hún. . . sagði mér frá því. . . Hún taiaði hægt og það var erf- itt að skilja hana. Stúlkan virtist i senn óstyrk og hrædd og ég velti þvi fyrir mér hvort hún væri svona að upplagi, eða hvort at- burður sá, sem gerzt hafði nokkru áður hefði haft svona djúp áhrif á hana. Það var ekki fyrr en nú, þegar ég var hér í þessari vina- legu og myndarlegu dagstofu ásamt tveimur fölleitum kon- um... að ég fór að gera mér grein fyrir því í fullri alvöru hvað hefði gerzt. Málið snerist ekki um venjulegt dauðsfall sem framkall- ar sorg hjá syrgjendum og fær utanaðkomandi til aó reyna í hví- VELVAKAIMOI Velvakandi svarar í sima 10-100 kl. 1 0 30 — 11 30, frá mánudegi til föstudags. 0 Börn einstæðra foreldra beitt hróplegum rangindum Húsmóðir f Breiðholti skrifar: „Það vekur furðu mina að eng- inn skuli hafa kveðið upp úr með það, að gjöld fyrir börn á dagvist- unarstofnunum hækkuðu þann 1. desember upp i 7 þúsund krónur og síðan i 8 þúsund um áramótin. Þann 1. nóvember kostaði 5.800 krónur að hafa barn á dagheimili svo að hækkunin er á milli 30 og 40%. Á þessum tima hefur ekki orðið hækkun á greiðslu með- lags/barnalífeyris og er því svo komið nú, að foreldri sem ekki hefur barn sitt greiðir ekki einu sinni sem svarar þeirri upphæð sem það kostar að hafa barn í gæzlu 8 tíma á dag fimm daga vikunnar. Meðlagið var þann fyrsta desember um 6.600 krónur og óveruleg visitöluhækkun sem greiðist frá 1. marz og aftur til 1. des. verður ekki til meiri hækk- unar en sem svarar um 200 krón- um. Þar sem foreldrum er skylt að framfæra barn sitt sameigin- lega sér hver heilvita maðitr að þarna er hróplegt misræmi, sem ég tel að verði að laga hið skjót- asta. Það er líka oft talað mikið um að bæta kjör lægstlaunaðra og örorku- og ellilífeyrisþega, en hvernig væri að þessir háu herrar reyndu að muna eftir að börn einstæðra foreldra eru vist um ellefu þúsund og mér sýnist ekki vanþörf á að rétta hlul þeirra. Það hefur verið óopinber hefð siðustu ár að meðlag/barnalífeyr- ir og dagvistunargjöld hins vegar fylgdust nokkurn veginn að og um tima var meðlag/barnalífeyr- ir meira að segja fáeinum hundr- uðum króna hærri. Ekki er mér ljóst hvort þetta fylgir einhverj- um útreikningum, en vist er að framfærsla barns kostar — hvort sem það er á dagheimili eða heima hjá sér — meira en rúm- lega þrettán þúsund krónur á mánuði. Að minnsta kosti hef ég ekki heyrt að neinum sé ætlað að lifa af þeirri upphæð — nema þessum viðkomandi börnum. Húsmóðir í Breiðholti." % Malbikió og farartálmar í Laugardal Anna Snorradóttir skrifar: „Kæri Velvakandi. Ég var að koma heim úr göngu- ferð í Laugardalnum. Ég er sem sé Laugarnesbúi og frá því er ég flutti í þetta hverfi fyrir 10 árum, hefi ég haft miklar mætur á Laugardalnum. Nú er verið að skipuleggja allt svæðið eins og flestir þekkja, risin eru mikil íþrótta-mannvirki og alltaf eykst malbikið. í morgun varð ég fyrir þeirri lífsreynslu, að það var búið að glrða fyrir svæði, sem ég er vön að ganga þannig að ég komst ekki inn í dalinn. Égtreysti því að þetta sé einhvers konar bráða- birgða-ráðstöfun og að ekki verði tekin af okkur sú gleði og heilsu- bót, sem það er að ganga alla leið inn undir Álfheima, framhjá gömlu húsunum og garðinum dásamlega, en þar hefi ég átt margar góðar stundir, þegar hann er opinn og að við fáum að hafa þarna venjulega götu upp á gamla móðinn, því að við förum bara í vaðstigvél, þegar blautt er. Það er mikið talað um íþróttir fyrir alla og það er gott. Flestar greinar íþrótta þurfa sérstaka aðstöðu, sem oft kostar mikla peninga, en þeir peningar eru að sjálfsögðu vel gefnir út. Ekki er til dásam- legri staður i Reykjavík en sund- laugarnar í Laugardalnum og fyr- ir þær verður aldrei fullþakk- að. Ef ég væri skáld mundi ég yrkja til þeirra óð. En það er ýmis útivist, sem ekk- ert kostar og eitt af þvi eru gönguferðir. Best er að vísu að fara engar götur, þvi að „veg- leysan hressir betur líkama og sál,“ eins og Sigurður Nordal kemst að orði i einni af sínum frábæru sögum. En stundum eig- um við ekki kost á að komast út fyrir borgina og þá er gott að ganga gamlar götur þar sem puntstráin teygja sig upp með vegkantinum og mjúkt er undir fæti. Ég er hrædd við malbikið. Ég veit að það er nauðsynlegt inni i borgum og bæj- um og ég veit líka, að við eigum langt i land með að sökkva öllu landi undir malbik — samt má Reykjavík vara sig. Það mega ekki fara fleiri græn svæði undir þessa ægilegu steypu. Ég gleymi aldrei samkomu, sem ég var á vestur í Kaliforníu fyrir tveim árum. Það var verið að fjalla um umhverfismál. Fólkið bókstaflega hrópaði: Ekki meira af malbiki! Ekki fleiri hraðbraut- ir! Forðið okkur frá meiri stein- steypu! og þar fram eftir götun- um. Þetta voru hálfgerð angistar- óp. enda er kannske meira af mal- biki í þessum heimshluta en viða annars staðar. Þetta hafði mikil áhrif á mig og ég hefi ekki getað gleymt þessum atburði. Þegar ég geng gamlar götur þar sem næst- um allt er eins og það var í upp- hafi, hvort heldur er blautt eða þurrt, hvort heldur ég sekk í leðj- una eða tipla á mjúkum grassverðinum hugsa ég um þetta. Einhver mun segja að mal- bikið sé nú eitthvað þrifalegra og það er alveg rétt. En hvernig myndi okkur ganga að faðma ást- vin okkar, sem dottinn væri ofan í múraðan skorstein? Elskulegu karlar, sem ráðið ör- lögum Laugardalsins! (ég geri ekki ráð fyrir neinni konu í þvi ráðiVLeyfið okkur að halda, þótt ekki væri nema mjórri rennu eða ræmu af ósnortinni náttúru þar sem við megum ganga alla leið inn undir Álfheima. Við þurfum ekki skokk-brautir skipulagðar af sérfræðingum, aðeins landræmu sem ekki er skipulögð og ekkert er gert við, bara friðuð fyrir fót- gangandi manneskjur. Með þökk og kveðju, Anna Snorradóttir." £ Fjölmiðlar og skákmótið í Tallin Markús Guðmundsson skip- stjóri hafði samband við Velvak- anda og var tilefnið skákmótið I Tallin, blaðaskrif og útvarpsfrétt- ir af því. Markús sagðist vera mik- ið á móti þvi aó sífellt væri verið að hafa samband við þá, sem taka þátt í keppnum og iþróttamótum, gera þá að hetjum, hampa þeim fyrir fram, hafa símasamband við þá mörgum sinnum á sólarhring o.s.frv. Hann sagðist vera viss um að þetta yrði einungis til þess að trufla viðkomandi íþróttamenn og leggja á þá aukaálag, sem svo aftur gæti komið niður á árangri mrra i keppni. Markús sagði að h.Kum: „Ég vil lika gagnrýna allar þess- ar bollaleggingar um endanlega nióurstöðu skákmótsins. Það fer ekki hjá þvi að allt þetta mikla umtal truflar keppandann og að mínum dómi á að láta hann i friði. Álag á svona móti er nógu mikið, þótt blöð og útvarp auki ekki á það að óþörfu.“ Byggingarmenn mótmæla MBL. hefur borizt ályktun stjórnar Sambands byggingar- manna frá 5. marz s.l. Þar er mótmælt harðlega aðgerðum rikisstjórnarinnar f efnahags- málum og talið að með síðustu ráðstöfunum sé stefnt að atvinnu- leysi í þjónustugreinum svo sem húsgagnagerð og byggingariðn- aði, þar sem nú hafi atvinnuleysis gætt í fyrsta skipti í fjögur ár. Stjórn sambandsins telur af- stöðu atvinnurekenda til samii- ingamála á síðustu mánuðum sýna, að ríkisstjórnin og atvinnu- rekendur vinni nú sameiginlega gegn hagsmunum verkalýðsins. Þá er lýst stuðningi við ályktun kjaramálaráðstefnu ASÍ og hvet- ur stjórnin eindregið aðildarfélög Sambands byggingarmanna til að verða við áskorun ASI um öflun heimilda til verkfallsboðunar og vera viðbúin að beita slíkum heimildum, ef nauðsyn krefur. Leiðsögunám- skeið að hefjast FERÐASKRIFSTOFA ríkisins efnir á næstunni til námskeiðs fyrir leiðsögumenn erlendra ferðamanna, eins og verið hefur undanfarin ár. Námskeiðið hefst 13. marz n.k. Kennt verður á mánudags- og fimmtudags- kvöldum í 10 vikur. Þátttakendur i námskeiðinu þurfa að geta tjáð sig vel á a.m.k. einu erlendu tungumáli, en í frétt frá Ferðaskrifstofunni segir, að sé um ensku að ræða, sé æskilegt að hafa einnig vald á öðru máli. Liður i námskeiðinu eru kynnisferðir um Reykjavik, Suðurnes, að Gullfossi og Geysi, og verða nemendur þar þjálfaðir í leiðsögn. Innritun hefst 13. marz i afgreiðslu Ferðaskrifstofunnar að Reykjanesbraut 6, og er innrit- unargjald kr. 4.800. 1YNDAMÓT HFÍ AÐALSTRÆTI 6 — REYKJAVlK ^PRENTMYNOAGERO S'MI 17152^ KAUOLÝSINGATEIKNISTOFA . SIVI 2S810 BOSCH PRUFUDÆLA FYRIR ELDSNEYTI- L0KA At Tiestum stæðuin og gerðum. BOSCH VARAHLUTAVERSUIN BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGIVILILA 9 SÍMI 38820

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.