Morgunblaðið - 11.03.1975, Qupperneq 19
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11, MARZ 1975
2. DEILD
Þorleifur Ananfasson, hinn lagni Ifnumaður KA skorar f leikn-
um á móti Fylki.
Fylkir - KA 23-27
EINS OG menn efiaust muna sigraði Fylkir úr Árbæjarhverfi KR á
dögunum í 2. deild með 30 mörkum gegn 29. Það var því talsverð
eftirvænting hjá mönnum hvort Fylki tækist að leggja KA eitt
toppliðanna í deildinni að velli þegar liðin mættust í Laugardalshöllinni
á laugardag. En spennan varð aldrei slík sem fólk átti von á, til þess
voru yfirburðir Akureyringanna of miklir.
Það var aðeins í byrjun leiksins sem Fylkir hélt í við KA. Akureyr-
ingarnir skoruðu fyrsta markið en Fylkir jafnaði þegar í stað. Enn var
jafnt þegar um tíu mín. voru liðnar af leik, 4—4, en þá tóku
Akureyringarnir við sér og höfðu örugga forystu í hálfleik, 1 5 mörk
gegn 9.
Framan af síðari hálfleik hélt KA enn áfram að auka forskot sitt.
Akureyringarnir höfðu mest tíu mörk yfir, 21 gegn 11, þegar síðari
hálfleikur var tæplega hálfnaður. Það sem eftir var leiksins slökuðu
Akureyringarnir heldur á þannig að Fylkir hafði minnkað muninn niður
t fjögur mörk þegar blásið var til leiksloka, 27 mörk gegn 23 fyrir KA.
Lið KA er greinilega eitt hið sterkasta í 2. deildinni í ár. Eiginlega eru
það þrjú lið sem hafa skorið sig úr í vetur, en það eru KA, Þróttur og
KR. Hin liðin í deildinni virðast ekki hafa yfir sama styrkleika að ráða,
en flest þeirra virðast þó á réttri leið. Einkum hafa framfarir Fylkis og
Stjörnunnar úr Garðahreppi verið örar upp á síðkastið
í leiknum á laugardag voru það einkum þrír leikmenn KA sem báru
höfuð og herðar yfir aðra leikmenn. Þeir voru Þorleifur Ananíasson,
sem er með snjallari línumönnum landsins, Halldór Rafnsson og
Hörður Hilmarsson. Annars felst höfuðstyrkleiki liðsins í því hve
jafngóðir leikmennirnir eru.
Eins og fyrr getur hefir Fylkir sótt mjög í sig veðrið upp á síðkastið.
Liðsmenn hafa yfir mikium baráttuvilja að ráða, og einnig hefir allt
þeirra leikskipulag tekið miklum framförum. Bestu menn Fylkis í
leiknum gegn KA voru Einar Ágústsson og Birgir Guðjónsson. Aftur á
móti var risinn Einar Einarsson óvenju daufur. Það hlýtur að vera unnt
að ná meiru út úr honum.
Mörkin: KA: Þorleifur 10, Hörður 8, Halldór og Haraldur Haraldsson
3 hvor, Geir Friðgeirsson 2 og Jóhann Einarsson eitt mark.
Fylkir: Einar Ágústsson 8, Birgir 5, Steinar Birgisson 4, Guðmundur
Sigurbjörnsson 2, Einar Einarsson, Sigurður Símonarson, Rolf Hansen
og Gísli Halldórsson eitt mark hver. Sigb.G.
UBK - ÍBK 22-20
BREIÐABLIK vann sætan sigur yfir Keflvikingum í 2. deildar keppninni
í handknattleik, er liðin mættust í Ásgarði á laugardaginn. Með
þessum sigri gulltryggðu Breiðabliksmenn sæti sitt i 2. deild, og það
verður að segjast eins og er að skaði hefði verið ef liðið hefði fallið i 3.
deild, þar sem það hefur burði til þess að láta meira um sig muna en
það hefur gert i vetur.
Leikurinn á laugardaginn var mjög þokkalega leikinn og öðru hverju
brá fyrir skemmtilegu og vel hugsuðu línuspili hjá báðum aðilum.
Lengst af var leikurinn i miklu jafnvægi, en Breiðabliksmenn þó
jafnan fyrrí til að skora. Höfðu þeir '.vö mörk yfir i hálfleik, 12:10, og i
seinni hálfleik náðu þeir um tima þriggja marka forystu er staðan var
17:14. Þá tóku KefIvikíngar sig heldur betur á. Léku þeir ágætlega um
tima og tókst að jafn og meira segja að gera betur, er staðan var 18:17
fyrir þá, er um 10 minútur voru til leiksloka. En ekki náðu þeir að
fylgja þessum góða leikkafla sinum eftir. Breiðablik náðí aftur
forystunni on seío f»ammúr á lokamínútunum.
í lið Keflavíkur vantaði þá Þorstein Ólafsson og Ástráð Gunnarsson,
en eigi að siður náði liðið allgóðum leik, og er greinilegt að leikmenn
þess eru i framför og gætu þeir æft við sæmileg skilyrði er ekki vafi á
því að þarna kæmi fram gott handknattleikslið. Beztir i liðinu voru þeir
Grétar Grétarsson, Sigurbjörn Gústafsson og Sævar Halldórsson, en
markvörðurinn, Hjörtur Kristinsson, varði oft ágætlega.
í Breiðabliksliðinu áttu þeir Sigurjón Randversson, Diðrik Ólafsson
og Páll Eyvindsson einna beztan leik. Þá var markakóngurinn, Hörður
Már Kristjánsson einnig atkvæðamikill, en skotanýting hans i þessum
leik var þó með afbrigðum slæm.
MÖRK UBK: Hörður Már Kristjánsson 7, Diðrik Ólafsson 4, Páll
Eyvindsson 4, Sigurjón Randversson 2, Steinþór Steinþórsson 2,
Valdimar Bergsson 1, Bjarni Bjarnason 1, Valdimar Valdimarsson 1.
MORK ÍBK: Grétar Grétarsson 7, Þorsteinn Geirharðsson 3, Sigur-
björn Gústafsson 3, Sævar Halldórsson 2, Sverrir Einarsson 2, Steinar
Jóhannsson 2, Atli Þorteinsson 1. __st:i
TTm IINN RI.ASIR
VIÐ VIKINGUNIIM
íslandsmeistaratitillinn í hand-
knatlleik blasir við Víkingunum
eftir sigur þeirra yfir FH-ingum
20:17 í 1. deildar keppninni á
sunnudagskvöldið. Þurfa Víking-
ar aðeins jafntefli í síðasta leik
sínum í mótinu sem verður við
Valsmenn annað kvöld (il þess að
titillinn sé þeirra, og það nægir
þeim einnig að Valsmenn tapi
einu stigi til FH-inga í síðasta
leik mótsins, ef svo færi að Valur
sigraði í leiknum á morgun. Mega
málin verða Víkingum heldur
öfugsnúin ef svo verður ekki að
þeir hijóti titilinn að þessu sinni,
en auðvitað getur þó allt gerst.
Sigur Víkinga yfir l’H-ingum
kom nokkuð á óvart, ekki sízt
þegar þess er gætt að FH-ingar
léku á heimavelli sínum, í Iþrótta-
húsinu I Hafnarfirói. Margur
hafði orðið til þess að spá fyrir
um það að Vikingarnir myndu
ekki þola þá miklu spennu sem
var óhjákvæmileg i svo mikilvæg-
um leik, en strax á fyrstu mínút-
unum settu Vfkingarnir upp
spariandlít sitt og héldu því leik-
inn út. Komust FH-ingar aldrei
yfir í leiknum og eftir atvikum
var 3 marka sigur Víkings verð-
skuldaður, jafnvel þótt leikurinn
væri lengst af mjög jafn og mikill
barningur i honum.
Ahorfendur, sem troðfylltu
Iþróttahúsið í Hafnarfirði, þurftu
ekki að bíða lengi til þess að sjá
að stórskytta Víkinganna, Einar
Magnússon var í miklum ham í
þessum leik. Þegar á upphafs-
minútum leiksins höfnuðu nokk-
ur stórglæsileg skot hans óverj-
andi i FH-markinu, og þetta varð
til þess að FH-ingar voru nauð-
beygóir til þess að taka Einar úr
umferð. Við það komst óæskilegt
los á vörn liðsins, og það tókst
Víkingunum bærilega að nota sér
i þessum leik. Stefán, Páll og
Viggó ógnuðu stöðugt og hvað eft-
ir annað var FH-vörnin í hrein-
ustu vandræðum. Við raunir
hennar bættist svo að markvarzl-
an var heldur léleg þegar á heild-
ina er litið. Birgir Finnbogason,
sem var í markinu til að byrja
með, varói ekki skot, og Hjalti var
fremur mistækur. Varði stundum
stórglæsilega, en sleppti síðán inn
hjá sér skotum, sem maður hefði
haldið að hann réði við. Var það
einkum Stéfán Halldórsson sem
var drjúgur við að skora á hann,
og komu flest mörkin sem hann
skoraði á sama hátt. Hlaup inn í
vörnina uppstökk og síðan snöggt
i gólfið rétt við fætur markmanns-
ins.
Varnarleikur Víkinganna var
einnig allgóður í þessum leik, en
þó ekki svo að FH-ingum hefði átt
að takast að skora fleiri mörk,
hefði verið meiri broddur í sókn
þeirra en raun bar vitni. Sóknar-
leikurinn hjá FH var of fálm-
kenndur og mikið bar á hnoði
inn í vörnina. Þá fengu Vfking-
arnir oft tækifæri til þess að
„pressa" sóknir FH-inga, sem
voru þá of óákveðnir að stinga
sér inn á milli þeirra. Það var
helzt er Geir Hallsteinsson var
inná að FH-ingarnir létu knöttinn
ganga sæmilega hrátt á milli sín
án niðurstungna og notuðu vel
breidd vallarins. Geir var hins
vegar lítið með, enda varð hann
fyrir höggi á andlitið þegar á upp-
hafsmínútum leiksins, en sem
kunnugt er þá er hann þar veikur
fyrir, eftir meiðslin sem hann
hlaut í leiknum við ASK Vorwarts
í Evrópubikarkeppninni.
Því er ekki að neita að FH-liðið
hefur valdið nokkrum vonbrigð-
um í vetur og er frammistaða þess
raunar staðfesting á því, að það
lið sem stendur í Evrópubikar-
keppni á skerta möguleika í Is-
landsmótinu, og sennilega þeim
mun minni sem lengra er haldið
þar. Þá hefur það ugglaust haft
slæm áhrif á liðið að þurfa að
skipta um þjálfara á miðjum
vetri, og auk þess hafa svo verið
nokkur meiðsli í liðinu.
Sem fyrr greinir sýndu Víking-
arnir öðru hverju afbragðsgóða
takta i leiknum á sunnudags-
kvöldið, og léku af yfirvegun í
sókn og vörn þegar þess þurfti
með. Bezti maður liðsins var Rós-
mundur Jónsson markvörður,
sem átti þarna einn sinn allra
bezta leik í langan tíma, og varði
ótrúlegustu skot frá FH-ingum,
m.a. tvö vítaköst. Frammistaða
Rósmundar i leik þessum undir-
strikar þá staðreynd að góður
markvörður getur algjörlega ráð-
ið úrslitum leikja, og er, eins og
sumir segja, helmingur liðsins.
Verði Rósmundur í jafngóðu
formi í leiknum á móti Val annað
kvöld, er örugglega óhætt að spá
Vfkingssigri, a.m.k. ef leikmenn
liðsins halda eins vel ró sinni og
leika jafn skynsamlega og þeir ,
gerðu í leiknum í Hafnarfirði á
sunnudagskvöldið. Vfkingsliðið
hefur tekið gífurlega miklum
framförum í vetur, og þá sérstak-
lega i varnarleik sínum, en á
undanförnum árum hefur slök
vörn Víkingsliðsins öðru fremur
verið þess valdandi að liðið hefur
ekki verið að berjast i hópi þeirra
allra beztu.
LIÐ FH: Hjalti Einarsson 2, Geir Hallsteinsson 2, Sæmundur
Stefánsson 2, Viðar Símonarson 3, Gils Stefánsson 2, Guðmund-
ur Stefánsson 2, Arni Guðjónsson 1, Kristján Stefánsson 1,
Gunnar Einarsson 3, Úlafur Einarsson 1, Þórarinn Ragnarsson
1, Birgir Finnbogason 1.
LIÐ VlKINGS: Rósmundur Jónsson 4, Jón Sigurðsson 1, Einar
Magnússon 3, Magnús Guðmundsson 1, Skarphéðinn Úskarsson
2, Sigfús Guðmundsson 2, Páll Björgvinsson 2, Stefán Halldórs-
son 4, Þorbergur Aðalsteinsson 1, Viggó Sigurðsson 2, Sigurgeir
Sigurðsson 1.
í STUTTU MÁLI:
Islandsmótið 1. deild
lþróttahúsið i Hafnarfirði 9. marz
llrslit: FH — Vlkingur 17:20 (10:11)
Jón Astvaldsson, Armenningur kastar sér inn af Ifnunni I leiknum við Hauka, át. þess að Hörður og
Hilmar nái að hindra hann.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975
19
Stefán Halldórsson var erfiður fyrir FH-inga I leiknum á sunnudagskvöld og skoraði mörg mörk. Þarna er
hann að smeygja sér milli bræðranna Úlafs og Gunnars Einarssona.
Gangur leiksins: 30. 9:11 Páli MÖRK FH: Gunnar Einarsson 5, Viðar
Mfn. FH Víkingur 30. Gunnar 10:11 Sfmonarson 5, Geir Hallsteinsson 2, ólafur
1. 0:1 Einar Einarsson 2, Gils Stefánsson 2, Þórarinn
5. 0:2 Stefán Ragnarsson 1.
6. Gunnar 1:2 Hálfleikur MÖRK VlKINGS: Stefán Halldórsson 8,
7. 1:3 Einar 33. 10:12 ! Stefán Einar Magnússon 5, Páll Björgvinsson 3,
9. Gils 2:3 34. Gunnar 11:12 Viggó Sigurðsson 3, Magnús Guðmundsson 1.
9. 2:4 Einar 36. 11:13 Stefán BROTTVlSANIR AF VELLI: Einar
10. Ölafur 3:4 41. Gils 12:13 Magnússon, Vfking f 2 mfn., Kristján
11. 3:5 Stefán 42. Geir 13:13 Stefánsson, FH f 2 mfn.
13. Gunnar 4:5 46. 13:14 Páll (v) MISHEPPNUÐ VlTAKÖST: Hjalti Einars-
16. ólafur 5:5 50. Viðar(v) 14:14 son varði vítaköst frá Stefáni Halldórssyni á
17. 5:6 Stefán 51. 14:15 Páll 24. mfn. og á 41. mfn. Einar Magnússon skaut
18. 5:7 Stefán 52. 14:16 Stefán yfir úr vftakasti á 35. mfn. Rósmundur Jóns-
19. Geir 6:7 53. Gunnar (v) 15:16 son varði vftaköst frá Þórarni Ragnarssyni á
20. 6:8 Viggð 56. Viðar (v) 16:16 25. mín og á 60. mfn.
20. Viðar 7:8 56. 16:17 Viggó DÓMARAR: Kristján örn Ingibergsson og
22. Viðar 8:8 57. 16:18 Stefán Jón Friðsteinsson. Þeir höfðu nokkuð góð tök
27. 8:9 Einar 58. 16:19 IVlagnús á leiknum, en gerðu of margar skyssur,
29. 8:10 Einar (v) 60. 16:20 Viggó1 sennilega vegna sýnilegs taugaslappleika.
29. Viðar 9:10 60. Þórarinn (v) 17:20 —stjl.
Haukarnir misstu
leikinn í jafntefli
KÆRULEVSI og klaufaskapur
varð þess valdandi að Haukarnir
urðu að sjá af öðru stiginu í leik
sínum við Ármenninga í Iþrótta-
húsinu í Hafnarfirði á sunnu-
dagskvöldið. Lengst af í þessum
leik höfðu Haukarnir góða for-
ystu, allt upp í 6 mörk um miðjan
seinni hálfleik, en undir lokin
var sem allur vindur væri úr lið-
inu. Það virtisl telja sér sigurinn
vísan og afleiðingin varð svo sú að
Ármenningarnir tóku að saxa á
forskolið og örfáum sekúndum
fyrir leikslok tókst Birni
Jóhannessyni, fyrirliða og að-
aldriffjöður Armannsiiðsins í
þessum leik, að senda knöttinn í
llaukamarkið og jafna 22:22.
Haukarnir hófu þennan leik af
miklum krafti og virtist sama sag-
an og í fyrri leik liðanna í mótinu
ætla að endurtaka sig, en þá
sýndu Haukarnir ágætan hand-
knattleik og unnu yfirburða sig-
ur. Eftir fyrstu 18 mínúturnar
höfðu Haukarnir t.d. sex mörk
yfir er staðan var 9:3, en undir
lok hálfleiksins lóku Armenning-
ar sig á og minnkuðu muninn i
fjögur mörk. Léku Haukarnir oft
ágætlega i hálfleiknum, sérstak-
Lega í vörninni og góð ógnun var i
sóknarleik þeirra, sérstaklega
vegna frammistöðu hins unga
Ingimars Haraldssonar, sem
aldrei mátti sleppa úr gæzlu á
línunni eitt einasta andartak, án
þess að það kostaði mark eða víta-
kast. Voru Armenningar fremur
daufir i dálkinn og þá baráttu
sem einkennt hefur varnarleik
þeirra vantaði, en það er hún öðru
fremur sem fært hefur liðinu
sigra yfir sterkustu liðununt í 1.
deildinni i vetui'. Auk þess tóku
Armenningar of mikla áhættu í
sóknarleik sinum, og þá sérstak-
lega Jens Jensson, sem virtist
telja það skyldu sína að skjóta i
hvert einasta skipti sem hann
fékk knöttinn. Reyndi hann t.d.
5—6 sinnum að skjóta á fyrstu
mínútum leiksins en hafði ekki
árangur sem erfiði. Var þaó ekki
fyrr en í seinni hálíleiknum sem
hann fór að vanda geróir sinar, og
þá kom árangurinn lika í ljós.
Armenningar fóru fyrst aö fá
verulegan áhuga á leiknum, þeg-
ar þeir tóku að saxa á forskot
llaukanna og í iokakafla leiksins
sýndu þeir sitt rétta andlit. Gerðu
hættulegustu menn Haukanna:
Hörð, Stefán og Elías að mestu
óvirka, með því að stöðva þá nógu
framarlega og koma í veg fyrir
hlaup þeirra fyrir framan vörn-
ina, sem oft hafði opnað mikið, og
í sókninni var allt sett á fullaferð.
Þegar 2 mínútur voru til leiksloka
Framhald á bls. 21.
LIÐ HAUKA: Úlafur Tómasson 1, Svavar Geirssoi 1, Ingimar
Ilaraldsson 3, Úlafur Úlafsson 1, Stefán Jónsson 2, Hilmar
Knútsson 1, Frosti Sæmundsson 1, llörður Sigmarsson 3, Elías
Jónasson 3, Gunnar Einarsson 2, Þorgeir Haraldsson 1, Arnór
Guðmundsson 1.
LIÐ ÁRMANNS: Ragnar Gunnarsson 2, Stefán Ilafstein 2, Björn
Jóhannesson 3, Olfert Naabye 1, Hörður Harðarson 3, Jón
Ástvaldsson 1, Hörður Kristinsson 2, Jens Jensson 1, Kristinn
Ingólfsson 2, Skafti Halldórsson 1.
Fylkir — Þór 20—16
ÞAÐ ER á öllu greinilegt a8 Ii8 Fylkis er á mikilli upplei8, og a8 me8 þessu áframhaldi er
Ii8i8 a8 verSa eitt hi8 sterkasta i 2, deild. Á sunnudaginn gerSu piltarnir úr Árbæjarhverfi
sér lítið fyrir og sigruSu Þór frá Akureyri næsta auSveldlega me8 20 mörkum gegn 16.
Fylkir ná8i þegar í upphafi öruggri forystu, komst i fjögur mörk gegn engu, og Ii8i8
hélt þessari forystu út allan leikinn. Mest hafSi Fylkir sex mörk yfir, 10 gegn 4, þegar
tuttugu min. voru af leik. í hálfleik var staSan 13 mörk gegn 9, fjögurra marka munur,
og sami munur var þegar upp var sta8i3, 20 mörk gegn 1 6 fyrir Fylki.
Fylkir lék á tiSum prýSilegan handknattleik á sunnudag. ÞaS gætir mun meiri rósemi i
leik liSsins nú en fyrr i vetur, og leikskipulag er allt annaS og betra. Nafnarnir, Einar
Einarsson og Einar Ágústsson, eru sem fyrr bestu menn liSsins, þó finnst undirrituSum
a8 Einar Einarsson ætti a8 geta mun meira, til þess hefir hann alla vega næga burSi Þá
hefir Steinar Birgisson tekiS miklum framförum i vetur og er a8 verSa einn allra
hættulegasti ma8ur liSsins. í leiknum gegn Þór átti markvörSurinn, Arnþór Óskarsson,
og ágætan leik.
Li8 Þórs hefir valdiS miklum vonbrigSum siSari hluta vetrar. ÞaS er eins og
leikmennirnir hafi engan áhuga á þvi sem þeir eru a8 gera, heldur biSi bara eftir a8
timinn Ii8i. Ef til vill skiljanlegt þar sem Ii3i8 hefir enga möguleika til sigurs i deildinni.
Dómarar voru Kjartan Steinback og Sveinn Kristjánsson og vöktu margir dóma Sveins
furSu viðstaddra.
Mörkin. Fylkir: Einar Einarsson 7, Steinar 5, Einar Ágústsson 4(3v), Birgir Guðjónsson
3, Guðmundur Sigurbjörnsson eitt mark.
Þór: Gunnar Gunnarsson 5(1v), Benedikt Guðmundsson 4(1v), Árni Gunnarsson 3,
Aðalsteinn Sigurgeirsson og Jón Sigurðsson 2 hvor. Sigb G
Stjarnan — Þór 16—22
ÞAÐ VAR heldur óburðugur handknattleikur sem Stjarnan og Þór buðu upp á i leik
sinum í 2. deildar keppninni i Ásgarði á laugardaginn. Þórsarar virtust ekki hafa mikinn
áhuga á leiknum, enda skiptu úrslit hans litlu máli fyrir þá, og Stjörnuliðið lék nú verr en
það hefur gert i leikjum sinum að undanförnu, og virtist stundum sem leikmennirnir
væru að snerta á glóandi járni þegar þeir komu við knöttinn. Er ekki ósennilegt að
mikilvægi leiksins fyrir þá hafi gert þá nokkuð taugaóstyrka, en með sigri I leiknum hélt
Stjarnan enn I vonina að halda sér I 2. deild. Við raunir Stjörnumanna bættist að
Guðmundur Ingvason, leikmaðurinn sem spil liðsins snýst venjulega í kringum kom ekki
til leiksins fyrr en fyrri hálfleikur var langt kominn, og að Gunnar Björnsson,
aðalmarkaskorari liðsins, var greinilega ekki vel upplagður.
Stjarnan hafði forystuna i leiknum I fyrstu, en brátt kom að þvi að Þór fór að leika
betur og náði þá fljótlega 3 marka forystu. Eftir það jafnaðist leikurinn aftur, Stjarnan
náði að minnka muninn niður i eitt mark, en Þór skoraði svo þrjú siðustu mörkin i
hálfleiknum og var staðan 11 —7 Akureyrarliðinu í vil, þegar flautað var til leikhlés.
Seinni hálfleíkurinn var til muna skárri en hinn fyrri. Bæði liðin náðu þá að leika
allgóðan handknattleik á köflum. Þör hafði jafnan örugga forystu og var staðan t.d.
1 7—13, þegar 1 2 minútur voru til leiksloka. Þá skoraði Þór 3 mörk i röð og var þar með
gert út um leikinn. Lokatölur urðu 22—16 fyrir Þór og voru það mjög eðlileg úrslit
miðað við gang leiksins.
Beztu menn Þórsliðsins i þessum leik voru þeir Árni Gunnarsson og Benedikt
Guðmundsson, en einnig vakti hinn hávaxni Jón Sigurðsson athygli. Þar er á ferð
leikmaður sem gæti látið að sér kveða i framtíðinni.
í Stjörnuliðinu átti Kristinn Rafnsson markvörður einna beztan leik, en Kristján
Ólason og Magnús Teitsson komust einnig vel frá leiknum.
Mörk Stjörnunnar: Karl Danielsson 6 (5v), Guðfinnur Sigurðsson 3, Magnús Teitsson
2, Kristján Ólason 1, Magnús Andrésson 1, Gunnar Björnsson 1, Jón Jörundsson 1,
Guðmundur Ingvason 1.
Mörk Þórs: Benedikt Guðmundsson 6, Þorbjörn Jensson 4, Árni Gunnarsson 4 (1v),
Jón Sigurðsson 3, Aðalsteinn Sigurgeirsson 3 (1 v), Gunnar Gunnarsson 2.
-stjl.
Stjarnan — KA 22 — 33
LEIKUR Stjörnunnar og KA gat ekki hafist á réttum tíma vegna þess að engir dómarar
voru mættir. Loks tókst þó að fá dómara, þó aðeins einn, og var sá Elias Jónasson og
dæmdi hann ágætlega. Annars er það að verða alvarlegt mál hve algengt það er að
dómarar mæti seint til leiks eða alls ekki. T.d. gerðist það fyrir skömmu að 2. deildar lið
KA, kvennaflokkur, varð að fara norður aftur án þess að leika, vegna þess að skráðir
dómarar mættu ekki, og aðrir voru ekki fáanlegir til að hlaupa i skarðið. Þessi mál verður
að taka föstum tökum.
Leikur Stjörnunnar og KA var siðasti leikur beggja liðanna i deildinni. Fyrir leikinn var
Ijóst að Stjarnan var fallin, en KA heldur enn i vonina um sigur i deildinni.
Leikurinn i heild var annars ekkert til að hrópa húrra fyrir. KA hafði ávallt forystu, og
er skemmst frá þvi að segja að Akureyringarnir sigruðu með 33 mörkum gegn 22 eftir að
hafa haft yfir i hálfleik 1 5 mörk gegn 10.
Sóknarleikur KA er mjög beittur og skemmtilegur, en vörnin er ekki eins sterk. Liðið i
heild er fremur jafnt, og ætti fyllilega erindi i 1. deild, allavega standa tvö til þrjú liðanna
i 2. deild mörgum 1. deildar liðanna sist að baki. Sem fyrr átti linumaðurinn snjalli
Þorleifur Ananiasson ágætan leik. Þá átti Jóhann Jakobsson einn sinn besta leik i vetur.
Þó svo að lið Stjörnunnar hafi hlotið það hlutskipti að falla niður i 3. deild er óþarfi
fyrir liðið að órvænta um framtiðina. Flestir ieikmannanna eru kornungir og auk þess á
Stjarnan sterka yngri flokka. Kristján Ólason og Gunnar Björnsson voru bestir Stjörnu-
manna.
Mörkin. KA: Þorleifur og Geir Friðgeirsson 6 hvor, Jóhann Jakobsson og Hörður
Hilmarsson 5 hvor, Halldór Rafnsson 4 (2v), Jóhann Einarsson 3, Hermann Haraldsson
2, Haraldur Haraldsson og Guðmundur Lárusson (v) eitt mark hvor.
Stjarnan: Kristján 7, Gunnar 6, Guðmundur Ingvason, Magnús Teitsson og Magnús
Andrésson 2 hver, Karl Daníelsson, Geir Ingimarsson og Árni Benediktsson eitt mark
Arni Arnason, Stjörnunni kominn f færi í leiknum við KA