Alþýðublaðið - 02.09.1958, Síða 9
Jþriðjudagur 2. september 1958
A11 ý SuhlaSíS
SsSaodsmótið:
Sigra Fram með 6 mörkum gegn 4 í ]öfn
um og skemmtiiegum úrslitaleik.
ÚRSLITALEIKUR íslands-
mótsins fór fram á sunnudag
inn og var milli Akurnesinga
og Fram. Akurnesingar áttu
sigri að fagna og héldu þar
með meistaratitlinum „Bezta
knattspyrnufélag íslands", En
Fram kom á óvart með hörð-
um óg skemmtilegum leik, ein.
um þeim bezta sem Framliðið
hefur sýnt lengi. Um tíma
stóðu leikar 3:1 Fram í vil.
Ingí’Eyvinds dæmdj leikinn og
fórst það yfirleitt vel. Áhorf
endur voru margir, enda veð
ur mjög sæmilegt, en þó var
nokkur goia á annað markið.
Akurnesingar unnu hlutkestið
og völdu að leika undan gol-
unni.
FYRRI HÁLFLEIKUR 4:3.
Þrátt fyrir að Fram
ætti gegn vindi að sækja í þess
um hálfleik þá tókst þeim hvað
eftir annað prýðilega upp og
sýndu jafnbetri leik en mót-
herjarnir, sem' ekki nýttust
sem skyldj af byrnum.
Á 3. mínútu kom fyrsta
markskot leiksins, var það frá
Ríkharði, en það fór fram hjá.
Fram átti gott upphlaup
rétt á eftir en sóknin var ekki
nógu ákveðin, til að gefa ár-
angur. Skömmu síðar er
Fram aftur í sókn, sem á upp
tök sín hjá Guðmundi Óskars
syni, að honum sækja tveir
Skagamenn, en hann sendir
örugglega- framhjá þeim og
upp kantinn til Dagbjartar,
sem síðan gefur fyrir til Björg
vins sem er ve] staðsettur og
skallar á markið og skorar.
Helgi virtist ekki átta sig á
hvað var að ske, að minnsta
kosti tókst honum ekki að
koma neinum vörnum við.
Skagamenn sækja nú fast fram
og Þórður Þórðarson kemst í
skotfæri og hörkubolti stefnir
að marki, en Ge'r varði vel,
og aftur stuttu síðar endur-
tekur Þórður það sama og aft
ur ver Geir örugglega. Þarna
skaut Þórður einum of fljótt,
hann hafði tíma ti] að komast
nær, áður en hann hleypti af.
Á 14. mínútu jafna Skaga-
menn, og enn var Þórður
Þórðarson að verki. Halldór
miðframvörður Fram átti í
höggi við hann og missti af
honum. Geir var ekki nógu
ÍJjjótur út og Þ'órður skorar
með föstu skoti.
Þetta var á 14. mínútu leiks
ins, en líða svo 7 mínútur, þá
skora Frammarar aftur. Það
var góð samvinna þeirra Guð
mundar Óskarssonar, Eiðs
Ðalbergs og Björgvins Árna-
sonar sem gaf Fram þetta
mark, en Björgvin skoraði. Um
]eið og leikur hefst að nýju
eru Skagamenn komnir í sókn,
og Ríkharður á hörkuskot
beint á markið, en Geir snai’ast
út gegn skotinu og 'knöt.tur
lendir á honum. Þarna bjarg
aði Geir mjög vel, eins og oft
ar í leiknum. Eins og t. d. þag
ar hann sló yfir fasta spymu
frá Guðjóni Finnbogasyni.
Enn skora Frammarar, og nú
fyrir næsta óvenjuleg mistök
Helga Da'níelssonar, há send-
ing kemur að marki, hann
grípur knöttinn en Björgvin
Árnason sækir að um leið,
Helgj kastar knettinum niður
og missir af honum, Björgvin
nær honum, og sendir í mann
laust mairkið. Stóðu nú leikar
3:1 fyrir Fram og var svo góða
stund. Enn sækja Skagamenn
fast á, Þórður Þórðarson á fast
skot, sem Geir ver í horn, og
enn stuttu síðar ver Guðjón v.
framvörður á línu Frammarks
ins. Skagamenn eru farnir að
herða róðurinn.
Á 34. mínútu eiga Framarar
góða sóknarlotu, þar sem Dag-
bjartur, Guðmundur Óskars
son og Björgvin virma vel sam
an, þeir komast í markfæri en
Björgvin skýtur fram hjá.
Upphlaup Skagamanna þegar
á eftir skapar Ríkharð; opná
skotaðstöðu eftir sendingu
Þórðar bróður hans, en hann
misnotar tækifærið með fram
hjá skoti.
Sóknharka Skagamanna
ej'kst nú hratt. Þeir fá horn-
spyrnu á 36. mínútu sem Þórð
ur Þórðarson skallar ljómandi
vel úr og skoirar og á 40 mín
útu jafnar hann svo reiknlng-
ana við Fram með hörkuskoti
og rétt fyrir hálfleikslok legg
ur hann inn hjá þeim eitt mark
í viðbót til næsta hálfleiks, var
það einnig gert með snöggum
skalla. Og hálfleiknum, sem
hafði byrjað svo vel hjá Fram,
og staðið svo glæsilega um
tíma endað] með sigri Skaga-
manna 4:3.
SEINNI HÁLFLEIKUR 2:1 •-
Fram náði ekki eins skemmti
legum leik í þessum hálfleik
og í þeim fyrri, vindurinn sem
var svipaður og áður kom þeim
ekki að miklu gagni. En Skaga
menn náðu hins vegar betri
og öruggari leik gegn vindinum
en áður með honum.
Er 5 mínútur voru af leikn-
um skora þeir fyrra mark sitt
þeir Þórður Þ. og Ríkharður
unnu að því, en Ríkharður
sendi knöttinn i’nn. Skömmu
síðar á Þórður Þórðarson góða
fyrirsendingu utan af kanti,
Geir varpar sér eftir knettin-
um en missti hann. og hann fer
fyrir fætur Helga Björgvins-
sonar, sem skorar auðveld-
lega.
Þá á Halldór Sigurbjörnsson
fast skot í 'stöng eftir sendingu
Ríkharðs en knötturinn hrekk
ur frá og er spyrnt í burt.
Loks á 30 .mínútu fá Framm
arar aukaspyrnu sem Guð-
mundur Óskarsson tekur mjög
vel og sendir ti] Dagbjcrts sem
brunar inn og skýtur fast og
skorar.
Enn einu sim: rétt fyrir
leikslok skellur hurð nærri
hælum við Fram-markið, er
Þórður Jónsson átti allfast
skot á- markið sem Geir grípur
af skalla Ilalldórs Lúðvígsson
ar sem bjargar á línu.
A.kurnesingar vinna nú Is-
landsmótið í 5. sinn og eru þeir
vei að þeim sigrj komnir. því
enn er lið þeirra raunverulega
bezta knattspyrnulið íslands.
Einn allra bezti maður í þess-
um jeik var Þórður Þórðar-
son, jafnvel sóknharðari en
nokkru sinni. Hann skoraði ÖU
SJÖTTI og síðasti dagur Ev-
rópumeistaramótsins er runn-
inn upp. í dag er eingöngu
keppt til úrslita, þ- e. a, s, eng
ar undanrásir eða undanrásir
eða undankeppni.
Veður er allgott, sólarlaust,
en engin rigning og ca. 16
stiga hiti. Keppt verður til úr
slita í 9 greinum, þ. a. m, 1500
m. hlaupi, en af mörgum er sú
grein álitin grein mótsins
Enginn íslendingur keppir í
dag og þess vegna er enginn
taugacstyrkur í íslenzku ný-
lendunni í blaðamannastúk-
unni.
MESTA AFREK MÓTSINS.
Fyrsta grein, sem hófst í dag
var maraþonhlaup og voru
keppendur 25 talsins. Flestir
höfðu spáð júgóslafneskum eða
frönskum sigr] en Rússarnir
voru ekki á sama máli. hinn
lágvaxni Popov, kom lang-
fyrstur í mark á glæsilegu nýju f
heimsmet] 2:15,17,0 klst. Það
er næstum ótrúlegt að sjá af-
reksmenn eins og Popov ganga
brosand; urn leikvanginn eftir
að hafa hlaupið 42.195 m. á
rúmum 2 klukkutímum, Olym
píusigurvegarinn frá 1952
mörkin fjögur í fyrri hálfleikn
um og átt; auk þess meginþátt
í hinum tveim í síðari hálf-
ieiknuro.
Fram-liðið lék nú sirrn bezta
leik, svo sem fyrr segir, og
tók nú verulega á og barðist
af miklum móð, þó ekki dygði.
Nú kemur síðasta lotan, við
Hafnfirðinga, sem sker úr um
það hvor niður skal, verða þá
efalaust mikil umbrot á botn-
inum þegar þar að kemur.
Annars féllu Framarar með
sæmd í þessum leik og scnn-
uðu það, sem reyndar var vit-
að, að ef þeir hefðu telfið á
fyrr með líkum hætti, hefðu
þeir ekki verið svo á flæði-
skeri staddir, sem raun ber
vitn^ um nú.
Mimoum frá Frakklandi hætti
og sömuleiðis Mimalci frá Jú-
góslavíu, sem margir höfðu
spáð sigri.
JAFNAÐI EVRÓPUMETIÐ.
Það var ekki síður yfirburða
sigur í 110 m. grindahlaupi en
maraþon, Martin Lauer frá
Vestur-Þýzkalandi hafði fyrstu
braut og strax eftir tvær grind
ur var forysta hans örugg og
hann lengdi bilið, baráttan um
þr.ðju verðlaun var hörð milli
Bretans Hildreth og Mikhail-
ow, Rússlandi, en lauk með
knöppum sigri Rússans. Lorg
er,- Júgóslavíu var öruggur í
öðru sæti. Tími Lauers er sá
sam] og Evrópumet hans.
BREZKUR SIGUR í VIN-
SÆLLI GREIN.
Sú grein EM, sem margir
biðu eftir með hvað mestum
'spennngi, var 1500 m. hlaupið.
12 hlauparar tóku þátt í úr-
slitabaráttunni, en í undanrás
unum hafði t. d. einn verið sleg
inn út á 3:41,9, Jazy frá Frakk
landi tók forystuna. en hlaup
ararnir voru yfirleitt í einum
hnapp. Um mitt hlaupið tók
Svíinn Waern forystuna við
gífurleg fagnaðarlæti Ianda
Framlínan átti oft skemmti
iega samvinnu, byggða á skiln
ingi og 1 purð. Björgvin Árna
son miðherji hefur ekki i ann
an tíma verið skeleggari en
nú, hann skoraðj öll þrjú
mörkin í fyrri hálfleiknum.
Halldór Lúðvíksson lék í stöðu
miðframvarðar og hafði Þórð
Þórðarson að berjast við. Slapp
Halldór furðu vel frá þeim v.ð
skiptum. Öll vörn Fram,
Steinn og Rúnar og Geir í
markinu unnu eins og þeir
gátu, en hraði og harka Ak-
urnes-sóknarinnar er frammí
sótti, einkum þó Þórðar mið-
herja, var þeirn oft um megn,
eins og útkoman sýnir.
E. B.
sinna, ekkj reiknuðu þó neinir
í fullri alvöru, að honum tæk-
ist að sigi’a, en það ótrúlega
virtist þó ætla að ske, því að
fyrst á síðustu metrunum
tekst Bretanum Hewson að
komast fram úr, en Waern
hlaut silfrið, þriðji varð Olym
pjvumeistaijinn |frá Melbaune,
E|elaney. HÍBÍmsmethafinn.
Jungwirt varð aðeins áttunni.
LOKSINS KOM GULLIÐ.
Mikið voru Svíarnir búnir
að þrá gullveirðlaun og á ell-
eftu stundu komu þau. Það
var þó ekki-sá sem búizt var
við, sem náði í þau. Petters-
son var af mörgum álitinn sá
betri, en svo kom Dahl á síð-
ustu stundu og bjargaði heiðri
Svíanna. Þessi hástökkskeppni
er vafalaust sú harðasta og
glæsilegasta, sem' fram hefur
farið, einn yfir 2,12 — þrír .yfir
2,10 og sex yfir 2,06 m. Dahl
sýndi frábært keppnisskap,
því þegar ráin var hækkuð í
2,10 fór Lansky fyrstur yfir,
en Svíarnir í annarri og þriðju
tiíraun. Fyrsta tilraun Tékk-
ans var léleg — næstur var
Dahl og svo mikið hljóð var á
gamla Stadion að heyra hefði
mátt saumnál detta — tilraun
in var góð, svo góð að Dahl var
staðinn. upp og byrjaður að
veifa er ráin datt. Pettersson
kolfelldi.
í annari tilraun felldu Lan-
sky og Pettersson, en Dahl fór
glæsilega yfir og voru fagnað
arlætin slík, að erfitt er að
lýsa því, dagblöðum — leik-
skrám, höttum, húfum og öllu
lauslegu var kastað í háaloft
of hávaðinn var slíkur, að alit
lék á reiðiskjálfi. Síðasta til-
raun Pettersson við 2,12 var
ágæt og munaði sáralitlu, en
Lansky notaði sína á 2,14 m.,
sem var næsta hæð og ætlaði
með því að reyna að krækja í
guillið, en það var vonlaust.
Dahl reyndi síðan einn Við
2,14, en mistókst.
SÁ BEZTI SIGRAÐI.
Allir íslendingar óskuðu
þess, að Danielsen sigraði í
spjótkasti, en hinn óviðjafnan
legi Sidlo kom í veg fyrir það
og vissulega var sá sigur verð
skuldaður. Sidlo er sérstaklega
skemmtilegur íþróttamaður.
Rússnesku stúlkurnar sigruðu
í 800 m. hlaupi, en Leather frá
Englandi kom á óvart með því
að verða önnur. Gaman var að
fylgjast með boðhlaupunum,
rússnesku stúlkurnar sigruðu
með yfirburðum í 4x100 m.,
en Þjóðverjar í 4x100 m. boð-
hlaupi karla, sérstaklega
vegna glæsilegs endaspretts
Germars. — Fyrsta skipting
Þjóðverjanna var óvenjulega
léleg og eftir það náðu Eng-
lendingar öruggrj forystu. Á
síðasta sprett] sýndi Germar
slík tilþrif, að óvenjulegt er,
hann hefur tekið ca. 4—5 m.
af Englendingum og 3—4 m.
af Bartenjow, einum bezta
spretthlaupara Rússa. í 4x400
Framhald á 5. síðu.
íslandsmeistarar Akraness 1958
fslandsmeistararnir frá Akranesi 1958. Fremrj röð talið frá
vinstri: Sveinn Teitsson, Guðmur.dur Sigurðsson, Helgi Daní
elsson, Jón Leósson og Guðjón Finnbogason. Aftah röð talið
frá vinstri: Helgi Björgvinsson, Kristinn Gunnlaugsson, Hall
dór Sigurbjörnsson, Þórður Þórðarson, Ríkharður Jónsson og
Þórður Jónsson.