Morgunblaðið - 18.03.1975, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 18.03.1975, Qupperneq 22
22 MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1975 ÍR-ingar íslandsmeistarar ? Sýndu yfirburði í leik sínum við KR á sunnudagskvöld NÆR öruggt má telja aö IR-ingar séu orðnir Islandsmeistarar í körfuknattleik 1975. Þeir unnu auðveldan yfirburðasigur yfir eina iiðinu sem gat náð þeim að stigum, nefniiega KR, og ef IR fær sér dæmd stigin úr kæru- leiknum gegn Armanni, mega þeir tapa leiknum við Val, sem þeir eiga eftir, — Islandsmeist- aratitillinn er þeirra. — Og það kom vel í ljós í þessum leik að liðið er vel að þeim titli komið. Oft hefur verið talað um heppni iiðsins f vetur og ekki að ástæðulausu, en nú var engu slfku til að dreifa. ÍR-ingar léku allt frá fyrstu mín- útu mjög ákveðinn leik bæði í vörn og sókn, og verðskulduðu fyllilega að sigra í þessum leik. Hinu er ekki að leyna, að lékur KR, sérstaklega í fyrri hálfleik, var það langlélegasta sem maður hefur séð til liðsins i mörg ár, og var fumið, fátið, og klaupaskapur- inn furðulegur. Ekki vantaði að KR næði að skapa sér færi, en hvernig þeim færum var siðan klúðrað var hreint furðulegt. Á sama tima lék ÍR-liðið eins og meistaralið, og allt sem þeir tóku sér fyrir hendur gekk 100% upp. Þannig var hittni liðsins í fyrri hálfleik t.d. frábær, og vörnin sterk. Kom þá vel i ljós það sem er sterkasta vopna ÍR, nefnilega hittnin. Allir leikmenn liðsins geta skorað af færi, og gegnum- brotin voru oft mjög góð hjá bak- vörðunum. Að framansögðu er ljóst að gangur leiksins í fyrri hálfleik gat ekki orðið nema á einn veg, ÍR náói yfirburðastöðu og hafði yfir í hálfleik 47:28. Þrátt fyrir mun betri leik KR í UMFN átti í erfið- leikum með Snæfell ÞAÐ leit út fyrir það lengi vel í leik UMFN og Snæfells, að Snæfell ætlaði að koma á óvart og sigra. Þeir höfðu nefnilega yfir- höndina i leiknum framan af, en í síðari hálfleik þegar Njarðvíking- arnir fóru að spila betur sigu þeir fram úr og sigruðu í leiknum með 70 stigum gegn 62. Leikurinn var afar jafn framan af fyrri hálfleik, og þegar hann var hálfnaóur var staóan 14:13 fyrir UMFN. En á næstu mínút- um breyttu „llólmararnir" stöó- Haukar í undanúrslit Það var ekki tilþrifamikill hand- knattleikur sem Haukar og KA buðu upp á er liðin mættust i bikarkeppni HSl í Hafnarfirði á laugardaginn. f Haukaliðið vantaði þá Stefán Jóns- son og Elías Jónasson, en í KA liðið Geir Friðgeirsson. Úrslit leiksins urðu þau að Haukarnir unnu óruggan sigur 23—16. eftir að hafa verið yfir í hálfleik 9—7. Fyrri hálfleikurinn var annars lengst af nokkuð jafn. Haukarnir náðu aldrei að hrista Akureyringana af sér. og virtist sem allt gæti gerst I leiknum. I seinni hálfleik kom Gunn- ar Einarsson landsliðsmarkvörður I Haukamarkið. og það var fyrst og fremst hann sem sneri taflinu Haukunum I vil. Gekk KA mönnum ákaflega ill að skora á hann, jafnvel úr hinu beztu færum. Með sigri þess- um eru Haukarnir komnir i undan- úrslit í keppninni, en auk þeirra hafa Fram og Leiknir tryggt sér rétt til að leika þar, en eftir er leikur Vals og FH. Markhæstur KA manna i leiknum á laugardaginn var Halldór Rafnsson sem skoraði 9 mörk, en Hörður Sig- marsson var markhæstur Haukanna, að venju, og skoraði 11 mörk. — stjl. unni í 34:17 sér í vil, og staðan í hálfleik var 36:26 fyrir þá. Njarðvfk jafnaði strax í s.h. og leikurinn var í járnum framundir miðjan hálfleikinn. Þá sigu Njarðvíkingar framúr og sigruðu síðan eins og fyrr sagði. Brynjar Sigmundsson var Snæ- fellsmönnum mjög eríióur í þess- um leik, sérstaklega í s.h. þegar hann hirti boltann af þeim hvað eftir annað í vörninni. Einar Guð- mundsson var stighæstur í Njarð- víkurliðinu með 16 stig, Brynjar og Gunnar Þorvarðarson með 12 stig hvor, og Stefán Bjarkason með 10 stig sem er óvenjulítið þegar hann á í hlut. 1 liði Snæfells bar Kristján Ágústsson af bæði i vörn og sókn. Hann skoraði 29 stig, Sigurður Hjörleifsson skoraði 12 stig, en „höfðinginn sjálfur", Einar Sig- fússon, lét sér nægja 7 stig, enda hafður í sérstakri vörslu Stefáns Bjarkasonar og Einars Guð- mundssonar að þessu sinni. gk —. W, ~ fbúd ad verðmæti kr. 5.000.000 VlO KXUMMAHðlA • I REYKJAVfK “B*- ■ 'é/fWlR MUNIÐ íbúðarhappdrætti H.S.Í. 2ja herb. íbúð að verðmæti kr. 3.500.000. Verð miða kr. 250. STAÐAN Ath: Leikur ÍR og Ármanns er hér færður inn á stöðutöflu samkvæmt úrslitum leiksins. stig. IR 13 12 1 1 107:1007 24 KR 13 10 3 1178:1080 20 UMFN 13 8 5 1042:1011 16 Ármann 12 7 5 1009:944 14 ÍS 12 6 6 920:912 12 Valur 13 5 8 1087:1070 10 Snæf. 13 2 11 862:1033 4 HSK 13 1 12 917:1063 2 Stighæstir: Kolbeinn Pálsson KR 299 Þórir Magnússon Val 264 Kristinn Jörundsson ÍR 252 Stefár. B;arkason UMFN 249 Jón Sigurðsson Á 243 Kristján Ágústsson Snæf. 242 Agnar Friðriksson ÍR 240 Best vitaskotanýting, (35 skot eða fleiri). Kolbeinn Pálsson KR 81:59 = 72,8%. Simon Ólafsson Á 70:50 = 71,4%. Þórir Magnússon Val 41:28 = 68,3%. Gunnar Þorvarðarson UMFN 59:40 = 67,9%. Jón Sigurðsson Á 49:33 = 67,3%. Jón Jörundsson ÍR 52:35 = 67,1%. Kristinn Jórundsson ÍR 86:56 = 65,1%. Ingi Stefánsson IS 68:43 = 63,2%. síðari hálfleik, sérstaklega hvað snerti hittnina, þá náðu þeir aldrei að vinna upp neitt af for- skoti IR Munurinn var ávallt á bilinu 15—20 stig ÍR í vil, en undir lokin fór munurinn niður í 11 stig, og lokatölur urðu 91:80. Þótt allir leikmenn ÍR hafi átt mjög góðan leik var þó Agnar Friðriksson bestur. Manni fannst það glæfralegt þegar hann var að lyfta sér upp í skotin sin út undir miðju, en nær alltaf hitti hann úr þeim. Kolbeinn Kristinsson lék sinn besta leik eftir meiðslin sem hann hlaut, og er búinn að ná fyrri styrkleika. Þá má ekki gleyma bræðrunum Kristni, og Jóni Jörundssonum sem báðir voru mjög góðir. Hjá KR var það helst Kristinn Stefánsson sem skar sig úr, hann gat þó eitthvað í vörninni, en að öðru leyti var þetta afar slakur leikur hjá öðrum Ieik- mönnum, leikur sem þeir vilja örugglega gleyma sem fyrst. — En ÍR-ingar eru sem sagt orðnir íslandsmeistarar í körfuknattleik 1975, svo framarlega sem ekkert óvænt kemur fram í „kærumálinu fræga". Þeir eru vel að þeim titli komnir, hafa að vísu fengið góða hjálp heilladísanna við og við, en staðið sig vel þegar mest hefur á reynt eins og nú. — Stighæstir: ÍR: Agnar 22, Kristinn 21, Jón Jör. 20. KR: Bjarni Jóhannesson 19, Kolbeinn Pálsson og Gísli Gíslason 14 hvor. gk—. Kolbeinn Pálsson á fullri ferð að IR körfunni. Kristinn Jör- undsson fylgir á eftir. HSK fallið eftir tap fyrir Snæfelli? HÉRAÐSSAMBANDIÐ Skarp- héðinn er svo gott sem fallið í 2. deild. Liðið tapaði fyrir keppi- naut sfnum í botnbaráttunni f vet- ur, Snæfelli frá Stykkishólmi, með 52 stigum gegn aðeins 49. Furðuleg stigatala í 2. deildar- leik, enda voru liðin greinilega þrúguð af taugaspennu allt frá fyrstu til síðustumfnútu. Að vísu eru vonir HSK manna ekki end- anlega slokknaðar við þessi úr- slit, en til þess að fá aukaleik við Snæfell um fallið þarf HSK að sigra Ármann I sfðasta leik sfn- um, og það verður örugglega erf- itt fyrir þá. Það var strax ljóst í upphafi leiksins, að leikmenn liðanna voru mjög spenntir á taugum. Fyrstu sóknirnar runnu út í sand- inn á báða bóga, en síðan fóru hlutirnir að fara i gang. Jafnt var 2:2, 4:4 og 6:6, en þá skoraði Snæ- fell 12 stig í röð án svars frá HSK í heilar 5 mín. Á þessum tíma lék Snæfell mjög vel, þeir voru sterk- ir í vörninni, og í sóknarleiknum renndu þeir sér oft glæsilega i gegn um maður á mann vörn HSK. Skarphéðinsmenn sáu sig tilneydda til að skipta yfir á svæð- isvörn, og leikurinn var jafn fram að leikhléi, staðan þá 28:18!!! HSK saxaði hægt og bítandi á forskot Snæfells í síðari hálfleik, og á 13. mín. jöfnuðu þeir 41:41. Stuttu seinna komust þeir yfir i fyrsta skipti í leiknum, staðan 44:43, og aðeins þrjár og hálf min. eftir. Síðan skiptust liðin á um að vera yfir en þegar Gunnar Jóa- kimsson misnotaði tvö vitaskot á lokamínútunni var útséð um það hvernig færi. „Hólmarar" fögn- uðu gífurlega i leikslok, enda sæt- ið í deildinni svo gott sem tryggt áfram. í heildina var þetta lélegur leik- ur, bæði liðin léku talsvert undir getu, en betra liðið sigraði þó. Einar Sigfússon stjórnaði sínu liði mjög vel og liðið lék skynsam- lega. Boltanum var haldið þar til skotfæri gafst, engin áhætta tek- in. Kristján Ágústsson var einnig góður, svo og Bjartmar Bjarnason sem er í stöðugri framför. — Allt HSK liðið lék þennan leik langt undir getu. Meira að segja þeir Anton og Birkir voru mjög slakir, enda báðir að koma beint frá því að leika f blaki!! Þeir Einar og Eiríkur Jónsson skoruðu mest fyrir Snæfell, 13 stig hvor — Anton mest fyrir HSK, 11 stig, Birkir 9 stig. Einar Sigfússon, þjálfari Snæfellssliðsins að komast f skotfæri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.