Morgunblaðið - 18.03.1975, Síða 32

Morgunblaðið - 18.03.1975, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1975 tjíC mw Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen bréf sendu væru búnir að borga undir þau, gætu þeir ekki gjört að því, hvað síóar yrði um þau. Eftir þetta virtist Sigríði öll von úti, og gjörðist hún nú jafnan harmþrungin mjög, en móðir hennar hætti ekki að gylla fyrir henni, hve girnilegt það væri að eiga Guðmund; og einn dag, er Sigríður sat fálát mjög fram í stofu, kemur móðir hennar þangað til hennar og klappar henni hálfhlæjandi utan á vangann og segir: Á ég nú ekki bráðum að fara að skrifa þeim til og segja þeim, að nú sé björninn unninn? Eða er þér ekki farið að sýnast, elskan mín, eins og mér, að vandi sé velboðnu að neita? Þér ráðið því, móðir mín, hvað þér gjörið; ég veit það, aö þér getið ekki eggjað mig á annað en það, sem þér haldið, aö mér sé til hins bezta; og þó ég ekki geti fellt mig við þaó, veit ég samt, aó þaó er skylda mín að hlýða yður, sagði Sigríóur, og hrutu nokkur tár um leið ofan um kinnarnar á henni. Það er öll von til þess, og ég get ekki láð þér það, góða mín, sagði Ingveldur og klappaði Sigríði aftur á kinnina, þó þú finnir í fyrstu hjá þér nokkurn efa; en ég er sannfærð um það, aó eftir á muntu þakka guði fyrir, að þú lézt mig ráóa. Sigríður gat þá ekki bundizt tára, en með því að hún vildi ekki láta móður sína sjá, að hún gréti, stóð hún upp og gekk út úr stofunni, og töluðust þær ekki meira við mæðgurnar; en Ingveldur tók orð Sigríðar fyrir fullt jáyrði og ritaði síóan þeim fóstrum til og sagði, hvar komið var. Komu þeir HÖGNI HREKKVÍSI fóstrar þá fram að tungu, og festi Ingveldur þá Guðmundi Sigríði dóttur sína. Eftir það kom Guð- mundur nokkrum sinnum fram aö Tungu; en jafnan var Sigríður mjög fálát við hann, og fékkst Guð- mundur ekki um það. Er nú svo ráð fyrir gjört, að brúðkaupið skyldi standa að afliðnum réttum að þeim bæ, er Hvoll heitir; það var annexia prestsins í Sigríðartunguhrepp; þar voru húsakynni stærri og rúmbetri en í Tungu. Síðan fóru lýsingar fram tvo sunnudaga, hvorn eftir annan, og seinna sunnu- daginn var lýst á tveimur kirkjum undir eins. Það hafa lögfróðir sagt oss, að ekki sé sú aðferð rétt; aftur höfum vér heyrt greinda presta segja, að svo megi þó vel vera, ef einhver gild ástæða sé til þess að flýta brúðkaupinu; og þannig stóð á að þessu skipti. Hrútar þeir, sem Bárður hafði ætlað til veizlunnar, voru komnir af fjallinu, og hafði Bárður hlaupið til að skera þá, svo þeir legöu ekki of mikið af á mörinn, Sagan af kóngsdóttur og svarta bola berginu og barði á klettinn, og þá kom maðurinn út og fékk henni kjól, sem var enn skrautlegri en hinir fyrri, hann var alsettur gulli og gimsteinum, og fallegan hest með slegnum söðli og gullsaumaðri söðulábreiðu fékk hún einnig. Þegar svo Katrín konungsdóttir kom til kirkj- unnar, stóð prestur og söfnuður enn úti. Konungs- sonur kom hlaupandi og vildi hjálpa þessari fögru konu af baki, en hún stökk af hestinum og sagði: „Nei, þökk fyrir, þess þarf ekki. Minn hestur er svo vel taminn, að hann stendur kyrr, þegar ég segi honum það“. Svo flýttu allir sér í kirkjuna, og brátt steig prestur í stólinn. En margir gáfu meiri gaum að Katrínu, en því sem hann sagði, og furðaði fólk sig á því, hvaóan hún væri, og konungssonur varð stöð- ugt hrifnari og hrifnari, hann blíndi stöðugt á hana og hugsaði ekki um neitt annað. Þegar messa var búin og Katrín ætlaði að ganga úr kirkju, hafði konungssonur látið hvolfa úr fullri tjörutunnu fyrir framan dyrnar, svo hann gæti hjálpað henni yfir pollinn, en hún skeytti ekkert um það, heldur steig beint niður í pollinn og varð annar gullskór hennar fastur í tjörunni, og þegar hún var kominn á bak hesti sínum, kom konungssonur þjótandi og spurði hvaðan hún væri. „Frá Hárgreiðulandi“, sagði Katrín, en þegar konungssonur ætlaói að rétta henni gullskóinn, sagðihún: „Komi nú þokan kolsvört og stríð, svo kóngssonur sjái ekki hvert ég ríð“. mellan fjall och hav MODERN ISLANDSK lYRIK I TOLKNING AV MAJ-LIS HOLMBERG íslenzk ljóð í sænskri þýðingu gefín útíFinnlandi Morgunblaðinu hefur borizt grein úr Huvudstadsbladet í Finnlandi, þar sem fjallað er um bókina „Mellan fjáll och hav“, sem nýlega kom út f Finnlandi og geymir þýðingar Maj-Lis Holmberg lektors við Helsinki-háskóla, á ljóðum fjögurra íslenzkra skálda, þeirra Steins Steinarrs, Snorra Hjartarsonar, Jöns úr Vör og Hannesar Péturssonar. 1 grein- inni er þó ekki um eiginlega gagnrýni að ræða heldur miklu fremur kynningu á ljóðaþýð- ingunum og hinum islenzku ljóðskáldum, sem'verk eiga í hókinni. Maj-Lis Holmberg er mörgum íslendingum að góðu kunn frá því að hún var hér við nám í Háskóla islands fyrir nokkrum árum. A bókarkápu kemur fram að hún hefur tekið ást- fóstri við íslenzkar bókmenntir og menningu, en einnig fæst hún sjálf við að yrkja ljóð á sænsku. Hefur hún gefið út tvær ljóðabækur til þessa og hin síðari sem kom út 1973 fékk mjög góðar viðtökur heima fyr- ir. í bókinni „Mellan fjáll och hav“ eru alls 114 ljóðaþýðingar Holmberg. Peter Hallberg hef- ur skrifað formála að bókinni og fjallar þar um ljóðin og skáldin fjögur, en Maj-Lis Holmberg lætur einnig fylgja eftirmála, þar sem hún gerir nokkra grein fyrir þessum þýð- ingum sínum. Bókin er gefin úf af Holger Schildt föriag í Hel- sinki og er hún alls 105 bls. að stærð. Grænlendingar vilja Inuk til Grænlands LEIKFÉLAGIÐ í Gothaab í Grænlandi hefur skrifað bréf til þeirra sem settu saman leikritið INUK, sem þýðir maður á græn- lensku, og spurt um möguleika á að fá textann að leikritinu og jafnvel íslenzku sýninguna á svið í Grænlandi. Að sögn Haralds Ölafssonar lektors, sem var einn úr íslenska hópnum, sem fór til Grænlands á vegum Þjóðleikhúss- ins og safnaði efni í sýninguna, er handritið að verkinu aðeins til á íslensku, en Þjóðleikhúsið á sýn- ínguna. Nýlega sáu grænlenskir æskulýðsfulltrúar sýninguna í Reykjavík og voru þeir mjög áfjáðir í að fá sýninguna til Græn- lands. Nýlega var INUK sýndur á vegum Þjóðleikhússins á Noróur- löndum og voru alls 13 sýningar á öllum Norðurlöndunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.