Morgunblaðið - 20.03.1975, Page 1

Morgunblaðið - 20.03.1975, Page 1
Afhroð stjómar- herja í Indékína Saigon, Phnom Penh 19. marz.AP-NTB-Reuter TALSMENN suður-vietnömsku stjörnarinnar sögðu í kvöld að hún hefði orðið að láta af hendi f jórða héraðið, og hugsanlega eitt til viðbótar með hinni fornu höf- uðborg Hue, til árásarsveita Víet Cong og N-Víetnam sem stöðugt vinna á f stríðinu f landinu. Meir en hálf milljón manna er á fiótta úr miðhálendi landsins gegnum hættulega frumskóga og strand- leiðir, einkum frá Kontum-, Pleiku- og Karlae-héruðum, og sagt er stjórnin hafi skipað 300.000 fbúum Hue að yfirgefa borgina. Fjórða héraðið sem S- Vfetnam missir í hendur árásar- sveitunum er Quang Tri, og Thua Thien er einnig í hættu, en þar er borgin Hue. Bæði héruðin eru á norðurströnd landsins. í Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu, töldu vestrænir frétta- skýrendur í kvöld, að borgin gæti aðeins staðizt árásir kommúnista í fáa daga til viðbótar. Um 1000 studentar héidu mótmælafund við bandaríska sendiráðið í borg- inni og skoruðu á Bandaríkja- menn að hætta allri aðstoð við ríkisstjórn Lon Nols, þar eð að- stoðin myndi aðeins auka á þján- ingar landsmanna og ófriðinn. Árásir á flugvöll borgarinnar héldu áfram í dag og víðar voru bardagar umhverfis Phnom Penh. Kjördeginum var frestað AP-simamynd STORMASAMT FIDE-ÞING. — Myndin sýnir þingfulltrúa á aukaþingi Alþjóða skáksambandsins, FIDE, sem lauk í gær í Hollandi með sögulegri ákvörðun. Dr. Max Euwe, forseti FIDE, sagði í samtali við Morgunblaðið að þingið hefði verið afar stormasamt og ófriðlegt, eins og fram kemur í frétt neðar á siðunni. Lissabon 19. marz NTB, Reuter HERSTJÓRNIN f Portúgal til- kynnti seint í kvöld að fyrstu frjálsu kosningunum í háifa öld yrdi frestað um tvær vikur. Bylt- Methalli á greiðslu- jöfnuði USA Washington 19. marz — AP HALLI á greióslujöfnuði Banda- ríkjanna á síðasta ársfjórðungi ársins 1974 var sá mesti sem skráður hefur verið. Bandarfska viðskiptamálaráðuneytið skýrði svo frá f dag, að hallinn væri 5,9 milljarðar dollara, en var árs- f jórðunginn þar á undan 3,9 milljarðar. Arshallinn nam þannig 10,6 milljörðum dollara, og er það önnur versta ársútkom- Framhald á bls. 18 ingaráðið, sem skipað er 24 her foringjum ákvað að þingkosning ar yrðu haldnar í landinu 25 apríl f stað 12. apríl. Þá fyrirskip aði byltingarráðið að kosninga- baráttan sem átti að hefjast á morgun, fimmtudag, skyldi ekk hefjast fyrr en 2. apríl. Astæðan var sögð tæknilegs eðlis. Bylt- ingarráðið sat á fundum í allan dag og ræddi þetta mál. Tals- maður Vasco Cocalves forsætis- ráðherra hafði sagt fyrr í dag, að enn væri stefnt að 12. aprfl en ef frestun reyndist nauðsynleg yrði það aðeins vegna vandamála varð- andi „tákn hinna ýmsu stjórn- málaflokka", og er talið að hann hafi átt við ýmsa vinstri flokka sem allir hafa hamar og sigð að tákni sínu. Hins vegar hermdu heimildir að höfuðástæðan fyrir frestuninni væri hversu seint Concalves gengi við uppstokkun stjórnarinnar. Rfkisstjórnin afnam í dag við- búnað hersins sem hafinn var eft- ir hina misheppnuðu byltingartil- Framhald á bls. 18 Stórfelldur niðurskurður fjárveitinga til varnarmála Breta: Mun stórlega veikja Atlantshafebandalagið London 19. marz — Reuter BREZKA ríkisstjórnin skýrði í dag frá miklum niðurskurði fjár- veitinga til varnarmála vegna erfiðs efnahagsástands í landinu. Hefur stjórnin í hyggju að kalla herstyrk Breta á sjó og landi heim frá Miðjarðarhafssvæðinu og Austurlöndum fjær fyrir árið 1980. Niðurskurður fjárveiting- anna nemur 4,7 miiljörðum punda næstu 10 árin. Þessar tölur og fleiri upplýsingar koma fram í Hvftri bók ríkisstjórnarinnar sem birt var f dag eftir langar viðræð- ur Breta við bandamenn sína. Hinar 14 bandalagsþjóðir Breta í Atlantshafsbandalaginu hafa gagnrýnt þessa áætlun á þeim for- sendum að hún muni veikja stór- lega stöðu NATO bæði í norðri og suðri. í opinberri yfirlýsingu frá aðalstöðvum NATO í Brussel seg- ir að bandamenn Breta hafi lýst áhyggjum sínum yfir hversu mik- ill niðurskurðurinn er. Forsvars- menn bandalagsins sögðu enn- fremur á blaðamannafundi að einkum væru hafðar áhyggjur af því að Bretar hygðust kveðja her- styrk sinn heim frá Miðjarðarhaf- inu, en þar sé aðstaða NATO þeg- ar orðin veik vegna hins slæma sambands Grikkja og Tyrkja. Al- mennur niðurskurður brezka her- aflans hefur einnig i för með sér að NATO getur ekki brugðizt skjótt við hugsanlegum aðgerðum Varsjárbandalagslandanna f norðri Samkvæmt Hvítu bókinni mun Bretland kveðja meirihluta her- sveita sinna heim frá svæðinu austan Súez fyrir aprílmánuð 1976, og draga saman varnir sfnar á miðsvæði NATO, á Austur- Atlantshafi og á Ermarsundi. „Orlög lega í einvígisins nú algjör- höndum Fischers” — sagði dr. Max Euwe í samtali við Mbl. % „ÞETTA voru óvænt úrslit,“ sagði dr. Max Euwe, forseti Al- þjóðaskáksambandsins í sam- tali við Morgunblaðið í gær- kvöldi en á aukaþingi FIDE f Bergen an See f Hollandi f gær var annars vegar gengið að kröfu heimsmeistarans Bobby Fischers um ótakmarkaðan skákafjölda með 37 atkvæðum gegn 33, en kröfunni um að heimsmeistarinn héldi titlinum ef keppcndur yrðu jafnir að vinningum, 9—9, var hins vegar hafnað með 35 at- kvæðum gegn 32. And- stæðingar þeirrar tillögu töldu hana ósanngjarna fyrir áskorandann, sem yrði þá að sigra með 10 vinningum gegn 8. „Ég hafði sjálfur búizt við þvf,“ sagði dr. Euwe, „að Sovétmenn fengju báðum kröfunum hnekkt. En ég Ift á þetta sem góð úrslit, þvf að þau leggja örlög einvfgisins algjörlega f hendur Fischers.“ 0 „Ef afstaða hans verður á þá leið, að fyrst þingið gekk ekki að báðum kröfunum þá muni hann ekki keppa, þá hefur hann svipt sig titlinum sjálfur. En ég vona, og vinir Fischers vona Ifka, að þeim takist að sannfæra Fischer á næstu einni eða tveimur vikum um nauðsyn þess að tefla um málið. Ef ekkert hefur gerzt f málinu 1. apríl n.k. verður Karpov heims- meistari vegna fjarveru Fischers, nema auðvitað að Sovétmenn og Bandarfkjamenn geti komið sér sainan um að lengja umþóttunartfmann til t.d. 1. maí.“ „Annað mikilvægt atriði varðandi þessi úrslit,“ sagði dr. Euwe „er að bæði Bandaríkja- menn og Sovétmenn fengu 50% af kröfum sínum framgengt og það þýðir að FIDE er hólpið því að míkil hætta var á því að annað landanna myndi segja sig úr sambandinu ef hitt fengi kröfur sínar samþykktar 100%.“ „Það virðist ljóst að Sovét- menn ætla að viðurkenna þetta nýja skilyrði um ótakmarkaðan fjölda skáka, þó að þeir hafi f upphafi talið það óaðgengilegt. Framhald á bls. 18 Óbeint lof- orð Egypta Aswan, Jerúsalem 19. marz — Reuter EGYPTAR gáfu Israelum f kvöld óbeint loforð um að þeir myndu ekki beita ofbeldi gegn Israel svo framarlega sem nýr samningur um aðskilnað herja væri f gildi. Þetta kom fram í yfirlýsingu egypzku rfkisstjórnarinnar sem birt var í tilefni þeirra viðræðna sem hefjast munu við Henry Kiss- inger, utanrfkisráðherra Banda- ríkjanna, um leið og hann kemur til Egyptalands frá Jerúsalem með viðbrögð lsraelsstjórnar við friðartillögum Egypta. tsraels- stjórn sat enn á rökstólum seint i kvöld, og Kissinger beið á meðan, en hann kom aftur til Israels frá Saudi-Arabfu f kvöld. Ekki er talið að Kissinger hitti fsraelsku leiðtogana fyrr en á morgun, fimmtudag, og muni hann þá strax fljúga til fundar við Sadat, Egyptalandsforseta. ísraelsmenn hafa lagt mikla áherzlu á að fá áðurnefnda skuld- bindingu af hálfu Egypta. í yfir- lýsingu Egypta segir: „Ljóst er að aðilar muni ekki grfpa til ofbeldis á meðan skilmálar aðskilnaðar- samkomulags eru virtir.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.