Morgunblaðið - 20.03.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1975
19
Tómas Gunnarsson hdL:
Askorun á borgar-
stjóm Reykjayíkur
Grein sú, sem hér fer á eftir er
birt að beiðni Tómasar Gunnar-
sonar hdl. Til skýringar á efni
greinarinnar skal eftirfarandi
tekið fram:
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti i júlimánuði sl. að óska
eftir því, að Sakadómur Reykja-
víkur tæki til rannsóknar í sam-
yinnu við borgarendurskoðanda
rekstur Áhaldahúss Reykjavíkur-
borgar. Þessi ósk borgarstjórnar
var borin fram að undangenginni
allitarlegri könnun endurskoð-
unardeildar borgarinnar á rekstri
Áhaldahússins á undanförnum
árum. Að lokinni sakadóms-
rannsókn taldi ríkissaksóknari
ekki vera tilefni til ákæru á hend-
ur forstöðumanni hússins vegna
refsiverðs verknaðar. Borgarráð
Reykjavíkur tók á hinn bóginn þá
ákvörðun í febrúarmánuði sl. að
veita forstöðumanni Áhalda-
hússins lausn frá starfi, þar sem
það taldi, að rannsókn málsins
hefði leitt i ljós tilteknar
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Skákþing
íslands 1975
I dag, fimmtudag, hefst keppni
í landsliðsflokki á Skákþingi
Islands og eru keppendur tólf
að venju. Nokkur forföll urðu
hjá þeim, sem rétt áttu til þátt-
töku og eru því óvenjumargir
varamenn á meðal þátttak-
enda. Margir þátttakendur eru
mjög ungir að árum og verður
því vafalaust fróðlegt og
skemmtilegt að fylgjast með
keppninni. Meðalaldur þátt-
takenda er sennilega u.þ.b. 22
ár, aldursforsetar eru þeir
Jónas og Björn, en þeir munu
hafa verið á meðal yngstu þátt-
takenda i landsliði fyrir svo
sem 12 árum. Þeir, sem tefla í
landsliðsflokki að þessu sinni,
eru, taldir eftir töfluröð:
Haukur Angantýsson, Björn
Þorsteinsson, Jón Þ. Þór, Helgi
Ölafsson, Ásgeir P. Ásbjörns-
son, Margeir Pétursson, Ömar
Jónsson, Júlíus Friðjónsson,
Gunnar Finnlaugsson, Bragi
Halldórsson Frank Herlufsen
og Jónas Þorvaldsson.
Keppni i öðrum flokkum
hefst um næstu helgi, en ýmis-
legt verður til nýjunga á þessu
móti og skal þar helzt telja
keppni í kvennaflokki og
keppni i öldunga- eða „old
boys“ flokki, en þar munu
tefla meistarar, sem stóðu á
hátindi frægðarinnar fyrir svo
sem tveimur áratugum. Ekki
mun enn fullákveðið, hverjir
tefla i öldungaflokknum, en
eftir því, sem ég kemst næst,
hafa þeir Baldur Möller, Ás-
mundur Asgeirsson og Þráinn'
Sigurðsson allir heitið þátt-
töku. I næstu þáttum verður
reynt að gefa lesendum kost á
því að fylgjast með framvindu
mála á íslandsþinginu en við
ljúkum þessu spjalli með því
að líta á skák, sem var tefld á
Skákþingi íslands 1935 og
eigast þar víð tvær höfuð-
kempur íslenzkra skákmanna
á þeim árum.
Hvftt: Jón Guðmundsson
Svart: Eggert Gilfer
Kóngsindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3
— Bg7, 4. e4 — d6, 5. f3 — 0-0,
6. Be3 — Rbd7, 7. Dd2 — e5, 8.
d5 — a5, 9. Bh6? — Rxe4!, 10.
fxe4 — Dh4+, 11. g3 — Dxh6,
12. Rb5 — Rc5, 13. Rxc7 —
Hb8, 14. Bg2 — f5, 15. exf5 —
Bxf5, 16. Dxh6 — Bxh6, 17. b3
— fod3+, 18. Ke2 — Rb4, 19.
Rh3 — Bd3+, 20. Kdl — Rc2,
21. Hcl — Re3+, 22. Kd2 — e4
og hvitur gafst upp fáum
leikjum sfðar.
ávirðingar, þó að ekki væri um a<
ræða refsiverðan verknað, er leiti
hefði til opinberrar ákæru ai
hálfu ríkissaksóknara. Ávirðingai
þessar voru nákvæmlega til
greindar i lausnarbréfi borgar-
stjóra til forstöðumanns Áhalda-
hússins.
Áskorun á borgarstjórn Reykja-
vfkur.
Föstudaginn 28. febrúar sl.
samþykkti borgarráð Reykjavík-
ur að veita Reyni Þórðarsyni, yfir-
verkstjóra í Áhaldahúsi Reykja-
vikur, lausn úr starfi vegna
meintra ávirðinga, sem kom til
framkvæmda þá þegar.
Staðfesting borgarstjórnar
Reykjavikur á þessari ákvörðun
borgarráðs hefur enn ekki átt sér
stað.
Hætt er við að uppsögnin valdi
Reyni verulegu fjártjóni, sem
vafasamt er að fáist bætt til fulls,
svo sem vegna starfsmissisins og
skertra eftirlauna- og örorkurétt-
inda, sem tekið hefur allt að
tveimur áratugum að afla, auk
hins, að sennilegt er að R. Þ.
gjaldi þess að nokkru, að hann
var ekki metinn hæfur sem starfs-
maður Reykjavikurborgar. Þar
sem uppsögnin kemur i kjölfar
umfangsmikillar rannsóknar á
meintu misferli í störfum R.Þ. allt
að tíu til tólf ár aftur í tímann,
sem fór í fyrstu fram á vegum
Endurskoðunardeildar Reykja-
víkurborgar og borgarfulltrúa
persónulega og siðar Sakadóms
Reykjavíkur, er enn hættara við
en ella, að uppsögnin varpi
skugga á starfsferil hans.
Undirritaður hefur sem
aðstoðarmaður R.Þ. síðan á sl.
vori fylgst með aðgerðum borgar-
yfirvalda í málinu og síðan
annarra sem um það hafa fjallað.
Sérstaka furðu mína hafa vakið
vinnuaðferðir við endurskoðunar-
störf hjá Reykjavíkurborg og
meðferð málsins eftir að rann-
sókn fyrir Sakadómi var lokið. Er
í mínum huga ekki vafamál að
brýn þörf er á könnun á vinnuað-
ferðum borgaryfirvalda i málum
af þessu tagi. Uppsögn R.Þ. virð-
ist byggð á að nokkru röngum, en
að nokkru órökstuddum atriðum,
en einnig á atriðum, sem ekki
varða beint starf hans. Tel ég þau
öll óréttmæt sem uppsagnaratriði.
Þá er einnig athyglisvert að ekki
er vikið að niðurstöðu saksóknara
ríkisins um sakadómsrannsókn.
Niðurstaða ríkissaksóknara var á
þá leið, að ekki væri tilefni til
ákæru í málinu. í því felst að
hann hefur talið málið full-
rannsakað eins og það lá fyrir, en
einnig, að ekki væri tilefni til
nokkurrar ákæru þrátt fyrir
a.m.k. þrjá tugi af kæruatriðum,
sem um er fjallað í sakadóms-
rannsókninni. Virðast meintar
ávirðingar R.Þ. hafa þótt svo lítil-
vægar að mati ríkissaksóknara, að
ekki var einu sinni óskað eftir að
ljúka málinu með áminningu. Þá
virðist heldur ekki hafa verið litið
mikið til vitnisframburðar Björns
Baldvins Höskuldssonar, næsta
yfirmanns R.Þ., en hann sagði
fyrir Sakadómi Reykjavíkur, 2.
desember 1974, m.a.: „Það segir,
að rannsókn sú, sem gerð var á
rekstri undir stjórn Reynis
Þórðarsonar, að því er það bezt
veit fyrir frumkvæði endur-
skoðunardlildar borgarinnar, en
byggingadeild hafi ekki átt þar
hlut að. Það hafi ekkert vitað eða
frétt um rannsókn endurskoðun-
ardeildar og ekkert samráð við
það haft i þvi sambandi. Það hafi
einungis frétt um þetta á skot-
spónum. Það segir, að sér hafi
aldrei borist kvartanir eða ábend-
ingar varðandi ætlað misferli í
rekstri framangreindra borgar-
fyrirtækja.“
Télja verður, að R.Þ. eigi sem
aðrir starfsmenn Reykjavíkur-
borgar rétt til hlutlausrar og fag-
legrar meðhöndlunar máls hans.
Framhaid á bls. 18
Skepnur hrundu niður úr hor eins og sjá má af þessari mynd.
Jóhannes Tómasson:
FYRIR réttu ári var orðið mjög
alvarlegt ástand víða í Eþíópíu
vegna hungursneyðar, sem varð
sakir uppskerubrests. Þurrkar
voru gífurlegir, allur gróður
skrælnaði, vatn var hvergi að fá
svo ekkert annað en dauði blasti
við mönnum og skepnum. Fréttir
af hungursneyðinni voru ekki
miklar fyrst í stað en smám
saman varð ljóst að gifurleg hjálp
yrði að berast erlendis frá þar
sem allt korn var á þrotum. Þurfti
þvi að fá mikið korn til að fæða
fólk og til sáningar, svo sagan
endurtæki sig ekki.
Hjálparstarf hófst og bárust
fjárframlög frá fjölmörgum lönd-
um og korn tók að sjást í Eþíópíu
á ný. Viða var því þannig hagað
að kristniboðarnir tóku að sér
dreifingu þess. Það varð að gerast
mjög fljótt þvi stuttur timi leið
frá því korn tók að berast og þar
til regntími hæfist. Segir Jónas
Þórisson kristniboði i bréfi 18.
mars í fyrra: ,;Byggt hefur verið
nýtt geymsluhús hér á stöðinni og
einnig úti í héraði. Þangað erum
við nú að flytja korn, því erfitt
verður um vik eftir að regnið
byrjar að ráði, enda eyðileggjast
vegirnir fljótt. Hér á stöðinni er
mjög mikið af korni, á að gizka
500 lestir ... Megináherzla er nú
lögð á að flytja eins mikið korn til
stöðvarinnar og unnt er, áður en
rigningarnar hefjast. Annars er
okkar aðalvandamál að koma
korninu til fólksins vegna veg-
Fyrri hluti
leysu.“ Þyrlur voru einnig
fengnar til að auðvelda
flutningana og gekk starfið þá
mun harðar og hægt að koma
korninu mun víðar en það var
mjög kostnaðarsamt.
Menn ræða nú mjög hvernig
framtíð þessa fólks verður. Ljóst,
er að mikla uppbyggingu þarf í
viðbót við þessa skyndihjálp.
Hungrið er ekki fullkomlega úr
sögunni því ekki hefur regnið
verið nægilegt til að fá verulega
góða uppskeru. Regntímar eru
tveir í Konsó, annar i mars til
mai, hinn að haustinu. Síðast liðið
haust brást úrkoman aiveg en
nokkrar birgðir voru til og Skúli
Svavarsson kristniboði segir i
bréfi nú nýverið að neyöin sé ekki
eins mikil og útbreidd og I fyrra.
Sum þorp hafa nóg korn en önnur
ekki. Víða séu ein og ein
fjölskylda í vandræðum, en
hvergi eru heil þorp án korns.
Enginn á þó mjög mikið svo hann
sér fram á mikla neyð þegar fram
í sækir.
Þá segir í bréfi frá Jóhannesi
Ölafssyni kristniboðslækni fyrir
skömrnu, að Mekane Yesus
kirkjan í Eþíópíu og kristniboðið
séu í sameiningu að vinna að
framtíðaruppbyggingu landbún-
aðar. Flughetjan Von Rosen
hefur að undanförnu flogið um
með landbúnaðarsérfræðing, J.
Högentveit, yfir svæði í Suður-
Eþiópíu til að athuga hvort koma
megi upp áveitukerfi. Landbún-
aðarráðunautar eru því að finna
leiðir til að koma í veg fyrir að
hörmungarnar frá í fyrra endur-
taki sig.
Þessar áveituframkvæmdir ef
úr þeim verður og önnur upp-
bygging verður mjög kostnaðar-
söm svo greinilegt er að nóg verk-
efni eru framundan hjá þeim
aðilum, sem vinna að hjálpar- og
uppbyggingarstarfi.
. fcV* RICQMAC
'ÞP. ^ 101DP
. nmiii
Hljódlát. Slekkur á prentverkinu, ef engin
vinnsla i 3 sek. * rssir þad sjáltkrala er
vinnsla hefst á ný.
Skrilar á venjulegan pappír.
Nýtt og glæsilegt útlit.
Verd KR. 40.900
Grandtotal - Merkjaskifti - Minus-margfðldun
Konstant - Fljótandi komma
Auk: + — X -r
Stðr +takki. sem audveldar samlagningu og
kemur i veg fyrlr villur.
£
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
Hverfisgötu 33
Sími 20560