Morgunblaðið - 20.03.1975, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 20.03.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1975 21 — Minning Sólveig Framhald af bls. 23 virkja, nú búsett í Suður-Afríku; Halldóra, sem stundar nám í sál- fræði, gift Bjarna Arngrímssyni lækni, en þau dveljast nú í Sviþjóð; Gunnar, efnafræðingur, kvæntur Aase Jörgensen, hjúkrunarkonu, og Helga, sem stundar tónmenntarkennaranám. Árið 1955 fluttust þau hjónin frá Akureyri, fyrst til Reykjavík- ur, en síðar til Kópavogs, þar sem þau bjuggu um nokkurra ára skeió. Þetta átti sér þann aðdraganda, aó Gunnar tók erfiðan sjúkdóm og þurfti að leita sér lækninga i Reykjavík. Náði hann ekki heilsu aftur. Þetta var Sólveigu mikið áfall, að standa skyndilega uppi án fyrirvinnu með fjögur börn, flest á skólaaldri og eiginmanninn sjúkan. En Sólveigu heitinni var ósýnt um að láta bugast, þótt á móti blési um sinn. Hún tókst á við andbyrinn, leitaði sér vinnu utan heimilis og tók þeim starfa, sem til féll. Hún fór jafnvel aftur i síldarsöltun, bæði á Raufarhöfn og Seyðisfirði, enda var hún hvar- vetna eftirsóttur starfskraftur vió það starf. Gunnar héitinn lézt árið 1960. Að manni sínum látnum festi Sólveig heitin kaup á íbúó að Kaplaskjólsvegi 65 í Reykjavík, þar sem hún bjó ásamt Helgu, dóttur sinni, síðustu æviárin. Var þar í mikið ráðizt, en með sam- stilltu átaki Sólveigar og barna SUMARDEKK ÁGÖMLU VERÐI YOKOHAMA 145 - 13 Radial 155 -13 Radial 165 13 Radial 175 -13 Radial 520 - 12-4 strigalaga 550 - 12-4 strigalaga 615-13-4 strigalaga 500 / 520 - 14-4 strigalaga 590 - 14-4 strigalaga 645 - 14-4 strigalaga 640 - 15-4 strigalaga 165/380 - 15-4 strigalaga kr. 3.582 msk. kr. 3.762--- kr. 3.858--- kr. 4.421--- kr. 3.294 kr. 3.192- kr. 4.144- kr. 4.158- kr. 4.129 kr. 4.495 kr. 5.332 kr. 5.321 Véladeild Sambandsins HJÓLBARÐAR HÖFOATÚNI 8 SÍMAR 16740 OG 38900 FÁEINIR BÍLAR TIL GAZ-Z4 AFGREIÐSLU STRAX. Á GAMLA VERÐINU Áætlaö verö meö ryövörn kr. 849.560 - góölr greiösluskllmálar Bifreiðar & Landbúnaðarvélarhí. 'íí'íWífN Sudurlandsbraut 14 > Reykjavík - Simi 38600 hennar tókst að kljúfa þetta fjár- hagslega. Var henni mikill styrk- ur að samheldni barnanna á þessu erfiðleikatímabili. Sólveig heitin naut því kyrrláts ævikvölds og hélt hún allgóðri heilsu allt til hins síðasta. En sjaldan féll henni verk úr hendi, ef ekki voru þaó heimilisstörfin, fékkst hún við prjónaskap. Gestrisnin var ætíð hin sama og var jafnan gott að koma til hennar á Kaplaskjólsveg- inn. Þá rættist einnig sú ósk hennar á efri árum að fá að ferð- ast og heimsótti hún báðar dætur sinar, sem erlendis búa, bæði í Svíþjóð og Suður-Afriku. Fyrir tæpum mánuði veiktist Sólveig hastarlega og lézt á Borgarspítalanum hinn 12. marz s.l. „Enginn vinnur sitt dauða- strið“ og jafnvel þeir sterkustu falla að lokum i valinn. Má í hnot- skurn segja ,um hana eins og Klettafjallaskáldið um eikina: „Bognar ekki, brotnar f bylnum stóra seinast“. Að endingu vil ég votta börnum Sólveigar og fósturbörnum, syst- ur og venzlafólki dýpstu samúð mína. Umbun min er mikil að hafa notið samveru og umhyggju þess- arar ágætiskonu. Með þakklæti og söknuði mun minningin um hana geymast. Þórir Olafsson AUGLÝSINGATEIKIMISTOFA MYNDAMÓTA Aðalstræti 6 sími 25810 Nú látum VÍð PH1UP5 ÚTVARP fqlgja öllum nqjum FORD bílum sem pantanir eru staöfestar á fqrir mánaðamót SVEINN Skeifunni I7 EGILSSONHF sími 85100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.