Morgunblaðið - 20.03.1975, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1975
29
15
huggunar, að hann hefði alltaf
þyrst í að heyra fyrirlestur um
egypskar fornminjar og því næst
gekk hann sina leið.
En áður hvíslaði hann i eyrað á
mér þessi undarlegu orð: — Þér
ættuð að hafa auga með Mattson-
hjónunum. Ég held það myndi
borga sig.
Ég gaut augunum til mannsins,
sem var að rannsaka gluggakarm-
inn og svo gekk ég út I garðinn,
þar var varla sálu að sjá lengur.
Löving og menn hans höfðu
greinilega flutt vettvangs-
rannsóknir sínar. En Einar —
hvar gat hann verió? Eg reikaði í
áttina að hindberjarunnunum,
beygði síðan og fylgdi ánni góðan
söl spöl og nálgaðist æ meira stað-
inn sem ég vildi þó alls ekki þurfa
að sjá aftur.
Uti á vatninu lá báturinn, ljós-
blár, ljósmálaður og lokk-
andi... mig langaði til að bregða
mér í róður eða fara út i vatnið.
Ég minntist þess að við höfðum
daginn áður gert þessar unaðs-
legu áætlanir um hvað við skyld-
um njóta sumarleyfisins i ríkum
mæli í Skógum. Við höfðum ætlað
í ökuferðir um nágrennið, fara út
á vatn, fara í fjallgöngu og skoða
gamla fjallakofa, steikja kjöt úti
undir beru lofti eða sitja á
veröndinni og lesa í ró og næði.
Eg andvarpaði ósjálfrátt um leið
og ég hugsaði aó það væri vist
óhjákvæmilegt að þetta færi á
dálítió aðra lund. Einar var sjálf-
sagt búinn að sökkva sér niður í
rannsóknina af hinum mesta
fjálgleik og faóir minn hefur
sjáifsagt óskað þess heitast aó
hann væri kominn í lestrarsalinn
í háskólanum.
Og var ég ekki sérstaklega
eigingjörn og illa innrætt að
ganga um í mestu fýlu, vegna þess
að einhverjir sumarleyfisdraum-
ar höfðu farið út um þúfur —
þegar ungur maður á minum aldri
hafði verið myrtur — einmitt hér
þar sem ég nú stóð — og þar með
höfðu öll framtíðaráform hans
verið eyðilögð á einu bretti.
Það setti að mér hroll þrátt
fyrir sólskinið og ég vissi að það
þýddi ekkert að þykjast vera köld
og kærulaus gagnvart þessu.
Vissulega hafói ungi maðurinn
verið mér gersamlega ókunnur,
en það var einnig raunin að örlög
og afdrif Tommy Holts. Nú kom
þetta fólk og þetta mál mér við, ég
gat ekki leitt það hjá mér.
Kannski var það einskær til-
viljun að Tommy hafði verið
myrtur sama kvöld og við komum
til Skóga og það var sjálfsagt fyrir
duttlunga örlaganna að hann
hafði verið myrtur í garðinum
okkar og með hnífnum hans
pabba míns. En eitt skipti máli
öðru framar: Tommy Holt var dá-
inn og þess vegna hafði hann
gripið inn í tilveru okkar og var
orðinn þungamiðjan í lífi okkar
og hugsunum.
Hver var hann? Hvað hafði
hann hugsað og vonað? Hvers
vegna hafði hann óvænt komið
aftur til Skóga? Hvern hafði hann
ætlaó sér að heimsækja? Og hver
var sá sem hafði hitt hann hér á
flötinni nóttina áður?
Eg heyrði braka í grein að baki
mér. Ég snerist á hæli og leit í
kringum mig og sá ekkert... en
svo heyrði ég skvamp eins og
steinvölu væri kastað i vatnið og
niðri við ána sá ég grenigreinarn-
ar bærast.
Titrandi af undrun og kviða
flýtti ég mér inn í gamla lystihús-
ið og það hvarflaði að mér sem ég
stóð þar og grasið náði mér í kálfa
að þetta væri kjörinn felustaður
fyrir þann 'Sem væri að biða
átekta og vildi ekki láta aðra
veróa var við ferðir sínar... Dyrn-
ar að lystihúsinu sneru niður að
bátnum og til að geta séð gerðið
varð ég að fara nær dyrunum. Ég
gerði það og nam staðar þrumu
lostin.
Ég hafði haft á tilfinningunni
að grenigerðið næði alveg niður
aó ánni. Nú sá ég að þetta var
ekki rétt. Fyrir neðan neðstu
grenitrén var auó spilda meðfram
árbakkanum og með því að stikla
á steinunum úti á ánni af mikilli
fimi gat hver sem var komizt inn
á lóóina okkar af þeirri sem næst
var.
Og aðili sá sem nú hafði tryggt
sér aðgang að Árbökkum stóð
ekki Thotmes að baki hvað fimi
snerti. Og aðilinn minnti mig
einnig í öðru á Thotmes. Jafn-
skjótt og hún var kominn yfir á
okkar lóð, lagðist hún á fjóra fæt-
ur og byrjaði með mikilli ákefð að
skriða um í grasinu.
FIMMTI KAFLI
Eg var um hrið gersamlega orð-
laus af undrun, áður en það rann
upp fyrir mér að konan var að
leita að einhverju. Hún skreið
fram og aftur um grasflötina með
órólegum rykkjum... á nákvæm-
lega sama stað og líkið af unga
manninum hafði legið á skömmu
áður. Hún virtist grandskoða því
sem næst hvert strá, hún þreifaði
með höndunum um allt en án
árangurs. Hvað svo sem það var
sem hún leitaði að, var það greini-
lega ekki lengur þarna. Loks reis
hún upp og kenndi óþols í fasi
hennar og ég gat loksins fengið að
sjá hvernig sú manneskja leit út,
sem hafði iaumast inn á flötina
okkar.
Hún var vissulega hin fö>ngu-
legasta. Sennilega var hún milli
tuttugu og fimm og þrítugs og
líkamsvöxturinn var mjög fagur.
Og þar sem hún var aðeins klædd
i hvítar stuttbuxur og örlitinn bol,
sem rétt huldi barminn sá ég
einníg að hún var brún um allan
Þá mun ég sjá um, að þér munuð ekki hugsa um
skatta og aðrar skyldur svo serr. næstu 10 mínút-
urnar.
VELVAKAIMOI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 10.30— 11.30, frá mánudegi
' til föstudags.
% Verð búvöru
hér
og í Danmörku
Herdís Hermóðsdóttir skrifar:
„Eskifirði 28*2. ’75.
Heil þér Velvakandi!
Nú vildi ég mega eiga þig að,
til að koina nokkruin ábendinguin
til manns, sem nefnir sig H.Kr. og
sendir inér kveðju sína í Landfara
Tímans þann 22. febrúar s.l.
Tilefnið er grein min i Morgun-
blaðinu 16. febr og telur hann þar
rangt farið með tölur. Birtir hann
tölur þvi til sönnunar og efa ég
ekki að þær eru réttar. Það hagg-
ar hins vegar ekki þeirri stað-
reynd, að það eru minar tölur
einnig.
Ég get fullvissað H.Kr. uin það,
að ég, og margar konur aðrar
sneru frá gulrófukaupunum í
haust, þegar þær komu fyrst á
inarkaðinn, og kostuðu 145,00
kr./kg og keyptum okkur heldur
epli á 140 kr./kg og appelsínur er
kostuðu 98,00 kr./kg.
Ég mun ekki birta hér inargar
tölur að þessu sinni, þó að ég hafi
þær. Til þess inun gefast tækifæri
bráðlega, ef að líkum lætur. Þó vil
ég nefna hér verð á fjórum vöru-
tegundum í Danmörku og hér, til
umþenkingar fyrir H.Kr. Þær eru
þó frá því uin mánaðainót nóv. og
des. með þáverandi gengi krón-
unnar.
Þetta er smásöluverð.
Þegar að þessu er gætt, er engin
furða þótt fram koini kröfur uin
að við fáum að kaupa búvörur inn
í landið og jafnvel þyki réttlætis-
krafa að nota heldur niður-
greiðsluféð til aðstoðar við skatt-
greiðendur, sem sannarlega eiga
nógu erfitt uppdráttar I þessu
dýrtíðarflóði, sein ekki sér fyrir
endann á, ineð því að verja þeim
til innflutnings á erlenduin land-
búnaðarvöruin.
0 Færrihendur —
hærra verö
Þá vil ég benda H.Kr. á, að I
mínum augum er það harla und-
arlegt, að eftir því sein færri
hendur afkasta meiru skuli verð-
ið fara síhækkandi. Alls staðar
annars staðar en i landbúnaðin-
um íslenzka, virðist þvi öfugt far-
ið. Því færri sein framleiða ineira,
því lægra verð, örari sala og hag-
kvæinari samkeppnisaðstaða.
Þarna hljóta að vera inaðkar í
mysunni. Það er í inínuin auguin
óverjandi að okra á brýnustu lifs-
nauðsynjuTn fólks í skjóli þess aó
það verði að ganga að hvers kyns
afarkostuin ef það vill lífi halda.
Og stjórnvöld banna þvi að kaupa
lífsnauðsynjar hagkvæinara verði
annars staðar.
Er það ekki að sama skapi
næsta undarlegt, að fiinm þúsund
inanns, af rúinlega 200.000 skuli
eiga landið. Þessir 5000 eigendur
okra einnig á því. 200.000 manns
eiga engan rétt til landsins!
200.000 landlausir íslendingar,
5000 íslandseigendur! Öneitan-
lega athyglisvert. Þessir eigend-
ur landsins okra einnig á áin og
vötnuin þess allt upp i óbyggðir af
þvi að rollurnar þeirra hafa villzt
þanga uppeftir! Þeir geta bannað
virkjanir, en heimta uin leið að
þeiin sé séð fyrir rafinagni, frá
virkjunum I öðrum sveitum.
í inínuin augum er þetta orðið
eins og fullkomnasta framúr-
stefnuleikrit. Á þetta vil ég benda
H.Kr. til íhugunar. Margt fleira er
inér ofarlega í huga, en ekki rúm
fyrir það hér.
Að endingu vil ég aðeins geta
þess, að það för nú fyrir ofan garð
og neðan hjá inér, hvaða erindi
útlitslýsing undirritaðar átti í
grein H.Kr. Þaðan af siður hrifin
af sinekk hans. En til þess að
gjalda í nokkru líku líkt, ætlaég
hann vera milli fimmtugs
og sextugs. Ekki þó yngri en
50 þar sem hann virðist vera
af þeim skólanum að konur
eigi að vera sætar, prúðar
og skoðanalausar, — lítandi ineð
andakt og hrifningu upp til hinna
réttreiknandi og óskeikulu karl-
inanna, sein eru þó ineð allri sinni
visitölu- og prósentureiknings-
kúnst búnir að koina þjóðinni
frain á hengiflug í efnahagsmál-
uin; og tæplega yfir 60, þar sein
hann virðist þó ekki dauður úr
öllum æðuin, fyrst hann tók eftir
útliti konunnar á inyndinni, svo
aumur sem honuin þótti inálflutn-
ingurinn.
Með beztu kveðju,
Herdís Hermóðsdóttir."
0 Gagnslítil
viövörun
Kristrún Haraldsdóttir, Drápu-
hlíð 40, hafði sainband við okkur
vegna fréttar, sem birtist hér
blaðinu í fyrradag. Þar var sagt
frá því að fræg afbrotahjú væru
nú enn komin á stjá, látandi
greipar sópa þar sein þau næðu
til. I fréttinni var fólki bent á að
vara sig á hjúunuin þar sem þau
væru til alls vís. Kristrún sagðist
ekki sjá að þessi viðvörun hefði
inikla þýðingu þar sein ekki væru
birtar inyndir af þessu fólki. Hún
sagðist vita, að inargt afgreiðslu
fólk í verzlunuin þekkti það og
gæti því varað sig á þvi, en þv
miður væri ekki það sama að
segja uin þorra fólks.
Hún sagðist vera þeirrar skoð
unar, að nú orðið væri þjófnaðui
þessa fólks orðin lögvernduð at
vinnugrein, þar sem því vær
jafnóðum sleppt úr haldi, og þa
látið komast upp með að skjót
öllum sinum málum til hæsta
réttar, þar sem mál tækju allt upp
I sex ár.
Við höfum litlu við þetta að
bæta öðru en þvi, að þau réttind
að mega skjóta inálum sínuin ti
hæstaréttar, eru þau inannrétt
indi sem landslýður má sizt án
vera, og er þá nákvæmlega saina
hver i hlut á. Hins vegar er auð
vitað brotalöin i kerfinu þegai
sibrotafólk eins og hér um ræðii
gengur laust án þess að vörnun
verði við koinið.
Einn reginókostur á dómskerf
hérlendis er sá, hvað inálsineð
ferð tekur langan tiina. Þetta
virðast allir viðurkénna, en þv
miður virðist ekki svo sem úrbæt
ur séu á næsta leiti.
D. krónur ísl.kr. isl. verð. inisin.
1 kg kartöflur ................. 0.70 14.07 46.00 31.93
1 kgegg ........................ 10.90 219.00 460.00 251.00
llrjómi ......................... 5.48 100.13 309.00 198.87
1 kgsmjör....................... 16.40 329.57 464.00 134.43
Baö-
herbergis-
áhöld
Gull- og Chrome-
húðuð nýkomin í fjöl-
breyttu úrvali.
Einnig allar gerðir af bað-
herbergisspeglum og
öðrum speglum, með og
án ramma.
LUDVIG
STORR
Spegla
búðin
Laugavegi 15
Sími: 1 96-35
ELECTROLUX
Eftirtaldir aðilar
rciwmmw selja Electrolux
heimilistæki:
Akranes:
örin h.f., Skólabraut 31. S. 93-1880
Borgarnes:
Kf. Borgfiróinga. S. 93-7200.
Hellissándur:
Raft. verzl. óttars Sveinbjörnss.
S. 93-6685
Patreksfjöröur:
Baldvin Kristjánsson. S. 94-1295.
Bolungarvfk:
Jón Fr. Einarsson. S. 94-7351.
Isafjöröur:
Straumur S. 94-3321.
Blönduós:
Kf. Húnvetninga. S. 95-4200.
Sauóárkrókur:
Kf. Skagfiróinga. S. 95-5200.
Siglufjöróur:
Gestur Fanndal. S. 96-71162.
Ólafsfjöröur:
Raft. vinnustofan s.f. S. 96-62164.
Akureyri:
KEA S. 96-21400.
Svalbarðseyri:
Kf. Svalbarðseyrar S 96-21338.
Húsavík:
GrimurogÁrni S. 96-41137.
Vopnafjörður:
Kf. Vopnfirðinga S. 97-3201.
Egilsstaóir:
Kf. HéraðsbúaS. 97-1200.
Seyðisfjörður:
Kf. HéraðsbúaS. 97-2200.
Eskifjörður:
Pöntunarfélag Eskfirðinga S. 97-6200.
Reyðarfjörður:
Kf. Héraðsbúa S. 97-4200.
Höfn, Hornafirði:
KaskS. 97-8200.
Vestmannaeyjar:
Húsgagnaverzl. Marínós Guðm. S. 98-
1200.
Þykkvibær:
Verzl. Friðriks Friðrikss. S 99-5650.
Keflavík:
Stapafell h.f. S. 92-1730.
Reykjavík:
Raflux s/f, Austurstræti 8. S. 20301.
I Husgagna og hvimilisd S 86 112
Maivoiudeild S 86 111 Velnaðarv d S 86 11 3
IE5IÐ
- ---tr*
' •í,lor0mibInaií>
1* Bl Dlubn,
0RGLEGR