Morgunblaðið - 20.03.1975, Page 32

Morgunblaðið - 20.03.1975, Page 32
JHergunbladifc nucivsmcRR 22480 JNnsimiWt nucivsincHR ^-«22480 FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1975 FORSKOT Á VORIÐ — Enginn skyldi lofa vori núna strax, ekki einu sinni komið fram yfir páska, sem í ofan á lag eru með fyrra fallinu. Hinu verður þó ekki á móti mælt að það hefur verið vorþíða í lofti í Reykjavík síðustu daga og þaó kunnu þeir að meta þessir glaðklakkalegu strákar, sem ljósmyndari Mrogunblaðsins rakst á í Landfógetagarðinum sem auk þess geymir bein Reykvíkinga frá liðnum öldum. Hvassafell: 10 manna lið reynir að fjar- lægja olíuna VÆNTANLEGA skýrist f dag hvort unnt verður að ná olíunni úr Hvassafelli, þar sem skipið liggur á strandstað við Flatey. 1 gær hélt tfu manna iið héðan frá Reykjavfk norður og fór samdæg- urs út í Flatey, en þeir hyggjast freista þess að ná svartolfunni úr skipinu. Átta þessara manna eru starfs- menn útgerðar skipsins — skipa- deildar Sambandsins — en auk þeirra eru með i förinni Stefán Bjarnason, mengunarvarnasér- fræðingur Siglingamálastofnunar ríkisins og danskur sérfræðingur á þessu sviði. Höfðu þeir meðferð- is ýmsan útbúnað til nota við los- un olíunnar úr skipinu. Um borð í Hvassafelli eru um 140 þúsund lítrar af svartolíu. Frá Akureyri hefur verið fenginn tankbátur sem getur flutt um tíu þúsund litra og eins er Stapafellið komið á vettvang, því að ætlunin er að báturinn selflytji olíuna úr Hvassafellinu yfir í Stapafellið, ef unnt reyndist að dæla olíunni. Að sögn Hjsrtar Hjartar, fram- Framhald á bls. 18 Nýjar efnahagsráðstafanir í dag: Skyldusparnaður uimurður nið- skattalækkun í DAG mun ríkisstjórnin væntan- lega leggja fram á Alþingi frum- varp um ráðstafanir í efnahags- málum, sem er þáttur í þeim ráð stöfunum, sem rikisstjórnin hef- ur beitt sér fyrir að undanförnu til þess að treysta efnahag þjóðar- innar. Samkvæmt þeim upplýs- ingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, munu höfuðatriðin í þessu frumvarpi vera: 0 Umtalsverður niðurskurður á útgjöldum ríkissjóðs WDNUBATAR FYLLA TVLSVAR Á SÓLAR- HRLNG t FAXAFLÓA EFTIR því sem næst tveggja sólarhringa brælu fóru loðnubát- arnir á miðin í fyrramörgun. Um kl. 18 í fyrrakvöld fóru fyrstu skipin að tilkynna um afla og frá þeim tíma til kl. 18 f gær höfðu 54 skip tilkynnt um afia til Loðnu- iöndunarnefndar, samtals 18735 lestir. Aflann fengu skipin að mestu í Faxaflóa, en þar er nú gffurlega mikil loðna að sögn sjó- manna, og sumir bátarnir höfðu Auglýsendur athugið AUGLÝSINGAR, sem birtast eiga í páskablaðinu, sem kemur út á skfrdag 27. marz, þurfa að hafa borist auglýs- ingadeildinni fyrir kl. 18.00 mánudaginn 24. marz. Matvörumarkaðssfðan mun birtast á miðvikudag og verða þvf tilkynningar á hana að hafa borist auglýsingadeild- inni fyrir kl. 18.00 mánudag. náð þvf að fara í land, landa og fylla sig aftur. Og er þvf sólar- hringsafii margra skipa mjög góður. Aflanum hefur verið landað á flestum höfnum á SV-landi og f Norglobal, sem liggur í Hvalfirði. Segja sjómenn, að ef það væri ekki, þá væri ástandið slæmt, þar sem skipið tekur á móti mestu magninu og einstaka verksmiðjur við Faxaflóa nýta ekki einu sinni allt það þróarpláss, sem þær hafa. I gærkvöldi var mikil löndunar- bið, einkum vegna þess að skipin gátu ekki siglt til Vestmannaeyja vegna veðurs. Eftirtalin skip til- kynntu um afla: Svanur 315 lestir, Skógey 230, Rauðsey 420, Bjarni Olafsson 300, Gísli Árni 400, Árni Sigurður 360, Magnús 260, Faxi 200, Þorsteinn 340, FIosi 260, Gullberg 400, Helga 2. 280, Óskar Halldórsson 390, Sveinn Sveinbjörnsson 220, Ásgeir 150, Loftur Baldvinsson 500, Heimir 420, Örn 300, Helga Guðmundsdóttir 450, Náttfari 130, Skfrnir 290, Ásberg 320, Ósk- Framhald á bls. 18 0 Lækkun beinna skatta í sam- ræmi vió hugmyndir sem sett- ar voru fram fyrir nokkru vió aðila vinnumarkaöarins 0 Heimild' til niöurfellingar tolla og lækkunar á söluskatti á nauðsynjavörum 0 Sérstakt flugvallargjald, sem allir greiöa, er fara frá ís- landi til annarra landa • Skyldusparnaóur hátekju- manna 0 Akvæði um útlán fjárfest- ingarlánasjóðs o.fl. Ráðstafanir þessar, sem væntanlega verða til 1. umræðu á Alþingi á morgun og stefnt er að afgreiðslu á fyrir páska, koma til viðbótar þeim efnahagsráðstöfun- um, sem ríkisstjórnin hefur haft frumkvæði að undanfarnar vikur en þær eru: 0 Gengisbreytingin 0 Hækkun á innfluttnings- gjaldi bifreiða 0 Hækkun söluskatts vegna Norðfjarðar og Vestmanna- eyja Týr á heimkið TVR — hið nýja varðskip Land- helgisgæzlunnar, er nú á heim- leið. Það lagði af stað frá Árósum um kl. 10.25 í gærmorgun. Það átti f gærkvöldi að hafa stutta viðkomu í Kristjánssundi til að setja þar í land norskan sérfræð- ing, sem aðstoðaði við frágang skipsins undir iokin, en að því búnu á Týr að halda beinustu leið til landsins. Skipherra á heim- siglingunni er Guðmundur Kjærnested. 0 Takmörkun útlánaaukningar viðskiptabankanna til að draga úr þenslu 0 Hækkun áfengis og tóbaks Með framlagningu þessa frum- varps í dag munu efnahagsráð- stafanir ríkisstjórnarinnar hafa fengið á sig þá heildarmynd, sem að hefur verið stefnt, og verði frumvarpið samþykkt, sem vænta má, þar sem um það hefur verið fjallað í þingflokkum stjórnar- flokkanna, er sá þáttur einn eftir að gengið verði frá kjarasamning- um til nokkurrar frambúðar. KÆRÐI EIGIN GLÆPl RANNSÓKNARLÖGREGL- UNNI f Hafnarfirði barst fyrir liðlega mánuði kæra vegna stulds á 20 flöskum af áfengi og 5—6 lengjum af sígarett- um. Rannsóknarlögreglan hef- ur sfðan leitað þjófsins eins og vera ber og er málið nú leyst. Reyndist þjófurinn vera eng- inn annar en maður sá sem kom til lögreglunnar á sfnum tfma og kærði þjófnaðinn! ^lánari málavextir eru þeir, að fyrrnefnt áfengis- og sígarettumagn hvarf frá ónefndum stað í Hafnarfirði. Maður nokkur, hæstráðandi á staðnum, kom til lögreglunnar og kærói atburðinn. Gaf hann iögreglunni greinargóðar upp- lýsingar um málið og lét einnig þung orð falla í garð þeirra sem afbrotið höfðu drýgt. Hófst nú lögreglan handa og eftir mánaðar eftirgrennslan fóru böndin að berast aó hæst- ráðanda sjálfum. Var hann tekinn til yfirheyrslu og neit- aði harðlega í fyrstu en játaði svo að lokum. Kvaðst hann sjálfur hafa komið áfenginu og tóbakinu i lóg. Það er ekki á hverjum degi sem þjófar kæra eigin glæp, enda varð Sveini Björnssyni lögregluvarðstjóra í Hafnar- firði að orði í gær er Mbl. ræddi við hann, að þaó væri anzi hart þegar lögreglan þyrfti að byrja á því að yfir- heyra þá sem tilkynna innbrot- Gunnar Kr. Gunnarsson á FIDE-þinginu: Svæðamótíð haldið í Reykjavík í október „VIÐ erum búnir að fá staðfest- ingu á þvf að við getum haldið svæðamótið heima á Islandi f október og það á þvf aðeins eftir að ganga formlega frá þessu hjá skáksambandinu heima,“ sagði Gunnar Kr. Gunnarsson forseti Skáksambands Islands í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann var þá staddur á aukaþingi FIDE f Hollandi. „Það eru allir hér mjög ánægðir með að við tökum þetta svæðamót að okkur og það gerir mikla lukku, hélt Gunnar áfram." Einnig er útlit fyrir að við getum látið tvo Islendinga keppa og þá er líklegt aó auk Friðriks keppi Jón Kristinsson og fái þannig tækifæri til að vinna sér inn í stórmeistarann ef annað mót kemur þá ekki til áður. Einnig er útlit fyrir að við getum haft íslenzkan dómara á þessu svæða- móti. Upphaflega var áætlað að 18 skákmenn tækju þátt í þessu umrædda skákmóti, en Ijóst er að nokkrir þeirra falla úr vegna stjórnmála m.a., en Ródesía og Suður-Afrfka verða ekki með þess vegna og að öllum líkindum dett- ur Belgía einnig úr spilinu. Það getur því farið svo að keppendur verði ekki nema 14, en m.a. vegna þessarar þróunar er mögulegt að bæta íslendingi við." Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.