Alþýðublaðið - 03.09.1958, Síða 4
4
Alþý-ðublaSiS
Miðvikudagur 3. sept. 1958.
útgefandi: ÆS KÁN OG LÁ N D I Ð
Samband ungra jafnaðarmanna. J l\ M H WW Í-Mn f/ I 1/
Ritstj órar: Uiinar Stefánsson.
Auðunn Guðmundssou
Atvinnuástandið á Hofsósi:
Un
hvert sinn e
Spjallað við unga heimamenn á Hofsósi
„ÁSTANDIÐ er þannig, að
við liggur að ungt fólk þurfi að
kynna sig í hvert sinn er Það
kemur heim. Unga fólkið hef-
ur ekki setzt hér að sökum þess
hve atvinnuástandið er slæmt.
Þó að ungt fólk, sem hér hcfur
alizt upp, gangi í hjónaband,
þá ber það ekki við að stofna
hér heimili sökum þess hve af-
komumöguleikar eru óvissir.“
Svona var svar ungs manns
norður á Hofsósi, er tíðinda-
maður síðunnar vakti máls á
atvinnuskiiyrðum þar í þorp-
inu. Hofsós virðist við fyrstu
sýn hafa dregizt nokkuð aftur
úr þeirri þróun, sem orðið hef-
ur í flestum sjávarplássum hér
á landi undanfarna áratugi.
Hérna var gamall verzlunar-
staður, en hefur sett ofan sem
slíkur. íbúarnir hafa síðan
stundað jöfnum höndum sjó-
Guðmundur Kristjánsson.
"'Mlþy.iliW
sókn og landbúnað, en skilyrði
eru slæm til að stunda sjó og
landbúnaður er lítill.
Við hittum að máli tvo bræð
ur og biðjum þá að segia okkur
nánar frá atvinnulífi á Hofs-
ósi. í>eir heita Þórður og Guð-
mundur Kristjánssvnir. Þórð-
ur hefur verið í stjórn verka-
lýðsfélagsins á staðhum í þrjú
ár og formáður í tvö ár. en Guð
mundur er nú formaður í verka
lýðsfélaginu, tók við af broður
sínum á síðastliðnum velri. Við
beinum fyrst mái:' okkar að f°r
manni verkalýðsféiagsins, því
að hann ættj að vera kunnugur
atvinnulífinu:
_ „Það er nú svo, segir Guð-
mundur, að föst atv.imia er hér
naumasf nokkav íyrir ungt
fólk. Þórður hefnr að v.su fasta
vinnu hjá kaupfé'aginu. en
Hofsós er þrjú hundruð rnanna
bær og í verkalýö.;fe1aginu eru
84 félagsmenn. Flestir, sem
heimangengt eiga, fara burtu
úr þorpinu og suður á land á
vetrarvertíð. Á sumrin koma.
menn hingað eins og gestir.
Þegar síld er, hópast aUir lausir
og liðugir menn til Siglufjarð-
ar. Annars eru menn yfirleitt
heima yfir sumarmánuðina ,og
dunda við búskapinn og trill-
urnar. Fplk kánn- að. spyrja
Þórður Krístjánsson.
hvers vegna menn flytjist ekki
héðan, og það er nú einu sinni
svo, að menn eiga hér fjöl-
skyldu og hús, sem ekkj er
hægt að selja. Margír eru með
einhverjar skepnur, kú og
nokkrar kindur. Og við gerum
okkur vonir um að atvinnuá-
standið batni, ef eitthvað verð-
ur gert fyrir staðinn til þess að
tryggja sæmileg atvinnuskil—
yrði.
Eg hef verið hér heima frá
áramótum, segir Guðmundur,
og ég hef haft daglaunavinnu
í eina -viku. Auk þess smá-
vegis skipavinnu, þegar skip
koma. Það er al.lt og sumt. I
sumar hef ég verið á trillu.
Það hefur gengið illa. Frá ára
mótum hef ég haft tíu þús-
und króna tekjur. Þegar við
leggjum hlustirnar við og
endurtökum tíu þúsund, seg-
ir Guðmundur að það sé ofur
algengt á Hofsósi. Menn Iiafi
ekki fhaft nieira þetta árið.
Menn hafi að vísu í soðíð á
trijlunum, en hreint ekki
meira.
í sumar eru gerðar út tólf
trillur frá Hofsósi og tveir tutt-
ugu tonna bátar komu nýlega
tíl þorpsins. Bátarnir sækja á
Skagafjörð, en fiskirí hefur
ekki verið minna í mörg sumur
en nú. Þeir bræðitr segja, ao
fiskigengd á Skggafirði hafi
ekki aukizt við fyrri útvíkk-
un friðunarlínunnar.. Frá
Horni að Skagagrunni taldi
síldarbátur um daginn 130 fog.
ara, sem toguðu við línuna- Við
hina nýju stækkun friðunar- »
svæðisins gera þeir sér vonir
um aukna fiskigengd í fjörð-
inn.
Þegar spurt er hvað þeir telji
nauðsynlegt að gera á Hofsósi
til að bæta atvinnuskilyrðin,
telja þeir brýnasta þörf á að
lengja bryggjuna og bæta hafn-
arskilyrðin. Standa vonir til að
næsta vor verði hafizt handa
um það verk. Eitt frystihús er
í þorpinu en það hefur ekki
fengið1 hráefni og engi.n verk-
efni að vinna. Eins og sakir
standá er það stækkun bryggj'-
unnar, sem verkafólk heíur
augastað á að þurfi að gera,
segir Þórður. Það er hörmulegt
hvað þingmtenn Skagfirðinga
hafa lítil afskipti haft af okk-
ur hér. Þeir hafa ekki komið
hér og ekki spurt hvað hægt
væri fyrir okkur að gera. Þeir
lofa og lofa á kosningafundum,
en síðan sjást Þeir ekki meira,
þeir góðu menn. Margir hafa
orðið fyrir miklum vonbrigð-
um að þessu leyti.“
„Hvernig er það með Alþýðu-
samband íslands?** spyr Guð-
mundur, formaður verkalýðs-
félagsins. „Er ekki eitthvað að
frétta að sunnan frá því? Við
höfum engar spurnir haft af
því meðan núverandi stjórn
hefur setið að völdum. Stjórn-
in hefur ekkert látið til sín
Frá Hofsósi — séð yfir þorpið.
heyra. Tímarit ASl, Vinnan,
hefur ekki kornið út um lang-
an tíma og stjórn verkalýðsfé-
lagsins hérna hefur ekkj fengið
útreiknaða kaupgjaldsskrá í
háa herrans tíð. I Vinnunni
birtust alltaf kauptaxtar, en nú
höfum við engin gögn í hönd-
unum um kaupgjaldið.“
„Ég er hræddur um. að þiíig-
maður Framsóknarflokksins
hér í kjördæmi hafi ekki sveip-
að um sig dýrðarbaug í augum
okkar Hofsósbúa á þess.u kjör-
tímábili,“ segir Þórður. „Við
höfum nánast ekkert ha:ft af
honum að segja. Hins vegar fór
Framsóknarmaður héðan úr
þorpinu á vegum hreppsnefnd-
arinnar suður til Reykjavíkur í
vor til að athuga hvað ætlunín
væri að gera fyrir þorpið. Hann
kom 'heim og hófst þegar handa
um að byggja ísbar. Mú höfum
við fengið íssölu, ísborg í miðju
þorpinu. Við höfum að vísu
haft nokkra atvinnu á und'an-
förnum árum við að byggja
kirkju og nú er ætlunin að
byggja félagsheimili, en sjáan-
lega verður engin framtíðarat-
vinna bundin við þau hús.
— Ég vil gjarna geta þess,
sagði Þórðúr, ef þú ætlar að
segja eitthvað frá okkur eða
Hofsósi í Alþýðublaðinu, að
mér hefuj. fundizt það vera
stefná Alþýðúflokk'smanna að
berjast fyrir bættum kjörum
þeirra manna, sem hafa tekið
sér fyrir hendur siémennsku
og verkamannastörf. Alþýðu-
flokkurinn hefur alltaf á al-
þingi og annárs staðar lagt lið
þeim málum., sem orðið hafa al
þýðu þessa lands fyrir góðu.
Við vitum það 'hérna enn
hvernig kjör og aðstöðu alþj?ðu
fólk um landið hefur búið við
fram til þessa. Mér finnst að
margur alþýðumaðurinn hafi
minní ástæðu tU að fylgja öðr.
um flokkum að máli en Alþýðu
f.'okknum.
Góðar horfur á a5 Frlðrik verði melaf sex
efsfu og faki þátf í kandídafamófinu
Á eftir að tefía við Tal, Petrosjan, Sher-
win og De Greiff, en tíu menn eiga énn
mögufeika á efstu sætunum
EFTIR jafntefli sín við San-
•guínetti og Panno hefur Frið-
rik tíu vinninga, og er í þriðja
sæti, á eftir að tefla fjórar skák.
ir. Hann situr yfir í næstu um-
ferð en teflir síðan í röð við
Rússana Tal og Petrosjan, síð-
an við Sherwin frá Bantlaríkj-
unum og loks við de Greiff frá
Columbiu.
Til þess að verða meðal sex
efstu þarf Friðrik að fá út úr
fjórum síðustu skákunum. tvo
og hálfan vinning. — Til þess
þyrfti hann að vinna Sherwin
og de Greiff í síðustu skákun-
um og gera jafntefli við annan-
hvorn Rússanna.
Skákmótið er nú orðið gríð-
arlega spennandi og ekki gott
að segja fyrir hvernig fara
muni, því að allt getur gerzt í
tafli. Það liggur hins vegar
ljóst fyrir að ellefu menn eiga
möguleika á að komast í sex
efstu sætin og tíú þeirra sæmi-
legar líkur. Bezt er að athuga
þetta með því að telja „mínus-
ana“ og ekki má gleyma að
taka með í reikningin nbiðskák
ir og „yfirsetur“, þ. e. hvort
mennirnir hafa setið yfir eða
ekki. Af slíkum athugunum
kemur í ljós ,að Tal, sem. nú hef
ur 11 vinninga og 5 mínusa, en
Matanovic sem nú hefur 9 vinn
inga heful líka 5 mínusa, ef svo
má að orði komast, Hann á
nefnilega biðskák við Rosetto
og hefur setið yfir. Tal á eftir
að sitja yfir, en Matanovic á
eftir að tefla við mjög sterka
me.nn þá Benkö, Fischerj Bron- ,
Friðrik Ólafsson
steinj Averbach og Larsen, sem
allir eru meðal hinna tíu sterk-
ustu.
Petrosjan, sem nú er í öðru
sæti með IOV2 vinning hefur 5
mínusa ásamt með Averbac.h og
Bronstein, sem, hafa 8V2 vinn-
íng. Báðir eiga þeir sér bið-
skák og hafa báðir setið yfir.
Að því leyti bafa Þeir ef til vill
sömu aðstöðu og Petrosjan, en
allir þrír efstu, Tal, Petrosjan
og Friðrik hafa ekki setið yfir.
Friðrik, sem nú er í þriðja
sæti með 10 vinninga situr yf-
Framhald á 5. síðu.,