Morgunblaðið - 04.04.1975, Síða 36
JHorgunWntúfc
RUGivsmcnR
«£L*-«22480
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1975
"=pi
mnRGFRLDRR
mÖGULEIKR VDHR
Fjöldi fatlaðra og lamaðra skoðaði í gær sýningu Steinunnar
Marteinsdóttur leirkerasmiðs í Kjarvalsstöðum. A mvndinni sjást
nokkrir sýningargesta og er listakonan á tali við einn þeirra.
Ljósmynd Mhl. Ol. K. M.
Dagsbrún, Hlíf og Iðja
samþykktu samningana
Lækka Rúss-
ar olíuverðið?
Einar Agústsson rœddi við Kosygin
EINAR Ágústsson, utanríkisráð-
herra sem undanfarna daga hefur
átt viðræður við Andrei Gromyko,
utanrfkisráðherra Sovétríkjanna
og Nikolai Patoliehev, ráðherra
með málefni utanríkisviðskipta, f
IMoskvu, sagði seint í gærkvöldi
að Sovétríkin kynnu að vera
reiðubúin til að endurskoða verð
á olfu til tslendinga, að því er
fram kemur í frétt frá Reuters-
fréttastofunni í gærkvöldi. Að af-
loknum viðræðunum f Moskvu er
haft eftir Einari Ágústssyni að
samningamenn Sovétstjórnarinn-
ar hafi „ekki útilokað möguleik-
D.A.S.-húsið
gekk ekki út
DREGIO var í 12. flokki happ-
drættis Dvalarheimilis
aldraðra sjómanna í gær. 1
þetta skipti var dregið um hið
glæsiiega einbýlishús að verð-
mæti um 14 millj. kr. sem
stendur á Álftanesi. Þegar
dregið var fór það svo, að þessi
stóri vinningur kom upp á
óseldan miða. Þegar búið var
að draga kom stjórn D.A.S. til
fundar og þar var ákveðið að
þessi stóri vinningur yrði
hafður sem aukavinningur f
einhverjum flokknum á næsta
happdrættisári.
ann í einhverjum breytingum“ á
olfuverðinu. Segir ráðherrann að
fslenzk sendinefnd hafi verið
væntanleg til Moskvu á fimmtu-
dagskvöld, í gærkvöldi, til að
hefja viðræður um hin nýju við-
skiptakjör.
Einar Ágústsson kvaðst hafa
lýst þeirri von að takast megi að
ræða nýtt olíuverð i væntan-
legum samningaviðræðum um
nýtt fjögurra ára samkomulag við
Sovétríkin, að því er segir í
Reuter-fréttinni. Utanríkisráð-
herra sagðist vera Sérstaklega
ánægður með viðræður sínar,
þ.á.m. óvæntan klukkustundar-
langan fund í dag með Alexeí
Kosygin, forsætisráðherra. Þá
kvaðst ráðherrann hafa rætt um
hafréttarráðstefnuna og skýrt
ástæður Islendinga fyrir einhliða
útfærslu fiskveiðilögsögunnar úr
50 í 200 mílur siðar á þessu ári,
segir að lokum í fréttaskeytinu
frá Reuter.
Duflið í varðskip
VARÐSKIP er nú búið aó ná í
dufl það, sem rak á land í Ófeigs-
firði á Ströndum fyrir nokkrum
dögum og er það væntanlegt með
duflið til Reykjavikur eftir
nokkra daga.
Að sögn Péturs Sigurðssonar,
forstjóra Landhelgisgæzlunnar,
voru menn i gær að huga að
flutningi á dufli þvi sem er austur
á Fossi á Síðu og er það einnig
væntanlegt til Reykjavikur á
næstu dögum.
Þurftu að loka fyr-
ir rafmagnið hjá
sex fyrirtækjum
ÞRJÚ stærstu vorkalýösfc-
lög landsins, Dagsbrún,
Iöja og HIíl', hafa nú sam-
þykkt samninga þá, sem
níu manna nefnd AJþýóu-
sambands islands undirril-
aöi þann 26. marz síðastlið-
inn. Fundir voru haldnir í
þessum félögum síódegis í
gær og í gærkvöldi og voru
allsstaðar samþykktir með
Lilla-Ilvammi, 3. apríl.
UNDANFARNA daga hefur hér
orðið vart við stóran fugl, mjög
sérkennilegan og er talið alveg
víst að hér sé um stork að ræða.
Sforkurinn hefur haldið sig á
mjög afmörkuðu svæði í nánd við
bæi I Dyrhólahverfi og hefir verið
erfitl að komast nálægt honum
vegna styggðar. Hann hefur aðal-
lega haldið sig við skurði og farið
niður að sjónum í leit að æti.
Arnþór Garðarsson dýrafræð-
ingur sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi, að þeir Finnur
Guðmundsson fuglafræðingur og
Hjálmar R. Bárðarson siglinga-
málastjóri hefðu haldið austur á
Dyrhólasand í gærmorgun til að
skoða storkinn og voru þeir vænt-
anlegir til Reykjavíkur á ný i gær-
kvöldi.
Þetta er í annaö sinn, sem vitaó
er til þess með vissu að storkur
hafi komið til Islands. Fyrir
nokkrum árum sást storkur
skammt frá Höfn i Hornafirði. Að
sögn Arnþófs hafa þessir fuglar
borizt af leið á leið sinni frá
Afríku til Mið-Evrópu, en
miklum mcirihluta at-
kvæða.
Verkamannafélagið Dagsbrún
boðaði til l'undar í Lindarbæ kl.
21 í gærkvöldi og að sögn um-
sjónarmanns hússins voru á
fjórða hundraö manns í húsinu
þegar flest var. 'I'illaga kom upp á
fundinum, um að hafa skriílega
atkvæðagreióslu, en hún var felld
við handauppréttingu. Urslit at-
storkurinn er niikifl farfugl og
mun hafa dágott flugþol.
samningana urðu, að þeir voru
samþykktir með öllum greiddum
atkvæðum gegn 55.
Dagsbrúnarfundurinn í gær-
kvöldí mun hafa verið sá fjöl-
mennasti í sögu félagsins um
margra ára skeið.
IÐJA félag verksmiðjufólks
boðaði til fundar um samningana
í Iðnó siöari hluta dags í gær.
Fundurinn var vel sóttur og voru
yfir 160 manns á honum. Urslit
atkvæóagreióslunnar um
samningana uróu þau, að
samningarnir voru samþykktir
með 130 atkvæðum gegn 30.
Þá boðaði Verkamannafélagiö
Hlíí i Hafnarfirði til fundar um
samningana i gærkvöldi. Þar voru
samningarnir einnig samþykktir
með 68 atkvæðum gegn 10. Um 80
manns voru á íundinum.
Verkalýósfélagið Vaka á Siglu-
fírði hafði boðað til verkfalls á
Framhald á bls. 20.
„JÚ, ÞAÐ er rétt við lokuðum
fyrir rafmagn hjá sex fyrirtækj-
um hér f Njarðvíkum á þriðju-
daginn, en þá vorum við neyddir
til þess,“ sagði Jóhann Líndal raf-
veitustjóri í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann bætti þvf við,
að rafmagn væri nú komið á öll
þessi fyrirtæki aftur, enda væru
þau búin að borga sínar raf-
magnsskuldir eða ganga frá borg-
un á þeim.
Jóhann sagði, að skuldir fyrir-
tækjanna hefðu verið síðan fyrir
áramót og upphæðin komin yfir 6
millj. kr. Rafveitan hefði engan
veginn getaó staðið undir sliku,
og því hefði orðið að gripa til
þessara ráða. — Menn brugðu
hart vió og i dag voru allir aðiljar
búnir að ganga frá sínum málum,
sagði hann.
Hann sagði ennfremur að legið
hefði við að allt rafmagn hefði
verið tekið af plássinu, en skuld-
irnar hefðu fyrst og fremst legið
hjá fiskiónfyrirtækjum og þjón-
ustufyrirtækjum kringum sjávar-
útveginn. Vegna þessa ástands
var gerð könnun á hvað þjón-
ustufyrirtækin ættu útistandandi
og kom í ljós að það reyndist í
kringum 1 millj. kr. á hvern, sem
þýðir að fyrirtæki með 15 manna
starfslið á 15 millj. kr. í útistand-
andi skuldum og er meira en
meðalfyrirtæki getur staðið undir
með góðu móti.
D.P. Finn í slipp
BREZKI togarinn D.P. Finn
verður tckinn i slipp f Reykjavík
í dag, þar sem stýrið verður tekið
af honum og skrokkur skipsins
skoðaður eftir strandið austan
Hjörleifshöfða á dögunum.
Að sögn Geirs ZoÖga umboðs-
manns brezkra togara á islandi er
ekki vitað hve lengi togarinn
verður i slipp né hvaða skip það
verður sem dregur togarann út.
Friðrik um útnefningu Karpovs:
„Ekki sami blær yfir heims-
meistaratigninni og áður var”
MORGUNBLADIÐ hafði í gær
samband við Friðrik Ölafsson
stórmeistara, þar sem hann var
staddur á Las Palmas á Kanarí-
eyjum og innti m.a. eftir áliti
hans á framvindu mála í sam-
bandi við heimsmeistaraein-
vígið í skák og útnefningu
Anatoly Karpov sem heims-
meistara.
Friðrik sagði: „Það er vissu-
lega leiðinlegt aó ekkert einvígi
skuli fara fram og það er
skoðun mín sem fyrr, aó skák-
listin muni setja ofan við þetta.
Þeir eru eflaust margir sem
eiga erfitt meó að líta á Karpov
sem heimsmeistara, þar sem
hann hefur ekki þurft að tefla
um tignina. Ég er viss um að
Karpov sjálfur hefði viljað
tefla og jafnvel slaka á kröfum
til að svo gæti orðið. En þrjósk-
an virðist hafa verið orðin svo
mikil í sambandi við einvígis-
reglurnar að hvorugur hefur
viljað gefa neitt eftir. Eg á per-
sónulega erfitt með aö átta mig
á Fischer og ég heyri að svo er
um kollega mína sem hér eru
staddir vegna skákmótsins. Það
er allt í lagi að hafa skoðanir og
standa fastur á þeim, en fyrr
má nú rota en dauðrota. Þetta
er þeim mun einkennilegra
þegar haft er i huga að Fischer
er svo sterkur skákmaður, aó ég
held að hann hafi ekki verið i
neinni stórkostlegri hættu með
að missa titilinn þótt hann
hefði teflt við Karpov. En
reglunum verður að fylgja og
því telst Karpov nú heims-
meistari þótt ekki sé sami blær
yfir tign hans og verið hefði ef
hann hefði sjálfur til hennar
unnið í einvígi."
kvæðagreiðslunnar urn sjálfa
Storkur í Dyrhélahverfi
-1 annað skipti á Islandi