Morgunblaðið - 21.06.1975, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR OG LESBOK
137. tbl. 62. árg.
LAUGARDAGUR 21. JUNl 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Verkfallmu
var aflýst
London 20. júní — Reuter.
VERKFALLI járnbrautarstarfs-
manna, sem náð hefði til alls
Bretlands, ear aflýst á föstudag,
eftir að félag járnbrautarstarfs-
manna hafði fallizt á 30% launa-
hækkun.
Kosið í íran
Teheran 20. júní — Reuter.
MIKILL mannfjöldi flykktist að
kjörstöðum i fyrstu kosningunum
undir eins-flokks kerfinu, sem
keisarinn kom á fyrr i ár. Nærri
13 milljónir manna voru á kjör-
skrá og áttu þess kost að kjósa 268
menn í neðri deild þingsins og 30
af 60 í efri deild. Hina 30 útnefnir
keisarinn. Talning atkvæða hófst
strax eftir að kjörstöðum hafði
verið lokað á miðnætti. Minni-
hlutahópar, eins og Armeníu-
menn, Gyðingar, Assyríumenn og
áhangendur Zaraþústra fá sina
fulltrúa i þinginu.
Verkfailið sem átti að byrja
éinni minútu eftir miðnætti á
mánudag, olli miklum ugg vegna
þeirra áhrifa, sem það hefði haft
á efnahag landsins, sem ekki er
sem beztur fyrir.
Og brezku stjórninni bárust
fleiri góðar fréttir á föstudag,
þegar opinberir starfsmenn
sömdu um 25% kauphækkun,
sem sögð er vera innan þess
ramma, sem stjórnin hefur sett
um almennar kaup- og verðhækk-
anir.
Wilson, forsætisráðherra, hélt á
föstudag fund með helztu ráð-
herrum sínum að sveitasetri sínu
að Chequers. Er álitið að umræðu-
efnið hafi verið aðgerðir i efna-
hagsmálum og þá fyrst og fremst
hvernig hægt verður að halda
launahækkunum i skefjum fram-
vegis, helzt innan við 10%. Kenn-
ir stjórnin of miklum launahækk-
unum um hina miklu verðbólgu
' (25%) sem nú herjar áBreta.
I gærkvöldi höfðu engar fréttir
borizt af þessum fundi.
Byltingin í endur-
skoðun í Portúgal
Lissabon 20. júní
— Reuter, AP
Herforingjarnir í Portúgal
lögðu á föstudag síðustu hönd á
gagngera endurskoðun á
byltingarstefnu sinni. Var í kvöld
búizt við tilkynningu frá 30
manna byltingarráði hersins og
að tilkynningin sýndi hversu
mikilvægt skref atburðir vikunn-
ar hefðu veriö f átt að alræði
öreiganna.
I gær vísaði ráðið á bug hug-
myndum um slikt alræði og stað-
festi fyrri yfirlýsingar um að það
tæki lýðræðislega stjórnarhætti
fram yfir það. En vitað er að
áhrifamikil öfl innan ráðsins eru
mjög fylgjandi ríkisstjórn
hersins, án þátttöku kommúnista,
jafnaðarmanna eða þjóðar-
demókrata, sem nú eiga allir sæti
i samsteypustjórninni.
1 blóra við fyrirskipanir
byltingarráðsins um að ritstjórn
dagblaðsins Republica skyldi af
hent jafnaðarmönnum bönnuðu
hinar vinstri sinnuðu öryggis-
sveitir, Copcon ritstjórninni að
komast inn i aðalstöðvar þess, en
leyfðu hins vegar kommúnistísk-
um prenturum að leggja undir sig
bygginguna.
Dr. Raul Rego, ritstjóri Repu-
blica og stjórn blaðsins gerðu til-
raun til að komast inn á skrifstof-
ur sínar þriðja daginn í röð, en
Copcon tjáði þeim að inn kæmust
þeir aðeins ef prentararnir sam-
þykktu það með.atkvæðagreiðslu.
Fundur byltingarráðsins, sem
staðið hefur svo að segja sleitu-
laust frá föstudegi, mun væntan-
lega taka afstöðu til krafna
Copcon um róttækari stefnu í átt
að kommúnisma, óhindraða,. af
deilum við stjórnmálaflokkana.
Copcon er fylgjandi beinu sam-
bandi á miili herstjórnarinnar og
byltingarráða verkamanna. Hafa
sveitirnar sýnt hernaðarmátt sinn
í vikunni með þvi að senda á
vettvang vörubílsfarma af
vopnuðum hermönnum hvar sem
vandræði hafa komið upp I Lissa-
bon.
Jafnaðarmenn hafa boðað til
göngu til stuðnings við andstöðu
byltingarráðsins við alræði
öreiganna.
Enn liggja togararnir í höfn — og hafa gert það sfðan 9. apríl.
Ljósmynd ól.K.M.
Amin neitar enn að
þyrma lífi Denis Hills
Nairobi, 20. júní. AP.Reuter.
Idi Amin, forseti Uganda, vis-
aði á bug i dag persónulegri á-
skorun frá Elisabetu Bretadrottn-
ingu um að þyrma lífi brezka
háskólakennarans Denis Hills og
sagði að eini maðurinn sem gæti
bjargað lifi hans væri brezki
utanrfkisráðherrann, James
Callaghan.
Amin sagði, að sögn útvarpsins
í Uganda, að það væri alger for-
senda þess að lifi Hills yrði þyrmt
að Callaghan kæmi til landsins
fyrir mánudag. ,,Ef hann kemur
fyrr getum við rætt pólitiskar
hliðar málsins," sagði Amin.
Bandaríkin gætu hafa ver-
ið viðriðin fall Dinh Diems
Washington 20. júní
— Reuter.
BANDARtKIN gætu hafa verið
viðriðin fall Ngo Dinh Diems, for-
seta Suður-Vietnam, en áttu ekki
beinan þátt f morðinu á honum
1963, að því er yfirmaður CIA
sagði nefnd öldungadeildarinnar
sem fjallar um málefni leyni-
þjónustunnar.
John Tower, repúblikani, sem á
sæti i nefndinni, sagði að hug-
myndinni um að myrða Diem
hefði verið, hafnað af háttsettum
bandariskum embættismönnum.
Aðspurður um hvort Bandarik-
in hefðu á óbeinan hátt tekið þátt
i byltingunni gegn Diem, sagði
Tower: „Augljóslega hafa verið
þar að baki einhver bandarísk
áhrif. En eitt er ljóst, að öllum
hugmyndum um að myrða Diem
var hafnað á háum stöðum."
Tilraunir hafa verið gerðar til
að skella skuldinni á John
Kennedy og stjórn hans.
Tower sagði að yfirheyrslur,
sem fram hefðu farið i dag yfir
Colby, sem eru þær fimmtu siðan
nefndin hóf að kanna starfsemi
leyniþjónustunnar, hefðu aðal-
lega snúizt um fall Diems.
Þó að Tower hafi ekki viljaö
staðfesta eitt né neitt, er talið
liklegt að Colby verði kallaður
aftur fyrir og þá yfirheyrður um
önnur hugsanleg morðsámsæri
gegn erlendum stjórnmálamönn-
um eins og Fidel Castro, forsætis-
ráðherra Kúbu.
Þá er einnig til rannsóknar
hvaða tengsl og not CIA kunni að
hafa haft af mönnum og hópum,
sem starfa í undirheimunum, eins
og Mafíunni.
DENIS HILLS.
Hann sagði að Hills yrði leiddur
fyrir aftökusveit kl. ll að staðar-
tima á mánudag og líflátinn á
sama stað og brezkir hermenn
hefðu drepið 27 múhameðska her-
menn. Þar mun hann hafa átt við
aftökur súdanskra hermanna sem
gerðu uppreisn 1898 snemma í tið
brezku nýlendustjórnarinnar i
Uganda.
Amin fór frá Kampala með
þyrlu til Gulu-flugstöðvarinnar i
norðurhluta landsins áður en
brezki hershöfðinginn Sir Chand-
os Blair gat afhent honum áskor-
un drottningar um að vægja Hills
að sögn útvarpsins i Uganda.
Blair var yfirmaður Amins þegar
hann var liðþjálfi i brezka hern-
um og í fylgd með honum er Iain
Grahame majór sem nú er bóndi
en var áður yfirmaður Amins i
brezka hernum eins og Blair.
Annar Breti sem átti dauðarefs-
ingu yfir höfði sér, kaupsýslu-
maðurinn Stanley Smolen, hefur
verið sýknaður af ákæru um að
hafa hamstrað matarolíu og Amin
forseti segir að það sýhi að „rétt-
lætið sigri i Uganda". Hills var
sekur fundinn um landráð þar
sem hann kallaði Amin harðstjóra
i bókarhandriti.
Áður hafði .brezka utanríkis-
ráðuneytið lýst „þungum áhyggj-
um“ vegna þess yfirlýsta tilgangs
Amins að leiða Hills fyrir aftöku-
sveit ef Callaghan utanríkisráð-
herra færi ekki til fundar við
hann í Uganda. Callaghan hefur
sagt að hann láti ekki neyðasigtil
Framhald á bls. 18
Forsætisráð-
herrar Norð-
urlanda biðia
am miskunn
ÓslóZO. Júní — Reuler
Forsætisráðherrar Norður-
landanna fimm hafa sent
skeyti til Idi Amins, forseta
Uganda, vegna dauðadómsins
yfir brezka kennaranum Denis
IIill, að sögn heimilda. Ekki
tókst að fá upplýsingar um
innihald skeytisins en álitið er
að forsætisráðherrarnir hafi
hvatt Amin til að sýna mis-
kunnsemi.