Morgunblaðið - 21.06.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JUNÍ 1975
7
r
Lenín í
Lissabon
Benedikt Gröndal, for-
maður AlþýSuflokksins,
segir svo I leiðara
AlþýSublaSsins í gær:
„Holt er að minnast
þess, að ! Portúgal er
verið að framkvæma ná-
kvæmalega kenningar
Lenlns. Hann kærði sig
aldfei um fjölmenn-
an kommúnistaflokk,
heldur vildi tiltölulega
fámennan flokk þraut-
þjálfaðra flokksmanna
sem komið skyldi fyrir í
lykilstöðum þjóðfélags-
ins, þar til flokkurinn
gæti náð öllum völdum.
Þetta er að gerast I
Portúgal. Með samþykki
herforingjanna hafa
kommúnistar náð yfir-
ráðum yfir öllum fjöl-
miðlum, nú síðast blaði
jafnaðarmanna, og
hreiðrað um sig ! fjölda
annarra trúnaðar-
starfa. Þetta er skýring-
in á þv! hve rólegir þeir
hafa verið yfir kosninga-
ósigri sinum. Hann á
ekki að ráða úrslitum —
þeir eru að taka völdin
samt."
„Þetta eru lærdóms-
rlkir atburðir, sem af-
hjúpa tilraunir
kommúnista til að koma
fram sem lýðræðislegir
flokkar. islendingar
verða að taka eftir þvi,
að Alþýðubandalagið og
Þjóðviljinn hafa tekið
ótviræða afstöðu með
kommúnistum í
Portúgal."
Þögnin í
Þjóðviljanum
Það er rétt hjá for-
manni Alþýðuflokksins,
að Þjóðviljinn hefur
tekið ótviræða afstöðu
með ofbeldi flokks-
bræðranna i Portúgal.
Þótt skrif blaðsins um
þessa alvarlegu atburði
séu bæði fá og smá.
Fréttir af framvindu
mála þar i landi mæta
yfirleitt þögn i blaðinu.
Þagnarmál Þjóðviljans
undirstrikar þó ekki
siður samþykkjandi af-
stöðu. Afstaða Þjóð-
viljans og Alþýðubanda-
lagsins til atburðanna i
Portúgal er og öngvu að
síður lærdómsrik og eft-
irtektarverð en at-
burðirnir sjálfir, ekki sizt
fyrir þann hóp lýðræðis-
sinnaðra vinstri manna,
sem fylgt hafa Alþýðu-
bandalaginu i góðri trú,
þrátt fyrir eðlilegar efa-
semdir.
Reynsla manna eins
og Héðins heitins Valdi-
marssonar, Hannibals
Valdimarssonar, Björns
Jónssonar, Áka Jakobs-
sonar, Magnús Torfa
Ólafssonar og fjölda
annarra af samstarfi við
islenzka kommúnista
hefur leitt til einnar og
sömu niðurstöðu. Allir
hurfu þeir frá þessari
samvinnu, reynslunni
rikari og vonbrigðum
hlaðnir. Sama máli
gegnir um hóp
stuðningsmanna, sem
reynt hefur að hasla sér
starfsvettvang innan
nýrra samtaka. En sá
hópurinn er þó stærstur,
sem af vana og mis-
skilinni tryggð hangir
enn sáróánægður i
Alþýðubandalaginu, á
mörkum þess að fylgja
fordæmi framangreindra
manna, með einum eða
öðrum hætti. Hylling
hins portúgalska ofbeld-
is gæti valdið þeim
herziumun, sem knýr
þetta fólk til nýrrar
ákvörðunartöku.
Sýnishorn
heiðarlegrar
blaðamennsku
og málefna-
legrar rökræðu
Úr „VL-horni" Þjóð-
viíjans:
„Þorsteinn svona
mjór, Ragnar svona feit-
ur. Þorsteinn svona al-
varlegur, Ragnar siglott-
andi. . . Þorsteinn á
svörtum blankskóm,
Ragnar á fjaðraskóm. . .
Þorvaldur flissar allan
daginn langan eins og
smápía, slær á enni sér,
greinilega sveittur,
greinilega afskaplega
heitfengur. . . baðar út
höndunum og gripur
fram i fyrir bjarndýr-
inu".
Þjóðviljinn hefur
greinilega gefist upp á
málefnalegri rökræðu
um varnarmál þjóðar-
innar og málssóknina á
hendur blaðsins vegna
persónulegs rógs um til-
tekna borgara, er höfðu
það eitt til sakar unnið,
að standa heiðarlega og
drengilega við skoðan-
lega sannfæringu sina.
Þess i stað gripur blaðið
til delluskrifa af þvi tagi,
sem hér er vitnað til.
Þessi skrif hafa fyrir
löngu vakið andstyggð
allra venjulegra
hugsandi manna, ekkert
siður stuðningsmanna
Þjóðviljans en annarra.
Er ekki kominn timi til
að hinn almenni lesandi
Þjóðviljans gripi inn í
framvindu mála og for-
dæmi það fávizkuhjal,
sem er að gjöra blaðið
að viðundri i augum al-
mennings?
FLUGVÉLIN frá Addis Ababa lenti i London um miðjan
dag og við komum okkur strax niður i miðborgina á
hótel. Ein af auglýsingunum i anddyri Hótel Cumber-
lands var sýning á ballettinum Þyrnirós, Sleeping
Beauty við tónlist Tchaikovskys, stjórnað og sviðsett af
konungi karldansaranna i ballettheiminum, hinum rúss-
neska flóttamanni Rudolf Nureyev, sem einnig dansaði
aðal karlhlutverkið. Það var freistandi að sjá þessa
sýningu, en við könnun kom i Ijós að það var uppselt 5
vikur fyrirfram.,
En það er aldrei ötl von úti ef vel er að gáð. Þótt allar
miðasölur segðu löngu uppselt, var haldið til hins
glæsilega sýningarhúss sem London Festival Ballett
sýnir i. Eftir slangur af japli jamli og fuðri og umræðum
um island við miðasölumanninn, kom hann með miða á
fremsta bekk á svölum, takk.
Þetta voru kynlegar andstæður. Kvöldið áður inni i
svörtustu Afriku þar sem steinöld rikir i rauninni, þetta
kvöld I London Festival Ballet þar sem búningar í
Þyrnirósu eru einhverjir þeir skrautlegustu og glæsileg-
ustu, sem sézt hafa á sviði. Framundan hreyfingar
listdansaranna á móti villtu lifi frumskóga Afriku.
Undarlegt að þrátt fyrir allt skuli maðurinn i listdansi
geta sýnt þær fegurstu hreyfingar sem til eru og standa
fyllilega á sporði fegurstu hreyfingum i náttúru heims-
ins.
Sýningin á Þyrnirós var stórkostleg. Ég hef viða séð
ballettsýningar, en þarna var sú fyrsta sem ekki var
hægt að sjá einn einasta hnökra á, hver dansari skilaði
hlutverki sinu af algjöru öryggi, en þó á persónulegan
Eva Evdokimova
Þymirós #g Nnreyev í London
Rudolf Nureyev
hátt. Það var skemmtilegt að sjá
Nureyev dansa. Hann er einn af
fáum karldönsurum i ballett, sem
ég hef séð dansa karlmannlega og
eftir að hafa séð hann dansa er
ekki undarlegt þótt honum fylgi
sú stemmning sem raun ber vitni
hvar sem hann kemur fram. Hin
frábæra dansmær Eva Evdoki-
mova var ásamt Nureyev stjarna
sýningarinnar, en hún dansaði
hlutverk Auróru, Þyrnirósar.
Annars var hver dansarinn
öðrum betri, þvi þarna voru flestir
gestadansarar ballettsins.
London Festival Ballett er 25
ára gamall á þessu ári, jafngamall
Þjóðleikhúsinu. Við skuium vona
að miklu fyrr en eftir 25 ár verði
islenzki ballettinn ekki siðri þvi
sem London Festival Ballet býður
upp á. Við höfum alla möguleika
ef að er hlúð og undir er byggt.
Þær vonir gefur íslenzki dans-
flokkurinn.
sprang
Eftír
Arna Johnsen
Frá Húsmæðraskólanum
ísafirði
Hússtjórnarnámskeið, 3ja og 5 mánaða, verða í
skólanum næsta vetur. Umsóknarfrestur til 1 .
ágúst.
Upplýsingar í síma 3803 á ísafirði og i Vigur
um ísafjörð. Skólastjóri.
Rowenfa,
Straujárn
i mörgum gerðum
og litum.
Heildsolubirgðir
Halldór Eiríksson & Co
Simi 83422 a
VOR-sýning
30 mismunandi útgáfur af
HJÓLHÝSUM-TJALDVÖGNUM
- SUMARHÚSUM
Ensk sumarhús - A-line- 5 teg.
Ótrúleaa haastætt verð.
Hjólhýsi árg. 1975.
Þýzk: Jet 3 teg. TE 3 teg.
Ensk Cavaiier 5 teg. Monza 7. Scout 2
Tjaldvagnar
Ameriskir: Steury 2 teg. Coleman 2 teg.
Þýzkir: Camptourist. Af því takmarkaða
magni, sem kemur á þessu ári er hluti
kominn. _______________________
Síðustu sýningardagar
í dag og á morgun.
Opið frá kl. 2-7.
Gísli Jónsson £1- Co. hf.,
’ Sundaborg — Klettagorðum 11 — Rvik. Sími 86644