Morgunblaðið - 21.06.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JUNÍ 1975
- BRCSIO, FÉLAGARi BROSIP!
Rúmlega 200 konur sitja kvennaársráðstefnuna.
Kvennaársráðstefnan 1975:
Miklar umrœður um framþróun,
frið, kvenréttindi og menntun
Varðskipsmenn skjóta
á lævísa V-Þjóðverja
VARÐSKIP skaut aðvörunarskot-
um að v-þýzkum togara f fyrrinótt
eftir að togarinn hafði ítrekað
reynt að sigla á varðskipið. Hop-
aði þýzki togarinn af hólmi.
Það var um kl. 01.50 í fyrrinótt
að varðskip kom að fjórum v-
þýzkum togurum um 15 sjómilur
fyrir innan 50 milna mörkin suð-
vestur af Reykjanesi. Þegar varð-
skipið nálgaðist hífðu togararnir
upp og héldu út fyrir mörkin
nema einn þeirra — Sagefisch
BX-668 — sem hélt á móti varð-
skipinu. Gaf varðskipið togaran-
um stöðvunarmerki, sem ekki var
sinnt en í þess stað reyndi togar-
inn tvisvar að sigla á bakborðshlið
varðskipsins. Varðskipsmenn
skutu þá einu lausu skoti og
tveimur föstum i átt að togaran-
um. Hélt þá togarinn i suðaustur
frá landinu. Varðskipið veitti
honum eftirför þar til um kl. 6 í
morgun, en þá sneri varðskipið
við, enda höfðu þá varðskipsmenn.
rökstuddan grun um að þýzki
togarinn hefði haft það hlutverk
að lokka varðskipið af þessu
svæði til að hinir togarnir gætu
hafið veiðar fyrir innan mörkin á
nýjan leik.
Nýtt verð á fiski
til mjölvinnslu
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins hefur ákveðið lág-
marksverð á fiskbeinum, fiskslógi
og heilum fiski til mjölvinnslu frá
1. júnf til 31. desember í ár.
Um tvenns konar flokkun er að
ræða — f fyrsta lagi þegar selt er
frá fiskvinnslustöðvum til fiski-
KVENNARAÐSTEFNAN 1975
hófst f gær á Loftleiðum og
stendur í tvo daga. Rúmlega
200 konur taka þátt I ráðstefn-
unni og urðu miklar umræður
um framsöguerindi, scm flutt
voru um morguninn en um þau
var fjallað í umræðuhópum, er
hófust eftir hádegi. 1 gær voru
flutl sex erindi, en sjö verða
flutt í dag. Bergljót Halldórs-
dóttir bauð gesti velkomna fyr-
ir hönd samstarfsnefndar
kvenna, sem að ráðstefnunni
stendur. Guðrún Erlendsdóttir
formaður Kvennaársnefndar
var fundarstjóri á morgunfund-
inum og Freyja Nordal úr Mos-
fellssveit ritari. En síðdegis var
Guðrún Hallgrfmsdóttir fund-
arstjóri og Björn Stefánsson
ritari.
Fyrstu erindin tvö tóku fyrir
tvö af einkunnarorðum kvenna-
árs Sameinuðu þjóðanna og
nefndust „Framþróun — frið-
ur“ á alþjóðavettvangi. Dr.
Gunnar Schram tók til umræðu
starf Sameinuðu þjóðanna og
þátttöku Islands og ræddi m.a.
um þátttöku íslenzkra kvenna á
þeim vettvangi á allsherjar-
þinginu, stofnunum þess og í
þróunarlöndum. En Ólafur Eg-
ilsson, deildarstjóri, ræddi
meira friðarmálin. Þriðja er-
indið flutti Haraldur Olafsson,
„Kvennréttindi — mannrétt-
indi ákvarðast af menningu" og
fjallaði um gerð þjóðfélagsins
Bergljót Halldórsdóttir, er opnaði ráðstefnuna með ávarpi frá
samstarfsnefndinni, og Guðrún Erlendsdóttir, fundarstjórinn, bera
saman bækur sfnar fyrsta morguninn.
miðað við þátttöku kvenna á
jafnréttisgrundvelli. Katrín
Friðjónsdóttir talaði um Konur
og vísindi og ræddi m.a. hve lítt
konur nýtast til vísindastarfa
og hvers vegna það hugsanlega
gæti verið. María Lárusdóttir
fylgdi úr hlaði samantekt Erlu
Elfasdóttur um nám í Háskóla
Islands. Var lögð fram mjög
ítarleg tafla um hlut kvenna í
háskólanámi á undanförnum
árum. Hefur konum fjölgað
samtals úr 325 árið 1965—66 í
792 árið 1974—75, en mjög mis-
jafnlega eftir deildum, mest i
verkfræði og raunvisindadeild
úr 4 i 93. Þá flutti Steinunn
Harðardóttir erindi um Island
og heimsfriðinn og urðu i lok
ráðstefnunnar harðar umræður
um tillögu, er fram kom um að
ráðstefnan lýsti óskum um frið
unarsvæði á Norður-
Atlantshafi. Var tillögunni vís-
að frá í atkvæðagreiðslu.
Byggingarsamvinnufélag í fjárhagskröggum:
Húsbyggiendur leita á náðir hins opinbera
HOSBYGGJENDUR að Aspar-
felli 12 i Reykjavfk hafa sent
félagsmálaráðherra tilmæli um
að hann hlutist til um að fjár-
magn fáist til að Ijúka fram-
kvæmdum við fyrrgreint stigahús
og létti þannig „ófyrirsjáanlegum
erfiðleikum og gjaldþroti af 39
fjölskyldum, sem verða mundi ef
framkvæmdir stöðvuðust," eins
og segir í bréfi trúnaðarmanns
húsbyggjenda til ráðherra.
Asparfell 12 telst til 6. byggingar-
flokks Byggingarsamvinnufélags
atvinnubifreiðarstjóra og er nr.
12 nú eina stigahúsið sem eftir er
að afhenda samkvæmt fyrr-
greindu bréfi.
ÞAÐ eru 400 manns sem koma til
með að njóta þeirra 200 milljóna
króna, sem launaliður Flugleiða
hækkaði um vegna nýgerðra
kjarasamninga við flugliða, þ.e.
flugstjóra, flugmenn, flugvél-
stjóra og flugfreyjur. Þetta þýðir
því sem næst 500 þúsund króna
hækkun á hvern flugliða á ári eða
um 42 þúsund krónur á mánuði.
I bréfinu kemur fram, að fram-
kvæmdir við þetta stigahús hafa
dregizt mjög á langinn og vegna
fjárskorts sé nú svo komið að
framkvæmdir séu um það bil að
stöðvast — þ.e.a.s í byrjun marz
þegar bréfið er ritað. Segir i bréf-
inu, að stjórn félagsins virðist
hafa mistekizt að útvega nauðsyn-
legt fjármagn, og sé fjárhagur
flestra húsbyggjenda orðinn mjög
knappur og vonlaust að þeir geti
lagt fram öllu meira fé en orðið
sé, enda sé það langt umfram
allar áætlanir sem stjórn BSAB
hafi lagt fram. Segir einnig í bréf-
inu, að flest af þessu fólki sé ungt
fólk, sem ekki eigi íbúð fyrir og
Skylt er þó að taka fram, að ákaf-
lega er mismunandi hversu háar
fjárhæðir koma í hlut einstakra
flugliða, og þar eru flugst jórarnir
Iang tekjuhæstir. Þeir eru 35 tals-
ins, og hinir hæstu þeirra eða 7
talsins frá rúmlega milljón króna
hækkun á ári með þessum samn-
ingi.
búi i dýru leiguhúsnæði. Fram
kemur í bréfinu, að húsbyggjend-
ur að Asparfelli 12 telja að fjár-
magn það sem þeir hafi reitt af
hendi svo og framkvæmdalán
Húsnæðismálastofnunar til
Asparfells 12 hafi ekki nýtzt í
þeirra þágu heldur hafi verið
veitt til framkvæmda við önnur
stigahús í Asparfelli sem lengra
voru komin. Trúnaðarmaðurinn
skýrir frá því í bréfinu, að honum
hafi ekki þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir tekizt að fá hjá stjórn
BSAB viðunandi skýringar á því
hvernig innborgað fé byggjenda í
Asparfelli 12 hafi nýtzt. Er þvi
þeirri beiðni beint til félagsmála-
ráðherra að hann gangist fyrir því
að hlutlausir aðilar í tengslum við
embætti ráðherra geri athugun á
fjárreiðum BSAB og hvernig inn-
borgað fé á byggingarreikninga
hafi nýtzt i þágu byggjenda hvers
stigahúss um sig.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér hjá
félagsmálaráðuneytinu var
framangreindu bréfi húsbyggj-
enda að Asparfelli 12 vísað til 3
sérfróðra manna á vegum IIús-
næðismálastofnunar ríkisins til
könnunar og hefur skýrsla þeirra
ekki enn borizt. Morgunblaðið
fékk hins vegar þær upplýsingar
Framhald á bls. 18
mjöls en þá er verðið sem hér
segir:
Fiskbein og heill fiskur, annar en sfld, lodna,
karfi og steinbllur, hvert kg
.....................................kr. 0.65
Karfabein og heill karfi, hvert kg ..kr. 1.60
Steinbftsbein og heill steinbftur,
hvert kg ............................kr. 0.42
Fiskslóg, hvert kg...................kr. 0.29
I öðru lagi þegar heill fiskur er
seldur beint frá fiskiskipum til
fiskimjölsverksmiðja en þá er
verðið sem hér segir:
Frambald á bls. 18
Sjálfboðaliðsvinna
við Sjálfstæðishúsið
UNNIÐ verður af krafti við nýja
Sjálfstæðishúsið í allan dag. Eru
allir stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins hvattir til að koma í
sjálfboðaliðsvinnu við húsið ein-
hvern tíma dagsins og leggja hús-
byggingarmáli flokksins lið með
þeim hætti.
Elzti Grímsey-
ingurinn látinn
INGA Jóhannesdóttir, ættmóð-
ir margra Grimseyinga, andað-
ist sl. miðvikudag og vantaði
þá 2 daga I 101. aldursárið.
Inga hafði verið lasburða f vor
og var fyrir nokkrum dögum
flutt f fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri, þar sem hún andað-
ist.
400 flugliðar skipta
með sér 200 miHjómim
Afgreiðslu ferjunnar
verður flýtt að mun
Finnbogi Isaksen
varalögmaður Fær-
eyinga í Reykjavík
FINNBOGI Isaksen, varalög-
maður Færeyinga, var hér í
Reykjavfk í gær ásamt Tomasi
Arabo, forstjóra færeyska skipa-
félagsins er gerir út ferjuna
Smyril. Samgöngumál fallaundir
varalögmanninn f landsstjórn
Færeyja, og f samtali við Morgun-
blaðið kvaðst Isaksen kominn
hingað gagngert til viðræðna við
ráðherra og ýmsa embættismenn
um ýmsa þætti er snertu siglingar
Smyrils — f þá veru að flýta og
auðvelda alla þjónustu tollaf-
greiðslunnar og útlendingaeftir-
litsins f sambandi við siglingar
ferjunnar.
Einnig kvað Isaksen hafa verið
rætt um reglur um þann gjaid-
eyri sem farþegum leyfist að nota
um borð til veitingakaupa, hvort
heldur um er að ræða erlendan
gjaldeyri eða íslenzkar krónur en
varalögmaðurinn kvað þennan
farareyri til ferjufarþeganna af
mjög skornum skammti.
Mál þessi ræddi Finnbogi
Isaksen við tvo íslenzka ráðherra,
þá Matthías Bjarnason og Halldór
E. Sigurðsson, svo og nokkra
embættismenn. Sagði Finnbogi,
að hann væri mjög ánægður með
niðurstöðu fundarins með hinum
islenzku ráðherrum og embættis-
mönnum. Myndi nú margháttuð-
um byrjunarörðugleikum rutt úr
vegi og t.d. myndi öll afgreiðsla
Smyrils framvegis taka einungis
skamma stund. Sjálfur kvaðst
Finnbogi vera mjög ánægður með
tilkomu ferjunnar og að sínu áliti
hefði hún mikið verk að vinna
varðandi sameiginleg málefni Is-
lendinga og Færeyinga.
„Og það gleður mig að sjá hve
áhugi almennings er mikill hér á
landi,“ sagði Finnbogi, en hann
ætlar sjálfur með Smyrli til
Færeyja í kvöld til að kynnast af
eigin raun þessum nýja þætti í
samgöngumálum Færeyinga.
Sýning Braga
opin um helgina
GÓÐ aðsókn hefur verið að
sýningu Braga Asgeirssonar á
„Loftinu" og hafa nokkrar
myndir selzt.
Sýningin verður opin um
helgina kl. 14—18 laugardag
og sunnudag.
ÞAN KASTWK-J