Morgunblaðið - 07.08.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGOST 1975
3
Orð Guðs til þín:
1400 stúdentar
frá Norðurlöndum
ræða boðskap Guðs
í nútíma þjóðfélagi
! GÆR var sett f Laugardalshöll-
inni Norræna stúdentamótið
REYKJAVlK 75. Þetta er kristi-
legt stúdentamót, sem haldið er
af kristilegum stúdentafélög-
um á Norðurlöndum. Kristi-
legt stúdentafélag á Islandi hefur
séð um allan undirbúning. Þetta
er stærsta ráðstefna, sem haldin
hefur verið hér á landi til þessa
en þátttakendur I mótinu verða
tæplega 1400.
Viðstaddir setninguna f gær
voru biskup tslands, Sigurbjörn
Einarsson, Ólafur Jóhannesson
kirkjumálaráðherra og Birgir Is-
leifur Gunnarsson borgarstjóri.
Jón Dalbú Hróbjartsson fram-
kvæmdastjóri mótsins bauð þátt-
takendur velkomna til mótsins og
sagði að þótt undirbúningur
mótsins hefði lent á herðum
fárra, hefði þeim verið mikill
Inger Svensson frá Svfþjóð.
styrkur að finna þann hlýhug,
sem mótið hefur notið hjá fólki.
Við setninguna fluttu þeir
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri og Sigurbjörn
Einarsson biskup ávörp, kynnt
var tilhögun mótsins og starfs-
menn þess. Þá var almennur
söngur.
Undirbúningur mótsins í
Reykjavík hófst fyrir nær 2 árum
og hafa félagar f Kristilegu stúd-
entafélagi unnið að þessum undir-
búningi og meðan á mótinu stend-
ur starfa um 100 félagar KSS við
það. Þetta er ekki fyrsta mótið af
þessu tagi, sem haldið er hér á
landi, þvf árið 1950 var haldið
sams konar mót og voru þátt-
takendur þá um 230. Mótið núna
er það fjölmennasta, sem haldið
hefur verið. Stærsti hópur er-
lendu þátttakendanna kemur frá
Hans A. Omland frá Noregi
Starfsmenn mótsins kynntir. .
Noregi eða 600, 300 koma frá
Svíþjóð, 190 frá Finnlandi, 95 frá
Danmörku og frá Færeyjum
koma 8. Gert er ráð fyrir að
islenskir þátttakendur verði 160
en eins og áður sagði eru kvöld-
samkomurnar opnar öllum þann-
ig að erfitt er að segja fyrir um
fjölda þeirra sem koma til með að
fylgjast með dagskrá mótsins.
Flestir eru þátttakendurnir um
eðayfir tvitugt.
Erlendu gestirnir gista í skólum
i nágrenni Laugardalshallarinnar
en um hundrað manns búa á
einkaheimilum. Mat snæða þátt-
takendur i Laugardalshöllinni en
þar er aðalmiðstöð mótsins. Einn
dag mótsins verður farið til Skál-
Elfsabet kemur frá Danmörku.
holts um Þingvelli en þar verður
þátttakendum sýndur staðurinn
og biskup Islands, herra Sigur-
björn Einarsson, talar. Þá gefst
þátttakendum mótsins kostur á að
fara í fleiri skoðunarferðir um
landið að mótinu loknu.
Það eru Flugleiðir sem sjá um
að flytja hina erlendu þátttakend-
ur til landssins og er þetta stærsti
hópur, sem félagið hefur flutt
hingað frá upphafi. Forráðamenn
mótsins gera ráð fyrir að mótið
gefi af sér yfir 50 milljónir fsl. kr.
í beinhörðum gjaldeyri en
aðeins flugvallargjaldið gefur
ríkissjóði um 3 milljónir.
Yfirskrift mótsins er „Orð Guðs
til þín“ og verður þar fjallað um
ýmis kjarnaatriði kristinnar
trúar. Vilja aðstandendur mótsins
leggja áherzlu á að Orð Guðs eigi
enn erindi til fólks, sem lifir á
tíma hraða og tækni.
Á hverju kvöldi meðan á
mótinu stendur verða kvöldsam-
komur í Laugardalshöllinni kl.
20.30. Þær eru opnar almenningi
en ræðumenn tala á skandi-
navísku. Þeir sem þess óska geta
fengið túlkað yfir á fslenzku.
Fjóra morgna verða biblíulestrar,
sem Bo Giertz, biskup frá Sviþjóð
annast. Þá verður þátttakendum
skipt í umræðuhópa, þar sem
ýmis vandamál, sem ofarlega eru
á baugi í nútímanum, verða rædd
og skoðuð út frá sjónarmiði krist-
innar trúar.
Við setninguna I gær náðum við
tali af nokkrum erlendum þátt-
takendum. Ekki var annað að
heyra en þeir væru mjög ánægðir
með að vera komnir til Islands og
margir sögðust bíða með óþreyju
eftir að fá að sjá eitthvað af land-
inu. Sumir koma með börn sin
með sér enda eru þátttakendurnir
ungt fólk, sem ekki á hægt með að
fara í langan tima frá ungum
börnum. Hans A. Omland kemur
frá Flekkefjord í Noregi. Hann er
við nám i Osló og tekur þátt í
starfi Kristilega stúdentafélags-
ins við háskólann þar. Hann
sagði, að starfsemi félagsins væri
mjög fjölbreytt t.d. væru haldnar
stórar samkomur og fram færu
biblíulestrar i smáum hópum. Þá
fara stúdentar i heimsóknir til
fólks. En hvers vegna til íslands
til að taka þátt í þessu móti?
„Bæði er að þetta er samnorrænt
mót og ég vildi hitta fólk með lik
áhugamál, og hitt að mótið er
haldið á íslandi. Ég hef ferðazt
viða um Norðurlönd og langaði
alítaf að heimsækja Island, og nú
fékk ég tækifærið“. Hans hefur
áður tekið þátt I tveimur slíkum
mótum, en þau hafa bæði verið í
Noregi.
I hópi þeirra 95 Dana, sem
koma til mótsins er 19 ára stúlka
frá Árósum,Elísabet. Hún er ekki
við nám I neinum skóla, heldur
starfar hún sem fóstra. I Kristi-
lega stúdentafélaginu í Árósum
eru tæplega 300, en hingað til
mótsins koma milli 30 og 40.
Ástæðan fyrir því að Elísabet fór
til Islands til að taka þátt í mótinu
var sú að hana langaði til að sjá
landið, enda hyggst hún fara i
Framhald á bls. 27
hvílir. Húsin standa eins og við
þau var skilið, þetta er allt
mjög áhrifaríkt. Eins og ég
sagði áðan höfum við aldrei
komið hér áður, en heyrt marg-
ar frásagnir, m.a. frá læk þeim
sem forðum takmarkaði Nýja-
Island að sunnan. Það brást
heldur ekki að þegar komið var
norður fyrir þennan læk blöstu
alls staðar við íslenzkir fánar.
Þetta land hefur sannarlega
fagnað okkur vel, fólkið ákaf-
lega gestrisið og skemmtilegt
og auk þess má geta að veðrið
hefur leikið við okkur.
Ég er kannski ekki reiðu-
búinn að svara því hvað mér
hefur komið hér mest á óvart.
Maður hittir hér fólk sem talar
islenzku framúrskarandi vel.
T.d. hitti ég á Betelheimilinu
fólk sem talaði betur en maður
gæti ímyndað sér að fyndist
hér, næstum því án þess að
heyrðist nokkur annarlegur
hreimur. Ef til vill vissi maður
þetta, en það er samt merkilegt
að heyra það og hlusta á sumt
eldra fólk sem aldrei hefur
verið á Islandi. Málfar þess er
mjög athyglisvert. Ég veit að
þetta er engin nýjung, sem ég
segi hér, en þegar maður heyrir
orð, sem voru algeng í bernsku
minni og máleinkenni, sem þá
voru algeng á Norðurlandi, en
nú heyrist ekki á Islandi, vera
hér í góðu gengi, það er
skemmtilegt og rifjar upp
bernskuminningar. Við erum
ákaflega ánægð með mót-
tökurnar, það er aðdáunarvert
hvernig tekið hefur verið á
móti ekki aðeins okkur heldur
mörgum hundruðum manna,
það er alveg stdrkostlegt hvern-
ig þeim hefur tekizt það. Ég vil
svo sérstakléga nefna það að
Framhald á bls. 27
Heimsóknin mjiig vel heppnuð
og móttökur allar fránærar
— segir forseti
tslands 1 samtali
nú er kölluð, og eins og nærri
má geta er áhrifarikt að koma
þangað. Eins og komið hefur
fram í fréttum er nýbúið að
gera eyna að þjóðgarði og
byggðin er að leggjast niður
með öllu. En þar stendur
kirkjan og þar er kirkjugarður-
inn, þar sem fjöldi Islendinga
við Morgunblaðið
Frá fréttaritara Mbl. í Gimli, Þorsteiní
Matthfassyni.
FORSETI tslands, dr. Kristján
Eldjárn, og forsetafrú,
Halldóra Ingólfsdóttir, komu
til Winnipeg eftir hádegi sl.
föstudag f fimm daga heimsókn
til Manitoba f tilefni 100 ára
afmæli landnáms tslendinga f
Vesturheimi. I fylgd með for-
setahjónunum er Einar Agústs-
son utanrfkisráðherra og kona
hans. Haraldur Kröyer sendi-
herra Islands I Kanada og frú.
I dag, 5. ágúst, var forseti og
fylgdarlið hans komið til
Lundar og þar náðum við ör-
stuttu viðtali við forsetann.
Hann sagði: „Við hjónin höfum
aldrei fyrr komið til þessa
lands, okkur lfzt ágætlega á
landið og höfum fengið hér
framúrskarandi móttökur, hitt
margt skemmtilegt og gott fólk,
sem allt hefur viljað fyrir
okkur gera og er ekki nema allt
gott um það að segja. Það er
fyrst I dag sem við höfum ferð-
ast að ráði um byggðina, fyrst
og fremst fórum við norður til
Mikleyjar, eða Heklueyjar sem
Forsetinn, dr. Kristján Eldjárn, og kona hans, Halldóra, við komuna til Winnipeg á föstudag.