Morgunblaðið - 07.08.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGUST 1975 7
“I
Tómarúmið
og „flokks-
foringinn”
Alþýðublaðið islenzka
hefur verið á hvers
manns vörum undan-
farnar vikur, meðan það
var i sumarfrii, fyrst og
fremst af tveimur
ástæðum. Hin fyrri eru
fjárhagserfiðleikar
blaðsins, sem voru það
miklir, að við borð lá að
útgáfa þess stöðvaðist.
Su siðari var stöðvun á
„systurblaði" þess i
Portúgal, sem kommún-
istar lögðu hald á i skjóli
hervalds.
Hvorttveggja leiðir
hugann að ræðu þeirri
sem svokallaður formað-
ur Alþýðubandalagsins.
Ragnar Arnalds, flutti á
flokksþingi þess á sl.
hausti. Hann hélt þvi
þar fram af miklu yfir-
læti, að Alþýðuflokkur-
inn „væri að deyja" og
skapurinn drjúgur, þrátt
fyrir drýldnina, að hann
bauðst til þess, fyrir
hönd islenzkra kommún-
ista, að leysa Alþýðu-
flokkinn algjörlega af
hólmi.
Það lætur þvi nærri,
að einn sé sá á meðal
okkar, sem ekki fagnar
útkomu Alþýðublaðsins
á ný. En hann getur þá
huggað sig við þá tug-
milljónahöll, sem Þjóð-
viljinn reisir með „dul-
rænu" fjármagni.
Foringinn, sem ætlar að
fylla tómarúmið.
að Alþýðubandalagið
myndi „fylla það tóma-
rúm", sem Alþýðu-
flokkurinn skildi eftir
sig. Á stundum hafa
kommúnistar látið blitt
að Alþýðuflokknum en
allar minntu þær gælur
á væntumþykju átvagls
á fyrirhuguðum máls-
verði. En þær stundir
koma, jafnvel á ströndu
hins yzta hafs, þar sem
nálægð við norðurpól
temprar blóðhitann, að
úlfarnir opna gin sín á
glugga rauðhettu. Svo
notuð sé nærtæk sam-
liking. Þannig fór fyrir
þessum framsækna for-
ingja, sem þóttist sjá
fyrir, ekki einungis feigð
Alþýðublaðsins heldur
jafnframt Alþýðuflokks-
ins. Og svo var dreng-
Lýðræði
ógnað
f leiðara Alþýðublaðs-
ins i gær segir m.a.:
Það er ekki nokkur
vafi á þvi, að sú þróun,
sem er að verða i heim-
inum umhverfis okkur,
er válegur fyrirboði. Hér
er um að ræða pólitíska
afturför, sem e'r ekki
aðeins ógnun við frelsi
og mannréttindi, heldur
ekki siður ógnun við
friðinn i heiminum.
Sagan kennir okkur, að
slikt fráhvarf frá lýð-
ræðislegum og mannúð-
legum grundvallar-
reglum getur verið fyrir-
boði um mikil átök milli
hinna andstæðu afla og
þær fórnir, sem áður
hafa verið færðar til
þess að varðveita lýð-
ræði og frelsi, hafa þá
verið unnar fyrir gýq.
Lýðræði eins og það,
sem við þekkjum og
viðurkennum, felur i sér
bæði styrk og veikleika.
Veikleiki þess er sá, að
það veitir eirinig þeim
aðilum fullt athafna-
frelsi, sem vilja rlfa það
niður, gera það tor-
tryggilegt og eyða því.
Einmitt þess vegna er
barátta fyrir lýðræði
stöðug barátta. Einmitt
þess vegna verða þeir,
sem varðveita vilja lýð-
ræðið, stöðugt að
standa vörð um það. Ef
lýðræðissinnar þreytast
á varðstöðu sinni og láta
afskipta- og sinnuleysið
ná tökum á sér, þá
kunna þeir að vakna upp
einn morgunn við það,
að frelsið og mannrétt-
indin hafa verið frá þeim
tekin.
Þessi barát*a milli
frelsis og ófrelsis, lýð-
ræðis og einræðis, er
einnig háð hér á fslandi.
Fjölmargar frelsis
unnandi þjóðir hafa
orðið fyrir því, að heim-
ur þeirra hefur hrunið í
rúst á einu andartaki.
Eins gæti farið fyrir
okkur, ef við kunnum
ekki fótum okkar forráð
— ef við látum sinnu-
og áhugaleysið ná tök-
um á okkur og gefum
einræðis- og öfgaöflum í
tandi voru „fritt spil".
Staða krónu
lítt breytt
Mbl. greindi á sunnudaginn frá
því að staða íslenzku krónunnar
hefði nokkuð styrkzt að undan-
förnu gagnvart sumum erlendum
gjaldmiðlum, eins og t.d. þýzku
marki, danskri krónu og sterlings-
pundi svo að nam 4—5%. Hins
vegar hafði staðan versnað gagn-
vart Bandaríkjadollar um rúm
5% Mbl. sneri sér f gær til Seðla-
bankans og spurðist fyrir um
áhrif þessara breytinga á vöru-
skiptajöfnuðinn og fékk þá þau
svör að áhrifin væru lítil, þegar
tekið væri tillit til vegins meðal-
tals gengis erlendrá gjaldmiðla
gagnvart krónunni eftir hlutdeild
þeirra í innflutnings- og út-
flutningsviðskiptum. Frá þvi i
febrúar hefði staða krónunnar
versnað nokkuð gagnvart erlend-
um gjaldmiðlum og hefði sú
lækkun numið mest 2% með til-
liti til vegins meðaltals, en væri
nú um 1 % frá þvl f febrúar.
honum, þrátt fyrir aðvörunar-
ljósið. Um morguninn fannst
bilun í aðvörunarkerfi hreyfils-
ins, en hreyfillinn sjálfur var í
góðu lagi. Flugvélin gat þá fyrst
lagt af stað til íslands á ný eftir
um átta stunda töf, að sögn Sveins
Sæmundssonar blaðafulltrúa
Flugleiða.
1500 flugu
á mánudag
MIKLAR annir hafa verið i
innanlandsflugi Flugfélags Is-
lands að undanförnu, en mestar
þó á mánudag, á fridegi verzl
unarmanna, er flugvélar félags
ins fluttu um 1500 manns innan
lands. Flestir farþegar voru þa
fluttir frá Vestmannaeyjum ti
Reykjavíkur að iokinni þjóðhátíð
Samkvæmt upplýsingum Sveins
Sæmundssonar voru farþegar F
til Eyja og frá þó fvið færri en
verið hefur i tengslum við þjóð
hátíð f Eyjum undanfarin tvö ár
Hefur veðrið sjálfsagt ráðið ein
hverju þar um. Þess má að lokum
geta, að í siðustu viku, þ.e. fra
sunnudegi til laugardags, voru
fluttir hátt á sjöunda þúsund far
þegar innanlands með flugvélum
Fiugfélags Islands.
Konur á piUunni lík-
legri til að f á slag
Bilun tafði
Flugleiðavél
ER BOEING 727-þota Flugleiða,
fullsetin ferðamönnum, var
nýlögð af stað til Islands frá Costa
Brava á Spáni aðfararnótt þriðju-
dags kviknaði Ijós í mælaborði
sem gaf til kynna, að eldur væri
laus f einum hreyfli vélarinnar.
Var þegar snúið við og lent á
flugvellinum aftur og þar hafin
rannsókn á hreyflinum, því að
enginn eldur hafði leynzt. í
Þeim konum, sem taka getnað-
arvarnapilluna, er hættara við að
fá hjartaáfall, sér f lagi ef öðrum
hættuþáttum er einnig til að
dreifa hjá þeim. Sígarettureyk-
ingar, sykursýki, hár blóðþrýst-
ingur, mikið kolesterolmagn i
blóði, offita eru meðai þeirra
hættuþátta, sem auka lfkur á
hjartaáfalli.
Þeim, sem nota getnaðarvarna-
pillur er að meðaltali 4,5 sinnum
hættara til að fá hjartaáfall en
þeim sem ekki nota þær, segir f
niðurstöðum rannsókna sem gerð-
ar hafa verið i Bretlandi. Hættan
reyndist vera 2,7 sinnum meiri
meðal kvenna sem nota pilluna á
aldrinum 30 til 39, samkvæmt
einni könnun, sem gerð var f Ox-
ford, en 5,7 sinnum meiri meðal
kvenna á aldrinum 40 til 44.
I annarri könnun kom einnig í
ljós að fullorðnar konur væru
i meiri hættu en þær yngri. Sam-
kvæmt þessari athugun var kon-
um á afdrinum 30 til 39 ára, 2,8
sinnum hættara til að fá hjarta-
sfag og 40 til 44 ára gömlum
konum4,7 sinnum.
Ef öðrum hættuþáttum er einn-
ig til að dreifa eykst hættan til
muna. Ef miðað var við konur
sem notuðu pilluna, en höfðu eng-
an annan hættuþátt, var konum
sem höfðu einn hættuþátt að auki
4,2 sinnum hættara til að fá slag,
konum með tvo þætti 10,5 sinnum
og konum með þrjá þætti 78,4
sinnum.
Siðdegis f gær kom til Reykjavfk-
ur tveggja hreyfla flugvél af gerð-
inni Dornier DO 28, sem Flug-
stöðin hf, hafði séð um að ferja
frá Kaupmannahöfn til Islands.
Vélin, sem er f eieu Nordisk
Mineselskab- námafélagsins, fer
héðan til Meistaravfkur og með
henni flugmaður og ffugvirki frá
Flugstöðinni til að aðstoða við
rekstur vélarinnar fyrsta kastið.
Elíeser Jónsson fiaug vélinni
hingað til lands. Hún er gerð fyr-
ir flugtak og lendingu á stuttum
brautum og flytur 4—7 farþega
og varning eftir aðstæðum og
verður notuð til slfkra flutninga á
Grænlandi. _ Ljósm. Br. H.
LÆRIB VELRITUN
Ný námskeið eru að hefjast. Kennsla eingöngu á
rafmagnsritvélar. Engin heimavinna. Innritun og
upplýsingar í síma 21719.
Vélritunarskólinn,
Suðurlandsbraut 20,
Þórunn H. Felixdóttir.
Ævintýraheimur
húsmæðra
Kryddhúsið í verzl. okkar í Áðalstræti 9.
Dröfn Farestveit leiðbeinir um notkun
hinna ýmsu kryddtegunda kl. 2 — 6 í
da9- Verið velkomin.
©
Matardeildin,
Aðalstræti 9.
Kvállsöppet
i Nordens hus torsdagen 7 augusti kl. 20.00—23.00
Kl. 20.30
SPÖKEN DANSAR, ett program pá svenska om
islándskfolktromeð beráttande, sáng och dans.
Kl. 22.00
Filmen HORNSTRANDIR (engelsk text)
— 0 —
I utstállingssalarna, utstállingen HÚSVERND
öppen kl. 12—22.
Fotograf Gunnar Hannessons fárgdiaserie om
hus i Reykjavík visas kontiunerligt hela kvállen.
Kafeterian öppen. Válkommen.
NORRímHUSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS
Núna
er verðið á sykrinum mjög
hagstætt,
Kr. 185 pr. kg (4 kg pokar)
Kr. 175 pr. kg (50 kg sekkir)
Notið því tækifærið
Núna
og kaupið sykurinn fyrir
sultugerðina.
Opið til 6 í kvöld
og 10 föstudagskvöld
SKEIFUNNI 15 ISIMI 86566