Morgunblaðið - 07.08.1975, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGUST 1975
Blað um málefni Breið-
holts hefur göngu sína
Breiðholt og önnur borgar-
hverfi“ nefnist nýtt blað sem
hefur hafið göngu sína f Reykja-
vfk og er, eins og nafnið bendir
til, helgað málefnum Breiðholts-
hverfis. Utgefendur blaðsins eru
nokkrir óháðir borgarar í Breið-
holtshverfi og er Ásgeir Hannes
Eirfksson ritstjóri og ábyrgðar-
maður. Á forsfðu blaðsins er
grein um „furðuskrif félagsráð-
gjafa um Breiðholtshverfi —
rakalaus stóryrði f garð hverfis-
ins“ og í samtali við Mbl. f gær
sagði ritstjórinn, að skýrsla fél-
agsráðgjafann'a hefði einmitt orð-
ið kveikjan að útgáfu þessa blaðs.
Nokkrir menn f hverfinu hefðu
„Ýmsar setningar úr skýrslunni
hafa orðið fleygar manna á meðal.
Sérstaklega þær sem lúta að
áfengis- og fíkniefnaneyzlu hús-
mæðra og skemmdarfýsn barna
hér í hverfinu. Það er ekki stefna
þessa blaðs að amast við rit-
smíðum undarlega innréttaðra
starfshópa, jafnvel þó þeir þiggi
meira og minna af almannafé. Við
teljum það þeirra prívat sálar-
flækjur. Þó verður ekki hjá því
komizt að drepa aðeins við fæti
þegar eiginkonum okkar og börn-
um er stillt jafn miskunnarlaust
upp við steinvegg."
Er í blaðinu óskað eftir skýr-
ingum á skýrslunni og „órök-
breiðholt
□g önnur borgarhverfi
Furðuskrif félagsráð
gjafa um Breiðholtshverfi
Rakalaus stáryrSi i garS hverfisins
MóTkiJ.e'jt. rak í
rey::<35,st véra ro*tnfi' *?r*ViCur Jhritdaríieivi r.orrwr’.rta :-e-
’.»vv.rá-Ví.iáfa. ,y»r skýTBtar he?r:r skkí. iif.rc c.f—
irt'o'rrl'vjá, J»étt. henni. virðist hafa vtriJ ðroiff tit Pér-
\xr*. c.c. Páj.s } ítttndraðSMiU , c.nf, Vi-íðiÝ sVíi ivttna hana 1
v.ei :ö sinni. r,Výrslan er boldtrr ekk;. skriftrft A {sxsitzkr
nbi. <■'ift botin?*óö anin»«rrar sfcýringar S titoré
hi rrá vír.nuv
béirra. fað M \t>r<
s’.isviiv 'iifíhmr*.
Vorfintj fiii f.xnnr
hóo j j.ausu« í
«j.nhver hi ó: ur^
týl-.y.w •’>* i bój
hy<j<jjtarj.ags lar.ér.rr
Hvi
'tr<rir>
i-ó ww-Srir rkkí
'tr flúút Jafin
btaúí'j ho?ur ?l.«
•<Ve?r,a t>«.";*;a
: ’ rtrét.tétðre
'tb <?'íÍXV*S
■•r * jw «i t
't':íi l'íik'.r.
V{?> ósk'.rp k\rrtt!í>
Áfíf fasfeignasalc:
,Staðhæfingarnar
gefa lœltkaS ibúSaverSiS"
V'frS ihó',a í Hroióholts-
hvftrfx er óflkiir sae'r'-rri-
isftt vift aftrs b«i«rhltita,
fcó v.eláur unðír ir-«?ða’. -
Ví-rói. Binri: hat-a
i v;.ft {fttrttir hvftrfír, ftrt b.rr
stirrri eru aieius íöýrari.
A hc-rbcr'í.ia <r*tw
hó WJttft.ft ft.xit. aft ::-ép0
þr.jÁr 5t. ftr tjóft sala
oo fttftr.flt vei samo.r.burft
Víft 5Clvr < OSr-;r. ibíðar-
bvtrtfu*.
Innan SreiftV.oits siftiís,
.ansróftsjaía u« Br«iftb';i:
berrfj fasVvt Onasalft s:
• V'fttooor hiá v i nnd^ar
Annars t-r <;?t.trftr>:irn m.tkiX
A par.toj onamiriusftnu.'fl ? dan
o<i aj.j r ur.J.j.r fvrír *Ac-
nrft i abftrf A narflta íri. >á
Jw-VVa allar eiunír fliálf-
krafa í.
Hict ';r ftvn ortit't* tnftx aft
st«áhs?ír.fl*r ;:n ibi* á-
Vvoftj.r.s tvr.iarniuta. '-i nv
05 birtor «r-> í sVÝrslv:
?'-lft'r»r«{ft'Tjo?<i, 'rftt.r. rireo-
ift fttórjpoa ftr eftirspurn
•' ast-.'i -;r.a { bv{ kv'-r/i.
Xfttu { í.'igir, barir.. bó
f.ytvr ft^.ja-'-nnrt ncS o<Jr-nu-
núaóamtr <r- ctíirftgaftir
•Xi.pic.far 0:1 fyll íiryttur,
ert hfirrt;.rt * ke«flr<i*rvár'o«r.
í sreiftboltino er» aft vt*i>
ytoikrar blokkir, þar ser.
íbúftrnir iAta sér ekki
allt f-yrir briftsti bronns.
Bn cltV >-ó.», or» nst al.Jan
b». t. nokkurra metra fi*r-
X*<jft frA htnufli dftru V.gynx-
«ei» ibóftofli, arit nókknr
Cjölbýlíshlis, som Jonul
voru á stiJ.J j fanna fftilc.
Hfi bvyrir, swftur varift A
Þau 3» j r.nst. ?rei ðf.o i t i ft
hefur Jevct þav »f hftxmi í
barjarslfiftr.ínu.
Aft lokuvt ná fieta 5>ecc aft
hingaft { r:;-rt«»arkaft;r.r.
ke.fli'.'X' oít fftxk, snm r.venrj.
ft.nnftrs staftar vi 11 bfia c-r,
í 8roi ftf.ol t inn .*•
verið að ræða saman og fundið slg
knúða til að svara þessari skýrslu
á einhvern hátt.
Skýrslan, sem ekki hefur verið
birt opinberlega, er Vinnuplagg,
sem nokkrir íslenzkir félagsráð-
gjafar sömdu og Iögðu fram sem
umræðuefni á ráðstefnu nor-
rænna félagsráðgjafa á Islandi
fyrir skömmu. Ýmislegt hefur þó
verið ritað og rætt um innihald
skýrslunnar og segir m.a. í hinu
nýútkomna blaði:
studdum dylgjum um ibúa
stærsta byggðarlags landsins".
Ásgeir sagði f samtali við Mbl.,
að viðtökur við fyrsta tölublaði
hefðu orðið mun betri en aðstand-
endur þess hefðu þorað að vona
og fyrsta prentun selzt upp á
skömmum tíma og önnur jafnstór
prentun væri langt komin I sölu.
Væri því hiklaust grundvöllur
fyrir útgáfu blaðsins þar sem svo
mikill áhugi væri á þvi meðal
fbúa hverfisins. Þá hefði einnig
gengið ágætlega að fá auglýsingar
Ferðaskrifstofa ríkisins opnar land-
kynningarskrifstofu í New York
Norðurlandaþjóðirnar hafa
rekið sameiginlega landkynn-
ingarskrifstofu i New York og Los
Angeles um nokkurra ára skeið.
Samstarf þetta hefur gengið vel
og hefur bandariskum ferða-
mönnum fjölgað mjög á Norður-
löndum.
tsland var þátttakandi í þessu
samstarfi fram yfir áramótin
1974, en þá var samstarfinu sagt
upp af hálfu tslands og starfs-
stúlka islenzku skrifstofunnar
hætti þá störfum og kom heim.
Starfsemi þessi hafði kostað
Ferðaskrifstofu ríkisins nokkurt
fé og starfið verið mjög árangurs-
ríkt.
Þeir aðilar, hér á landi, sem
annast fyrirgreiðslu erlendra
ferðamanna, þótti þetta mjög
miður og töldu þetta skref aftur á
bak, þar sem allar þjóðir, hvar
sem er í heiminum, verja miklu fé
til landkynningarstarfsemi.
Upplýsingastarfið vestra hefur
að undanförnu mest beinst til
skrifstofu aðalræðismannsins í
New York og sendiráðsins í
Washington svo og hingað heim
til Ferðaskrifstofu ríkisins.
Haustið 1974 fól samgönguráðu-
neytið Birni Vilmundarsyni, for-
stjóra Ferðaskrifstofu ríkisins, að
leita eftir samstarfi um þessi
landkynningarmál að nýju og þá
um leið að Ieita eftir hagkvæmari
kjörum en áður.
Mál þetta hefur siðan verið á
dagskrá á nokkrum fundum for-
stjóra ríkisferðaskrifstofanna á
Norðurlöndum og hefur nýlega
verið gengið frá samningi um, að
Ferðaskrifstofa ríkisins komi
aftur inn í samstarfið frá 1.
janúar 1976.
Mun Ferðaskrifstofa ríkisins
opna sérstaka landkynningar-
skrifstofu f húsnæði Norðurland-
anna f 75 Rockefeller Center í
New York frá þeim tima og hafa
þar sérstakan starfsmann.
í blaðið. — Ætlunin var að reyna
að fá íþróttafélög til að annast
sölu blaðsins, en ekki varð þó af
þvi, heldur hefur það verið selt i
verzlunum hverfisins og á nokkr-
um stöðum öðrum í borginni, og
er verð þess 60 kr.
Ætlunin er að blaðið komi út á
tveggja vikna fresti og er vinna
við annað blaðið langt komin og
vinna hafin við tvö þau næstu. Að
sögn Ásgeirs mun blaðið kynna
málefni Breiðholtshverfis út á við
og styðja framgang þeirra, en
einnig mun það fjalla um borgar-
og landsmálefni eftir því sem þau
tengjast Breiðholti. Þá mun blað-
ið einnig verða fréttablað fyrir
hverfið.
I fyrsta tölublaðinu eru m.a.
greinar um Leikni, viðtöl við
kaupmann, fasteignasala um
íbúðaverð í Breiðholti, formann
Framfarafélags Breiðholts III og
samanburður á skiptingu afbrota
milli hverfa í borginni, svo að
eitthvað sé nefnt. Blaðið er 12
síður I stóru broti.
Tromsdalenkirkja.
Ragnar Björnsson fær
frábæra dóma í Noregi
Grjótskriða lokaði
veginum um Enni
Hellissandi, 5. ágúst.
SL. laugardagsmorgun féll mikil
skriða í Ölafsvíkurenni. Klofnuðu
úr berginu stór stykki og lokuðu
veginum. Voru sumir steinarnir
mörg tonn á þyngd. Mikil mildi
var, að slys skyldi ekki hljótast af,
þar sem mikil umferð var hér á
Nesinu um þessa helgi.
I tilefni þessa hélt hreppsnefnd
Neshrepps fund í morgun til að
ræða um ástand vegarins og þá
hættu sem getur skapazt á
honum. Eftirfarandi ályktun var
gerð:
„Hreppsnefndin áréttar fyrri
samþykktir um þessi mál og skor-
ar á samgönguyfirvöld að gera nú
þegar eftirtaldar lagfæringar á
veginum I Clafsvíkurenni:
a) að láta hreinsa lausagrjót og
klettadranga sem komnir eru að
falli og gætu valdið stórslysum.
b) að láta gera við veginn þar
sem skörð hafa myndazt í hann,
einnig að breikka vestari hluta
vegarins.
Hreppsnefnd telur nauðsynlegt
að meira eftirlit verði haft af
ábyrgum aðilum með veginum og
honum lokað þegar hrun er
mest.“
— Rögnvaldur.
Ragnar Björnsson dómorgan-
isti var f vor á hljómleikaferð um
Noreg. Var hann þrjár vikur I
ferðinni hélt tónleika á tveimur
stöðum f N-Noregi og þremur
stöðum i sunnanverðu landinu.
Morgunblaðinu hafa sfðan borizt
umsagnir tveggja norskra blaða
— annars frá Tromsö en hins frá
Fredrikstad og er í þeim báðum
farið mjög lofsamlegum orðum
um leik Ragnars.
t Tromsö hélt Ragnar tónleika í
Tromsdalenkirke að viðstöddum
fjölda áheyrenda, og á efnis-
skránni voru' fyrst og fremst verk
eftir J.S. Bach. Tónlistargagnrýn-
andi Tromsö-blaðsins Einar Mel-
vær, segir i blaði sinu um þessa
tónleika, að hann hafi átt von á
þvi, — vegna þess hversu erfið
efnisskráin var — að hljómburð-
urinn i kirkjunni myndi á stund-
um reynast þrándur í götu, en í
ljós hefði komið að þarna fór org-
anisti er kunni að taka tillit til
aðstæðna i leik sínum. Þá er
Ragnari hælt fyrir að vera fund-
vís á kímnina er leynist í verkum
Bach, og raunar auðnist Ragnari
að koma boðskap tónskáldsins til
skila eins og frekast sé unnt.
Gagnrýnandinn nefnir sérstak-
lega, að honum verði minnisstæð-
ur flutningur Ranars á lokaverk-
inu á tónleikunum — Toccötu og
fúgu f d-moll, þrátt fyrir að það
hafi verið jaskað út i kvikmynd-
um og öðrum fjölmiðlum og nán-
ast eyðilagt. Raunin hafi orðið
önnur á þessum tónleikum og hafi
því valdið sérlega góð túlkun
Ragnars Björnssonar. „Ég hef
heyrt þetta verk vel leikið á tón-
leikum í Englandf, en fékk nú að
heyra það ennþá betur leikið í
kirkjunni í Tromsdalen. Maður
vonar aðeins, að Ragnar Björns-
son láti fljótlega aftur til sln
heyra hér I bæ,“ segir Melvær.
Um orgeltónleika Ragnars i
Eystri-Fredriksstadkirkju er
skrifað í blað eitt þar um slóðir,
og kemur fram, að fyrir utan tvö
verk eftir Pál tsólfsson, hafi nær
eingöngu verið verk eftir núlif-
andi höfunda á efnisskránni.
Raunar lék Ragnar þar eitt verk
eftir sjálfan sig — Fantasia funé-
bre, og segir tónlistargagnrýn-
andi blaðsins að þar hafi Ragnar
fengið tækifæri til að sýna að
hann hafi einnig hæfileika sem
tónskáld.
Nútimalegast þykir gagnrýn-
andanum Inter Mediae Noctis eft-
ir Atla Heimi Sveinsson. Má sjá
að gagnrýnandanum þykir til um
tónverkið og segir að áheyrendur
hafi getað glaðst yfir hljómum
þess og töktum. Einnig flutti
Ragnar Fantasia Trionfale eftir
Knut Nystedt og Dieu Parmi
Nous úr La Nativité du Seigneur
eftir Messiaen, sem norski gagn-
rýnandinn telur eitt mikilsverð-
asta framlag til orgelbókmennt-
anna á þessari öld. „Ragnar
Björnsson lék þetta meistaraverk
af miklu öryggi og sannfæringu,
og sannaði hann með þessum tón-
Ieikum að hann er framúrskar-
andi organisti," segir i niðurlagi
greinarinnar.
Tvær nefndir til starfa að
raforkumálum Vestfjarða
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi
frá iðnaðarráðuneytinu:
Hinn 28. júli skipaði iðnaðar-
ráðherra, dr. GunnarThorodúsen,
tvær nefndir til starfa að raforku-
málum Vestfjarða:
1. Nefnd til þess að vinna að orku-
málum Vestfjarða og kanna við-
horf sveitarfélaga á Vestfjörðum
til stofnunar Vestfjarðavirkjun-
ar, sbr. ályktun Alþingis frá 5.
apríl 1971 um raforkumái Vest-
fjarða.
Skal nefndin gera tillögur um
framkvæmdir, sem nauðsynlegar
eru til þess að nægileg orka fáist
frá vatnsaflsvirkjunum og jarð-
varma til að fullnægja orkuþörf á
Vestfjörðum, þannig að tekið sé
tillit til sennilegrar aukningar i
næstu framtíð á orkuþörf til al-
mennrar notkunar og iðnaðar og
jafnframt séð fyrir nægilegri
orku til upphitunar húsa.
Ennfremur er nefndinni falið
að gera tillögur um hvernig staðið
verði að stofnun Vestfjarðavirkj-
unar, sem verði sameign ríkisins
og sveitarfélaganna þar, og hafi
það verkefni að annast fram-
leiðslu og dreifingu raforku og
hagnýtingu jarðvarma I þessum
landshluta.
Nefndina skipa:
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
formaður Orkuráðs, sem jafn-
framt er formaður nefndarinnar.
Jóhann T. Bjarnason, framkv.
stjóri Fjórðungssambands
Vestfjarða. Ölafur Kristjánsson,
forseti bæjarstjórnar, Bolungar-
vík. Guðmundur H. Ingólfsson,
bæjarfulltrúi, Hnífsdal. Ingólfur
Arason, hreppsnefndarmaður,
Patreksf. Engilbert Ingvarsson,
rafveitustjóri, Snæfjallahreppi.
Karl E. Loftsson, oddviti, Hólma-
vík.
2. Nefnd til að undirbúa vatns-
aflsvirkjun i Suður-Fossá á
Rauðasandi og sjá um fram-
kvæmdir í samræmi við ályktun
Alþingis frá 14. maí 1975.
Nefndina skipa:
Jóhannes Arnason, sýslumaður,
Patreksfirði, sem jafnframt er
formaður nefndarinnar. Ágúst H.
Pétursson, fyrrv. oddviti, Patr-
eksfirði. Hafsteinn Davíðsson,
rafveitustjóri, Patreksfirði. Run-
ólfur Ingólfsson, rafstöðvarstjóri,
Bíldudal. Össur Guðbjartsson,
oddviti Rauðasandshrepps.
Verkefni nefndarinnar eru
nánar tiltekið sem hér segir:
1. Að semja við landeigendur um
vatnsréttindi vegna orkuvers-
ins.
2 Að láta hanna orkuverið, ásamt
nauðsynlegum búnaði
3. Að láta gera fullnaðaráætlun,
byggða á þeirri hönnun, sem
um getur i 2. lið, um stofn-
kostnað, rekstrarkostnað og
orkuvinnslugetu stöðvarinnar.
4. Að annast útboð, þar með talin
gerð útboðslýsingu, á þeim
mannvirkjum, vélum og bún-
aði sem til stöðvarinnar þarf.
5. Að rannsaka tilboð, sem berast
og gera tillögur til iðnaðar-
ráðuneytisins um hverja
þeirra skuli tekið
6. Að annast, eftir nánari fyrir-
mælum ráðuneytisins, samn-
inga við verktaka.
7. Að hafa, eftir nánari fyrirmæl-
um ráðuneytisins og í umboði
þess, yfirumsjón með fram-
kvæmdum við orKuverið.
Gert er ráð fyrir, að strax og
Vestfjarðavirkjun hefur verið
stofnuð og henni sett stjórn, flytj-
ist það af verkefnum nefndarinn-
ar, sem þá kann að vera ólokið,
yfir til stjórnar Vestfjarðavirkj-
unar og að störfum nefndarinnar
sé þar með lob:,;.
(Frá iðnaðarráðuneytinu)