Morgunblaðið - 07.08.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGUST 1975
21
+ Hún var aldeilis heppin, hún
frú Mennie Persón frá
Memphis, í Tennesseefylki f
Bandarfkjunum. Mennie hitti
rokksöngvarann fræga Elvis
Presley og sagöi honum sf
svona að henni litist dægilega á
„limousfnið" hans. Elvis lfkaði
hólið vel og gerði sér lftið fyrir
og keypti annan eins og gaf
frúnni. — Mennie, sem sézt hér
á myndinni ásamt dðttur sinni
Bassöntu, og svo að sjálfsögðu
bflnum fræga, sagðist vera svo
furðu lostin vcgna gjafarinnar,
að hún hafi varla fundið skóna
sfna um morguninn. — Og
finnst engum mikið ...
+ Kvennamál Karls prins
munu vera mikið rædd f Eng-
landi um þessar mundír. Sagt
er að hann sjáist nú mikið með
júgóslavnesku prinsessunni El-
izabetu, en hún er orðin 38 ára
gömul. Nýlega sáust þau Charl-
es og Elizabeth saman á polo-
leikum f Windsor Park í
London og virtist fara vel á
með þeim. Eftir leikana óku
þau svo burtu saman f hinum
+ Leikarinn Ryan O’Neal, sem
við munum eftir úr „Love
Story“, hefur allt sfðan hann
lék f þeirri mynd verið önnum
kafinn við að skemmta sér og
staðið f mörgum ástarsambönd-
um. En núna eys hann allri
sinni ást yfir frönsku leikkon-
una Anouk Aimee. Hún er sögð
nfu árum eldri en O’Neal og
varð amma sl. ár. Þau Ryan og
Anouk eru um þessar mundir f
sumarhúsi Ryans f Malibu
Beach í Kalifornfu, meðan
eiginmaður Aimees — sá fjórði
bláa Aston Martin sportbfl
prinsins. — Eins og við munum
kannski eftir var mikið rætt
um prinsessuna þegar hún yfir-
gaf eiginmann sinn vegna Ric-
hard Burtons. Samband þeirra
stóð að vfsu frekar stutt. Sfðan
mun Burton hafa snúið sér að
kvikmyndaleikkonunni Jean
Bell. ... Lff og fjör hjá leik-
örum ...
f röðinni — leikarinn Albert
Finney, húkir áhyggjufullur á
heimili þeirra f London.
„Anouk er stórkostlegur kven-
maður og ég er ástfanginn upp
fyrir haus. Við njótum hverrar
sekúndu sem við erum saman,“
er haft eftir Ryan O’Neal f við-
tali við „National enquirer“.
Dóttir Ryans, Tatum, mun vera
ánægð með val föðurins og
eyðir sumarfrfinu hjá þeim
föður sfnum og Aimee. Haft er
eftir Joanna Moore, fyrrver-
andi eiginkonu Ryans: „Ryan á
f erfiðleikum með að umgang-
ast sömu konuna f meir en einn
tfma, og ef satt er að hann hafi
verið með Aimee f marga sólar-
hringa, hlýtur að vera að tala
um hina stóru ást.“ Alhert
Finney stjórnar um þessar
mundir uppfærslu á nýju leik-
riti á Royal Theatre f London
og vill hann ekkert um málið
segja.
„Lœtur nœrri að ég
hafi staðið á sviðinu
annað hvert kvöld”
— segir Erling-
ur Vigfússon
söngvari við
Kölnaróperuna
ERLINGUR Vigfússon óperu-
söngvari hefur dvalið hér á landi
undanfarnar vikur í sumarleyfi'
frá Kölnaróperunni f Vestur-
Þýzkalandi, en þar hefur hann
starfað nokkur undanfarin ár. Til
tslands kom Erlingur sfðast fyrir
fimm árum. Dvölina hér að þessu
sinni hefur Erlingur fyrst og
fremst notað til hvfldar og hress-
ingar. Hann hefur aðeins haldið
eina opinbera tónleika, f fæðinga-
bæ sfnum Hellissandi 25. júlf s.l.
Voru tónleikarnir haldnir til
minningar um foreldra Erlings.
Húsfyllir var á tónleikunum og
fékk Erlingur afbragðsviðtökur
eins og komið hefur fram hér f
Morgunblaðinu. Vegna fjölda
áskorana ^etlar Erlingur að halda
eina opinbera tónleika enn, að
Borg í Grfmsnesi á laugardaginn,
9. ágúst klukkan 17. Auk þess
mun hann syngja f útvarp og ef
til vill í sjónvarp.
Erlingur Vigfússon f hlutverki f
Elisabet Tudor eftir Fortner.
Blaðamaður Morgunblaðsins
hitti Erling sem snöggvast að máli
i síðustu viku. Var Erlingur fyrst
beðinn að rifja upp námsferil
sinn. „Ég byrjaði mitt nám í
Reykjavík hjá Sigurði Demetz.
Árið 1963 hélt ég til náms í
Mílanó á Italiu og dvaldi þar í
þrjú ár. Árið 1966 lá leiðin til
Þýzkalands ogþarinnritaðistég í
Reinische Musikskola og var þar í
eitt ár. Síðan fór ég í Óperuskól-
ann í Köln sem starfar samhliða
óperunni þar I borg og þar var ég
við nám unz ég var fastráðinn við
Kölnaróperuna 1970. Aðalkennari
minn í Köln hefur verið hin fræga
söngkona Walborga Wegneh. Við
þá óperu hef ég síðan starfað og
mun starfa áfram.“
— Eru hlutverk þfn hjá Kölnar-
óperunni orðin mörg?
„Hlutverkin min þar eru orðin
milli 20 og 30 talsins. Má nefna
sem dæmi málarann í Lilu, aðals-
manninn i Cardillac og Arbace í
Idomeneo. Af verkefnum sem
bfða mín i vetur má nefna Andrés
í Wozzeck og Otensky í
Eugenonegin."
— Hvernig hefur þú kunnað við
þig hjá Kölnaróperunni?
„Ég kann alveg ljómandi vel við
mig. I Köln er mikill áhugi á
óperulífi og hann fer vaxandi.
Köln er ein af mestu menningar-
borgum Þýzkalands með yfir 20
listasöfn og óperan er mjög lífleg.
Til dæmis voru fluttar þar allar
Mozartóperurnar á siðasta starfs-
ári og er það einsdæmi I heim-
inum. Köln er mjög alþjóðleg
borg og má sjá þess merki á óper-
unni.“
— Hefur þú ferðast eitthvað
um með óperunni?
„Já, óperan ferðast mikið um
heiminn og ég hef átt því láni að
fagna að fara með í þau ferðalög.
Ég hef verið með I ferðum til
mjög margra landa og hef t.d.
sungið I London, Genf, Brussel,
Haag, Róm og Búdapest. Þá eru
fyrirhugaðar ferðir til Japans og
Rússlands.”
— Þú hefur væntanlega komið
eitthvað fram utan óperunnar?
„Já, ég hef töluvert komið fram
utan hennar, bæði á tónleikum og
hjá öðrum óperuhúsum. Á þetta
við um Þýzkaland og mörg önnur
Evrópulönd. Þá má geta þess að í
fyrrasumar var mér og þremur
öðrum söngvurum boðið í tón-
leikaferðalag til Suður-Afríku og
stóð menntamálaráð landsins
fyrir boðinu. Við vorum þarna í
mánuð og komum fram á alls 18
tónleikum. Þetta var ákaflega vel
heppnað ferðalag að minum dómi
Heldur tónleika
að Borg í Gríms-
nesi á laugardaginn
og mikíi lifsreynsla fyrir mig.
Væntanlega hefur menntamála-
ráðið lika verið ánægt því okkur
hefur verið boðið að fara I 6 vikna
ferðalag til Suður-Afriku sumarið
1977. Nú þá er framundan hjá
mér að syngja í þýzka útvarpið.
Er það I upptöku á Gianniscicci en
þar syngur Dieter Fischer Diskau
titilhlutverkið, en hann er fræg-
asti barytonsöngvari Þjóðverja
(Erlingur er hins vegar tenór-
söngvari eins og allir vita).“
— Megum við eiga von á þvi að
þú komir hingað og syngir með
Kölnaróperunni?
„Það mun einhverntima hafa
verið á dagskrá að Kölnaróperan
kæmi hingað en ekkert varð úr
þvi. Og ég veit ekki til þess að það
sé nú i bigerð að óperan komi
hingað. Hins vegar væri það mjög
skemmtilegt ef af þvi gæti ein-
hverntíma orðið og væri þá vissu-
lega gaman að vera með í hópn-
um.“
— Hvernig finnst þér að koma
hingað eftir allan þennan tíma?
„Það er alltaf gaman að koma
heim til Islands og ekki síst eftir
langa fjarveru. Mér finnst margt
hafa breyst á þessum fimm árum
sem liðin eru frá því að ég var hér
sfðast. Ég hef hitt hér ættingja og
vini og skroppið á bernskustöðv-
arnar á Snæfellsnesi. Það eina
sem hefur skyggt á dvöl mína hér
er veðrið. En það er kannski minn
klaufaskapur að hafa ekki dembt
mér í sólina fyrir austan.”
— Og að lokum Erlingur, er það
ekki erfitt starf að vera óperu-
söngvari?
„Jú, það er ekki tekið út með
sitjandi sældinni. A síðasta starfs-
ári söng ég á 113 óperukvöldum
og kom fram á 25 tónleikum. Læt-
ur því nærri að ég hafi verið á
sviði annað hvert kvöld. Þar fyri'r
utan eru fleiri eðafærri æfingar á
hverjum degi. Ekki er óalgengt að
vinnudagurinn sé frá þvi kiukkan
10 á morgnana og til klukkan 11 á
kvöldin. En ánægjan sem starfið
veitir manni vegur margfalt upp
á móti þessari miklu vinnu.“
— SS.