Morgunblaðið - 07.08.1975, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. AGUST 1975
25
VELA/AKAIMDI
Velvakandi svarar I sjma 10-100
kl. 14—1 5,'frá mánudegi til föstu-
dags.
0 „Þjóðsmæddar-
mennirnir“
íslenzkufræðingur útvarps-
ins, sá sem talaði um íslenzkt mál
á mánudagskvöld, ætti að kynna
sér rækilega það sem hann ræðir
um; détente er alþjóðaorð og
merkir ekki endilega sama og
„friðsamleg sambúð“, eins og
hann hélt fram, heldur merkir
orðið: það að slaka á, þ.e. að draga
úr vígbúnaði og þar með spennu,
en engin ástæða er til að nota ekki
détente á íslenzku, eins og öðrum
tungum; t.a.m. merkir sovét ráð
eða eitthvað þvíumlíkt, en samt
eiga Sovétríkin jafnt rétt á sér og 1
Ráðstjórnarríkin á islenzku. '
Hundruð slíkra dæma mætti |
nefna svipaðs eðlis (op, popp, j
merkantilismi, abstrakt, I
kommúnismi, sósialismi o.s.frv.).
Þá merkir pragmatiskur ekki
endilega tækifærissinnaður eins
og fullyrt var, heldur sveigjan-
legur eða eitthvað þessháttar, þ.e.
orðið þarf alls ekki að vera nei-
kvæðrar merkingar, þó að það
geti verið það.
Aðfinnslumenn útvarpsins
ættu ekki að stunda orðhengils-
hátt, þá hættir fólk að leggja við
hlustirnar. Af nógu er að taka, því
að ekki skortir ambögurnar í fjöl-
miðlum, nú jafnvel í þætti um
íslenzkt mál. En menn skyldu
varast að prédika það sem eitt
sinn var kallað „kennaraskóla-
íslenzka", þ.e. dauðhreinsað mál,
þó að íhaldsemi eigi að vísu
hvergi betur við en þegar í hlut á
mál fámennrar þjóðar, eins og
íslenzk tunga. Og íslenzkufræð-
ingar mega vel vera íhaldsmenn
fyrir mér. En viö megum ekki
belgjast svo út af „þjóðsmæddar-
tilfinningunni", sem Þórbergur
Þórðarson nefndi svo, að við
getum ekki notað alþjóðleg tízku-
orð, ef svo mætti að orði komast,
af einni saman minnimáttar-
kennd. Ef lýðræðisþjóðirnar lifa
af détente og pragmatiska pólitík
Kissingers jafnörugglega og ís-
lenzk tunga þessi erlendu að-
skotadýr, þurfum við engu að
kviða, — ekki einu sinni „þjóð-
smæddarmennirnir". En illa væri
komið okkar málum, ef við færum
að snara t.a.m. détente á íslenzku
og kalla það slökunarstefnu, eða
afslöppunarstefnu, en það er sú
stefna sem rikir I morgunleikfimi
útvarpsins.
Með kveðju og virðingu fyrir
þeim sem talar máli íslenzkrar
tungu, í útvarpi og annarsstaðar.
0 Tónlistarstefna
útvarpsins
A.R. skrifar:
„Nýlega var veitzt harkalega að
tónlistardeild útvarpsins hér í
þessum dálkum. Var gagnrýnd sú
ráðstöfun að útvarpa á laugar-
dagskvöldum Hljómplöturabbi
Þorsteins Hannessonar tónlistar-
stjóra.
Mér er ekki kunnugt um tónlist-
arsmekk þeirra, sem að þessum
skrifum stóðu, en ég held, að ekki
sé ofmælt þótt fullyrt sé, að tón-
listardeildinni hafi tekizt bæri-
lega að gera flestum tónlistar-
stefnum nokkurn veginn jafnhátt
undir höfði.
Utvarpið hefur borið gæfu til
þess að flytja landsmönnum góða
tónlist, þótt ekki hafi alltaf allir
verið sammála um það, hvað
teljast skuli góð tónlist og hvað
ekki.
Ég heyrði eitt sinn sögu af
manni, sem átti mikinn þátt í því
að móta tónlistarstefnu útvarps-
ins, meðan það var enn ung stofn-
un. Forráðamenn hennar voru þá
skammaðir látlaust fyrir að flytja
„bölvaðar sinfóníurnar“ yfir
landslýðnum í tíma og ótíma. Það
sem sett var I flokk með sin-
fónlum var reyndar allt annað en
dægurlög, gamanvlsur og har-
monikulög.
Þá sagði tónlistarfrömuðurinn:
„Mér er alveg sama þótt einhverj-
ir vilji ekki hlusta á sinfóníur, —
þeir skulu fá sinfðníúr samt“.
Hvaða þátt þessi hugsunar-
háttur hefur átt i þvi að gera
íslendinga að tiltölulega tónlistar-
menntuðu fólki, skal ég ekki full-
yrða, en víst er það, að ábyrgð
útvarpsins að þessu leyti er mikil,
og skyldi ekki vanmetin.
í útvarpsdagskránni eru nokkr-
ir fastir tónlistarþættir, sem unn-
endur sígildrar og æðri tónlistar
kunna vel að meta. Mér finnst
þeir þó of fáir þegar miðað er við
alla þá þætti, sem flytja popp og
dægurtónlist.
Að sjálfsögðu verður útvarpið,
sem hefur aðeins eina dagskrá, að
gæta þess, að sem flestir fái að
heyra eitthvað við sitt hæfi.
Þeim sem sjá ofsjónum yfir því,
að þáttur með sígildri tónlist,
aðallega söng, skuli fluttur á dýr-
mætum útvarpstíma eins og á
laugardagskvöldum, skal ein-
ungis bent á það, að frá því að
lestri kvöldfrétta lýkur og fram
til miðnættis, eru leikin „létt Iög“,
popptónlist og annað I þá veru.
Við Þorsteinn Hannesson get-
um kannski huggað okkur við að
það hefur löngum verið vanþakk-
látt starf að kasta perlum fyrir
svln.
Með bezti kveðjum til Þorsteins
og starfsliðs hans I tónlistardeild
útvarpsins, og áskorun um að
hvika ekki af farsælli braut I tón-
listarvali.
A.R.“
0 Hitafar
„Veðurglöggur“ skrifar:
„Velvakandi góður.
I dag talar maður nokkur um
hitafarið hjá Veðurstofunni. —
Það er bláttáfram hættulegt mál-
inu, þegar einhver aðili, sem
hefur greiðan aðgang að eyrum
almennings tekur sér fyrir
hendur að nota alls kyns orðskrípi
að eigin geðþótta.
Hver hefur áður heyrt talað um
hitafar? Ég hef heyrt talað um
skýjafar, kvennafar og tveggja-
mannafar o.s.frv., en um hitafar
hefi ég aðeins heyrt frá Veður-
stofunni nú nýverið.
Þá heyrist oft sagt „skýjað með
köflum". Með hvaóa köflum?
Svari nú Veðurstofan.
Svo er það annað I fari Veður-
stofunnar, sem vert er að minnast
á. Það er að Reykjavík er skrifað
með k, en ekki með g, og skal
þetta orð því borið fram með k-
hljóði, en ekki g-hljóði.
Veðurstofa Islands verður að
vanda til flutnings veðurfrétta og
hafa til þess verks ómálhalta
menn.
Þá dugar ekki að segja „hiti
fjögur stig“ — það á blátt áfram
að segja „fjögurra stiga hiti“, eins
og ein ágæt stúlka segir I veður-
lýsingum sínum.
Vandið málfarið, en sparið hita-
farið.
„Veðurglöggur“.
Bersýnilegt var að fyrir henni
vakti eitthvað sérstakt. En ég var
með hugann bundinn við aðeins
eitt.
— Kemur ÞtJ Ifka I kvöld?
— Auðvitað ekki! Ef portrettið
hefur þau áhrif, sem ég held,
efast ég ekki um að hann leiti mig
uppi... sjálfs sfn vegna.
— Marietta. ég get ekki sleppt
þér, sagði ég og greip um hönd
hennar.
— Ég get ekki hugsað að þú
farir til Kronebergs.
— Þannig eru leikreglurnar og
þú veiz.t það.
— Þú GETUR ekki yfirgeflð
mig, Marietta.
— Við yrðum hvort öðru aðeins
til trafala f framtíðinni.
Þú veizt það, Gene. Þú ert að
byggja upp þína framtfð ... og ég
veit að nú fer að rofa til. Svo
finnurðu fljótlega góða stúlku
sem þú getur orðið hamingju-
samur með....
Brahm sat þögull nokkrar
mfnútur. Svo varp hann þunglega
öndinni.
HÖGNI HREKKVÍSI
Hann er að dansa kattadansinn: Fressið á heita þakinu!
lcefood
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4 — 6,
Hafnarfirði.
Seljum reyktan lax og graflax
Tökum lax í reykingu
Útbúum graflax
Vacuum pakkað ef óskað er
Póstsendum um allan heim.
ÍSLENZK MATVÆLI
SÍMI 51455
Héraðsmót
Sjálfstæðisflokksins
um næstu helgi
á Kirkjubæjarklaustri,
Hellu og Flúðum
Um næstu helgi verða haldin 3 héraðsmót Sjálfstæðisflokksins.
Kirkjubæjarklaustri
föstudaginn 8. ágúst kl. 21. Ávörp flytja Gunnar Thoroddsen, iðnaðar-
ráðherra og Steinþór Gestsson, alþm.
Hellu
laugardaginn 9. ágúst kl. 21. Ávörp flytja: Geir Hallgrimsson, forsætis-
ráðherra, Ingólfur Jónsson, alþingismaður og Þorsteinn Pálsson,
ritstjóri.
Flúðum
sunnudaginn 10. ágúst kl. 21. Ávörp flytja: Matthías Á. Mathiesen,
fjármálaráðherra, Guðlaugur Gíslason, alþingismaður og Valdimar
Bragason, prentari.
Skemmtiatriði á héraðsmótunum annast hljómsveit Ólafs Gauks ásanit
Magnúsi Jónssyni, óperusöngvara, Svanhildi, Jörundi og Hrafni
Pálssyni. Hljómsveitina skipa Ólafur Gaukur, Svanhildur, Ágúst
Atlason, Benedikt Pálsson og Carl Möller.
Efnt verður til ókeypis happdrættis og eru vinningar tværsólarferðirtil
Kanarieyja með Flugleiðum. Verður dregið i happdrættinu að héraðs-
mótunum loknum, þ.e. 20. ágúst n.k.
Að loknu hverju héraðsmóti verður haldinn dansleikur til kl. 2 e.m. þar
sem hljómsveit Ólafs Gauks leikur fyrir dansi og söngvarar hljómsveit-
arinnar koma fram.
HESTAMENN
Ótrúlegt en satt
Nýkomiö:
Spaðahnakkar.
Verð kr. 21.490.—
Höfuðleður m/múl og taum.
Verð kr. 2.150.—
Póstsendum
^TXXiXS1
Glæsibæ — sími 30350.