Morgunblaðið - 07.08.1975, Síða 26

Morgunblaðið - 07.08.1975, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGUST 1975 Meistaramótinu lauk í gærkvöldi: Vallarmetí sleggjukasti og mðtsmet í 1500 m MEISTARAMÓTI Islands f frjáls- um íþróttum lauk á Laugardals- vellinum í gærkvöldi, og eins og fyrri dag mótsins var leiðinda- veður til keppni, rigning mest allan tfmann, en f gær var þó • sæmilega hlýtt. Bærilegur árangur náðist f flestum greinum og góður í öðrum. Hæst ber frammistöðu hinnar 15 ára gömlu Marfu Guðjohnsen f 100 metra hlaupi. Hljóp hún á 12,6 sekúnd- um, en sá tfmi er aðeins fjórum sekúndubrotum lakari en Islands- met Ingunnar Einarsdóttur frá því f fyrra. Jón Diðriksson Borgfirðingur bar sigur úr býtum i 1500 metra hlaupinu, hann kom i mark á tímanum 3:54,6, sem er nýtt meistaramótsmet en Ágúst Ásgeirsson varð í öðru sæti að þessu sinni á 3:54,8. Lilja Búizt við því að Jóhannes Guðmundsdóttir keppti f þremur greinum í gærkvöldi og stóð á verðlaunapallinum að þeim öllum loknum, 400 og 1500 metra hlaupum og svo að Ioknu 4 x 400 metra boðhlaupi. Stóð Lilja sig mjög vel og Iofar árangur hennar f sumar sannarlega góðu. Sigurður Sigurðsson úr Ár- manni sigraði f 100 metra hlaupi á tímanum 10,8 sekúndum, en Vil- mundur Vilhjálmsson varð annar á 10,9, Sovétmaðurinn Schubin fékk bezta tíma 10,7 sek. Annar Sovétmaður vakti mikla athygli f keppninni í gærkvöldi, sjálfur Ólympfumeistarinn Anatoli Bondartschuk. Hann þeytti sleggjunni 67,70 metra. Það er að vísu nokkuð frá hans bezta, en að sjálfsögðu vallarmet á Laugar- dalsvellinum og tækni hans vakti verðskuldaða athygli. I síðastnefndu greininni. sleggjukasti, gerðist það, að Þórður B. Sigurðsson varð Is- landsmeistari, en nákvæmlega 10 ár eru liðin síðan þessi harðfylgni íþróttamaður náði síðast þeim titli. Nánar á morgun. Agúst Asgeirsson kemur fyrstur f mark f 800 metra hlaupinu, þar sem þátttakendur voru óvenjumargir. (Ljósm. Friðþjófur). skrifi undir Fyrri dagur meistaramótsins: Unga fólkið vann beztu afrekin samningí dag JÓHANNES Eðvaldsson flaug f gær frá Glasgow til Danmerkur til að fá leyfi frá Holbæk og Danska knattspyrnusambandinu til að gerast atvinnumaður með Celtic f Skotlandi, að þvf að heimildarmaður Morgunblaðsins f Skotlandi sagði f viðtali við blaðið f gærkvöldi. Er reiknað með þvf að Jóhannes skrifi undir samning við Celtic f dag og fái þvf leyfi til að leika með félaginu f fyrsta leiknum f skozka deildar- bikarnum á laugardaginn. Samningaviðræðum lauk seinni partinn f gær og aðeins stóð á þvf að grænt Ijós fengist frá Dönum, sem verða að gefa leyfi sitt áður en Jóhannes skrifar undir, þó að hann sé áhugamaður f knatt- spyrnu. Sean Fallon aðstoðar- framkvæmdarstjóri Celtic sagði f gær að hann ætti von á Jóhannesi til baka til Glasgow í kvöld og þá yrði ekkert að vanbúnaði til að skrifa undir samning. Fallon sagði að það yrði ekki gefið upp hve mikið Jóhannes fengi fyrir að skrifa undir samning við félagið. Heimildarmaður okkar í Skotlandi sagði þó að sögur gengju um það að Jóhannes fengi 20 þúsund pund eða tæplega sjö milljónir fslenzkra króna fyrir að skrifa undir samninginn. ÞAÐ VORU töluverð kaflaskipti f keppni fyrri dags meistaramóts Islands, sem fram fór á Laugar- dalsvellinum f fyrrakvöld. I nokkrum greinum var um mjög skemmtilega keppni að ræða og góða þátttöku, en f öðrum grein- um var árangurinn lélegri og þátttaka minni en sæmir meistaramóti Islands. Greinilegt var að hluti frjálsfþróttafólksins var að spara kraftana fyrir þau erfiðu mót önnur, sem framund- an eru, bikarkeppnina og lands- keppnina við Skota. Þá hefði maður haldið að utanbæjarfólkið myndi mæta betur til mótsins en raunin varð á, eftir hina skemmti- legu og fjölmennu keppni á landsmóti UMFl á Akranesi fyrir nokkru. Meistaramótið ætti með réttu að vera aðalmót sumarsins, en er það sannarlega ekki. Keppnin f 200 metra hlaupi var tvímælalaust hápunktur keppn- innar í fyrrakvöld. I undanrásum vakti Björn Blöndal KR, athygli og þrátt fyrir veikindi náði hann bezta tíma undanrásanna og sín- um bezta er hann hljóp á 22,8. Hann treysci sér hins vegar ekki í úrslitahlaupið og þar áttust þeir þvf við Vilmundur, Bjarni og Sig- urður Sigurðsson. Það var hinn ungi Sigurður Sigurðsson, sem sleit snúruna — flestum á óvart — á nýju drengjameti 21,8. Er það góður árangur hjá svo ungum pilti og er Sigurður eitt mesta íþróttamannsefni, sem hér hefur komið fram lengi, og haldi hann áfram á sömu braut er varla efi á því að íslendingar eiga stór- hlaupara innan nokkurra ára. Allir beztu hlauparar í milli- vegalengdum tóku þátt í 800 metra hlaupinu og var þar um skemmtilega keppni að ræða. Ágúst Asgeirsson var þó áberandi sterkastur og sigraði örugglega. Af öðrum greinum sem eru um- talsverðar frá keppninni f fyrra- kvöld má nefna kúluvarp, spjót- kast og hástökk. Hreinn sýndi mikið öryggi í kúluvarpinu og sigraði á nýju meistaramótsmeti, 18,61 m. Ungu mennirnir, Óskar Jakobsson og Snorri Jóelsson, náðu prýðilegum árangri í spjót- kastinu. Óskar virðist orðinn öruggur með 70 metra í keppni og maður býst við „stóra“ kastinu hjá honum þá og þegar. Snorri náði á þriðjudaginn sínum bezta árangri á sumrinu og er mikið efni. í hástökkinu náði Elías bezta afreki Islendings í ár með þvf að stökkva 2,00 metra. Yfirburðar- maður í hástökkinu var Sovét- maðurinn Kiba, sem setti nýtt vallarmet, með því að stökkva 2,13 metra. Stekkur Kiba gamla grúfustílinn og hefur yfir honum fullkomið vald. Hinir sovézku gestirnir kepptu í langstökki og höfðu þar mikla yfirburði, enda þótt afrek þeirra væru ekkert sér- stök miðað við það sem bezt gerist f heiminum. 1 kvennagreinunum var afrek Lilju Guðmundsdóttur í 800 metra hlaupi og Þórdísar Gísla- dóttur f hástökki bezt. Lilja hljóp mjög vel og hélt jöfnum hraða allí hlaupið. Hefur henni farið mikið fram og má mikið vera ef henni tekst ekki að ná Ólympíulágmark- inu f sumar í þessari grein og eða í 1500 metra hlaupinu. Þórdís stökk 1,64 metra og getur met Láru Sveinsdóttur fallið hvenær sem er þegar Þórdís keppir við betri skilyrði en voru til keppni í fyrrakvöld. Þá kom María Guðna- dóttir á óvart f hástökkinu og gæti hún eflaust náð mun lengra ef hún hefði góðar aðstæður til að æfa. KARI.AH: 200 METRA HLAUP: Sigurdur Sigurðsson, A 21,8 Bjami Stefánsson, KR 21,9 Vilmundur Vilhjálmsson, KR 22,0 Hanno Rheineck, V-Þýzkal. 22,8 Bjöm Blöndal, KR, náði beztum tfma f undanrás 22,8 sek. 100METRA HLAUP: Ágúst Asgeirsson, tR 1:55,9 Jón Diðríksson, UMSB 1:56,5 Júlfus Hjörleifsson, IR 1:57,1 Gunnar Páll Jóakimsson, tR 1:58,2 Sigfús Jónsson, tR 1:59,6 Gestur: B. Eksted, Svfþjóð 1:57,7 5000 METRA HLAUP: Jón H. Sigurðsson, HSK 16:14,7 Ágúst Gunnarsson, UBK 16:41,9 ÍSLENDINGAR höfnuðu í fjórða sæti f Norðurlandamóti unglinga 14—16 ára f knattspyrnu, en móti þessu lauk f Finnlandi á sunnu- daginn. Kepptu Islendingar við Vestur-Þjóðverja um þriðja sætið, en Þjóðverjarnir voru gestir mótsins. Lauk leiknum með sigri þeirra 2—1. Danir urðu Norðurlandameistarar, sigruðu Finna 2—1 f afburðaskemmti- legum og vel leiknum úrslitaleik, og Norðmenn sigruðu svo Svfa f úrslitaleik um fimmta sætið 1—0. — Leikurinn við Svfa var mjög erfiður, sagði Helgi Daníelsson, fararstjóri Islenzku piltanna, — og hann sat í íslenzku piltunum þegar til leiksins við Vestur-. Þjóðverja kom. Auk þess var mjög heitt í veðri, 28 stiga hiti, og hafði það sitt að segja fyrir íslepzku piltana, sem óvanir eru slíkum aðstæðum. Leikurinn við Þjóðverja var til- tölulega mjög jafn. Liðin sóttu frá upphafi á vfxl og marktækifæri voru á báða bóga. Það hafði slæm áhrif á íslenzka liðið að einn bezti 400 METRA GRINDAHLAUP: Hafsteinn Jóhannesson, UBK 61,7 LANGSTÖKK: Friðrik Þór Óskarsson, ÍR 6,86 Sigurður Jónsson, HSK 6,60 Hreinn Jónasson, UBK 6,22 Sigurður Hjörleifsson, HSK 6,20 Gestir: Schubin, Sovétrfkjunum 7,56 Sinitschkin, Sovétrfkunum 7,27 HASTÖKK: Elfas Sveinsson, iR 2,00 Karl West Fredriksen, UBK 1,95 Hafsteinn Jóhannesson, UBK 1,95 Jón S. Þórðarson, tR 1,85 Gestur: Kiba, Sovétrfkjunum 2,13 Kúluvarp: Hreinn Haldórsson, HSS 18,61 Guðni Halldórsson, HSÞ 16,41 óskar Jakobsson, ÍR 15,90 Stefðn Hallgrfmsson, KR 14,37 Guðni Sigfússon, Á 13,75 Framhald á bls. 27 maður þess, Sigurður Björgvins- son úr Keflavfk meiddist snemma f fyrri hálfleiknum og varð að fara útaf. Um miðjan fyrri hálfleikinn náðu Þjóðverjar forystu með marki sem skorað var eftir auka- spyrnu rétt utan vítateigs, og náðu íslendingar ekki að jafna fyrr en í byrjun seinni hálfleiks en þá skoraði Jón Orri Guðmunds- son eftir að hafa brotizt í gegnum vörn Þjóðverjanna. I seinni hálf- leiknum kom svo fyrir umdeilt atvik, er Jón Einarsson náði að leika í gegnum vörn Þjóðverjanna og var ekki stöðvaður fyrr en á markteig, þar sem hann var keyrður niður. Dómarinn flautaði og áttu flestir von á vftaspyrnu á Þjóðverjana, en öllum til undr- unar færði dómarinn brotið út fyrir teig, þannig að aðeins var dæmd aukaspyrna. Þegar leiktímanum var lokið, tókst Þjóðverjunum að skora sigurmark leiksins, og bar það að á svipaðan hátt og fyrra markið, var skorað eftir aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Sigursveit GR Þessir kappar skipuðu sveit Golfklúbbs Reykjavfkur f flokkakeppn- inni f Golfi sem fram fór á landsmótinu á Akureyri á fimmtudaginn f sfðustu viku. I þessum hópi má sjá nokkra af efnilegustu golf- mönnum landsins og tvo þeirra kylfinga sem gert hafa garðinn frægan mörg undanfarin ár. A myndinni eru frá vinstri Hans Isebarn, Einar Guðnason, Óttar Yngvason, Óskar Sæmundsson, Atli Arason, Geir Svansson og Ragnar Ólafsson. (Ljósm. Mbl. Jón Einar). Islendingar í fjórða sæti Töpuðu 1:2 fyrir Þjóðverjum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.