Alþýðublaðið - 14.09.1958, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 14.09.1958, Qupperneq 1
XXXIX. árg, Sunnudagur 14. sept. 1958 208. tbl. Hér eru þeir Anderson. skipherra á Eastbourne (til hægri), spjaliar við Jack Crockwell, skipstjóra á 'Vorthern Foam. Anderson bjargaði Crockwéll, þegai hann lét fjarlægja varð- skipsmenn með valdi úr skipi hans. Mynd af íslend íngunum — g Á BAKSiÐU VARÐSKIPIi NÁLGUÐUST f r ST / / SETTIR UNDIR LAS OG SLA Björn Ólafur Jóhannes 11 dagar um borðí HMS Eastbourne Dulbúið undan Keflavík . ÍSLE'NZKU varðskipsmenn- irnii- níu, sem Bretar tóku meo vajdi úr togaranum „Norihern Foam“ að morgni 2. þ, nl., — voru settir á land í Keflavík í fyrrinótt. Herskipið „East- bourne“, þar sem mennirnir voru fangar, sigldi af hafi áleið is til Keflavíkur, og var það að- eins um hálfa mílu frá landi, þegar Islendingarnir voru send if frá herskipinu í árabát. Upphaflega mun hafa verið setlunin að láta fangana á land í Þorlákshöfn, en þeirri fyrirætl un var breytt. I gærmorgun fyr ir hádegi mun hins vegar hafa verið ákveðið, að setja menn- ina á land í Keflavík, eins og fyrr segir. Telja varðskipsmenn — að fyrirskipun hafi borizt frá London á föstudagsmorgun um þessar aðgerðir. I árabát Það var um kl. 2.20 { fyrri- nótt, að mennirnir voru settir um borð í stóran árabát og sagt að róa í land. Vélbátur var ■hafður til taks, ef eittbvað kæmi fyrir .í árabátnurn var komið fyrir radarmerki og fylgzt með ferðum íslending- j anna frá herskipinu, sem beið átekta á meðan þeir réru í land. Tók sú ferð um hálfa klukku- stund í mesta lagi. Var þeim tjáð, að bátinn mættu þeir „eiga til minja um dvölina á Eastbourne“. lii Revkjavíkur Varðskipsmenn höfðu þegar samband við lögregiListöoina í Keflavík, er komið var í iand. Þaðan hringdu þeir í landhelgis Framhald á 5. síðu. „VIÐ VORUM ekki vel- íomnir í brúna, en annars íengum við að fara um jkipið eins og við vildum“, iögðu tveir ungir skipverj ir af varðskipunum, þegar blaðið átti tai við þá í gær norgun eftir fangavist • þeirra um borð í „East- bourne“. „Einu sinni vorum við þó lokaðir inni, þegar varðskipin ,,María Júiía“ og „Hermóður11 ætluðu að taka togara fyrir vestan Langanes og Eastbourne fór á vettvang". Björn Baldvins son, Sörlaskjóli 20, er 19 ára gamall og hefur verið á „Maríu Júlíu“ í 19 mánuði, að undan- skildum tæpum mánuði. Líkar honum starfið vel og ætlar að halda áfram, a -m. k. meðan eitthvað er um að vera. Jóhann- es Elíasson, Rauðarárstig 17, er 17 ára að aldri og hefur verið í landhelgisgæzlunni í tæp tvö ár. Fyrst var Jóhannes á „Ægi“ en síðan í maí 1957 hefur hann verið á „Þór“ og líkar starfið vel. Þeir félagar sögðust hafa búið við sama aðbúnað og sjó- liðarnir á herskipinu, búið og .borðað með þeim. „Annað slag- ið fengum við að hlusta á frétt irnar í útvarpinu, en yfirleitt ^yddum við tímanum við töfl og spil . Ludó var aðalspilið um borð“. Þótti þeim fangavistin drepleiðinleg fyrstu dagana. — Annan hvorn dag voru kvik- myndasýningar. Óláfur V. Sig- urðsson, Bólstaðahlíð 39, hefur verið á varðskipum í fyrrasu.m- ar og í sumar. Kvað aðbúnað hafa verið prýðilegan. „Ander- son var fyrsta flokks karl, skap- góður og hreinskilinn“, sagði Ólafur. „Hann bað okkur að láta sig vita, ef við hefðum yf- ir einhverju að kvarta- Sagði hann, að við gætum fengið pen inga tii að verzla í skipsbúð- inni, hvort sem þeir yrðu end- urgreiddir eða ekki. Höfðum við því nægar sígarettU.r“, Yfirleitt létu skipverjar ekki illa af vistinni um borð í brezka herskpinu, þar sem þeir voru í haldi rúman llVz sólarhrmg. „Sjóliðarnir voru vingjarniegir og virtust sumir skilja málstað okkar, þegar við skýrðum mál- ið út fyrir þeim. Þótti ýmsum þeirra undarlegt, að varðskipi- in skyldu reyna að taka togara undir vernd „hins drottningar- lega flota!“ Ekki sögðust þeir hafa áhuga á að stíga fæt; á ís- lenzka grund, eins og stendur, en kváðust ekki hafa á móti því að heimsækja ísland, eí land- helgisdeilan leystist á íríðsam- | legan hátt“. — Alls voru 214 g manns um borð í herskipinu, 1 m. a. þrír blaðamenn frá brezk- g um fréttastofum. Vanstilling, sem skaðar þjóðina ÞJÓÐVILJINN réðist í gær enn einu sinni með of- forsi á utanríkisráðherra í sambandi við landhelgismál- ið. Mun Aliþýðublaðið enn taka þessum skrifum með still ingu og meta meira einingu og frið um þetta mikla mál en þrætur við kosnimúnista. — VanstiIIing Þjóðviljans er blaðinu og aðstandendum þess til skammar og þjóðinni til skaða. Þjóðvljinn virðist ekki átta sig á því, að það var ríkis- stjórnin í heild, sem ákvað stefnu þjóðarinnar í landhelg- ismálinu, en framkvæmd þess arar stefnu heyrir undir þrjá ráðherra: útgáfa reglugerðar- innar undir sjávarútvegsmála ráðherra, framlcvæmd hinnar nýju fiskveiðilögsögu undir dómsmálaráðherra og með- ferð málsins á erlendmn vett- vangi — fyrst og fremst öflun viðurkenningar á 12 mílunum — undir utanríkisráðherra. Utanríkisráðuneytið hefur, eins og aðrir aðilar, marglýst j'fir, að ekki verði samið um 12 mílna fskveiðilandhelgina. Þær viðræður, sem fram fóru um málið erlendis, voru ekki á þeim grundvelli, og þessi stefna er að sjálfsögðu ó- breytt. Það kemur auðvitað ekki til mála, að allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna setji neinar sérstakar reglur um fiskveiðilandhelgi Islands, enda er slíkt alls ekki á dag- skrá þess. Hins vegar verður rætt um almennar reglur um fiskveiðilögsögu allra þjóða, og það væri fásinna af Islend ingum að taka ekki fullan þátt í afgreiðslu þess máls nú eins og þeir hafa gert í tæpan ára- tug. Það verður aldrei friður um þetta mál, fyrr en allar viðkomandi þjóðir viðurkenna 12 mílurnar, beint eða óbeint. Vegna andstöðu margra ríkja og ofríkis Breta er hlutverk utanríkisráðherra erfiðast. — Hann hefur hingað til haldið á málinu. af festu og virðuleik — með þeim ágæta árangri, að Bretar standa nú einir í ofbeldisaðgerðum sínum. Það væri íslenzkum hags- munum fyrir beztu, ef Þjóð- viljinn reyndi að stilla skap sitt, hættí hinu pólitíska of- forsi og hugsaði eingöngu um það, hvernig málstað íslands verður gert mest gagn. Fulltrúar Islands á alls- herjarþinginu verða fæmstu menn á sínu sviði, trúir sinní þjóð og sínum málstað. Mál- Framhald á 2. síðu. Utanríkisráðherra GUÐMUNDUR I. GUÐMUNDS SON utanríkisráðherra afhenti ambassador Breta hér á landi, Andrew Gilchrist mótmæli vegna þess atburðar, er gerðist í fyrri- nótt, að brezka herskipið East hourne sigldi inn fyrir land- helgi Islands. Svo og vegna að brezka ríkisstjórnin varð ekki við kröfu ríkisstjórnar íslands, að skila mönnunum aftur um borð í togarann. Andrew Gilchrist

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.