Morgunblaðið - 06.09.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.09.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1975 Dagblaðið á mánudag „ÞAÐ er ákveðið af okkar hálfu að Dagblaðið komi út f fyrsta sinn á mánudag og þá f 30 þús. ein- tökum. Ekki er fyllilega ákveðið hvað síðurnar verða margar, en ef allt gengur að óskum verða þær 40 þennan dag, en ekki á ég nú von á að blaðið verði svo stórt daglega," sagði Jónas Kristjáns- son ritsjóri hins nýja blaðs, Dag- blaðsins, sem hefur göngu sfna á mánudaginn. Morgunblaðið spurði Jónas hver væri tilgangurinn með út- gáfu þessa blaðs: „Að gefa út frjálst og óháð dagblað á tslandi,“ sagði hann. Þá sagði hann, að búið væri að ráða 15 fréttamenn og Ijós- myndara á ritstjórn blaðsins, en 2 gætu ekki hafið störf strax, og væri þetta sami fjöldi og hefði verið með sér á Vísi. Um efnið í fyrsta blaðinu hafði Jónas það að Vitni vantar FIMMTUDAGINN 4. september var ekið, á bifreiðina R-9430, sem er ljósgræn Mazda, þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Iðnaðar- bankann í Lækjargötu. Gerðist þetta fyrir hádegi. Vinstri hurð er dælduð. Talið er að þessu hafi valdið rauð amerísk fólksbifreið sem ekið var afturábak að Mazda bifreiðinni, og vitað er að tveir menn munu hafa séð þegar rauðu bifreiðinni var ekið afturábak. Eru þeir beðnir að hafa samband við rannsóknarlögregluna. segja, að mikið væri um aug- lýsingar og ekki væri fyllilega búið að ákveða hvað færi inn í fyrsta tölublaðið, þó mætti jafn- vel búast við grein um land- búnaðarmál, eftir einn af tals- mönnum landbúnaðarins. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við Svein R. Eyjólfsson framkvæmdsstjóra Dagblaðsins og spurði hann hvort gengið hefði verið frá stofnun hlutafélags um reksturinn. Sveinn kvað enn ekki gengið frá því máli, en væntan- lega yrði það um helgina og nafn félagsins þá tilkynnt á venju- legan hátt. Hann sagði aðspurður, að ekki væri búið að ganga frá hlutafjáreign og vildi ekkert gefa út á hverjir yrðu stærstu hlut- hafar hins fyrirhugaða félags. „Það hefur verið í önnur horn að líta undanfarið og nú get ég farið að snúa mér að hlutafélaginu," sagði hann. Fréttastjóri Dagblaðsins hefur verið ráðinn Jón Birgir Péturs- son, Ritstjórnarfulltrúi Haukur Helgason og auglýsingastjóri Ásgeir Hannes Eiriksson. Tækniskólinn: Þessa dagana stendur yfir f Washington ársfundur AI- þjóðagjaldeyrissjóðsins. Af Is- lands hálfu sitja fundinn þeir Matthfas Á. Matthíesen fjár- málaráðherra, Ólafur Jó- hannesson viðskiptaráðherra, Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri og Jón Sigurðsson for- stöðumaður Þjóðhagsstofnun- arinnar. Á myndinni sjást þeir Jóhannes og Ólafur fremst en fyrir aftan þá eru Matthfas og Jón. Ekki krafa um launahækkun Vörusýningu að ljúka LIÐLEGA 55 þúsund gestir höfðu komið á Vörusýninguna þegar Mbl. hafði samband við Laugardalshöll i gærkvöldi. Nú eru aðeins tveir sýningardagar eftir, þvi sýningunni lýkur klukkan 23 annað kvöld, en siðasti gesturinn fer inn klukkan 22. Metaðsókn að sýningum sem þessarri er 64 þúsund gestir, en það var á Alþjóðlegu vöru- sýningunni 1971. Messurnar AF óviðráðanlegum ástæðum koma sunnudags-messurnar ekki í blaðinu i dag, en verða þess í stað í blaðinu á morgun, sunnudag. - segja kennarar ENN HEFUR kennsla í Tækni- skólanum ekki hafizt og mun vart hefjast fyrr en samkomulag hefur náðst milli fjármálaráðu- neytisins og kennara skólans. Morgunblaðinu barst f gær yfir- lýsing frá kennurunum og enn- fremur frá' nemendaráði skólans, og fara þær hér á eftir. Yfirlýsing kennaranna er svo- hljóðandi: „Fundur kennara við Tækni- skóla Islands haldinn 5. sept. 1975 harmar þann seinagang, sem orðið hefur á viðræðum við stjórnvöld um launakjör starfs- manna skólans. Fundurinn leggur áherzlu á að hér er ekki um að ræða kröfur um launahækkun, heldur er aðeins farið fram á, að kennarar njóti þeirra launakjara, sem ráðningarsamningar þeirra haustið 1974 kveða á um. Þá átelur fundurinn harðlega þau vinnubrögð, sem nú fyrst hafa verið upplýst, að launadeild fjármálaráðuneytisins hafi mis- túlkað sfðustu kjarasamninga og •skipað kennurum ranglega í lægri launaflokk en þeim bar. Því lýsir fundurinn yfir óbreyttri stefnu kennara Tækni- skóla Islands að hefja ekki kennslu fyrr en fjármálaráðu- neytið hefur leiðrétt mistúlkun sína.“ Yfirlýsing nemendaráðs skól- ans er svohljóðandi: „Nemendaráð Tækniskóla Is- lands kom saman í dag til að fjalla um deilu kennara og fjármála- ráðuneytisins. Fyrirhugaður er fundur allra nemenda skólans á mánudaginn vegna hugsanlegra aðgerða þeirra í rnálinu." Lóðaúthlut- un og fjár- framlög ALÞYÐUBLAÐIÐ heldur því fram í frétt í gær, að Ármanns- fell hf„ sem fékk lóðina á gatnamótum Grensásvegar og Hæðagarðs, hafi greitt undir borðið eina milljón króna f byggingasjóð hins nýja Sjálf- stæðishúss. Jafnframt segir blaðið, að til harkalegra orða- skipta hafi komið út af þessu á borgarstjórnarflokksfundi Sjálfstæðisflokksins milli Davfðs Oddssonar og Alberts Guðmundssonar. Morgunblaðið ræddi I gær við Davíð Oddsson og spurði hann um viðbrögð hans við þessari frétt. Davlð sagði að verulega væri rangt með farið í frétt Alþýðublaðsins, en að öðru leyti vildi hann ekki skýra frá því, sem fram hafi komið á áðurnefndum fundi, þar sem allt það, sem fram hefði farið á honum, væri trúnaðarmál, svo sem á öðrum slíkum fundum. Þá reyndi Mbl. að hafa tal af Albert Guðmundssyni til þess að fá viðhorf hans til fréttar- innar, en hann var erlendis og eigi væntanlegur fyrr en eftir helgi. Mbl. er hins vegar kunnugt um, að á áðurnefnd- um fundi mun Albert hafa lýst yfir að lóðaúthlutun til Ármannsfells væri algerlega óháð þvi, hverjir lagt hefðu fé I byggingasjóð Sjálfstæðis- hússins. Bandalag háskólamanna: Launakröfurnar frá 95 þús. kr. upp í 348.732 krónur Eru þeir að fá 'ann 7 Við höfðum samband við Friðrik Stefánsson hjá Stang- veiðifélagi Reykjavikur og fengum hjá honum fréttir af ám á vegum félagsins. Norðurá Veiði í Norðurá lauk 1. september og höfðu þá veiðzt rúmlega 2000 laxar. Var sumarið mjög gott og veiðin um 500 löxum meiri en á sl. ári. Grímsá Sömu sögu er að segja um Grímsá veiðin þar í gærkvöldi var orðin um 2000 laxar en tímanum lýkur þann 12. Grimsá endist betur en Norðurá, en er þá seinni af stað. Laxateljari var settur þar niður fyrir l'Æ mánuði og hefur hann nú talið um 4000 laxa. Elliðaárnar Þessi perla Reykjavíkur hefhr ekki látið sitt eftir liggja í sumar og eru komnir um 2000 laxar á land á 4—5 stangir. Þar hafa komið góðir sprettir að undanförnu. Leirvogsá I gær voru komnir 707 laxar á land í Leirvogsá, sem er algert met fyrir þá á. I fyrra veiddust þar 332 laxar. Gljúfurá Rúmir 500 laxar eru komnir á land í Gljúfurá, en voru aðeins um 150 i fyrra. Þar er veitt á 3 stangir og lýkur veiðitimanum 20. þessa mánaðar. Stóra-Laxá Veiðin í Stóru-Laxá hefur verið með bezta móti I sumar, en ekki lágu fyrir nákvæmar tölur, því að svæðið er stórt og um 3 veiðihús að ræða. Er lík- legt að 3—400 laxar séu komnir á land en 157 í fyrra. Lagarfljótssvæðið Þar hefur I sumar orðið vart við fyrsta árangur mikils rækt- uharstarfs og eru miklar vonir bundnar við það svæði á næstu árum. Á Breiðdalsársvæðinu eru komnir um 100 laxar. BANDALAG háskólamanna hefur nú lagt fram kröfugerð og megintillögur um aðalkjara- samning milli BHM og fjármála- ráðherra f.h. rfkissjóðs fyrir tfmabilið 1. júlf 1976 til 30. júnf 1978. Er lagt til að launaflokkar verði 20 og laun f lægsta launa- flokki kr. 95.745 á mánuði f byrjunarlaun, en 119.880 kr. eftir meir en 6 ára starfsaldur. Hæsti launaflokkurinn nefnist A30 og þar er lagt til að fastalaun verði 278.524 á mánuði í byrjunariaun en 348.732 kr. eftir meir en 7 ára starf. Jón Rögnvaldsson formaður kjaramálanefndar Bandalags há- skólamanna sagði í viðtali við Morgunblaðið i gærkvöldi, að launakröfur BHM væru fyrst og fremst miðaðar við að ná aftur þeim kaupmætti, sem var eftir úrskurð Kjaradóms 15. febrúar 1973. Auk þess hafi nokkuð mið verið tekið af launum á frjálsum markaði. Gerð væri krafa um að verðlagsbætur verði greiddar á laun og I því sambandi hefði þótt eðlilegt, að miða við svo nefnt „rautt strik“, þ.e. að verðlagsbæt- ur yrðu greiddar á laun í hlutfalli við hækkun framfærsluvísitölu umfram 477 stig. Ennfremur sagði hann, að gert væri ráð fyrirgrunnlaunahækkun um um 5% 1. janúar 1977, 5% 1. júlí 1977, og 5% 1. janúar 1978. Jón sagði að í efsta launaflokk- um A30 þar sem gert er ráð fyrir lægstu launum 278.534 en hæstu kr. 348.732 voru menn eins og biskup Islands, háskólarektor, og póst- og simamálastjóri. Næst hæsti launaflokkurinn er A-29, þar er gert ráð fyrir byrjunar- launum kr. 263.303 og hæst kr. 329.674. I þeim launaflokki er t.d. vegamálastjóri. I launaflokki A27 eru t.d. margir ríkisforstjórar, og þar er gert ráð fyrir byrjunar- launum kr. 235.310 en hæst kr. 294.625. Mjög margir aðilar eru I launaflokki A12 eins og t.d. gagn- fræðaskólakennarar, sem ekki hafa próf í uppeldisfræði. Þá er gert ráð fyrir 101.281 kr. i byrjunarlaun en eftir lengstan starfsaldur kr. 126.810 kr. 3 nýir fræðslustjórar Menntamálaráðherra hefur nú skipað i stöður fræðslustjóra í Austurlands-, ' Suðurlands- og Vesturlandsumdæmum sam- kvæmt grunnskólalögum. Þeir fræðslustjórar, er nú hafa verið skipaðir, munu hafa aðsetur á Sel- fossi, Reyðarfirði og i Borgarnesi. Jón R. Hjálmarsson skólastjóri hefur verió settur fræðslustjóri í Suðurlandsumdæmi, en það nær yfir Vestur-Skaftafellssýslu, Vest- mannaeyjar, Rangárvallasýslu og Árnessýslu. Kristján Ingólfsson námstjóri hefur verið settur fræðslustjóri I Austurlandsum- dæmi, en það nær yfir Norður- Múlasýslu, Seyðisfjarðarkaup- stað, Suður-Múlasýslu, Neskaup- stað, Eskifjarðarkaupstað og Austur-Skaftafellssýslu. Snorri Þorsteinsson kennari hefur verið settur fræðslustjóri í Vestur- landsumdæmi, en það nær yfir Borgarfjarðarsýslu, Akranes- kaupstað, Mýrarsýslu, Snæfells- nes- og Hnappadalssýslu og Dala- sýslu. Fræðslustjórarnir voru settir í stöðurnar um eins árs skeið frá 1. þ.m. að telja. Innbrot á Vopnafirði INNBROT var framið í Kaupfélag Vopnfirðinga í fyrrinótt stolið þaðan nokkrum segulbands og út-' varpstækjum. Talið er að verð- mæti þýfisins sé eitthvað á annað hundrað þúsund krónur. Þar eð enginn lögreglumaður er nú starf- andi á Vopnafirði, fóru tveir menn frá rannsóknarlögreglunni I Reykjavik flugleiðis til Vopna- fjarðar í gær. Ekki var búið að hafa upp á þjófunum þegar Mbl. hafði samband við Vopnafjörð i gærkvöldi. Verður heita vatnið flutt milli staða innanlands? UN SKEIÐ hefur staðið yfir á vegum iðnaðarráðuneytisins athugun ýmissa kosta, er varða húshitun með rafmagni og heitu vatni. Gunnar Thoroddsen iðnaðar- ráðherra hefur í því sambandi skipað hinn 4. þ.m. nefnd til þess að framkvæma sérstaka athugun á því, hvort hagkvæmt sé ,að flytja heitt vatn með skipum frá höfnum nærri jarð- hitásvæðum til þéttbýlisstaða meðfram ströndum landsins, sem eigi hafa aðgang að jarðvarma svo vitað sé, og hvort það gæti leitt til lausnar á hús- hitunarvanda þeirra. I nefndinni eru: Þóroddur Th. Sigurðsson vélaverkfræð- ingur, formaður, dr. Guðmundur Magnússon prófessor og Pétur Stefánsson byggingarverkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.