Morgunblaðið - 06.09.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.09.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1975 13 14 arnarungar komust á legg í sumar ARNARVARP heppnaðist hjá 12 arnarhjónum hér ð landi á þvf sumri sem senn er Iokið og 14 ungar urðu fleygir. Varp misfórst hjá 7 arnarhjónum af einhverj- um orsökum. Þetta kemur fram i fréttatil- kynningu frá Fuglaverndarfélagi íslands, sem Mbl. hefur borizt. 1 fréttatilkynningunni segir síðan orðrétt: Maisky látinn Moskva 4. sept. Reuter. IVAN Maisky, sem var sendi- herra Sovétrfkjanna f Bretlandi á árunum 1932—1943 og frægur fyrir sérþekkingu sfna á sögu Austur-Evrópuríkja, er látinn, 91 árs að aldri. Hann var einn þekkt- „Tala arna á landinu nú er að minnsta kosti 75 auk þeirra unga sem upp komust f ár. Stofninn er samt mjög lítill, þótt hann hafi tvöfaldazt á s.l. tíu árum, og er enn mikil hætta á að honum verði útrýmt, og má í engu slaka á friðunaraðgerðum. Tveir dauðir ernir fundust á þessu ári. Hugsanlegt er að annar asti diplómat sinnar tíðar og var í mikiu vinfengi við ýmsa vestræna stjórnmálamenn á árunum 1920—1940. Á unga aldri var hann rekinn úr háskóla vegna byltingarskoð- ana sinna og var í Sviss og Þýzka- landi f útlegð á árunum 1908—1912 en sfðan f Bretlandi. Eftir byltinguna f Rússlandi sneri hann heim og gekk í utan- rfkisþjónustu lands sfns skömmu síðar, eftir að ágreiningur sem með honum og Lenin var f fyrstu hafði verið jafnaður. þeirra hafi drepizt af eitri sem sett var í sjórekin kindahræ í þeim tilgangi að drepa hrafna. Að mati manna sem bezt þekkja er sú eitrun sem framkvæmd hefur verið hér á landi undan- farin ár til þess að draga úr ágangi svartbaks gagnslítil og hefur engin áhrif á stærð svart- baksstofnsins, en er mjög hættu- leg öðru viðkvæmu lífi, þar á meðal háfarnarstofninum. Verður að leita annarra ráða en eitrunar gegn fjölgun svartbaks. Óttast er að stofn snæuglu og fálka fari minnkandi og eru það vinsamleg tilmæli að rjúp .askytt- ur, refaskyttur og aðrir skotmenn þyrmi þessum fuglum, en báðar þessar tegundir fylgja rjúpna- stofninum á veturna. Bændur, sem land eiga, þar sem ernir verpa, hafa sýnt málstað félagsins mikinn skilning og færir félagið þeim beztu þakkir fyrir samstarfið. Kjartan Guðjónsson listmálari við teikningu sína af Ásmundi Sveins- syni myndhöggvara. Kjartan Guðjónsson sýnir á „Loftinu” KJARTAN Guðjónsson listmálari opnar sýningu á myndum sínum á Loftinu, Skólavörðustig 4, kl. 14 á laugardag. Á sýningu Kjartans eru 28 myndir, flestar vatnslita- eða ,,gvass“-myndir. Myndirnar á sýningunni eru allar til sölu og er verð þeirra flestra á bilinu 10—43 þúsund. Þetta er fjórða einkasýn- ing Kjaitans en hann hefur einn- ig tekið þátt í fjölda samsýninga. Kjartan stundaði á sínum tfma nám f Chicago og einnig á megin- landi Evrópu, m.a. í Flórens. Sýn- ing Kjartans á Loftinu verður op- in i tvær vikur á venjulegum verzlunartima, en gengið er inn um Húsgagnaverzlun Helga Ein- arssonar frá Skólavörðustíg. Öryggi skóla- barna aukið Gatan þrengd og gangbraut hækkuð AÐ UNDANFÖRNU hefur verið unnið að breytingum á gang- braut, sem liggur yfir Norðurfell í Fellahverfi í Breiðholti á móts við Fellaskóla. Hefur gatan verið þrengd, þar sem gangbrautin liggur yfir hana og komið þar fyrir ójöfnu með þvf að hækka gangbrautina og er þetta gert til að ökumenn bifreiða, sem um göt- una fara, dragi úr hraða ökutækja sinna. Með þessari breytingu hefur gatan verið þrengd svo, að aðeins ein bifreið getur farið yfir gangbrautina f einu. Ingi Ú. Magnússon, gatnamála- stjóri Reykjavíkurborgar, sagði, að þessi breyting væri gerð til að auka öryggi skólabarna, sem fara um gangbrautina og þetta væri i fyrsta skipti sem þessi leið væri Tveir Indverjar halda yoga-fyrirlestra VÆNTANLEGIR eru hingað til lands tveir Indverjar sem halda munu þrjá fyrirlestra um yoga. Eru þeir báðir starfandi i Evrópu á vegum félagsskaparins Ananda Marga. Fyrsti fyrirlesturinn verður á sunnudagskvöld kl. 8.30 í Guð- spekifélagshúsinu við Ingólfs- stræti, en tveir síðari fyrir- lestrarnir í húsakynnum Æsku- lýðsráðs við Fríkirkjuveg, einnig kl. 8.30. Ananda Marga-hreyfingin var stofnuð I Indlandi 1955, en starfar nú viða um heim. Er hún byggð upp bæði á andlegum og félags- legum grundvelli. Hún hefur sett upp skóla, sjúkrahús, barna- heimili, heimili fyrir áfengis- og eiturlyfjasjúklinga og fleiri stofn- anir. farin. Ingi sagði ennfremur, að áður en þessi breyting var gerð hefði mikil slysahætta stafað af hröðum akstri bifreiða um þenn- an hluta götunnar. Fólki fækkaði á Vestfjörðum ÞRÁTT fyrir mjög mikla atvinnumöguleika fór það svo að fólki fækkaði lítillega á Vestfjörðum á síðasta ári, en á sama tíma varð einhver fólks- fjölgun í öllum öðrum lands- hlutum. 1. desember 1973 bjuggu 9983 manns á Vestfjörðum, en 1. desember 1974 voru íbúarn- ir 9940, þannig að þeim hafði fækkað um 43 á milli ára. Hjá Þjóðskránni fékk Morgunblaðið þær upplýs- ingar í gær, að fækkunin hefði orðið mest I Strandasýslu, V- ísafjarðarsýslu og á ísafirði. Hinsvegar fjölgaði fólki nokkuð í V-Barða- strandarsýslu. Hér sést hvar búið er að steypa eyjur til að afmarka gangbrautina gangbrautin og hefur hún verið hækkuð nokkuð. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm. en þvert yfir götuna liggur Hætti við loðnuveiðar r Obreytt afstaða ríkisverksmiðjanna EKKERT varð úr þvf að nótaskip- ið Árni Sigurður frá Akranesi héldi á ný til íoðnuveiða fyrir Norðurlandi, eins og Morgun- blaðið skýrði frá fyrir nokkru. Mun það vera vegna þess, að út- gerð skipsins hafði ekki fengið vissu fyrir því, að Sfldarverk- smiðjur rfkisins tækju á móti loðnu undir 12 cm að stærð ef svo færi, að hún fengist. Flugleiðaskrifstofurnar til- búnar um mitt næsta ár EINS og Morgunblaðið skýrði frá fyrir skömmu hafa Flugleiðir ákveðið að stækka skrifstofubygg- ingu félagsins á Reykjavfkurflug- velli. Búið er að bjóða verkið út og er gert ráð fyrir að húsið verði tilbúið til afnota um mitt næsta ár. Húsið er teiknað hjá teiknistof- unni í Ármúla og sagði Gísli Halldórsson arkitekt þegar Morgunblaðið ræddi við hann i gær, að í upphafi yrði húsið 2 hæðir, en gert væri ráð fyrir að þeirri þriðju yrði bætt á síðar. Alls er húsið 4700 rúmmetrar, með 700 fermetra grunnfleti. Jón Reynir Magnússon fram- kvæmdastjóri SR sagði i samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að stjórn SR hefði ekki breytt þeirri afstöðu sinni að taka ekki á móti loðnu undir 12 cm að stærð. Enn- fremur vissi hann ekki til þess, að eigendur þeirra skipa, sem hug hefðu á þessum veiðum, hefðu sótt það fast að fá þessu breytt. Einar Árnason útgerðarmaður Árna Sigurðar sagði, að skipið hefði verið komið að þvi að leggja úr höfn, þegar í ljós hefði komið, að SR myndi ekki taka á móti smærri loðnu en 12 cm að lengd. „Ég hélt að þetta mál lægi ljóst fyrir a.m.k. fyrir þau skip sem ætluðu að halda áfram reynslu- veiðum. Og úr þvi að málið stóð svona vildi ég ekki taka neina áhættu. Maður skilur svona lagað hreint ekki, þegar mest allur nótaflotinn liggur bundinn við bryggju," sagði Einar. Morgunblaðið fékk það staðfest hjá Hafrannsóknastofnuninni að Árni Friðriksson héldi á næstu dögum til loðnurannsókna úti fyrir Norðurlandi og yrði við þessar rannsóknir eitthvað fram- eftir mánuðinum. Dönsk listakona sýnir í Reykjavík Álafoss styrkir unga menn til náms ytra ULLARVERKSMIÐJAN Alafoss hf. auglýsti um helgina eftir ung- um mönnum sem hefðu hug á að fara f nám erlendis á vegum fyrir- tækisins. Morgunblaðið ræddi við Guðjón Hjartarson framleiðslustjóra fyr- irtækisins. Hann sagði, að meiningin væri að senda 4—5 unga menn á textilskóla á Norður- löndum til að nema þar spuna- og vefnaðariðn. Námið tekur 3 ár, en áður verða umsækjendur að vinna við iðnina nokkurn tíma, fyrst 2—3 mánuði hjá Álafossi, en síðan I verksmiðjum ytra. „Það hefur vantað fagmenn í þessari iðn og með því að styrkja þessa ungu menn til náms ætlum við að reyna að bæta úr þessu“ sagði Guðjón. Hann sagði að mjög margir hefðu haft samband við Álafoss vegna auglýsingarinnar og kvaðst hann bjartsýnn á að nægilega margir fengjust til að fylla töluna. DANSKA listakonan Kirsten Rose hefur opnað sýningu á ýms- um verkum sínum, grafikmynd- um og höggmyndum, I Klaustur- hólum í Lækjargötu. Sýningin er opin alla daga kl. 9—18 en laugar- daga og sunnudaga kl. 16—22. Á meðfylgjandi mynd er listakonan við nokkur verka sinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.