Morgunblaðið - 06.09.1975, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.09.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1975 21 VELVAKAIMOI Velvakandi svacar í slma 10-100 kl 14—1 5, frá mánudegi fil föstu- dags. £ Gömlu dansana í Skiphól Karitas Ásgeirsdóttir, Kletta- götu 2, Hafnarfirði, skrifar: „Kæri Velvakandi. Viltu gera svo vel að koma á framfæri við þá, sem stjórna böll- um í Skiphóli í Hafnarfirði, að þeir hafi gömlu dansana annan hvern laugardag, svo að við, full- orðna fólkið, getum komið þangað. Þetta er fínn staður og ég hef farið á nýju dansana þar með unga fólkinu og finnst það dásam- legt. Samt held ég, að við fullorðna fólkið viljum heldur gömlu dansana. Alla vega heyrist mér fullorðið fólk vera tregt til að sækja nýju dansana. Við höfðum dansklúbb á ísa- firði í mörg ár og skemmtum okkur vel þar. Nú ætti eins að vera hægt að láta okkur hafa gömlu dansana hér. Virðingarfyllst, Karítas Asgeirsdóttir." % Lánið mér kú — ég borga með ketti Að undanförnu hafa umræður um landbúnað verið með allra líf- legasta móti og það svo, að nú hafa þær með öllu yfirgnæft allt tal um trúmál, og er þá mikið sagt. Hér leggur Sigurþór Júniusson, verkamaður, Grenilundi 8, Garða- hreppi, orð i belg: ,,1 frétt af nýafstöðnum aðal- fundi Stéttarsambands bænda, sem birtist i Morgunblaðinu 2. september sl., má lesa eftirfar- andi: Lánamál landbúnaðarins voru mikið rædd á fundinum og kom fram óánægja með, að Stofn- lánadeild landbúnaðarins skyldi ekki vera gefinn kostur á nægi- legu fé til að geta sinnt lánsbeiðn- um og lagði fundurinn áherzlu á, að lánsfé til landbúnaðarins yrði ekki verðtryggt eða með gengis- áhættu. Eða með öðrum orðum: Lánið mér kú, ég borga með ketti. Mér skilst, að með verðtrygg- ingu útlána sé aðeins verið að tryggja það, að lántakandi endur- greiði sama verðgildi auk vaxta. Sú var tiðin, að menn hugsuðu sig tvisvar um áður en þeir tóku lán í banka, — það var þegar menn þurftu að borga sín lán sjálfir. Nú er öldin önnur og hugsunarháttur hefur breytzt. Blygðunarlaust En gamla konan vildl ekkí sætta sig við þessa skýringu. — Hvað hefur komið fyrir hann, lögrcglumaður? Hún hikaði við og svo kom það: — Það er eitthvað f sambandi við þessa konu! Það hlýtur ad vera kvenmaður með f spilinu. Það fann ég greinilega og ég fann að hún hafði vond áhrif á hann. En ég vildi auðvitað ekki skipta mér af þvf, þó að mér fyndist að ég bæri f aðra röndina dálitla ábyrgð á honum ... það cr nú svona með þessa miðaldra pipar- sveina, þeir halda að þeir séu karlar í krapinu, en þeir eru oft auðveld bráð fyrir forhert kven- fólk sem ætlar sér að ná f þá. Talmey hefur verið auðveld bráð, það er ég viss um, háskólamenn eru jákvæðir og barnalegir í trú sinni á fólk. Það lá við ég talaði um þetta við hann. — Ilvernig vissuð þér að kven- maður var f spilinu? greip David fram f. Hún brosti til hans. — Sfðustu þrjá mánuði hefur hann verið f New York um hverja einustu helgi. I raun og veru hefði ég verið f mfnum fulla rétti til að gera athugasemd vfð það, þvf að við höfðum samið upp á annað, — sérstaklega eftir að geta einstaklingar og hagsmuna- hópar heimtað lán á lán ofan og krafizt þess, að aðrir borgi. Þessi siðlausi hugsunarháttur er orðinn svo rótgróinn með þjóðinni, að hann verður ekki upprættur nema allir, háir sem lágir, geri það upp við sig hvort þeir ætli að vera þjóðhollir íslendingar eða þjóðníðingar. 3. sept. 1975, Sigurþór Júníusson." % Hvernig væri að friða Kolviðarhól? Sigurborg Gísladóttir skrifar: „Herra Velvakandi. Þegar svo mikið er talað um að varðveita gömul hús og hverfi vekur það undrun mína, að aldrei skuli vera minnzt á húsið á Kolviðarhóli. Þetta hús var byggt af svo miklum stórhug og mynd- arskap á sinum tima, að til þess var tekið. Það fólk, sem lagði metnað sinn og krafta i að gera þetta svo vel úr garði, á annað og betra skilið en að ævistarf þess sé traðkað niður i svaðið. Þegar ég lagði leið mina þangað í sumar rann það upp fyrir mér hvað þessi eyðistaður er ljótt dæmi um hirðuleysi og trassahátt okkar Islendinga. Þvi fór ég að hugsa um hvað gæti orðið þessu sérkennilega húsi til bjargar. Ég fann enga lausn þá, en nú hefur það hvarflað að mér, að ef til vill sé^ekki um seinan. Hvernig væri það, að á kvennaári yrði Valgerði Þórðardóttur sýndur sá sómi að forða þessu húsi frá algerri eyðileggingu? Valgerður var ekki einungis húsmóðir, heldur var hún jafnframt mesti gestgjafi þessa lands i fjóra ára- tugi. í þessu sambandi datt mér I hug Húsmæðrafélag Reykjavíkur, sem ætti að vera sterkasta og fjölmennasta stéttarfélag í höfuðstaðnum. Húsmæður eru önnur elzta stétt landsins, hin er auðvitað bænda- stéttin og bændur eiga sina Bændahöll i Reykjavik, ekki satt? Húsmæður i Reykjavik ættu því að eiga sitt sveitasetur, og því ekki einmitt Kolviðarhól? Sigurborg Gísladóttir." # Þar sem bjórinn flýtur Hjördís Gunnarsdóttir Ilanssen skrifar frá Noregi: „Ég má til með að setjast og skrifa nokkur orð eftir að hafa lesið grein eftir Jón Baldursson i 179. tbl. Morgunblaðsins. Ég er búsett í borg, þar sem aðeins búa 20—25 þús. manns. Hér hefur verið bjór i verzlunum í rúmt hálft annað ár, og er hún aldeilis ömurleg öfugþróunin, sem hér hefur orðið siðan þessi mjöður tók að renna út úr verzl- unum. Jón Baldursson skrifar orðrétt: „Ég hef lika viða komið og veit hvernig þessi mál eru á erlendri grund.“ Nei, Jón veit sko ekkert um það, þótt hann hafi komið einhvers staðar. Eitt dæmi um öfugþróunina þar sem bjórinn flýtur er, að hér var búið að steypa grunn að tveimur stórum byggingum, sem mikið lá á, — nýtt heimili fyrir fjölfötluð börn og elli- og hjúkrunarheimili. En hvað urðu yfirvöld svo að gera? Jú, það, sem átti að vera fyrir fjölfötluð börn, var tekið fyrir afvegaieidd börn á aldrinum 9— 15 ára. Þar er ein deild fyrir börn með áfengisvandamál. Hin bygg- ingin, sem átti að vera fyrir gam- alt og lasburða fólk, var tekin undir fangageymslu. Orðið hefur að fjölga lögreglu- mönnum um helming og afbrot hafa stóraukizt. Það, sem voðaleg- ast er, er að eiturlyf, sem þekkt- ust hér lítið áður en bjórinn kom, fara nú eins og eldur um sinu, og allt þetta er hægt að rekja til frjálsu bjórsölunnar. Ekkert af þessu vita útlendir ferðamenn, sem koma við, eins og Jón, nei, það erum bara við, íbúarnir, sem vitum þetta og fáum lika að finna fyrir því. Eitt dæmi til: í mai var hér þriggja daga hátíð. Þá tók lögreglan úr umferð nærri 40 börn á aldrinum 9—15 ára vegna ’ölvunar, og þar var bjórinn enn á ferð. Jón dásamar einnig bjór i sjálf- sölum. Hér voru settir upp tveir slikir, þar sem hægt var að stinga fimmkall og fá svo bjórdós eða -flösku i staðinn. Þarna gat auð- vitað fólk á öllum-aldri keypt sér bjór, þvi að sjálfsalinn gat nefni- lega ekki beðið um nafnskírteini. En Adam var ekki Iengi i Paradís. Fáum dögum eftir uppsetningu þessara kassa voru forsiðufrétt- irnar i blöðunum um það, að á þá hefði verið ráðizt með hömrum. Þar með voru dagar þeirra taldir og hefur ekki verið reynt að setja upp nýja slika bjór-belgi. Nei, þið skuluð vera þakklát fyrir það, að þessi ófögnuður streymir ekki út úr ýerzlunum á Islandi. Að lokum: Jón hefur ekki hug- mynd um hvað hann er að tala. Með þökk fyrir bii^tinguna, Hjördfs Gunnarsdóttir Hanssen." HOGNI HREKKVISI Amnia! Þaö or vonlaust: Högni eltist ekki við mýs meöan á „kaffitímanum" stendur! Lindarbær — Gömlu dansarnir i KVÖLD KL. 9—2. Hljómsveit Rúts Kr. Hannessonar, söngvari Jakob Jónsson. Miðasala kl. 5.15—6. Sími 21971. GÖMLUDANSA KLÚBBURINN. G}Aridíar\sa)(\UUouri nn. €Í diw Dansað i“ Félagsheimili HREYFILS i kvöld kl. 9—2. (gengið inn frá Grensásvegi. Fjórir félagar leika Aðgöngumiðar i sima 85520 eftir kl. 8. LEiKHúsKjnunRinn Skuggar leika fyrir dansi til kl. 2. Borðapantanir frá kl. 15.00 í síma 1 9636. Kvöldverður framreiddur frá kl. 18. HÓTEL BORG V< 7 manna Haustgleði Hotef Borg Danehljómsveit Ama ísleifs leikur og syngur á HAUSTGLEÐINNI á Hótel Borg. Guðmundur Guðmundsson sér um eftirhermur. Skemmtið ykkur á Borginni. Dansað til ki. 2 Munið kalda borðið í hádeginu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.