Morgunblaðið - 04.10.1975, Page 1
226. tbl. 62. árg.
LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hirohito við minnisvarða
óþekkta hermannsins
Portúgal:
Agaleysi og upplausn
óbreyttra hermanna
Washington, 3. okt. Reuter.
HIROHITO Japanskeisari lagði f
dag blómsveig á leiði óþekkta
hermannsins f Arlington kirkju-
Guy Mollet
látinn
París, 3. okt. Reuter.
GUY Mollet, fyrrverandi for-
sætisráðherra í Frakklandi,
sem fyrirskipaði franska íhlut-
un f Alsfrstyrjöldinni og tók
höndum saman við Breta f
Súezinnrásinni, lézt f Parfs f
dag úr hjartaslagi. Hann var
sextfu og nfu ára gamall.
Mollet var áhrifamaður
innan franska Sósialistaflokks-
ins og var forsætisráðherra í
sextán mánuði 1956—1957, á
siðasta skeiði fjórða lýðveldis-
ins. Ákvarðanir hans sem hann
tók í sambandi við Alsirstríðið
leiddu til verulegar útvíkk-
unar ágreiningsins og olli
djúpstæðum deilum i Frakk-
landi.
Átökin við þjóðernissinna i
Alsir urðu siðan að meiri
háttar styrjöld og afleiðingar
þess voru meðal annars að de
Gaulle komst til valda í land-
inu. Mollet studdi de Gaulle og
var ráðherra í fyrstu stjórn
hans. Hann vann að þvi að
semja stjórnarskrá fimmta lýð-
veldisins, en síðan stýrði hann
stjórnarandstöðu Sósíalista
árið 1959 þegar stjórnmála-
ferill hans var að renna skeið
sitt á enda.
Hann gekk í Sósíalistaflokk-
inn ungur að aldri og varð
aðalritari hans aðeins 23ja ára
gamall. Hann gegndi þvi starfi
í 22 ár og var alla tíð mjög
andvígur þeim öflum innan
flokksins sem vildu samstarf
við kommúnista. Sú afstaða
varð síðan til þess að hann
varð að Iáta af öllum afskipt-
um innan flokksins og hann
hefur ekki látið að sér kveða á
vettvangi stjórnmála síðustu
sex árin.
Þrándheimi, 3. okt. NTB.
NORRÆNI Atlantshafsfiskstofn-
inn verður algerlega friðaður við
strendur Noregs á næsta ári. ÖIl
sfldveiði verður bönnuð nema
veiði til eigin neyzlu og f beitu.
Þessi friðun kemst á þar sem
norsk yfirvöld hafa ekki borið
fram mótmæli gegn þeirri ákvörð-
un Norðaustur-Atlantshafs-
garðinum og þótti athöfnin f senn
virðuleg og söguleg. Japanskir
fréttamenn sem eru f föruneyti
keisarans og japanskir ferða-
menn sem voru fjölmennastir
áhorfenda, beygðu höfuð sfn og
sumir grétu, þegar keisarinn
hafði lagt blómsveiginn að
minnisvarðanum. Skotið var af 21
fallbyssuskoti f virðingarskyni og
herlúðrasveit lék þjóðsöngva
Japans og Bandarfkjanna meðan
keisarinn gekk upp á minnis-
varðann. I Arlington eru jarðsett-
ir fjölmargir bandarískir her-
menn sem féllu f styrjöldinni við
Japani.
Miklar öryggisráðstafanir
höfðu verið gerðar vegna þessar-
ar athafnr og voru óeinkennis-
klæddir leynilögreglumenn á
hverju strái. Ekki dró til neinna
tíðinda og keisarinn sýndi engin
merki geðshræringar við athöfn-
ina að sögn fréttamanna.
1 gærkvöldi urðu deilur milli
blaðamanna og blaðafulltrúa
japanska keisarans, þegar þýddur
var sá kafli úr ræðu hans er hann
vék að síðari heimsstyrjöldinni.
Töldu japanskir fréttamenn að í
þýðingunni hefði verið dregið úr
orðum keisarans hvað snerti
þýðinguna, en blaðafulltrúinn
itrekaði að keisarinn hefði „harm-
að mjög“ að heimsstyrjöldin
skyldi brjótast út.
Dr. Kissing er
fær samþykki
Washington, 3. október. Reuter.
UTANRÍKISNEFND fulltrúa
deildar Bandarfkjaþings sam-
þykkti einröma f dag áform Fords
forseta og Henry Kissingers utan-
rfkisráðherra um að senda 200
bandarfska tæknifræðinga til
Sinaiskaga til að hafa eftirlit með
bráðabirgðasamningi Egypta og
tsraelsmanna.
Jafnframt heldur dr. Kissinger
utanrfkisráðherra áfram til-
raunum sinum til að fá samþykki
utanríkisnefndar öldungadeildar-
innar. Það skilyrði fylgir
samþykkt utanrfkisnefndar full-
trúadeildarinnar að kalla megi
tæknifræðingana tafarlaust heim
ef til átaka komi milli Egypta og
Israelsmanna. Tillagan hefur að
geyma ákvæði sem gerir Þjóð-
þinginu kleift að kalla tæknifræð-
ingana heim ef þeir komast í lífs-
hættu eða talið verður að þeirra
verði ekki lengur þörf.
Því er einnig lýst yfir að þótt
samþykkt hafi verið að heimila
forsetanum að senda tæknifræð-
inga til Sinaiskaga „jafngildi það
ekki samþykki við nokkru öðru
samkomulagi eða nokkurri skuld-
bindingu“ sem forsetinn hafi
samþykkt gagnvart Egyptum eða
Israelsmönnum.
Lissabon 3. okt. Reu,ter.
MIKIL og vaxandi ólga er meðal
margra portúgalskra vinstrisinn-
aðra hermanna og agaleysi og
upplausn virtist ráðandi innan
ýmissa herdeilda f dag. Þá haf'a
ýmsir stjórnmálahópar, ekki sfzt
vinstrisinnar, hvatt stuðnings-
menn sfna til að koma á fundi og
sýna andstöðu gegn „endurskoð-
unar tilhneigingum" núverandi
rfkisstjórnar.
Búizt hafði verið við að Sósfal-
istaflokkurinn legði f dag fram
gögn sem staðfestu yfirlýsingar
hans um að bylting hefði verið í
undirbúningi, en ekkert hefur
verið birt af slfku þótt talsmenn
Sósfalista hafi ftrekað yfirlýsing-
ar sfnar og sagt að árvekni þeirra
ein hafi komið f veg fyrir að reynt
hafi verið valdarán f landinu.
I Moskvu hefur Costa Gomes
forseti átt viðræður í dag við leið-
toga og undirritað gagnkvæma
samninga og tilkynnt var í kvöld
að Brezhnev flokksleiðtogi hcfði
þegið boð Costa Gomes um að
koma i opinbera heimsókn til
Portúgal í náinni framtíð.
, Kommúnistablaðið Avante
! sagði í dag að ekki væri að svo
stöddu hætta á valdaráni frá
! hægriöflunum, en lýsti ástandinu
svo að það væri lævi blandið og
hættulegt. Rösklega þrjú hundr-
uð vinstrisinnar höfðu uppi mót-
mæli í alla nótt við herflugvöll
fyrir sunnar Lissabon sem Portú-
galir og Vestur-Þjóðverjar reka
sameiginlega og neyddu yfirmann
stöðvarinnar til að endurskoða
skipun þar sem hann hafði flutt
úr stað 40 styrktarmenn kommún-
ista í flugdeild í stöðinni, sem
höfðu tekið þátt í fundi með
kommúnistum í Lissabon.
Yfirmaður flugflotans da Silva
og 75 fallhlífarhermenn komu til
stöðvarinnar í morgun og gerði
hópurinn hróp að þeim og hótaði
þeim öllu illu. Siðar var sagt að
allt væri þar nú í spekt.
Þá hefur víðar í landinu frétzt
Dublin, 3. okt. Reuter.
ÞEKKTUM hollenzkum forstjóra
stáliðjuvers f Limerick á lrlandi
dr. Tiede Herrema, var rænt f dag
og hóta mannræningjarnir að
drepa hann ef frska stjórnin verð-
ur ekki við kröfu þeirra um að
sleppa úr haldi þremur þekktum
IRA-félögum. Irska stjórnin hef-
ur sent frá sér yfirlýsingu þar
sem hún kveðst ekki ganga að
þessari kröfu.
Herema var rænt er hann var
nýlagður af stað til vinnu sinnar
og fundu synir hans bil föður sfns
mannlausan. Skömmu síðar var
hringt til hollenzka sendiráðsins i
Dublin og til dagblaðs þar i borg
og kröfurnar bornar fram.
I fyrstu var gengið út frá því
sem gefnu að Irski lýðveldisher-
um ýmis agabrot hermanna, sem
eru vinstrisinnaðir og eru sum
þeirra litin alvarlegum augum.
Sósíalistaflokkurinn hefur
kvatt fólk til að láta i ljós stuðn-
ing við ríkisstjórnina og alveg sér-
staklega til stuðnings herdeild
sem þykir hafa sýnt hægritil-
hneigingar. Þá voru í undirbún-
ingi ýmsir smáfundir í Lissabon
og næsta nágrenni, flestir að und-
irlagi kommúnista og öfgasinna
til vinstri.
inn stæði að baki mannráninu, en
síðdegis kom orðsending frá
bækistöðvum hans, þar sem IRA
þvær hendur sínar af allri aðild
að ráninu og segir enga fulltrúa
sina hafa komið þar nálægt.
Frú Sakharov
ásakar KGB
Flórenz, 3. október. AP.
EIGINKONA sovézka kjarnorku-
eðlisfræðingsins Andrei Sakhar-
ovs, Yelena, sagði f dag að leyni-
lögreglan KGB gerði þeim lífið
næstum þvf óbærilegt. Hún skor-
aði á vestræn rfki að leggja fást
að sovézku stjórninni að auka
mannréttindi f Sovétríkjunum.
Hún kvaðst hafa neyðzt til að
leita sér lækninga við augnsjúk-
dónii á Italíu af þvi sovézkir lækn-
ar óttuðust hefndaraðgerðir KGB
ef þeir stunduðu hana. Hún hefur
nú fengið fulla sjón í fyrsta skipti
i 30 ár eftir skurðaðgerð i Siena.
Yelana kvað Iíf þeirra hjóna
„þrungið spennu og fullt af
erfiðleikum.“ Hún kvaðst fara
aftur til Moskvu 1. nóvember til
að halda áfram stuðningi við
eiginmann sinn i baráttu hans
fyrir réttindum pólitískra fanga,
andófsmanna og annarra utan-
garðsmanna.
Síldveiði við Noreg bönnuð
fiskveiðinefndarinnar að banna
þessar veiðar og þar sem þau hafa
heldur ekki farið fram á undan-
þágu.
Nefdin samþykkti á ársfundi
sínum í vor algera friðun norr-
æna Atlantshafsfiskstofnsins
1976 og fresturinn til að mótmæla
samþykktinni rann út um mán-
aðamótin.
Norska sjómannasambandið
hafði farið fram á að Norðmenn
sæktu um undanþágu þannig að
þeim yrði heimilað að veiða visst
síldarmagn til vinnslu á næsta ári
eins og þeir hafa áður gert.
Að sögn norska sjávarútvegs-
ráðuneytisins var ekki talið fært
að verða við beiðni sjómannasam-
bandsins vegna samþykktar fisk-
veiðinefndarinnar.
Hins vegar hefur ráðuneytið á-
kveðið að ástand fiskstofna við
strendur Noregs verði kannað
nánar svo úr því fáist skorið hvað
sildarstofninn þoli mikla veiði.
Talið er að veiðar við Norður-
Noreg geti hafizt 1976.
Mannrán á Irlandi
IRA neitar að hafa komið þar nærri