Morgunblaðið - 04.10.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.10.1975, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1975 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgrejðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. Verðurverð- bólgan hamin? Stærsta viðfangsefni í efnahagsmálum okkar á næstu misserum er án nokkurs vafa að ná verð- bólguhraðanum niður, en nú er fyrirsjáanlegt að verðbólguaukningin mun á þessu ári nema um 50%, sem er mjög svipaður verð- bólguvöxtur og á sl. ári. Því hefur gjarnan verið haldið fram, í umræðum manna hér á landi í fjölda- mörg ár, að verðbólgan hafi hjálpað okkur Islend- ingum að koma upp íbúðar- húsnæði og stutt að marg- víslegum öðrum fram- kvæmdum og vel má vera, að hæfileg verðbólga sé jákvæð í þeim efnum. Hitt er ljóst, að svo mikil verð- bólga, sem hér hefur verið síðustu 2 ár stefnir at- vinnuvegum landsmanna í voða. Það er nánast ómögu- legt að reka atvinnufyrir- tæki á skynsamlegum grundvelli i slíkri verð- bólgu. Ólafur Jóhannesson við- skiptaráðherra fjallaði ný- lega um þetta vandamál i ítarlegri yfirlitsræðu um efnahagsmálin og vakti at- hygli á þvi, að verðlags- hækkanir í ýmsum helztu viðskiptalöndum okkar væru svo langt fyrir neðan verðhækkanir hér á landi, að verðbólgan hjá okkur ætti ekki nema að takmörk- uðu leyti rætur að rekja til hækkunar á verði innflutn- ingsvara. Þess vegna ætti verðbólgan hér sér að verulegu leyti innlendar orsakir. En enda þótt sú mynd, sem viðskiptaráð- herra dró upp af verðlags- þróuninni væri mjög dökk, voru þó til bjartar hliðar á henni. Það sem sérstaka athygli vekur í því sambandi er sú staðreynd, sem vióskipta- ráðherra upplýsti, að verð- hækkunarhraði hefur minnkað mjög mikið. Á tímabilinu frá 1. ágúst til 1. nóvember eru hækkanir áætlaðar um 6—6V£%. Ólafur Jóhannesson benti á, að ef hægt væri að halda í þessu horfi stefndi í verð- bólguaukningu á næsta ári, sem næmi um 25%. Enda þótt það sé vissulega mikil verðbólga er hún þó mun viðráðanlegri fyrir at- vinnuvegina og þjóðarbúið en rúmlega 50% verð- bólga. Annar ljós punktur, sem fram kom í ræðu viðskipta- ráðherra voru þær upplýs- ingar, sem hann gaf um það, að verðlagið mundi standa á rauða strikinu hinn 1. nóvember, eða í 477 stigum. Þetta þýðir, að þær áætlanir, sem gerðar voru s.l. vor, er kjarasamningar voru til meðferðar, hafa verið raunsæjar og líklegt, að þær standist og það er auðvitað mjög mikilsvert, að ekki komi til nýrra kauphækkana vegna þess, að vísitalan fari yfir rauða strikið. Afkoma atvinnu- veganna er ekki svo burðug, að þeir megi við frekari útgjaldaaukningu. Þannig má sjá ýmsar bjartar hliðar á tilverunni þrátt fyrir allt. Og vissu- lega gefa þær upplýsingar, sem fram komu hjá við- skiptaráðherra um verð- hækkunarhraðann síðustu mánuði meiri vonir en menn áður hafa haft um það, að aðgerðir ríkis- stjórnarinnar í efnahags- málum séu að byrja að hafa nokkur áhrif til þess að draga úr verðbólgunni. En það þarf meira til að koma og er t.d. enginn vafi á því, að á næsta ári þarf að eiga sér stað mjög verulegur niðurskurður á útgjöldum ríkissjóðs, bæði rekstrar- útgjöldum og framlögum til framkvæmda og útlán- um fjárfestingalánasjóða. Þetta er ríkisstjórninni ljóst og nú um margra vikna skeið hefur verið unnið að undirbúningi fjárlaga fyrir næsta ár undir forystu fjármálaráð- herra, en það kom fram hjá viðskiptaráðherra, að það starf sem þar hefur verið unnið, hefur leitt til þess, að hækkun fjárlagafrum- varpsins verður mun minni en dýrtíðarvextinum nemur. Fjárlagafrumvarp- ið mun að sjálfsögðu sæta venjulegri meðferð á alþingi en miklu skiptir, að alþingismenn sýni nú festu og aðhaldssemi í meðferð opinberra fjármuna. Það má ekki til þess koma, að stórkostlegar hækkanir verði á fjárlagafrumvarp- inu í meðferð alþingis að þessu sinni. Hversu til tekst íþessum efnum getur í raun ráðið úrslitum um það, hvort núverandi ríkis- stjórn tekst að hemja verð- bólguna eða ekki. — ÞRÁTT FYRIR að svona hafi farið er áhöfn A.F. reyndi að ná hvalnum inn þá er ég þess fullviss, að takast muni að veiða háhyrning við Island á næstunni, en þó má segja að mjög erfitt er að veiða þá. Þessi hvalur er. það skynsamur að mjög. erfitt er að ná honum. Þá er. ég heldur ekki viss um, að tslendingarnir hafi notað alveg rétta aðferð við að ná skepnun- um. I slíku veðri, sem var í gær, hefði átt að sleppa háhyrn- ingunum úr nót Hamravíkur. Auðvelt hefði verið að ná þeim síðar, með því, að hnýta sterkt og langt nælontóg í sporð þeirra og góða belgi í enda tógs- ins, áður en þeim var sleppt. Með því móti hefði verið auð- velt að fylgjast með ferðum háhyrninganna og ná þeim ári. Háhyrningarnir komu á réttum tíma og tókst að ná þrem ungum dýrum, sem nú eru öll á söfnum. En sfðan hef- ur vaðan ekki farið í gegnum sundið, heldur gengur með landinu miklu dýpra, utan við öll sker. Þá var reynt að veiða háhyrninga við Alaska fyrir nokkrum árum. Veiðimennirn- ir voru á litlum bátum, og gerðu háhyrningarnir sér lítið fyrir og réðust á bátana. Veiði- mennirnir áttu vélarkrafti bát- anna að þakka, að þeir gátu siglt upp í fjöru skammt frá. Sagt er að oft hafi það komið fyrir að háhyrningar hafi stokkið yfir smærri báta, og þeir geta synt með 70 kílómetra hraða á klukkustund. I viðtalinu við Morgunblaðið sagði de La Grandiére, að hann teldi, að þótt Jóni Gunnarssyni Háhyrningurinn, sem tekinn var um borð f t og komin nokkuð til ára sinna. Fremstu tenn Drápu háhymingamin sfðan í góðu veðri,“ sagði Frakkinn Roger de La Grandiére, sem staddur er hér á landi í þvf skyni að veiða háhyrning fyrir sædýrasafn í Frakklandi, en hann var einnig hér á landi f fyrra í sama tilgangi. Mjög mikið hefur verið reynt hin sfðari ár að veiða háhyrn- inga fyrir sædýrasöfn, en þeir þykja t.d. mun skynsamari en höfrungar, sem þó er mjög auðvelt að temja. Mikill fjöldi höfrunga er á söfnum um allan heim, en fjöldi háhyrninga á söfnum er innan við einn tugur. Til eru margar sögur um háhyrningaveiðar. Það kom fyr- ir í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum, að menn tóku eftir háhyrningavöðu, sem gekk suður á bóginn f ætisleit. Á ferð sinni fór vaðan í gegnum þröngt sund og var nú ákveðið að sitja fyrir vöðunni á næsta og skipshöfninni á Árna Frið- rikssyni hefði tekizt að koma háhyrningunum fifandi í land, þá hefðu þeir drepizt fljótlega eftir að þeir hefðu verið settir i vatn á ný. „Það hefði verið erfiðleikum bundið að fæða þá, þeir hefðu jafnvel neitað að borða. Þá hefðu þeir verið vísir til að loka öndunarholunum og drepa sjálfa sig þannig, en það er ekki óalgengt að háhyrningar hreinlega fremji sjálfsmorð, er þeir hafa verið veiddir, og þeir hafa allt eins framið sjálfsmorð f gær,“ sagði de La Grandiére. Þá sagði hann: „Ég hef tekið þátt i hvalveiðum í 6 ár og reynslan hefur kennt manni, að það býðir ekkert að fara að hvöl um með neinni hörku, heldur þarf hér gífurlega þolinmæði, ekki sízt þegar um háhyrninga er að ræða. Þeir eru gífurlega tilfinninganæmir, en um leið stórkostlega gáfaðir. Þegar is- lenzkir skipstjórnarmenn fá há- hyrninga næst í netin, skora ég á þá að láta mig vita, en ég verð um borð í Sigurvon SH. Þegar ég heyrði um háhyrn- ingaveiðina í fyrrinótt, varð ég strax sannfærður um, að skepn- urnar dræpust, kannski ekki um leið og þeir væru veiddir, heldur eftir að þeir væru komn- ir á land, ef of harkalega væri farið að þeim. Það er lfka mjög algengt, að háhyrningar geti ekki synt með góðu móti fyrstu dagana, eftir að þeim er sleppt i ker. I sjónum eru þeir mjög heitir og það gufar stanslaust upp af þeim, en á skipsdekki hitna þeir enn meir, þannig verður hitamismunurinn mjög mikill þegar þeim er sleppt á ný í ker og við það stífna allir vöðvar skepnunnar." „Háhyrningarnir, sem við er- Ármannsfell rætt í borgarstjórn: Osk allra að rannsóknir leiði sannleikann í liós — sagði borgarstjóri ** Þeir, sem fá góðar hugmyndir eiga að njóta þeirra, sagði Albert Guðmundsson BORGARSTJÓRN Reykjavíkur kom saman til fundar að loknu sumarleyfi slðastliðinn fimmtudag. Fyrir fundin- um lágu þrjár tillögur vegna svo- kallaðs Ármannsfellsmáls. Frá Sigur- jóni Péturssyni og Kristjáni Bene- diktssyni lá frammi tillaga um, að borgarstjórn kysi 7 manna nefnd, er hafi það verkefni að gera tillögur til borgarráðs um lóðaúthlutanir. Frá Björgvin Guðmundssyni lá frammi tillaga um, að sá háttur skyldi vera á hafður að auglýsa lóðir til úthiutunar með heimild um að vtkja mætti frá reglunni í sérstökum tilfellum, og loks lá frammi tillaga frá Kristjáni Benediktssyni um, að byggingaleyfi yrði ekki gefið út til Ármannsfells h.f. vegna framkvæmda á lóðinni neðan Hæðargarðs og austan Grens- ásvegar. Alræðisvald? Miklar umræður spunnust um þessar tillögur og Ármannsfellsmálið I heitd. Sigurjón Pétursson tók fyrstur til máls og lýsti þvt alræðisvaldi eins og hann orðaði það, sem hann taldi borgarstjórnarmeirihluta Sjálf- stæðisflokksins hafa i borgarstjórn t lóðaúthlutunum. Hann kvað lóða- nefnd sem skipuð væri embættis- mönnum aðeins tæki i höndum stjórnmálamannanna. Þvt kvað hann tómt mál að tala um það, að lóða- nefnd væri skipuð hlutlausum em- bættismönnum. í tilfelli Ármanns- fells sagðist Sigurjón hafa gert fyrir- spurn til borgarverkf ræðings um það, hver hefði óskað eftir tillögu um úthlutun lóðarinnar og kvað hann borgarverkfræðing hafa skýrt sér frá að það hafi verið borgarstjóri. Hafi úthlutun til Ármannsfells verið ákveðin eftir að Ijóst hafi verið, að meirihluti hafi verið fyrir þvi í borgarráði. Sigurjón sagði, að það væri næstum dæmalaust, að borgar- ráð breytti tillögum lóðanefndar og styddi það þá skoðun. að lóðanefnd gerði aðeins það sem meirihluta borgarráðs væri þóknanlegt. Þá sagði Sigurjón, að vissulega væri mörgum lóðum úthlutað án ágrein- ings, en þegar vinsælar lóðir kæmu til úthlutunar yrðu þær að pólitisku bitbeini enda kvað hann greinargerð borgarstjóra f Ármannsfellsmálinu hafa verið samfellda játningarræðu. Sagðist hann vonast til þess, að i framtíðinni rfkti meira lýðræði í út- hlutun lóða Næstur tók til máls Björgvin Guð- mundsson, sem kvað Ármannsfells- lóðina ekki hafa verið auglýsta og hann benti á að einn fulltrúa sjálf- stæðismanna i borgarstjórn hefði eindregið lýst þeirri skoðun sinni, að auglýsa bæri lóðir. Hið sama hefði Morgunblaðið gert. Hann benti á, að um Ármannsfellslóðina hefðu aðeins verið tveir umsækjendur og sjálf- stæðismenn hefðu margoft fellt til- lögur um auglýsingaskyldu. Björgvin sagði, að lóðum væri stöðugt úthlut- að i kyrrþey og skýrði frá þvi, að nú nýlega hefði lóð á gatnamótum Sig- túns og Kringlumýrarbrautar verið úthlutað til svo til óþekkts húsgagnafyrirtækis — án auglýsing- ar. Hann benti einnig á að fram- kvæmdir við húsbyggingu væru nú hafnar á lóð á gatnamótum Grensás- vegar og Fellsmúla. Þar væri Inn- réttingabúðin að reisa hús á lóð, sem manni hefði áður verið neitað um á þeim forsendum, að þar ætti ekki að byggja. Björgvin lýsti þvi, að sér fyndist fráleitt, að gefið yrði út bygg- ingarleyfi til Ármannsfells á hinni umdeildu lóð á meðan sakadóms- rannsókn færi fram á hugsanlegu misferli við úthlutun lóðarinnar. Er Björgvin hafði iokið máli sfnu, tók til máls Kristján Benediktsson Hann rakti Ármannsfellsmálið mjög itarlega og hið óvenjulega frum- kvæði Ármannsfells við að láta skipuleggja lóðina. Hann benti á það, að skipulagsstjóri hafi sagt, að arkitektinn fengi greidd laun frá borginni fyrir verkið, en aðrir aðilar, m.a. framkvæmdastjóri Ármanns- fells, hefðu haldið hinu gagnstæða fram. Siðan sagði Kristján að málið hefði farið að verða alvarlegt eftir borgarmálafund sjálfstæðismanna, þar sem Davíð Oddsson hefði lagt fram spurningu um framlag i hús- byggingarsjóð Sjálfstæðisflokksins fyrir formann byggingarnefndar, Al- bert Guðmundsson. Lagði Kristján á það áherzlu, að þessar upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.