Morgunblaðið - 04.10.1975, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.10.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGU& 4. OKTÓBER 1975 11 Kosygin vill kornsamning Moskvu 2. október AP. ALEXEI Kosygin, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, sagði í dag að Sovétar væru nú reiðubúnir til að gera langtíma samning við Bandaríkin um viðskipti á banda- rísku korni og sovézkri olíu, að því er Sargent Shriver sagði í dag. Shriver, sem hefur hug á að verða frambjóðandi demókrata við for- setakosningarnar í Bandaríkjun- um á næsta ári, er í Moskvu og ræddi hann í tvær klukkustundir við Kosygin í dag og sagði að þeir hefðu átt mjög umfangsmiklar og gagnlegar viðræður. Shriver sagði, að Kosygin hefði gefið í skyn, að Sovétríkin féllust fullkomlega á að gera fimm, tíu eða fimmtán ára samning -við Bandaríkin til að treysta viðskipti landanna. Meintur fjár- dráttur gjald- kera borgar- verkfræðings MORGUNBLAÐIÐ hafði i gær samband við Birgi Isleif Gunnars- son borgarstjóra og spurði hann hvað liði rannsókn á meintum fjárdrætti fyrrverandi gjaldkera á skrifstofu borgarverkfræðings upp á 3,7 millj. kr. Birgir Isleifur kvað uppgjör borgarendurskoðanda vegna rannsóknar endurskoðunardeild- ar á meintum fjárdrætti hafa verið lagt fyrir fund borgarráðs, sem samþykkti að vfsa málinu til Sakadómsmeðferðar. Tölvutœkni hf. tekur við rekstri Burroughsumboðsins Opnar nýja tölvumiðstöð á næsta ári FYRIRTÆKIÐ Tölvutækni h/f, Laugavegi 168, hefur tekið við rekstri Burroughsumboðs- ins ð tslandi og hefur starfslið „Burroughsdeildar“ H. Bene- diktsson H/F tekið til starfa hjá Tölvutækni. Forráðamenn Tölvutækni héldu fund með fréttamönnum i gær þar sem þeir skýrðu frá starfsemi og framtlðaráformum fyrirtækis- ins. Tölvutækni býður viðskipta- vinum sinum upp á alhliða tölvuþjónustu og mun á næsta ári opna tölvumiðstöð með raf- reikninum bl700 og öðrum minni rafreikni af gerðinni L9000. Starfsemi fyrirtækisins er skipt í þrjár deildir, söludeild, viðgerðardeild og þjónustu- deild, sem stækkuð verður til muna, er nýja tölvumiðstöðin tekur til starfa. Að sögn Birgis Lorange, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, og kerfisfræðing- anna Finnbjörns Gíslasonar og Steve Rastricks, sem sjá munu um forritun og vinnu við nýju tölvumiðstöðina, horfir mjög vel með verkefni og tíma fyrir- tækisins þegar að verulegu leyti ráðstafað miðað við núver- andi umsvif, en möguleikarnir til að færa út kvíarnar nær óþrjótandi. Á sama hátt sögðu þeir félagar að markaðurinn fyrir tölvuþjónustu hérlendis væri mjög stór og að mestu óplægður akur. 8 manns starfa nú hjá fyrirtækinu, en verða væntanlega 10—11 er tölvumið- stöðin tekur til starfa. Burroughsfyrirtækið fram- Ieiðir tæki fyrir svo til öll svið upplýsingavinnslu, allt frá litl- um reiknum upp í stærstu tölvusamstæður, en tölvusmíði er lang umfangsmesta hlið framleiðslunnar. Hefur fyrir- tækið nýlega lokið við gerð stærstu og hraðvirkustu tölvu heims, ILLIAC IV, en sem dæmi um stærð samstæðunnar má nefna að hún framkvæmir um 200 milljón reikningsat- hafnir á hverri sekúndu. Verður sú tölva í rannsókna- stöð bandarísku geimferða- stofnunarinnar í Kaliforniu og mun m.a. annast veðurspár fyrir allan heim af meiri ná- kvæmni en hingað til hefur verið unnt. Burroughs smíðar þannig tölvur af öllum stærðum og býður tölvur fyrir hvern ein- stakan notanda, nákvæmlegá eftir því hverjar þarfir hans eru. Á þeim grundvelli hyggjast forráðamenn Tölvu- tækni byggja sitt fyrirtæki upp, á alhliða þjónustu við viðskipta- vinina hvort sem um smá verk- efni eða stór er að ræða eins og þeir félagar komust að orði á blaðamannafundinum. Steve Rastrick, Birgir Lorange og Finnbjörn Gfslason I nýjum og glæsilegum húsakynnum Tölvutækni á Laugavegi 168. Burroughs-rafreiknir af gerðinni 1 3000. Nokkrir slfkir eru f notkun hér á landi, m.a. hjá frystihúsi og útgerð Ágústs Sigurðsson- ar f Stykkishólmi, þar sem hann hefur að sögn reynzt prýðilegt stjðrnunartæki. Litlar breytingar á mjölmörkuðimum — ÞAÐ hafa sáralitlar breytingar átt sér stað á mjölmörkuðunum að undanförnu, en reyndar er það svo, að við eigum núna mjög lítið mjöl og lýsi til að bjóða, sagði Gunnar Petersen hjá Bernhard Petersen h.f. þegar Morgunblaðið hafði samband við hann i gær. Gunnar sagði, að Perúmjöl hefði verið boðið í Þýzkaiandi í síðustu viku á 233 dollara tonnið og vikuna þar á undan á 227 doll- ara, en í ágúst var mjöltonnið boðið á 237 dollara. Að sögn Gunnars, halda einstaka menn því frám, að markaðurinn sé að styrkjast, en aðrir teldu að svo væri ekki. Þá sagði hann að Danir hefðu selt lýsistonnið að undanförnu á 300—305 dollara tonnið. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU HÚseigendatryggíng SJÖVA bœtir vatnstjón, g| foktjón og ábyrgóarskyld tjón. Svo er 90 % iógjalds frádráttarbœrt tíl skatts, SUÐURLANDSBRAUT 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.