Morgunblaðið - 04.10.1975, Side 5

Morgunblaðið - 04.10.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1975 5 Olafur Jósúa Guð- mundsson, 75 ára I dag 4. okt. er Ólafur Jósúa Guðmundsson á Patreksfirði 75 ára. Hann er aldamóta barn, fæddur í Stóra-Laugardal í Tálknafirði, sonur hjónanna Svanborgar Einarsdóttur og Guð- mundar Guðmundssonar er þar bjuggu. Heimilið í Stóra-Laugardal var annálað myndar- og rausnarheim- ili og þekkt af margvíslegum framförum og atorku er ábú- endur þar stóðu fyrir. Má þar nefna að afi Ólafs, Guðmundur Jónsson, lét reisa kirkju í Stóra- Laugardal og afhenti söfnuðinum hana. Systkini Ólafs voru 4. Eitt þeirra dó í æsku, en hin sem upp komust voru Guðmundur bóndi og hreppstjóri að Felli í Tálkna- firði, Ólína er lengi bjó í Tálkna- firði og Jón fisksali í Reykjavík. Af þeim systkinum eru nú á lifi Ólafur og Jón. Öll voru þessi r — Osk allra Framhald af bls. 13 Ræða borgarstjóra Birgir Isleifur Gunnarsson borqar stjóri kvaðst þegar hafa gert grein fyrir málinu opinberlega og sagðist telja, að á meðan málið væri fyrir sakadómi, hefði það litla þýðingu að vera að deila um það hvað gerzt hefði og hvað ekki. Hann kvað það vera ósk allra, að rannsóknin leiddi sannleikann I Ijós. Ekki væri þvl ástæða til þess að fjölyrða um málið að sinni. Þá svaraði Birgir ísleifur þeirri staðhæfingu Björgvins Guðmundssonar um að það væri ekki rétt að ekki hafi tekizt sam- komulag um rannsóknarnefnd I borgarstjórn. Upphaflega hafi tillaga sjálfstæðismanna um nefndarskip- unina verið samþykkt samhljóða I borgarráði. Þar hafi ekki verið kveðið á um það, hvernig nefndin skyldi skipuð, en á næsta fundi vildu sjálfstæðismenn, að hún yrði skipuð sem aðrar nefndir og að nefndar- menn yrðu 7, kjörnir með hlutfalls- kosningu. Hann sagðist slðan hafa getað fallizt á, að nefndin yrði 6 manna nefnd, þrlr frá meirihluta og þrlr frá minnihluta, enda hefðu sjálf- stæðismenn formanninn. Minnihlut inn vildi hins vegar, að nefndin yrði skipuð 4 mönnum, þremur frá minni- hluta og einum sjálfstæðismanni. Það gátum við ekki fallizt á — sagði Birgir isleifur. Slðan þetta gerðist, hafa ýmsir borgarfulltrúar gefið mjög ákveðnar yfirlýsingar. Kristján Bene- diktsson hefði lýst þvl yfir, að Fram- sóknarflokkurinn tæki ekki þátt I slíkri nefnd, þar sem sjálfstæðis- maður væri I forsæti, og Sigurjón Pétursson hefði lýst þvi I útvarpi og sjónvarpi, að hann væri viss um, að sök væri I málinu. Birgir kvað óhæft að maður, sem ætlaði sér að setjast I rannsóknarnefnd, væri fullviss I sök áður en hann hæfi rannsóknina. Tóku sjálfstæðismenn þá það ráð, að sá aðili, sem ætti stjórnskipulegan rétt til að rannsaka sllk mál, tæki málið að sér. Borgarstjóri kvað það Concorde 21. janúar París, 3. okt. Reuter. FERÐIR með Concorde- breiðþotum Air France og British Airways hefjast samtímis 21. jan- úar að því er franska samgöngu- ráðuneytið tilkynnti í dag. Concorde-ferðir Air France verða frá París til Rio de Janeiro en Concorde-ferðir British Air- ways frá London til Bahrain. Hátúnsdeildin fyrir öldrunarsjúklinga VEGNA fréttar í Mbl. í gær af stöðuveitingu Þórs Halldórssonar sem yfirlæknis á Hátúnsdeild Landspítalans skal það tekið fram, að hér er um að ræða deild fyrir öldrunarsjúklinga, þ.e.a.s. einkum eldra fólk og framhalds- dvalarsjúklinga, þar sem lyflækn- ingar, hjúkrun og endurhæfing eru aðalverksviðin. systkini myndar- og dugnaðar- fólk. Ólafur hóf sjómennsku stuttu eftir fermingu, eins og þá var títt um unga menn, fyrst með Guðmundi bróður sfnum en svo siðar á stærri skipum, lengst af frá Patreksfirði. Sjómennskan var aðal ævistarf Ólafs fram eftir árum eða til árs- ins 1952, en þá fór hann í land, og hefir starfað í landi síðan, lengstum að framleiðslustörfum sjávarafurða. Þrátt fyrir þennan aldur vinnur Ólafur enn fullan vinnudag og vel það. Þann 11. febrúar 1921 kvæntist Ólafur Sesselju Ólafsdóttur, ætt- aðri úr Breiðafjarðareyjum. Sess- elja kom frá Ólafsvík til Tálkna- fjarðar og þar lágu leiðir þeirra saman. Sesselja er mikilhæf og elsku- leg kona, mikil dugnaðarmann- eskja i öllum sinum störfum, enda kom það sér vel, lífsbaráttan var hörð á þessum árum og barnahóp- rétt að Björgvin hefði hringt til sin rétt áður en bréfið var sent saksókn- ara og skýrt sér frá að minnihlutinn gæti sætt sig við nefndina 3:3 með tveimur formönnum, en á það gat Sjálfstæðisflokkurinn ekki fallizt. Þá lýsti borgarstjóri þvl að meirihlutinn I borgarstjórn myndi fella tillögu Kristjáns Benediktssonar um að fresta útgáfu byggingarleyfis. Málið hefði fengið lögformlega afgreiðslu og stjórnskipulega kvað hann það mjög vafasamt, að borgarstjórn gæti sett byggingarnefnd borgarinnar stólinn fyrir dyrnar, eftir slíka af- greiðslu. Ummæli Davíðs Oddssonar Þegar borgarstjóri hafði lokið máli slnu, stóð upp Kristján Benediktsson og lýsti furðu sinni á þeirri ákvörðun meirihlutans að ætla að fella tillögu sína, þegar ekki væri Ijóst, hvað kæmi út úr rannsókninni og hvort nauðsynlegt yrði að rifta lóðaúthlut- uninni. Hann kvað það eðlilegt sið- gæði aðfresta leyfisveitingu. Davið Oddsson tók næstur til máls. Hann kvaðst vera sammála máls- meðferð meirihlutans, en kvaðst sannfærður um að auglýsa hefði átt lóðina. Hann kvað dylgjur, sem komið hefðu fram I vinstri blöðunum ekki að slnu mati marktækar, en hann hefði borið fram spurninguna á borgarmálafundi sjálfstæðismanna vegna upplýsinga, sem hann hefði haft m.a. frá ritstjóra Vísis og Sveini R. Eyjólfssyni. Albert hefði á fundin- um gefið skýrt og afdráttarlaust svar og hann sem aðrir fundarmenn hefðu treyst orðum Alberts fullkom- lega. Hann kvað minnihlutafull- trúana myndu standa eftir ærulitla þegar hið sanna I málinu kæmi I Ijós I Sakadómi Reykjavlkur. Mál- flutningur þeirra væri dylgjur. Þá talaði næstur Þorbjörn Brodda- son Hann kvað Albert Guðmunds- son hafa rætt um ódrengilegan mál- flutning, en spurði þá, hvort Albert væri Ijóst, hvað unnt yrði að kalla þær sakargiftir, sem á sjálfstæðis- menn væru bornar. Þorbjörn kvað það vera mikla óskammfeilni hjá sjálfstæðismönnum, er þeir kvörtuðu undan ódrengilegum vinnubrögðum þegar litið'væri á það orsakasam- hengi, sem væri milli fjárframlaga i Sjálfstæðishúsið og úthlutun lóðar- innar. Hann kvað þá ákvörðun að fresta ekki byggingarleyfi fullkomna óvirðingu við dómsrannsóknina og dómsvaldið og vera sem yfirlýsing um að sakadómsrannsókn væri ein- tóm markleysa. Ef eitthvað saknæmt fyndist i meðferð málsins, yrði lóða- úthlutunin væntanlega látin ganga til baka. Siðasti ræðumaður fundarins var siðan Björgvin Guðmundsson Hann svaraði atriðum í ræðu Markúsar Arnar Antonssonar og sagði siðan að sjálfstæðismenn ættu að geta sam- þykkt sina tillögu. Frávisunartillaga sjálfstæðis- manna við tillögu Sigurjóns Péturs- sonar og Kristjáns Benediktssonar um 7-manna nefnd, er gerði tillögur til borgarráðs og borgarstjórnar um lóðaúthlutanir, var samþykkt með 9 atkvæðum gegn 6. Tillögu Björgvins Guðmundssonar um auglýsingar lóða, nema sérstaklega stæði á, var felld með sömu atkvæðatölu, svo og tillaga Kristjáns Benediktssonar um frestun á byggingarleyfi til Ármanns- fellsh.f. ur þeirra stór. Það kom því mikið í hennar hlut að sjá um börn og búskap meðan þau bjuggu í Tálknafirði, eða nær öll uppvaxt- arár barnanna, þar sem Ölafur var oft langdvölum í burtu frá heimilinu vegna sinnar atvinnu. Þau Sesselja og Ólafur eignuðust 11 börn. Tvö þeirra eru látin; Aðalsteinn ef dó um fermingar- aldur og stúlka er dó óskírð. Hin börn þeirra 9 eru allt myndar- og dugnaðarfólk, en þau eru: Guð- mundur Jóhannes sjómaður, nú búsettur í Ólafsvik, kvæntur Idu Sigurðardóttur; Hulda, húsfrú á Patreksfirði, gift Ólafi Sveinssyni verkstjóra; Haraldur sjómaður á Patreksfirði, kvæntur Birnu Jóns- dóttur, Cesar, sjómaður á Pat- reksfirði, Júlíus, skipstjóri á Pat- reksfirði, kvæntur Jóninu Jóns- dóttur; Sverrir, bifreiðastjóri á Patreksfirði, kvæntur Margréti Marteinsdóttur; Svanborg húsfrú í Hafnarfirði, gift Baldri Jóhanns- syni sjómanni; Erla Þorgerður, hérraðshjúkrunarkona á Patreks- firði, gift Gunnari Snorra Gunn- arssyni sjómanni. Það hefir farið likt fyrir börn- um þessara hjóna og þeim sjálf- um að lífsstarfið hefur mótast af sjómennsku, enda munu þau fyrst og fremst hafa kynnst þeirri hlið lífsins í uppvexti sinum. Þegar fjölskylda mín kom hingað til Patreksfjarðar fyrir 25 árum siðan, atvikaðist það svo að þau Ólafur og Sesselja voru ná- býlisfólk okkar. Það er okkur hjónum ógleymanlegt hvað var gott að leita til þessara nágranna í ókunnugleika okkar. Þau voru ávallt boðin og búin að rétta hjálparhönd,-og á heimili þeirra rikti gleði og hlýhugur til allra. Ólafur tók“mikinn þátt i störf- um sjómanna hér á Patreksfirði um langan tíma, og má með sanni segja að hann var mikill elju- maður i undirbúningi sjómanna- dagsins. Fyrir þessi störf var hann á síðasta sumri sæmdur heiðursmerki sjómannadagsins, ásamt samstarfsmanni sínum Vagni Jóhannessyni, en það var í fyrsta skipti að sú viðurkenning var veitt hér. Mér er kunnugt um að Ólafur hefir haft mikinn áhuga á því að hér á Patreksfirði yrði reistur minnisvarði sjómanna, og væri það veglegt verkefni fyrir þá er nú standa fyrir málefnum sjó- manna hér í byggð, að gefa þess- ari hugmynd gaum ,og láta úr framkvæmdum verða. Þessar linur eru orðnar fleiri en til var ætlast, en ég gat ekki látið hjá líða að senda vini mfnum Ólafi Jósúa kveðju okkar hjóna á þessum merkisdegi i lífi hans. Það hefði verið ánægjulegt að geta tekið í hönd Ólafs í dag, en svo verður ekki, þar sem hann og kona hans verða stödd á heimili dóttur þeirra Svanborgar, Grænu- kinn 21 Hafnarfirði. Ég segi þvi til hamingju og lifðu heill kæri vinur. Agúst H. Pétursson. Bifreiðaeigendur: Á meðan þér bíðið er bifreiðin ryksuguð, þvegin og bónuð. Opið alla daga nema sunnudaga frá kl. 8 — 18.40 BÓN OG ÞVOTTASTÖÐIN HF. SIGTÚNI 3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.