Morgunblaðið - 16.11.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NOVEMBER 1975
3
29 tslendingar, karlar, konur og börn, hafa látið lffið f umferðinni það sem af er þessu ári.
TVeir teknir á yfir 80 km
hraða við Elliheimilið Grund
LÖGREGLAN f Reykjavfk var
við radarmælingar á Hring-
braut við EUiheimilið Grund á
föstudaginn. 10 ökumenn voru
teknir, þar af reyndust 2 vera á
yfir 80 km hraða á þessum stað,
þar sem umferð gangandi fólks
er geysimikil. „Það hefur verið
talað um að þegar væri farið að
draga úr ökuhraðanum en mað-
ur fyllist nú ekki bjartsýni þeg-
ar maður heyrir svona tölur,“
sagði Óskar Ólason yfirlög-
regluþjónn umferðarmála er
Mhl. ræddi við hann f gær.
Svo virðist sem heldur hafi
dregið úr slysatíðni á allra síð-
ustu dögum en þó hafa orðið
slys á hverjum einasta sólar-
hring. Á föstudagskvöld varð
t.d. slys á Vesturlandsvegi við
Korpu. Amerísk hjón voru þar
á ferð á bíl sínum á töluverðum
hraða og óku á hest á veginum.
Hesturinn skall fyrst á vélar-
hlífina og siðan á framrúðuna
sem brotnaði við höggið. Hjón-
in skárust bæði mikið í andliti
og voru flutt á slysadeild Borg-
arspítalans. Bíllinn er stór-
skemmdur.
Þá varð slys á Bræðraborgar-
stfg um hádegisbilið i gær. Bíll
ók í veg fyrir pilt á skellinöðru
og ók hún á bilinn. Pilturinn
hentist af hjólinu og var fluttur
á slysadeildina.
Eins og fram hefur komið í
Mbl. eru banaslysin i umferð-
inni það sem af er þessu ári
orðin 29 talsins, eða 4 fleiri en
nokkru sinni á einu ári. Þar af
hafa 5 látizt nú í nóvember.
21 karlmaður hefur látizt og 8
konur. Börn yngri en 12 ára eru
fjögur. Á slysadeild Borgarspít-
alans hefur Mbl. fengið þær
upplýsingar, að þangað hafi
verið fluttir yfir 100 slasaðir úr
umferðinni fyrstu 15 daga mán-
aðarins. Til samanburðar má
geta þess, að í janúar öllum
slösuðust 102 og 108 í febrúar. 1
september slösuðust hins vegar
181 og 193 i október.
Morgunblaðið hafði i gær
samband við gjörgæzludeild
Borgarspftalans og spurðist fyr-
ir um líðan þriggja sjúklinga
sem þar liggja þungt haldnir
eftir umferðarslys. Það er göm-
ul kona úr Keflavík, maður frá
Djúpavogi og piltur, sem féll af
skellinöðru á Laufásvegi í
Reykjavík. Fengust þær upp-
lýsingar, að ástand þessa fólks
væri óbreytt, það væri allt án
meðvitundar.
„Viljum eitt skip áviku tilOstende”
— segir Walter Schmidt, umboðsmaður
íslenzkra fiskiskipa á staðnum
Umboðsmaður fslenzkra
fiskiskipa í Belgfu, Walter
Schmidt er um þessar mundir,
staddur á lslandi m.a. til við-
ræðna við íslenzka útvegsmenn
um örari sölur fslenzkra skipa i
Ostende. „Helzt viljum við
semja um eitt skip á viku,“
sagði Schmidt, þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann og bætti
við, „en sjálfsagt verða ein-
hverjir örðugleikar á þvf, þar
sem aflabrögð eru misjöfn eftir
árstfmum."
Þrjú ár eru nú liðin síðan
islenzk fiskiskip hófu fyrst
söluferðir til Belgíu. Schmidt
hefur annazt afgreiðslu allra
skipanna, en sjálfur býr hann
skammt frá Cuxhaven í Þýzka-
landi. Hann var þá ekki með
öllu ókunnugur fslenzkum sjó-
mönnum þvi hann komst i
kynni við þá strax árið 1950 í
Cuxhaven og Bremerhaven. Þá
hóf hann að selja Islendingum
ýmisskonar varning og þeir eru
margir íslendingarnir sem
keypt hafa heimilistæki og hús-
gögn á hans vegum. Ennfremur
var hann hvers manns hjálpar-
hella alla tíð og mátti aldrei
vamm sitt vita.
— Um þessar mundir er verið
að auka afkastagetu og bæta
aðstöðu fiskvinnslu — og sölu-
fyrirtækjanna f Ostende. Sjálf
borgaryfirvöldin standa fyrir
þessari bættu aðstöðu, enda er
aðstaðan öll f eigu borgarinnar,
en ekki einstaklinga eins og
víða annars staðar. Þá er verið
að endurbæta dreifingarkerfið.
Sá fiskur sem selzt í Ostende og
ekki er hægt að nýta í Belgíu,
fer einkum til Þýzkalands eða
Frakklands. Við í Ostende bein-
um fiskinum inn i Mið-
Þýzkaland en þar verður vafa-
laust hægt að fá mjög góðan
markað og slðan á hinn stóra
markað í París, sem er einn sá
bezti i Evrópu. Þó nokkurt
magn af íslenzkum fiski hefur
farið á þann markað, og hefur
líkað vel, enda er það ekki vafa-
mál að islenzki fiskurinn er
einn sá bezti, sem völ er á.
Borgaryfirvöld í Ostende
Framhald á bls. 46
Walter Schmidt
Kanaríeyjar
1975—1976
GRAN CANARIA:
Nú eru aðeins laus sæti i
eftirtaldar ferðir:
Brottför:
20. nóv. 3 vikur
4. des. 2 vikur
25. marz 3 vikur
22. apríl 3 vikur
Verðfrá kr. 38 900
TENERIFE:
4. jan 2 vikur
1 8 jan 2 vikur
1 feb 1 9 dagar
1 9 feb 24 dagar
14 marz 3 vikur
4 april 1 8 daaar
Allir fara í ferð með
ÚTSÝN
Sýningar
í Kaupmannahöfn
Brottfor 2 3 nóv
Furmture industry
Brottfor 14 feb
Scand menswear fair
Brottfor 1 3 marz
Scand fashion week
Brottfor 23 apr
Scand gold &
silver fair
Verð frá kr. 38.300
Frankfurt
Hópferð á
teppasýningu
1 3. — 1 9. jan.
Verð frá
Bangkok
og
Pattaya
Ógleymanleg
ævintrýaferð
Brottför:
1 9. des
1 5. feb.
Kenya
Brottför: 13. marz
Safari og vikudvöl við
Costa
Del Sol
Páskaferð
Brottför 14. apríl
1 8 dagar.
Skíðaferðir
til Lech
í Austurríki
Brottför 1 5 jan og 7. febr.
Verð með gistingu og Vi fæði
í 1 5 daga frá kr. 72.800
FERÐASKRIFSTOFAN UTSYN AUSTURSTRÆTI 17
SÍMAR 26611 OG 20100