Morgunblaðið - 16.11.1975, Side 7

Morgunblaðið - 16.11.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1975 7 Erlendur rithöfundur skrifaði fyrir nokkru skáld- sögu, er hann gaf heitið Fyrirmyndin. í sögunni er frá þvi sagt, að þremur sér- fræðingum, sem allir voru þekktir uppeldisfræðingar, hafi verið falið að velja sögur í nýja lestrarbók. Verk þeirra gekk vel, uns þeir komu að kafla, sem þeir höfðu gefið nafnið Fyrirmyndin. Það var sama, hvar þeir reyndu að finna sögur, sem að efni til væru hæfar fyrirmyndir, þá gátu þeir ekki orðið sam- mála. Þeir gátu sem sagt ekki fundið neina þá fyrir- mynd, sem þeir voru sam- mála um, að væri nógu sann- færandi og höfðaði nógu sterklega til hins jarðneska lífs í heild. — Hinn heldur dapurlegi boðskapur bókar þeirra varð því þessi: Við verðum að komast af án fyrir- mynda. Ef við reyndum þetta sjálf, — aðfinna hinni upp- vaxandi kynslóð lífsmynstur eða fyrirmyndir úr samtíð okkar eða mannlífinu yfir- leitt, má búast við, að við lentum I svipuðum aðstæð- um og sérfræðingarnir. Það er örugglega erfitt að finna þar fyrirmyndir, sem allir geta örugglega samþykkt. Hvað boðskap bókarinnar viðvíkur, heyrum við hann óneitanlega æ víðar, — að varast eigi að gefa fyrirmynd- ir. Við heyrum t.d. prédikað frjálst uppeldi, börn eigi að læra af reynslu en ekki fyrir- myndum. En hver er afstaða kristins manns til slíks? Getur maður, sem er sér meðvitandi um köllun slna sem kristinn mað- ur, samsinnt boðskapnum um líf án fyrirmynda? Er hann e.t.v. ekki heldurtil þess fær að finna fyrirmynd, sem kallar hann til ábyrgðar og eftirbreytni? Sjálfsagt munu ýmsirtelja svo vera í hópi kristinna manna sé hver höndin upp á móti annarri og stefnuleysi heildarinnar ekkert minna en hinna, sem engan hug hafa á þvi að kenna sig við Krist. Slíkt er ekki með öllu rangt, en hinu getur enginn á móti mælt, að vegna sameigin- legrar trúar sinnar hljóta kristnir menn að eiga glögga sannfæring um eðli og mark- mið lífsins, og ég tel alrangt af þeim að þegja um það. Yfirleitt er svo, að í því samfélagi, þarsem stefnu- leysi og hlutleysi er boðað, þar verða þær óvenju margar hinar leitandi sálir, sem vilja heyra eitthvað frá þeim, sem þegar hafa fundið það sem allir leita að, vilja heyra rödd hins sannfærða manns. Þess vegna á kristinn maðurað bera vitni um trú sína, já, um Krist. Auðvitað liða kristnir menn fyrir það ekki síður en aðrir, að samtíð okkar hefur gert lítið úr því, sem áður var talið til andlegra verðmæta og fyrirmynda. Þvi má hins vegar ekki gleyma, að lítils- virðing og sannleikur fara ekki óhjákvæmilega saman. Þrátt fyrir háværar full- yrðingar stendur það því enn, sem Pétur postuli sagði: „Kristur eftirlét yður fyrir- mynd til þess að þér skyld- uð feta í hans fótspor". Fyrir- myndin Já, ,,í fótspor hans." Það er líka nafn á bók, mjög þekktri á sínum tima. Þar skortirekki kaflann um fyrir- myndina, þvi að sporin liggja þaröll til Krists. „í fótspor hans". Þetta gildir enn í dag. Mynd Krists á að vera fyrir- myndin. Jafnvel þótt hún sé til okkar komin um mann- legar hendur og túlkuð af mannlegum vörum og við sjáum oft ekki nema útlinur og sterkustu drætti, þá, — ef á hana er stefnt, þá erum við á réttri leið. Kristur Nýja testamentisins er mjög viðfeðma. Við sjáum mikilleik hans kannski best í því, hve erfitt er að lýsa hon- um í einni málsgrein eða sem einhverri ákveðinni formúlu. Við sjáum hinn þögla, lið- andi Krist. Við sjáum Drottin kærleikans, sem sinnir mest þeim hrjáðu og smáðu. Við sjáum hinn reiða Krist, sem veltir um borðum vixlaranna og gagnrýnir faríseana. Við sjáum hinn skilningsríka, fyrirgefandi Krist gagnvart hórseku konunni. Við heyr- um hann hrópa á aukið rétt- læti og frið. Við sjáum gleði hans við brúðkaup og hátiðir þjóðarinnar. Við sjáum hann gráta sorgleg örlög. Við sjá- um hann lækna og hann kennir i líkingum og dæmi- sögum. — Og við hverja slika sýn heyrum við postula hans segja: „Hann eftirlét yður fyrirmynd." Mikill hluti af þvf, sem Jesús sagði á vegferð sinni hér, var ekki almennar regl- ur. Miklu frekar erþar um að ræða tjáning hugar hans i samskiptum við einstaklinga i hinum ólíkustu aðstæðum lifsins. — Við rika ungling- inn, en alls ekki við alla, sagði hann: Far þú og sel eigur þínar og gef fátækum og kom siðan og fylg mér. Stundum lofaði hann hin miskunnsömu verk, st'undum kyrrláta heyrendur máls hans. Hann tók málstað barnanna og hinna réttlausu, en einnig skattsvikarans Zakkeusar og ræningjans á krossinum. Þannig sjáum við, hve oft hann á mót við einstakling- inn og sérhverjum gefur hann nýtt lífsmat, nýja byrj- un til nýrrar lifsafstöðu Og þeir urðu snortnir af honum, tóku hann sem fyrirmynd, fylgdu i fótspor hans sem nýir menn. — Og þetta gerist enn í dag, af þvi að hér er ekki um dauða mynd eða þurra kenningu að ræða, heldur lifandi mátt hæfan sem fyrirmynd jákvæðs lífs jafnt i einstaklingsbundnum atvikum sem almennu lífi þjóða. Þrátt fyrir það sem hér var i upphafi sagt, eru líka til menn, sem telja fyrir- myndirnarof margar. Þeir nefna stjörnu poppheimsins, vísinda og stjórnmála. Slíkar fyrirmyndir koma og fara, verða aldrei langlífar, af þvi að engin þeirra á eilifðina í sér. Þær gera líka margar meira ógagn en gagn. Það er erfitt að finna hæfar jarðneskarfyrirmyndir. Sér- fræðingarnir áður nefndu litu ekki hærra, af því að þeir áttu ekki trú. Þeir horfðu niður, einblíndu á jörðina, en virtust ekki taka með i reikninginn, að það er einnig hægt að líta upp og horfa mót æðra heimi, og aðeins þaðan er hægt að fá fyrir- mynd, sem maðurinn vex af. — Hitt er svo staðreynd, að allir menn taka sér fyrir- myndir, vitandi vits eða ekki. Hvort þær hjálpa manninum til andlegs vaxtar eða ekki, er þvi miður ekki alltaf um spurt. Stundum er það reyndar svo, að það er eins og menn þurfi fyrst að brjóta hinar fölsku fyrirmyndir, svo að gildi hinnar sönnu verði þeim Ijóst. Og þá verður út- koman ætið sú, að óbrot- gjörn verðuraðeins ein slík mynd — Jesús Kristur, — og hann er það af þvi að hann er æðri en jörðin og mannlifið, hann er Guðsson- ur. ,+K ILESENS1IREUESENSII4KUE8ENS ] iRELLESENS ] IHELLESENS V BATTIRIES J V BATTERIES J V BATTIRIES J V BATTERIES J V BATTERIES> ■H-ELLESENS ÍIHEIÍESENS V BATTERIES J V BATTERIES > HELLESENS .HELLESENS jIHELLESENS V BATTERIES J V BATTERIES J .HELLESENS jlHELLESENS j IHELLESENS V BATTERIES J V BATTERIES J V BATHRIES J HELLESENS V BATTERIES J .HELLESENS ^BATTERIES J HLAÐIÐ ORKU.... NÝKOMIÐ Amerískar kuldaúlpur stuttar og síðar, allar stærðir. GEíSIPf Höfum opnaö hljómplötudeHd STÓRFENGLEGT ÚRVAL AF ÓDÝRUM HLJÓMPLÖTUM OG CASSETTUM, POP, CLASSIC, CONTRY MUSIC , JASS O.FL. VERÐ FRÁ KR. 820.00 % heimilistæki sf Hljómplötudeild Hafnarstræti 3 - 20455.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.