Morgunblaðið - 16.11.1975, Page 14

Morgunblaðið - 16.11.1975, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1975 C Stuttsfðan er í umsjón Asmundar Jóns- sonar og Baldurs J. B jldursson. Eftirfarandi grein um Captain Beefheart er seinni greinin af teimur er fjalla um tvo merka samstarfsmenn. Hin fvrri var um Frank Zappa og birti Stutt- sfðan hana 26. 10. 1975. Captain Beefheart heitir réttu nafni Don Van Vliet, eftir hollenzkum málara sem var uppi á sama tíma og' Rembrandt. Van Vliet er nú söngvari og dansari með hljóm- sveit Frank Zappa og að baki á hann einn sérstæðasta feril sem um getur meðal rokk- tónlistarmanna. Van Vliet hefur allt til að bera sem einkennir góða sölu- vöru. Hann hefur óvenju breitt raddsvið (4‘A áttund) og hefur samið mikið af frambæri- legum lögum og textum. Um- boðsmenn hafa verið á höttun- um eftir honum allt frá því hann byrjaði að syngja (1964) og lofað honum gulli og græn- um skógum ef hann vildi 1). Syngja mýkra og skýrar, 2) Hlýða og fara eftir lögmálum markaðarins, 3) Syngja og semja hreinleg blúslög sem hægt væri að dansa eftir. Framanaf tók Van Vliet ekkert mið af þessum óskum, en reyndi þó að hafa tónlistina sem atvinnu. Þetta orsakaði endalausa árekstra. Verk hans voru gefin út að honum for- spurðum, jafnvel mikið breytt. Tvisvar var hann settur í skuldafangelsi fyrir að hafa undirritað samninga sem hann stóð síðan ekki við. Árið 1968 var hann búinn að gefa upp tónlistarferilinn og horfinn aft- ur til náttúrunnar, bjó í litlu húsi úti á i eyðimörk við lítil efni. Þá barst honum tilboð, hann mátti gefa út plötu á veg- um nýstofnaðs útgáfufyrir- tækis og ráða algerlega allri gerð hennar. Hann þekktist boðið og útkoman varð stórkost- leg, „Trout Mask Replica" gefin út af plötufyrirtæki Frank Zappa, Straight. Eftir að hann hafði tekið til- boðinu settist hann niður við píanó og samdi öll tuttugu og átta lög platnanna (tvöfalt albúm) og texfa með, á 8 klst. en vegna þess hversu flókin lög Vliets eru og torleikin, tók það eitt ár að kenna hljóðfæra- leikurum hljómsveitar hans, „The Magic Band“, lögin og æfa Captain Beefheart þau, jafnvel þó þeir hefðu allir leikið með honum áður. Þeir sem hafa heyrt „Trout Mask“ eiga auðvelt með að trúa þessu, því leikurinn er ótrúlega flókinn. Við fyrstu áheyrn virðist enginn taktur vera finnanlegur, hljóðfæraleikur- inn rennur saman f eína heild undir þrumandi rödd Vliets, hrjúf bassarödd hans drynur í hátölurunum, tveir gítarleik- arar spila að því er birðist hver f sínu horni, bassi og trommur fléttast síðan inn í og engu líkara en þeim væri borgað eft- ir uppmælingu. Eftir að hafa hlustað nokkrum sinnum fer þó HERBERT AF STAB Á NÝ - ALFA-BETA HERBERT, sem sagði skilið við félaga sfna f Pelikan fvrir um það bil tveimur vikum, hefur nú stofnað sfna eigin hljóm- sveit. Að sögn hans verða með honum f hljómsveitinni nokkr- ir fyrrverandi mcðlimir hljóm- sveitarinnar Daggar og eru þeir: Nikulás Róbertsson á pfanó, synthesiser, klarínett og saxófón, Rúnar Þórísson á gftar og Jóhann Þórisson á bassa. Aðrir eru Svavar Ellertsson á trommur, áður var hann í hljómsveitinni Laufið úr Hafnarfirði, og Sigurður L. Jakobsson á saxófón, flautu og ásláttarhljóðfæri. Sigurður þessi leikur einnig á nýút- kominni plötu með hljómsveit- inni Eik. Herbert mun eðlilega sjá um alian söng, en nú mun hann einnig ætla að reyna við píanóleik. Nafn mun enn ekki hafa verið valið á hljómsveit- ina, en það mun eiga að vera sjö stafa, þvf við þð tölu ð að vera bundin mikil heppni, að sögn Herberts. önnur hljómsveit hóf nýverið feril sinn og heitir sú Alfa Beta. Þetta er trfó og það skipa þeir Guðmundur Haukur Jónsson, Halldór Olgeirsson og Atli Viðar Jónsson sem ðður voru með hljómsveitunum Roof Tops og Borgfs. Þeir munu miða framleiðslu sfna við almennan fslenzkan markað, þ.e. leika ýmiskonar vinsæla tónlist, svo sem borð- tónlist (dinnermusic) polka, ræla og rokkara. Ætlun þeirra er að leika ð almennum dans- leikjum og í smærri sam- kvæmum. Bald. J.B. að koma í ljós kerfisbundin hrynjandi, sem oftast er haldið uppi af samspili gítaranna. Platan seldist lítið vegna þess hversu tormelt hún var, í Bandaríkjunum sama sem ekkert, en í Englandi náði hún til þröngs hóps tónlistarmanna og menntamanna og varð nokkurskonar dýrgripur. Nú er hún alltaf talin með þegar nefnd eru „klassfsk" verk á sviði poptónlistarinnar. Þegar hipparómantíkin var í hámarki (Flower Power stefn- an) hafði Vliet tileinkað sér lifnaðarhætti sem blómabörnin prédikuðu fyrir löngu og án allra ódýrra hjálpartækja (eins og eiturlyfja), hjá honum var þetta ekki tímaburrdið tízkufyr- irbæri, heldur Iffsskoðun, byggð á rcynslu hans allt frá barnæsku. Þetta skýrir m.a. hversu erfitt það hefur verið að gera hann að söluvöru þrátt fyrir mikinn þrýsting. I fyrra átti hann að fara í hljómleika- ferð til Englands, en þegar til átti að taka var hann horfinn út í eyðimörkina til að lifa meðal dýranna! Æviferill Van Vliets er óvenjulegur, en allt sem birzt hefur eftir hann og hann á að hafa sagt ber að taka með fyrir- vara, því eins og áður sagði er hann orðinn að þjóðsagnaper- sónu, sem greinahöfundar er- lendra tónlistárblaða keppast við að sveipa huliðsblæ furðu- sagna. Hér á eftir verður reynt að rekja nokkur sýnishorn af slíkum furðusögum. Don Van Vliet fæddist 1941 í smábænum Glendale í Kalí- forníu. Foreldrar hans voru dæmigert millistéttarfólk. Strax á fimm ára aldri gerði hann sér grein fyrir því að sam- félagið, sem hann var fæddur inn í var óvinur náttúrunnar, mennirnir voru harðstjórar sem reyndu á óhugnanlegan hátt að eyðileggja umhverfið og meiða blessuð dýrin! I stað þess að fara í skóla fór hann út í náttúruna, lærði sitt eigið mál og gerði skúlptúra af dýrum landsins og fuglum himinsins! Eitt sinn er hann var í dýra- garði Los Angeles hitti hann frægan myndlistarmann, þeir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.