Morgunblaðið - 17.12.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.12.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1975 1.5 millj. kr. úthlutað úr Menn- ingarsjóði r Islands og Finnlands STJÓRN Menningarsjóðs tslands og Finnlands kom saman til fund- ar 1. desember sl. f Helsingfors til þess að ákveða fyrstu úthlutun styrkja úr sjððnum. Umsóknar- frestur var til 30. september sl. og bárust alls 60 umsóknir, þar af 51 frá Finnlandi og 9 frá tslandi. Úthlutað var samtals 34.900 finnskum mörkum (1,5 millj. kr.) og hlutu eftirtaldir umsækj- endur styrki sem hér segir: 1. Leikfélag Seltjarnarness 6.000 mörk vegna heimsóknar leikflokks á vegum Bandalags áhugaleikara í Finnlandi til Is- lands til að sýna leikritið „Stúlkan" eftir Walentin Chorell. 2. Árni Bergmann, blaðamaður, 4.000 mörk til Finnlandsferðar til að safna efni í greinaflokk um finnsk menningarmál. 3. Jón úr Vör, rithöfundur, 4.000 mörk til að kynna sér nútíma- ljóðlist f Finnlandi og á Álandseyjum. 4. Haukur Ingibergsson, skóla- stjóri, og Þórir P. Guðjónsson, kennari, 2.000 mörk hvor vegna námsferðar til Finn- lands. 5. Irja-Leena Eriksson, ritstjóri, 2.000 mörk til íslenskunáms vegna þýðinga á íslensku sjón- varpsefni. 6. Maj-Lis Holmberg, fil. lic., 2.500 mörk til að þýða ljóð eftir Jón úr Vör. 7. Stofnun í norrænum málvís- indum, Helsingfors, 5.000 mörk vegna námsferðar stúdenta til Islands sumarið 1976. 8. Dansleikhúsið Raatikko 3.400 mörk til að vinna að dansleik- sýningu, er ber nafnið „Salka Valka". 9. Fiðluleikarinn Helena Lehtela-Mennander 2.000 mörk til að fara tónleikaför til Islands. 10. Solmu Makelá, sjónhverfinga- meistari, 2.000 mörk vegna sýningar á auglýsingaspjöld- um fjölleikahúsa, hugsanlega í tengslum við listahátíð í Reykjavík. Höfuðstóll sjóðsins er 400.000 finnsk mörk, sem finnska þjóð- þingið veitti f tilefni af því að minnst var 1100 ára afmælis byggðar á Islandi sumarið 1974. I finnska fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1976 er gert ráð fyrir 50.000 marka fjárveitingu til að auka höfuðstól sjóðsins. Stjórn sjóðsins skipa Ragnar Mainander, deildarstjóri í finnska menntamálaráðuneytinu, for- maður, Juha Peura, fil. mag., Kristfn Hallgrímsdóttir, stjórnar- ráðsfulltrúi, og frú Kristín Þórarinsdóttir Mántylá, en vara- maður af finnskri hálfu og ritari sjóðsstjórnar er Matti Gustafson, fulltrúi. Menntamálaráðuneytið 12. desember 1975. V Jólaauglýsing nr. 4 seljum allt jolanangi ■ ■ ■ ■ m / á októberverði / Kaupgarði bjóöum við viðskiptavinum okkar gleöiíeg jól með fjölbreyttu úrvali af matvörum á góðu verði Jólahangikjöt Nú er jólahangikjötiö komið. Úrvals hangikjöt — eins og það getur veriö best. Allt hangikjöt er selt á októberverði. Jólaepli Sérpökkuð, Ijúffeng jólaepli, beint frá Kaliforníu. Eplin eru i 3ja Ibs. pokum. Heppileg stærð fyrir gott verö. Jólabakstur Ennþá er tími til aö baka fyrir jól! Kaupgaröur hefur á boðstólum fjölbreytt úrval af bökunarvörum. Meira enn nokkru sinni fyrr. Gleðileg jól Kaupgarður óskar viðskiptavinum sínum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla, og minnir enn einu sinni á þægindin viö að verzla fyrri hluta vikunnar. Þá er meira næði til að vanda valið. Opið: Föstudag og laugardag til kl. 22 Kaupgaröur Smiöjuvegi 9 Kópavogi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.