Morgunblaðið - 24.04.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1976
3
Björg sýnir grafík
„Mjólkurbrúsaöldin“ — ein af myndun Glsla á sýningunni á Selfossi.
Gísli Sigurðsson
sýnir á Selfossi
1 DAG, Iaugardaginn 24. aprll kl.
14, opnar Björg Þorsteinsdóttir
sýningu á graflk I húsakynnum
Byggingaþjónustu Arkitekta-
félags tslands að Grensásvegi 11
(húsi ,,Málarans“) I Reykjavfk.
Þetta er þriðja einkasýning
Bjargar, en 1971 hélt hún sýn-
ingu á grafík I Unuhúsi við Veg-
húsastfg og 1974 sýningu á mál-
verkum og teikningum f Norræna
húsinu.
Björg vinnur að koparstungu.
Ljósm: Björn Pálsson.
Grænlandsvika Norræna
hússins hefst í dag kl. 15 með
ávarpi Vilhjálms Hjálmars-
sonar menntamálaráðherra.
Fram til næstu helgar verður
fjölbreytt dagskrá í Norræna
húsinu og víðar og í dag kl. 17
verða opnaðar í Norræna hús-
inu lista- og bókasýningar frá
Grænlandi. Kl. 17.15 mun Karl
Elias Olsen rektor Knud Ras-
mussen lýðháskólans í
Holsteinsborg flytja erindi um
stöðu Grænlands í norrænni
Björg hlaut myndlistar-
menntun sína i Myndlistarskólan-
um í Reykjavík og í Myndlista- og
handíðaskóla íslands, þar sem
hún lauk teiknikennaraprófi. Við
listaakademíuna (Akademie der
bildenden Kunste) í Stuttgart var
hún í þrjú misseri og árin
1970—73 við nám í París, þar sem
hún nam málmgrafík hjá S. W.
Hayter i hinni þekktu vinnustofu
hans, „Atelier 17“. Einnig
stundaði hún steinþrykk
(litógrafíu) við Akademie des
Beaux Arts. Við nám sitt i París
var Björg í tvö ár styrkþegi
franska ríkisins.
Á undanförnum árum hefur
Björg tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum hérlendis og
erlendis. Á þessu ári tekur hún
m.a. þátt í alþjóðlegum sýningum
á grafik eða teikningum í Noregi,
Austur- og Vestur-Þýskalandi,
Italiu og Júgóslavíu.
Á sýningu Bjargar í Bygginga-
þjónustu A. í. eru 34 ætingar og
aquatintur í svart-hvítu og lit,
sem gerðar eru á árunum 1972 og
1974—76. Þær eru allar til sölu.
Verðið er 10—24 þús. kr. eintakið.
Sýning Bjargar er opin til 3.
maí kl. 14—22 daglega.
samvinnu, mjög sérstæð græn-
lenzk kvikmynd frá 1933
verður sýnd kl. 20.30 en mynd-
ina lét Knud Rasmussen gera
og er hún leikin af heima-
mönnum úr ýmsum byggðum
Austur-Grænlands. Brúðarferð
Palos heitir myndin, en einnig
verður i kvöld kl. 22 sýnd mynd
um Knud sjálfan. Vegna
þrengsla í blaðinu í dag verður
dagskrá Grænlandsvikunnar
nánar rakin i blaðinu á
morgun, sunnudag.
GÍSLI Sigurðsson málari og
blaðamaður við Lesbók Morgun-
blaðsins opnar í dag málverkasýn-
ingu í Byggða- og listasafni Ár-
nessýslu á Selfossi. Þetta er
fjórða einkasýning Gísla, en
myndir eftir hann hafa oft verið á
samsýningum.
Ástæðuna fyrir því að hann sýn-
ir nú á Selfossi, kvað Gísli vera
Gfsli Sigurðsson.
þá, að hann væri Árnesingur og
hefði þar að auki átt heima á
Selfossi um tveggja ára skeið.
Hann kvaðst eindregið vilja
styðja við bakið á þeirri viðleitni
Arnesinga að koma upp listasafni
á Selfossi og halda þar úti sýning-
um. Listasafn Árnessýslu var
stofnað með veglegri gjöf frú
Bjarnveigar Bjarnadóttur, en á
jarðhæð safnhússins er prýðileg-
ur sýningarsalur á stærð við
Bogasalinn í Þjóðminjasafninu.
Sá salur hefur það að minnsta
kosti fram yfir Kjarvalsstaði,
sagði Gísli, að dagsbirtan nýtur
sín þar.
Um myndirnar, sem hann sýnir
að þessu sinni, sagði Gisli: „Þær
eru 26 talsins, allt olíumyndir og
óhætt að segja, að þær séu flestar
ættaðar úr Árnessýslu og því um-
hverfi sem ég ólst upp við. Ég hef
verið að rifja upp þessi gömlu
vinnubrögð, sem ég kynntist og
þarna er að einhverju leyti fjallað
um hestvagnaskeiðið og mjólkur-
Framhald á bls. 19
Sumargleði
Þingeyinga
Björk, Mývatnssveit föstudag.
HÉR höfum við kvatt óvenju
stormasaman en snjóléttan vetur
og heilsað sumri með sól og blfðu.
Veðrið þessa daga er miklu likara
þvf að komið sé fram í júní eða
júlf. Sumargleði Þingeyinga er nú
í fullum gangi og kennir þar
margra grasa, enda óvenju blóm-
legt félagslff f héraðinu sem vafa-
laust má rekja til tíðarfarsins í
vetur, sem gert hefur það að verk-
um að samgöngur hafa verið mjög
góðar. Þessi uppskeruhátið vetr-
arins eða sumargleði hófst á
Breiðumýri að kvöldi hins síðasta
vetrardags, með einum þætti í
keppninni Sveitarstjórnirnar
svara, sem þó er ekki lokaþáttur,
en hann verður væntanlega mjög
fljótlega. Þá eigast við Aðaldæl
ir ög Kinnungar. Málverkasýning
var opnuð í barnaskólanum í
Húsavík þar sem 6 listamenn sýna
verk sfn. Þar var einnig Barna-
vinafélagið á Húsavík með veg-
lega skemmtun fyrir börn. Þar
lék skólahljómsveit Kópavogs við
mikinn fögnuð áheyrenda. Enn-
fremur var unglingadansleikur í
félagsheimilinu á Húsavfk og
Ungmennafél. Efling sýndi
leikritið Kertalog eftir Jökul Jak-
obsson í samkomuhúsinu á Húsa-
vík. Málverkasýningin verður op-
in alla daga gleðinnar. I kvöld
sýnir Ungmennafélagið Gaman og
alvara Mann og konu í Ljósvetn-
ingabúð, en dansleikur verður i
félagsheimilinu á Húsavík. I dag,
laugardag, verður héraðsmöt i
frjálsum iþróttum, innanhúss og
fimleikasýning í íþróttahúsinu á
Húsavík. Leikfélagið Vaka i
Grenivik sýnir tvo einþáttunga,
en dansleikur verður í Ljósvetn-
ingabúð í kvöld. Á morgun,
sunnudag, verður guðþjónusta í
Húsavíkurkirkju, héraðsmót í
sundi í sundlaug Húsavíkur og
blómaskreytingakeppni i félags-
heimilinu á Húsavik. Sumargleð-
inni lýkur með þvi að Kvenfélaga-
Franihald á bls. 19
Græ nlandsdagskráin
hafin í Reykjavík
Sigurður S. Magnússon, prófessor og skólastjóri Ljósmæðraskólans og Steinunn Finnbogadóttir, form.
Ljósmæðrafélagsins, ásamt nokkrum hópi þátttakenda á námskeiSinu sem lýkur I dag.
r
Agæt þátttaka á ljósmæðra-
námskeiðum og ánægja ríkjandi
f DAG laugardag, lýkur öðru
tveggja námskeiSa sem Ljós-
mæðrafélag íslands hafði for-
göngu um að halda og sóttu það
35 Ijósmæður utan af landi. Ann-
að námskeið fyrir Ijósmæður úr
Reykjavlk og af Reykjavlkursvæð-
inu hefst svo á mánudag og
stendur til 29. april. Sigurður S.
Magnússon, prófessor og skóla
stjóri Ljósmæðraskóla íslands
hefur umsjón með námskeiðun-
um, en þau eru hin fyrstu sem
haldin eru I fyrirlestra- og kennslu-
formi. Markmiðið með þeim er að
kynna margs konar fyrirbyggjandi
ráðstafanir, algengustu vandamál
sem upp koma á meðgöngutíma.
við fæðingu svo og fræðslu um
ungbarna og mæðravernd og
ýmsar nýjunar á þessu sviði
Á hvoru námskeiði eru á dag-
skrá 24 erindi og sækja Ijósmæð-
urnar fyrirlestra frá kl. 9—4 dag-
ana sem þau standa yfir. Fræðslu
hafa annazt Ijósmæður og læknar
f æðingarheimilis Reykjavlkur,
Fæðingardeildar Landspltalans,
læknar af Barnaspltala Hringsins
og félagsráðgjafi.
Sigurður S. Magnússon, pró-
fessor, sagði að ástæða væri til að
benda á að Fæðingardeild Land-
spltalans væri ekki aðeins þjón-
ustustofnun fyrir Reykjavlkur-
svæðið heldur fyrir allt landið. Þvl
væri þýðingarmikið að sú sérþekk-
ing sem þar safnaðist saman og sú
aðstaða sem skapast með nýjum
og auknum tækjakosti kæmi að
gagni fyrir alla landsbyggðina.
Námskeið af þessu tagi miðaði
meðal annars að þvl að flytja
þessa sérþekkingu meira út á
landið. Sigurður sagði að við-
haldsmenntun væri mjög mikil-
vægur þáttur I starfi heilbrigðis-
stétta og yrði æ nauðsynlegri
vegna þeirra öru breytinga og
framfara sem ættu sér stað I lækn-
isfræðinni. Þvl væri það skylda
þessara stétta að fylgjast vel með
þróuninni og stjórn Ljósmæðra-
félags Íslands og heilbrigðisráðu-
neytið hefði sýnt góðan skiining
einmitt á þessu.
Fyrirlesarar á námskeiðinu auk
próf. Sigurðar voru læknarnir Atli
Dagbjartsson. Guðjón Guðnason.
Guðmundur Jóhannesson, Guð-
mundur K. Jónmundsson, Gunnar
Biering. Jón Þ. Hallgrlmsson og
Jón Hannesson, Ijósmæðurnar
Hulda Jensdóttir og Kristfn I.
Tómasdóttir og Svava Stefáns-
dóttir félagsráðgjaf i.
Meðal þess sem kynnt var á
námskeiði Ijósmæðranna er tæki
sem samtök kvenna gáfu
Fæðingardeildinni og nefnist
Diasonograph og er það ultra-
hljóðbylgjutæki sem gefur mögu-
leika á að skrá hjartslátt fósturs I
8. og 9. viku meðgöngu, mæla
stærð fósturs og þá jafnframt
meðgöngutlma og staðsetja fylgj-
una nákvæmlega. Jón Hannesson
læknir hefur sérstaklega kynnt sér
notkun þessa tækis og unnið við
það. Þá var fjallað um ótal margt
annað svo sem félagslega aðstoð I
sambandi við meðgöngu og barns-
burð, afbrigðilega sængurlegu.
mataræði ungbarna, atmenna
foreldraf ræðslu og svo mætti
lengi telja.
Félagar I Ljósmæðrafélagi
íslands eru nú 270 á landinu öllu
og er Steinunn Finnbogadóttir for-
maður samtakanna. Mbl. rabbaði
við tvær Ijósmæðranna á fyrra
námskeiðinu, Vilborgu Guð-
mundsdóttur frá Dýrafirði og
Magnúslnu Þórðardóttur frá Sel-
fossi. Vilborg hefur starfað sem
Ijósmóðir I 24 ár og er umdæmi
hennar Mýra- og Þingeyrarhrepp-
ur. Hún sagði að flestar fæðingar
færu fram I sjúkraskýlinu á Þing-
eyri en þar geta verið samtimis
3—4 sængurkonur. „Ég tel að
okkur hljóti ötlum að hafa verið
mikill ávinningur af þvi að koma á
þetta námskeið," sagði Vilborg.
„Það hefur verið áhugavekjandi
Franihald á bls. 19