Morgunblaðið - 24.04.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1976
5
Páll Bragi Kristjónsson:
Landkynníng!
Nokkrum tiðindum sætir, er
líta getur íslenzkt efni eða eitt-
hvað varðandi Island i sjónvarpi
hér. Ég sætti því lagi að sjá
sænska sjónvarpið s.l. mánudags-
kvöld, þar var klukkustundar-
þáttur um Island. Danska
„menningarblaðið" Se og hör
hafði kynnt þennan þátt nokkurn
veginn þannig: „Norska sjón-
varpið hefur sent sjónvarpsfólk
til tslands til að kynna sér lítil-
lega bakgrunn þeirrar snörpu
deilu um menningarmál, sem nú
stendur yfir á þessari eyju, er
fyrr laut yfirráðum Dana. Margir
íslendingar eru þeirrar skoðunar,
að íslenzka ríkisstjórnin sé vel á
veg komin með að eyða hinu auð-
uga menningarlifi eyjarinnar og
láta Island þar með fylgja í kjöl-
far iðnaðarlanda vestur-Evrópu.“
Óneitanlega forvitnilegur
kynningarteksti. Þótt ol'angreint
blað teljist varla marktækt i
mörgum efnum, þá er það alltént
mikið lesið, og ekki er ótrúlegt, að
fleiri en ella hafi opnað fyrir
sænsku stöðina til að ganga úr
skugga um, hvort svo sé i raun
statt fyrir stoltum menningararfi
nýlendunnar gömlu.
Þátturinn byrjaði vestur á
Fjörðum. Sýnt var, hvar heims-
frægur snillingurinn, Ashkenazy,
spilaði og stjórnaði fyrir tónelskt
fólk á Isafirði eða Bolungarvík,
nema hvorutveggja hafi verið.
Varla leikur á tveimur tungum,
að slikt muni einsdæmi með einni
mannfárri þjóð, og ekki tel ég
óliklegt, að postulum frændþjóða
vorra hafi þótt nóg um
menningarlif krummaskuða
norður á hjara. Rætt var við
skáldið á Kirkjubóli, brugðið upp
myndum af landinu ósnortnu og
fríðu. Á suðurleið var staldrað við
á slóðum Snorra og fundinn að
máli borgfirzkur bóndi, sem les
Njálu einu sinni á ári. — íslenzk
menning í blóma. —
En nú var skundað suður i eim-
yrjuna á Reykjanesskaga og til
höfuðborgarinnar spilltu. Brugð-
ið var upp myndum af kaffihús-
um og fleiri stöðum, sem um-
hyggilega voru leitaðir uppi, alls
staðar glamrandi slagarar, útlend-
ir. — Áhrifamiklar, himinhróp-
andi andstæður. — Vin í eyði-
mörk menningarupplausnarinnar
var leikhúslífið, enda vettvangs-
ins gætt af hinum ódauðlega
klassíker, Jónasi Árnasyni.
Teknir voru tali ýmsir andans
menn fyrir sunnan. Þeir voru
allir heldur heimsmannslegri en
skáldið fyrir vestan, þeir töluðu
útlenzku, skáldið fyrir vestan
íslenzku. Hvorutveggja þurfti að
þýða. Ég gæti trúað, að margir
hafi orðið hissa, þegar þeir
birtust á strfpu, nóbelsskáldið og
Thor Vilhjálmsson. Halda mætti,
að þeir væru steyptir i sama móti,
— nema um eftirlíkingu sé að
ræða. — Nóbelsskáldið var bara
Vorhugur
í Olsurum
Ólafsvík — 21. apríl.
MEÐ HÆKKANDI sól færist líf í
ýmsa starfsemi, sem niðri liggur
yfir veturinn. Nú er knattspyrnu-
völlurinn að verða laus við aur og
bleytu, og menn eru að búa sig
undir nýtt keppnistímabil. Verið
er að ráða þjálfara, og útiæfingar
að byrja. Verður lagt mikið kapp
á að vinna að nýju sæti í 2. deild
knattspyrnunnar.
Hrossaeign hefur aukizt að mun
nú síðustu árin, og munu a.m.k.
60 hross vera á fóðrum hér í
vetur. Hestamenn hafa stofnað
með sér félag til að skipuleggja
beit og fleira. Vegna þess hve lltið
er um undirlendi hér er skortur á
hentugri hrossabeit. 1 félagi
hestamanna eru margir
unglingar. Formaður þess er Jóh-
annes Jóhannesson, múrari.
— Helgi.
miklu skemmtilegra, ekki svona
ægilega brúnaþungt, íbyggið.
Snillingar voru til leiksins
kallaðir, „leiðtogar" þjóðarinnar f
menningarlegum efnum, Einar
Bragi, Jónas Árnason ásamt ung-
um fylgisveini, Ólafi einhverjum
Hauki. Jónas tuggði strá úti f
guðsgrænni náttúrunni, honum
svelgdist á, er spurt var, hvort
þjóðlffi væri ógnað. — Já, já,
miki! lifandis ósköp, mikil
lifandis ósköp. — Einar Bragi
lifir við ógurlega þrúgun á
íslandi, áþján hernáms. Hann og
þessi Ólafur lásu eigin sam-
setning með viðeigandi hryggð f
rödd og svip. Fóru þar sannir
varðmenn þeirrar menningar, er
birzt hafði fyrir vestan?
Matthías Johannessen var ekki
haldinnn þessari ámótalegu van-
metakennd, hann hélt þvf bara
fram, að á ísfandi byggi ósköp
venjulegt fólk með vonir sfnar og
þrár, Island væri ekkert skandi-
navfskt byggðasafn. Góð speki hjá
Matthiasi.
Skólameistarafrúin á ísafirði,
Bryndís Schram, var óskaplega
döpur yfir Islendingum. Þeir
kunna ekki lengur að lifa, þeir
eru efnishyggjumenn og leggja
nótt við nýtan dag til að byggja
þak yfir hausinn á sér og komast í
sólina á Mallorca. Svona talaði
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JWoreunblabib
allsnægtabarnið úr Reykjavík
m.a. um nágranna sína fyrir
vestan, sem sennilega þekkja vel
til brauðstritsins og myrkursins.
Þessari einkunn kom skóla-
meistarafrúin á framfæri með
hjálp anzi lipurlegrar enskukunn-
áttu, sem hún hefur sennilega
aflað sér á vorglöðum æskudög-
um, þegar jafnöldrur hennar
fyrir vestan voru að „bjálfast" við
vinnu. En, hvaó kom þessum
rómantíska íslending til að mæla
á enska tungu í sjónvarpsþætti
fyrir Norðurlandabúa? Þýða
þurfti hennar hvort eð var.
Og nú getur Danskurinn sagt,
að ekki ljúgi Se og hör, Einar
Bragi og Jónas Árnason hafa m.a.
séð fyrir þvi.
En skyldi einhverjum detta í
hug, þegar vitarnir sífellt boða
greftrun islenzkrar menningar,
að „árinni kennir illur ræðari"?
Arósum, 9. aprfl. 1976
Páll Bragi Kristjónsson
Hópakstur kvart-
míluklúbbsins í dag
KVARTMlLUKLUBBUR Revkja-
vfkur mun f dag, laugardag, efna
til hópaksturs um götur Revkja-
vfkur. Er þetta gert til að leggja
áherzlu á að yfirvöld hraði sem
mest úthlutun landsvæðis þess,
uppi við Geitháls, er klúbburinn
hefur falazt eftir fyrir kvartmflu-
braut. Lagt verður af stað frá
Hótel Loftleiðum kl. 15.
Þá hefur stjórn Kvartmílu-
klúbbsins sent frá sér eftirfar-
andi: •
„Nú með hækkandi sól og þurru
veðri þykir ástæða til að minna
klúbbfélaga og aðra þá, sem
fengið hafa „vorfiðringinn", á að
fara varlega f umferðinni og forð-
ast allan glannaskap. Aldrei
hefur verið meiri ástæða til að
hamra á þessu en einmitt nú.
Annar eins fjöldi orkumikilla
bifreiða hefur ekki verið á sveimi
í borginni og að undanförnu."
Þá skorar stjórnin á félags-
menn um að standa saman og
sýna landsmönnum að þeir séu
fullorðnir, þroskaðir bifr°iða-
áhugamenn og geyma gjafirnar
þar til brautin hafi verið lögð.
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480 03
HAFNARFJÖRÐUR
Olíustyrkur
Greiðsla olíustyrks fyrir tímabilið des. '75 — febr. '76 fer fram á
bæjarskrifstofunum, Strandgötu 6. Styrkurinn greiðist þeim framtelj-
endum til skatts, sem búið hafa við olíuupphitun ofangreint tímabil, en
þó ekki til þeirra sem áttu þess kost að tengja íbúðir sínar við
hitaveitu fyrir lok febrúar mánaðar 1976, sbr. 2. gr. 1. nr. 6/ 1975.
Framvísa þarf persónuskilríkjum til að fá styrkinn greiddan.
Greiðslum verður hagað þannig:
Til framteljanda hverra nafn byrjar á:
A—F mánudaginn 26. apríl kl. 1 0—1 2 og 1 3—16
6—J þriðjudaginn 27. apríl kl. 10—12 og 13—16
K—R miðvikudaginn 28 apríl kl. 10—12 og 13—16
S—Ö fimmtudaginn 29. aprll kl. 10—12 og 13—1 6.
Bæjarritarinn í Hafnarfirði.
wtr
FORD 1976
BÍLASÝNING
í DAG opiö frá 10-18
í tilefni 50 ára afmælis
Fordumboðsins Sveinn Egilsson h.f.
sýnum við ýmsar gerðir nýrra Ford bifreiða,
þar á meðal Ford Capri og Granada,
í nýjum sýningarsal okkar
í Skeifunni 17.