Morgunblaðið - 24.04.1976, Page 7

Morgunblaðið - 24.04.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1976 7 Ummæli símamálastjóra JÓN Skúlason, póst- og símamálastjóri, viSur- kennir, í samtali viS Visi í gaer, aS simritarar norSan- og austanlands brjóti meS framferSi sinu, er þeir neita aS veita móttöku fréttaskeytum islenzks blaSamanns um borS I brezku herskipi, aSþjóSa- reglur, sem íslendingar hafi skuldbundiS sig til aS halda; og segist ekki sjá, aS bann þeirra varSandi loftskeytaþjónustu af þessu tagi þjóni neinum tilgangi. Hins vegar gætu gagnaSgerSir af sama toga. ef Bretar tækju þær upp. komiS sér illa fyrir islenzka sjómenn og far- menn viS Bretlands- strendur. Þá sagSi póst- og simamálastjóri i um- ræddu viStali, aS hann teldi ákaflega undarlegt, aS loftskeytamennirnir gætu ekki sætt sig viS alhliSa fréttaþjónustu og vildu koma i veg fyrir sendingar á vissu efni. Hann vekur og athygli á þvi, aS aSalloftskeyta- stöSin i Gufunesi og stöS in i Vestmannaeyjum virSi settar reglur og aS starfs- menn þeirra hefSu sýnt þá ábyrgSartilfinningu aS samþykkja ekki umrætt afgreiSslubann. AlþjóSa- samstarf um fjarskipti byggðist fyrst og fremst á gagnkvæmri ábyrgð sam- starfsaðila. Ráðherra síma- mála utanbæjar „Ég hefi sent loft- skeytamönnunum tilmæli um að þeir endurskoði af- stöðu sína til fréttasend- inga Vísis af miðunum sagði símamálastjóri, en tel ekki rétt, að gefa þeim bein fyrirmæli til þess." Sá ráðherra, sem fer með málefni símans, Halldór E. Sigurðsson, hefur verið utanbæjar síð- ustu daga, og hefur því ekki, sem æðsti yfirmaður símamála í landinu, gripið » taumana enn sem komið er. Ummæli dóms- málaráðherra Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra, æðsti yfirmaður langhelgisgæzl- unnar, segir og i viðtali við Vísi í gær: ,,Ég hefi ekkert við það að athuga, þótt íslenzkir blaðamenn fari um borð Í brezk skip hér við land, til þess að kynna sér land- helgisdeiluna, einnig frá þeirri hlið, enda hefur ekki verið reynt að koma i veg fyrir það." Yfirstjórn landhelgis- gæzlunnar hefur gefið fjölda brezkra blaða- manna heimildir til að vera um borð í islenzkum varðskipum á miðunum, til að kynna sér málið frá báðum hliðum og koma fréttum áleiðis til fjöl- miðla sinna. Allir frétta- menn á miðunum, hverrar þjóðar sem eru, hafa raun- ar aðstöðu til að koma fréttum á framfæri með beinu sambandi við fjöS- miðla i viðkomandi landi, nema sá íslenzki, er brá sér í fréttaleit um borð i brezkt herskip. Hindrun á fréttaflutningi er gróft brot á frjálsri blaða- mennsku og raunar högg i andlit blaðalesenda, sem vilja fá að skoða öll mál frá fleiri en einu sjónar- horni. Tryggja verður frjálsa fréttamiðlun Fljótf ærnisleg afstaða nokkurra simritara styður hvorki á einn eða neinn hátt fslenzkan málstað i landhelgisdeilunni, nema siður sé. Hún kallar þvert á móti á tortryggni. Hinn íslenzki málstaður er haf- inn yfir að þurfa á frétta- skoðun eða skömmtun að ræða. Og slfk hegðan skapar kjörið tækifæri fyr- ir þá, sem vilja varpa tor- tryggni á íslenzkan mál- stað og afstöðu á erlend- um vettvangi. í fljótfærni, sem er líklegust forsenda neitunar á fréttamóttöku frá íslenzkum blaða manni, gæti því þessi af- staða orðið hliðholl hinum brezka málstað og yfir- gangi, þó hún sé án alls efa ekki meint sem slík. En þannig fer stundum um i kapp án forsjár, að öngullinn lendir f bak- hluta veiðimannsins. Ollum getur yfissést og gert skyssur f góðri trú. Sú hefur og orðið raunin í þessari afstöðu tiltekinna simritara. En yfir þeim er ábyrgð viðkomandi stofn- unar og ráðuneytis. Þar þarf að láta hendur standa fram úr ermum og fyrir- byggja, að frjáls frétta- miðlun mæti óvæntum þröskuldum f rikiskerfinu. iltðáur á morgun Guðspjall dagsins: Jóh. 20, 24—31. Jesús kom að lukt- um dyrum. DÓMKIRKJAN Fermirtgar- messa kl. 11 árd. Séra Guð- mundur Þorsteinsson I Ár- bæjarprestakalli. Messa kl. 2 síðd. Séra Þprir Stephensen. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. í Vesturbæjarskólanum við Öldugötu. Siðasta barnasam- koman á vorinu. Hrefna Tynes. Séra Þórir Stephensen. ASPRESTAKALL Messa kl. 2 síðd. að Norðurbrún 1. Séra Grímur Grfmsson. KIRKJA ÓHAÐA safnaðarins. Messa kl. 11 árd. (Athugið breyttan messutíma). Séra Emil Björnsson. FELLA- OG HÓLASÓKN Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11 árd. Fermingarguðþjónusta og altarisganga i Bústaðakirkju kl. 2 síðd. Séra Hreinn Hjartar- son. HÁTEIGSKIRKJA Messa kl 11 árd. (athugið breyttan messu- tima). Séra Arngrímur Jóns- son. Fermingarguðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Jón Þorvarðsson. ELLI- OG HJUKRUNAR- HEIMILIÐ Grund. Messa kl. 10 árd. Séra Magnús Guðmunds- son. fyrrv. prófastur. BUSTAÐAKIRKJA Fermingar Breiðholtspresta á sunnudag- inn.Sóknarnefndin. LANGHOLTSPRESTAKALL Ferming kl. 10.30 árd. Guð- þjónusta kl. 2,Ræðuefni: Gaml- ar eru þær sálarrannsóknirnar. Sóknarnefndin. GRENSÁSKIRKJA Barnasam- koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 sfðd. Séra Halldór S. Gröndal. FILADELFÍUKIRKJAN Al- menn guðþjónusta kl. 8 síðd. Einar J. Gíslason. HALLGRÍMSKIRKJA Messa kl. 11 árd. Séra Rágnar Fjalar Lárusson. Messa kl. 2 siðd. Ferming, altarisganga. Prest- arnir. FRIKIRKJAN 1 REYKJAVlK Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn Björnsson. NESKIRKJA Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Séra Frank M. Halldórsson. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Guðmundur Öskar Ólafsson. LAUGARNESKIRKJA Messa kl. 10.30 árd. Ferming, altaris- ganga. SéraGarðar Svavarsson. DÓMKIRKJA KRISTS KON- UNGS Landakoti. Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. BREIÐAGERDISPRESTA- KALL Fermingarguðþjónusta kl. 10.30 árd. í Bústaðakirkju. Séra Lárus Halldórsson. Arbæjarprestakall Fermingarguðþjónusta í Dóm- kirkjunni kl. 11 árdegis. Séra Guðmundur Þorsteinsson. SELTJARNARNESSÓKN Barnasamkoma kl. 10.30 árd. í félagsheimilinu. Séra Guð- mundur Óskar Ólafsson. HJALPRÆÐISHERINN Kl. 11 árd. helgunarsamkoma. Kl. 2 síðd. sunnudagaskóii Kl. 8.30 siðd. hjálpræðissamkoma og tala þar Mollerin ofursti frá Noregi og frú hans. Kapt. Daníel Óskarsson. FÆR. SJÓMANNAHEIMILIÐ Samkoma verður kl. 5 síðd. Johan Olsen. GARÐASÓKN Barnasamkoma i skólasalnum kl. 11 árd. Séra Bragi Friðriksson kArsnesprestakall Barnasamkoma í Kársnesskóla kl. 11 árd. Fermingarguð- þjónusta kl. 2 síðd. í Kópavogs- kirkju. Séra Árni Pálsson. DIGRANESPRESTAKALL Barnasamkoma i Vighólaskóla kl. 11 árd. Fermingarguð- þjónusta kl. 10.30 árd. Séra Þor- bergur Kristjánsson. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Ferm- ing, altarisganga. Safnaðar- prestur. KEFLAVÍKURKIRKJA Ferm ingarmessa kl. 10.30 árd. Séra Páll Þórðarson i Njarðvíkur- prestakalli. Fermingarguð- þjónusta kl. 2 siðd. Séra Ólafur Oddur Jónsson. NJARÐVÍKURPRESTAKALL Fermingarguðþjónusta í Kefla- vikurkirkju kl. 10.30 árd. og í Innri-Njarðvíkurkirkju kl. 2 og 4.30 síðd. Séra Páll Þórðarson. UTSKALAKIRKJA Ferm- ingarguðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Guðmundur Guðmunds- son. ODDAKIRKJA RANG.: Ferm ingarmessa og altarisganga kl. 10.30 árd. Séra Stefán Lárus- son. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA Fermingarmessa og altaris- ganga kl. 2 siðd. Séra Stefán Lárusson. Húsgagnaverkstæði — Innréttingasmiðir Höfum fyrirliggjandi brenni — samsetningar- díla í öllum stærðum. Iðnvélar h.f. S 52224 Hjallahrauni 7, Hafnar- firði. Nú bjóðum við enn nýja þjónustu Garðavinna Tökum að okkur skipu- lagningu og vinnu skrúðgarða og lóða fyrir einstaklinga og stofn- anir. Látið fagmenn vinna verkið. skrúðgarðadeild. Ford Mustang Bifreiðin R-5764, sem er Ford Mustang, árgerð 1 972, 6 cyl., er til sölu. Bifreiðin er sem ný, og verður til sýnis í Skeifunni 19, 24 — 25. apríl, milli kl. 14—18, báða dagana. Tilboð sendist Leifi Sveinssyni, Tjarnargötu 36, fyrir 26.4. Hjólhýsi Til sölu er sem nýtt Cavalier-hjólhýsi af gerðinni 4.40 GT Hjólhýsið verður til sýnis í Skeifunni 19 24 — 25. apríl., kl. 14—18. báða dagana. Tilboð sendist Leifi Sveinssyni, Tjarnargötu 36 fyrir 26. apríl. IIII Vorblót í Súlnasal Hótel Sögu sunnud. 25. apríl 1976 Danssýning — Kl. 19.00 — Húsið opnað — svatadrykkir. sangria og aðrir lystaukar Kl. 19.30 — Veizlan hefst stundvislega, hinn vinsæli Ijúffengi réttur „Paella Valenciana" á borðum— Matarverð aðeins kr. 1.500 - Kl. 20.30 Skemmtiatriði: islenzki dansflokkurinn. FEGURÐARSAMKEPPNI: 10 FEGURÐARDÍS IR KOMA FRAM TIL ÚRSLITA í KEPPNINNI UM TITILINN „UNGFRÚ ÚTSÝN 1976" HÁLF MILLJÖN KRÓNA Í FEROAVERÐLAUN ★ Ferðabingó: Spilað verður um 3 sólarferðir með Útsýn til Spánar og italiu yk Dans: Hin vinsæla hljómsveit Ragnars Bjarna sonar leikur. ATH. Gestir, sem koma fyrir kl 20.00 fá ókeypis happdrættismiða og vinningur- inn er ókeypis Útsýnarferð til Spánar eða Italiu Fagnið sumri með Útsýn og munið að panta borð snemma hjá yfirþjóni. Hjá Útsýn komast jafnan færri að en vilja. Útsýnarkvöld eru skemmtanir i sér- flokki, þar sem fjörið og stemmningin bregzt ekki. f ■III- t >

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.