Morgunblaðið - 24.04.1976, Page 12

Morgunblaðið - 24.04.1976, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1976 Sigurður Ágústsson fgrrum alþingismaður Stgkkishólmi Fæddur 25/3 1897. Dáinn. 19/4 1976 í dag er Sigurður Agústsson, fyrrum alþingismaður, kvaddur hinstu kveðju i Stykkishólms- kirkju. Hann andaðist aðfaranótt annars páskadags að heimili sínu í Stykkishólmi, 79 ára að aldri. Sigurður var fæddur i Stykkis- hólmi 25. mars 1897. Foreldrar hans voru Ágúst Þórarinsson verslunarstjóri og Ásgerður Arn- finnsdóttir, kona hans. Sigurður ólst upp í foreldrahúsum, þar til hann hóf nám i verslunarfræðum. Hann lauk prófi frá verslunar- skóla í Kaupmannahöfn 1917. Fulltrúi við verziun Tang og Riis i Stykkishólmi var hann á árunum 1917—1931. Arið 1932 keypti hann fasteignir þeirrar verzlunar í Stykkishólmi og hóf þá verslun- arrekstur og útgerð. Hann reisti hraðfrystihús i Stykkishólmi 1941, sem enn er rekið með mynd- arbrag. Fyrir nokkrum árum keypti hann eignir og kom sér upp góðri aðstöðu við Rifshöfn til alhliða fiskverkunar og útgerðar. Stóð þá starfsemi hans föstum fótum og traustum bæði í Stykkis- hólmi og Rifi, en náin tengsl og samvinna á sér stað milli beggja skauta þessa öfluga fyrirtækis, endaþótt vegalengdsé alltað 90 km milli staðanna. Fyrir nokkr- um árum seldi Sigurður verslun sína i Stykkishólmi mönnum, sem lengi höfðu við hana starfað, en sneri sér af þeim mun meiri krafti að endurbyggingu frysti- hússins, nútíma vélvæðingu og nýjum greinum í sjávarútvegi og fiskvinnslu, svo sem rækju og skel. Nú er m.a. skelvinnsla rekin i húsakynnum fyrirtækisins í Stykkishólmi, hin fremsta sinnar tegundar á landinu. Það er ekki ýkja langt siðan ég átti samtal við Sigurð sem oftar um landsins gagn og nauðsynjar. Sagði hann þá: „Veistu, hvað mér er efst í huga um þessar mundir?“ — Og hann svaraði sjálfur að bragði: „Að kaupa skuttogara." — Ein- beittur vilji til athafna og fram- taks var sívakandi og slokknaði ekki, þó að árum fjölgaði og elli færðist nær. Þau orð, sem hér hafa verið skrifuð, gefa þó aðeins óljósa hugmynd um athafna- manninn Sigurð Ágústsson. Sann- leikurinn er sá, að umsvif hans voru fjölþætt með afbrigðum ára- tugum saman i byggðum Breiða- fjarðar. Frá höfuðstöðvum versl- unar og viðskipta i Stykkishólmi voru starfrækt útibú í Hjallanesi, Hnúksnesi og Skarðsstöð í Dala- sýslu og verslun rak Sigurður lengi í Grundarfirði í Eyrarsveit. Þá var hann lengi þátttakandi í útgerð frá Grundarfirði með Páli á Hömrum með Hamra Svan SH- 111 og Fylki SH-11, og Sigurjóni á Farsæl SH-30 og frá Hellissandi, þar sem hann var einn af stofn- endum útgerðar Skarðsvíkur SH- 205, ásamt Sveinbirni símstjóra og Sigurði Kristjónssyni, skip- stjóra. 1 heimabyggð sinni Stykk- ishólmi má segja að Sigurður hafi verið driffjöður í öllum meiri háttar framkvæmdum og athafna- semi. Hann átti lengi og rak brauðgerðarhúsið. Hann var aðal- eigandi Bifreiðarstöðvar Stykkis- hólms, er annaðist fólks- og vöru- flutninga milli Stykkishólms og Reykjavíkur. Hann rak um skeið eitt umsvifamesta loðdýrabú landsins. Og hann var frumkvöð- ull að stofnun skipasmíðastöðvar í Stykkishólmi. Þannig mætti áfram telja. Sigurður var kjörinn í hrepps neföd Stykkishóimshrepps 1921 og átti þar sæti, þar til hann hóf störf á Alþingi 1949. Sama ár og Sigurður tók sæti í hreppsnefnd tók hann við formennsku í hafn- arnefnd af föður sínum. Þar starf- aði hann samfellt til 1966, lengst af formaður og gjaldkeri hafnar- sjóðs var hann í 25 ár. 1 stjórn Sparisjóðs Stykkishóims sat hann frá 1928—1964. Sýslunefndar- maður Stykkishólmshrepps var Sígurður frá 1938—1974. Frá samstarfi við hann í sýslu- nefnd eftir 1965 er margs að minnast. Hann átti þar jafnan sæti í fjárhags-, raforku- og sjáv- arútvegsnefndum og vann störf sín öll af alúð og samviskusemi. Hann var endurskoðandi sýslu- og sýsluvegasjóðsreikninga, átti sæti i fjölmörgum nefndum og ráðum á vettvangi héraðsmála, m.a. í stjórn Amtsbókasafnsins, læknis- bústaðanefnd, og stjórn Björgun- ar- og sjúkrasjóðs Breiðafjarðar (áður Björgunarskútusjóðs Breiðafjarðar). I sýslunefnd var Sigurður sem endranær glaðvær og góður félagi, bar hag heima- byggðar mjög fyrir brjósti, talaði djarflega og einarðlega um menn og málefni, ef svo bar undir, en að hætti góðra drengja erfði hann engan smáágreining stundinni lengur. Árlega hafði hann boð inni fyrir sýslunefndarmenn og voru það ógleymanlegar ánægju- stundir. Mikilvæg trúnaðarstörf, er Sigurður innti af höndum fyrir Snæfellsnes og Breiðafjarðar- byggðir verða ekki fulltalin. En geta má þess enn, að hann var formaður Bótatryggingar Breiða- fjarðar frá stofnun 1938 fram á síðustu ár. Þá átti hann lengst af sæti í stjórn Rifshafnar, en þá höfn taldi hann eina af beztu lif- höfnum landsins, er ætti mikla framtíð fyrir sér. Sigurður átti og iengi sæti í stjórn tveggja megin- atvinnufyrirtækja á Utnesinu, þ.e. hraðfrystihúsanna á Hellis- sandi og í Ólafsvík. Snæfellingar kusu Sigurð Ágústsson á þing 1949 fyrir sjálf stæðisflokkinn. Sat hann á Al- þingi við vaxandi kjörfylgi og vin- sældir í einmenningskjördæmi í 10 ár. Þegar kjördæmabreytingin var gerð 1959, þótti sjálfsagt, að Sigurður skipaði efsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Vest- urlandskjördæmi. Var hann kjör- inn á þing þá og sfðar sem 2. þingmaður Vesturlands, þar til hann dró sig í hlé 1967. Af þing- mannsstörfum Sigurðar, bæði innan þings og utan, er mikil saga, sem ekki verður rakin hér að neinu marki. Hún er samofin sögu þjóðarinnar á þessu fram- faraskeiði tuttugustu aldar. A þingi kom sér vel þekking og reynsia hans af höfuðatvinnuveg- um landsmanna að fornu og nýju. Hann slitnaði og aldrei úr sam- bandi við atvinnulífið heima fyr- ir. Eftir dagsins önn í þingsölum streymdu til háns símleiðis fram eftir kvöldi fréttir af aflabrögð- um og manniífi við Breiðafjörð, og margur maðurinn, sem steytt hafði skip sitt á skeri á einn eða annan veg, leitaði hjá honum hjálpar, ráða og liðsinnis. Góð- vild, greiðvikni og hjartahlýja öfl- uðu honum vinsælda og kjörfylgis oft og tiðum langt inn í raðir andstæðinganna. Þessir eiginleik- ar nutu sín einkar vel í einmenn- ingskjördæmi, þar sem persónu- fylgi kemur betur og greinilegar i ljós en í hlutbundnum kosning- um. Hin persónulégu kynni voru þung á metaskálunum. Á þing- mannsárum Sigurðar urðu stór- stigar framfarir í kjördæmi hans á flestum sviðum til sjávar og sveita. Þar var hann víða þátttak- andi eða brautryðjandi af lífi og sál. Þar má nefna sem dæmi i samgöngumálum á landi hina tor- sóttu vegagerð fyrir Búlands- höfða og Ólafsvíkurenni og fyrstu brú yfir fjörð hér á landi, yfir Mjósund i Hraunsfirði. Ég hygg að segja megi, að fáir þingmenn hafi reynst öllu drýgri aflamenn fyrir kjördæmi sitt á þingi, þegar á allt er litið. Enn má nefna opin- ber trúnaðarstörf, er hlóðust á Sigurð á þessum árum. Hann var í stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna frá 1947, í stjórn Sildar- verksmiðja ríkisins frá 1949 og stjórn Samlags Skreiðarframleið- enda frá stofnun þess. í einkalífi var Sigurður ham- ingjumaður. Hann kvæntist 27. okt. 1923 Ingibjörgu Helgadóttur bakarameistara frá Karlsskála Eiríkssonar. Heimili þeirra að Skólastíg 1 í Stykkishólmi hefur löngum verið. viðbrugðið fyrir myndarbrag, hlýju og gestrisni. Aldrei bragðaði Sigurður áfengi né tóbak, en veitti gestum sínum höfðinglega í mat og drykk við hvers manns hæfi. Hann var hverjum manni skemmtilegri heirr að sækja. Þau hjón eiga einn son, Agúst, kvæntan Rakel Olsen, ættaðri úr Keflavík. Eiga ungu hjónin 3 börn. Hin síðari ár hafa störf og umsvif við stjórn atvinnurekstrarins færst meira og meira yfir á herðar ungu hjón- anna, sem hafa axlað þá byrði af dugnaði i samvinnu við trausta og margreynda starfsmenn fyrir- tækja Sigurðar um áraraðir. — Á afmælisdegi Sigurðar, hinn 25. f.m., var hann gerður að heiðurs- borgara Stykkishólms. — Á sumardaginn fyrsta, eftir rysjóttan vetur og lélega vetrar- vertið, set ég þessar línur á blað til minningar um hinn látna sæmdarmann. — „Senn er vor um Breiðafjörð". — Sigurður æðrað- ist ekki, þó að endrum og sinnum gæfi á bátinn og straumurinn væri oft þungur í fangið. Hann vissi, að öll él birtir upp um siðir, og trúði á mátt hins góða og sigur lifsins. Að leiðarlokum þakka ég minn- isstæðum vini og samferðamanni fyrir eitt og allt, sem við höfum átt saman að sælda. Við hjónin og börnin sendum frú Ingibjörgu og fjölskyldunni að Skólastíg 1 i Stykkishólmi innilegar samúðar- kveðjur og alúðarþakkir ásamt ósk um farsæla framtíð. Friðjón Þórðarson. KVEÐJUORÐ Snæfellski goðinn er allur, þann 19. þ.m. lést að heimili sínu í Stykkishólmi Sigurður Ágústsson fyrrv. alþingismaður 79 ára að aldri. Með þessum kveðjuorðum, ætla ég ekki að lýsa æviferli þessa at- hafnamanns, það munu aðrir gera, en sem fyrrverandi starfs- maður við fyrirtæki hans um margra ára skeið, ásamt sameigin- legri vinnu okkar að hagsmunum Stykkishólmskauptúns, þvi saman störfuðum við í hrepps- nefnd Stykkishólms á annan ára- tug, og á þeim árum kynntist ég vel þessum Breiðfirska höfðingja, og iærði að meta gáfur hans og dugnað til þess að hrynda í fram- kvæmd framfaramálum hrepps- ins og aðkallandi áhugamálum þeirra er til hans leituðu um að- stoð og voru þeir margir því Sigurður vildi öllum gott gera og hjálpa. Segja má, að heiðursborgari Stykkishólms hafi ekki staðið einn í lífsbaráttunni, því við hlið hans stóð traust og vitur lífsföru- nautur sem var eiginkona hans frú Ingibjörg Helgadóttir, og satn- eiginlega gerðu þau heimili sitt að sönnu höfðingjasetri, þangað sem allir voru velkomnir. til þess að njóta gestrisni þessara heiðurs- hjóna og var þá ekki verið að gera upp á milli manna, allir voru jafnir og hjartanlega velkomnir. Nú þegar leiðir skiljast, mun margur maðurinn sakna þessa landskunna athafnamanns og er þvi nú skarð fyrir skiidi. Ég kveð nú þennan heiðurs- mann, sem ég hefi þekkt að öllu góðu I áratugi, og óska honum góðrar heimferðar og blessunar Guðs, þá sendi ég ekkju hans og syni, sem ég vona að feti dyggi- lega I fótspor höfðingjans, og þeim öllum blessunar guðs. Árni Ketilbjarnar, frá Stvkkishólmi. Við andlát og útför Sigurðar Ágústssonar leita margar og ljúfar minningar á huga ættingja og vina. Það verða vafalaust ýmsir til að skrifa um margþætt störf hans á athafnasviðinu og á alþingi. Ég kýs því að staldra við örfáar myndir frá baksviðinu — heimili hans og fjölskyldu og erfða eðlis- kosti frá foreldrum hans Ásgerði Arnfinnsdóttur og Ágústi Þór- arinssyni. Mig grunaði sízt að svo skammt væri að leiðarlokum, er við heim-, sóttum þau hjónin í Stykkishólmi; á afmæli Sigurðar 25/3 s.l. i til- efni af 75 ára afmæli eiginkonu hans, Ingibjargar Helgadóttur sem var næsta dag 26/3. Sigurður virtist þá furðu hress og naut sín vel í glöðum hópi. Að þessu sinni var fjölmenn og veg- leg veizla og Sigurður þar kjörinn heiðursborgari Stykkishólms. Aður hafði þrem mönnum hlotn- ast slfkur heiður og var faðir hans Ágúst sá fyrsti i þeim hópi. Mun sjaldgæft, ef ekki einsdæmi, að slík sæmd „gangi að erfðum" frá föður til sonar. Hitt er fullvíst að báðir voru þeir vel að þessari sæmd komnir og hún veitt þeim í fullri þökk íbúanna. Sigurður dró aldrei dul á það, er hann hélt tækifærisræður innan fjölskyldunnar, að hans stærsta lífshamingia hefði verið að eignast Ingibjörgu að lífsföru- Mér er það minnisstætt, þegar ég, ungur að árum, kynntist Sigurði Ágústssyni fyrst vegna vináttu og viðskipta hans og föður mins, hvers álits og vinsælda Sigurður átti að fagna hjá ölium þeim, sem honum kynntust. Hann var samur og jafn við ungan dreng og jafnaldra sina eða sér eldri menn. Fjarri mun það hafa verið Sigurði að fara í mann- greinarálit og þeir, sem minna áttu undir sér og borið höfðu skarðan hiut í lífsbaráttunni áttu vin og styrktarmann, þar sem Sigurður var. Sigurður Ágústsson var vörpulegur á velli, bjartur yfir- litum, hressilegur f skapi og hlýr I viðmóti, glaðsinna alvöru- maður. Sigurður naut einnig óvenju mikils trausts meðal samferðamanna sinna. Á langri lifsleið voru honum falin flest hugsanleg trúnaðarstörf, sem sveitungar eða héraðsbúar, starfsbræður i verslun, útvegi og fiskvinnslu, eða skoðana- bræður í stjórnmálum, höfðu yfir að ráða. Þótt Sigurður færi aldrei dult með skoðanir sínar og gæti verið fastur fyrir, ef því var að skipta, var hann sam- vinnufús og sanngjarn samn- ingamaður, og því einnig vel metinn af þeim, sem voru annarrar skoðunar en hann. Sigurður Ágústsson var höfð- ingi í héraði og virtur fulltrúi þess á Alþingi. Hann var í lífi og starfi sjálfur dæmi þess, hvað getur falist í hugsjónum sjálfstæðisstefnunnar og verð- ugur merkisberi Sjálfstæðis- flokksins. Um leið og við þökkum Sig- urði Agústssyni sendum við mikilhæfri eiginkonu hans, frú Ingibjörgu, og öðrum ást- vinum, innilegar samúðar- kveðjur. Geir Hallgrfmsson. naut. Mér er einnig minnisstætt hve mikla aðdáun og virðingu hann bar fyrir tengdamóður okkar Sesselju Árnadótlúr frá Kálfatjörn. Og nú kemur mér í hug saga-frá þvi er þau Sesselja og Helgi Eiríksson fluttust eftir nokkurra ára dvöl á ísafirði í Stykkishólm. Jón heitinn Marías- son seðlabankastj. var skólabróðir Sigurðar á verzlunarskóla í Dan- mörku. Þaðan brautskráðist Sig- urður með hæstu einkunn, sem tekin var það vor. Jón hafði líka kynnst Ingibjörgu á Isafirði og þegar skipið, sem flutti fjölskyld- una til Stykkishólms, leysti land- festar á Isafirði sagði Jón: „Þarna fer brúðarefni Sigurðar Ágústs- sonar." Þau höfðu þá aldrei sézt, Jón hafði kynnst báðum og var fyrirfram sannfærður um, að sakir mannkosta og glæsi- mennsku beggja myndi þeirra kynning reynast örlagarík. Hann reyndist sannspár. Tveim árum síðar stóð þeirra brúðkaup. Og hjónaband þeirra í rösk 52 ár reyndist farsælt og mjög til fyrir- myndar. Greiðvikni var Sigurði í blóð borin í svo rfkum mæli að henni voru harla lítil takmörk sett. Um áratuga skeið gat hann sjaldnast matast, án þess að landsíminn hamaðist við að leita hann uppi væri hann staddur í Rvík. Biðu þá oftast mörg samtöl. Eru af því ýmsar sögur, sumar spaugilegar, sem hér verða ekki raktar. En þeim, sem tengdir voru honum fjölskylduböndum, þóttu þessar ásóknir oft með ólíkindum. En hvers konar fyrirgreiðsla öðrum til handa fannst honum sjálfsögð og eðlileg og vixlarnir, sem hann áritaði, voru ófáir. Það var kannski skýring á því, hvers vegna svo margir leituðu hans aðstoðar. Viðbrögð hans voru af þeirri gerð, sem ekki áskilur sér rétt til þakklætis. Kröfurnar gerði hann fyrst og síðast til sjálfs sin. Annar áberandi þáttur í fari Sigurðar var kurteisi, sem var al- veg einstök. Þessi ómetanlegi eiginleiki er því miður að verða óþarflega fátíður hjá íslending- um, einkum af yngri kynslóð. Andstæða hennar heimtufrekjan dafnar þeim mun betur. En kurteisin var Sigurði runnin í merg og bein með þeim hætti að engum gleymist, sem honum kynntist. Hvar sem hann fór, og hvar sem hann hittist, vestur í Hólmi á götu í Rvík eða í mannfagnaði var dag- far hans ávallt það sama, elskuleg og einlæg kurteisi — einmitt sú, sem aldrei verður lærð sé hún ekki meðfædd. Ég held að Sig. Ágústsson hafi aldrei einblínt á „teoríur" í póli- tík. Lífsreynslan sjálf er ólygnust og hún færði honum heim sann- inn um að framtak einstaklings- ins beri að virða og virkja. Jafnframt var hann ötull stuðn- ingsmaður samhjálpar, þar sem þörfin er brýnust, þvi kærleikríkt hugarfar var heimanfylgja og af- gerandi þáttur í hans skaphöfn. Þrátt fyrir erilssama ævi og ágjafir i lffsins ólgu sjó, þá lét hann aldrei örðugleikana smækka sig eða pólitískar árásir á sér hrína en hélt ótrauður og bjart- sýnn sínu striki. Mætti sínum ör- laganornum æðrulaust alla tíð. Mun það mála sannast að hann hafi engan óvin átt en ótrúlega vina f jöld, þegar litið er um öxl. Einu vil ég bæta við. Vinnan er sumuiti mönnum brauðstrit, öðrum unaður. Starfsglaðari manni en Sigurði Agústssyni hef ég ekki kynnst, — á meðan hann var í blóma lífsins og reyndar miklu lengur. Þegar hann fór i fyrsta skipti utan ásamt konu sinni gagngert til að hvílast að læknisráði, þá skrifaði hann mér bréf, þar sem hann lét mjög vel af öllu en taldi langvarandi iðjuleysi sérlega óheilsusamlegt! Hann kunni naumast að njóta langrar samfelldrar hvíldar, því hans lífs- nautn var að vinna kappsamlega. Þrátt fyrir annríki gaf Sigurður sér alltaf tíma til að gleðjast með

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.