Morgunblaðið - 24.04.1976, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.04.1976, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1976 — Minning Tryggvi Framhald af bls. 23 fjallinu, sem aðskildi Stöðvar- fjörð og Fáskrúðsfjörð. En Tryggva var að sjálfsögðu stundum saknað úr hópi félag- anna, þegar hann um helgar eða ef hlé varð á sjósókn — hvarf í skyndi til fundar við elskuna sína. En vinir hans, sem til þekktu — munu þó hafa samglaðst honum þvi öllum geðjaðist vel að ungu lífsglöðu stúlkunni frá Eyri, sem þá og alltaf síðan átti hug Tryggva allan. Tryggvi og Guðlaug giftust árið 1938 og stofnuðu heimili að Borgargarði í Stöðvarfirði. Stundaði Tryggvi sjó frá Stöðvar- firði á þessum árum — eins og flestir þeir, sem eitthvað dugðu. Var hann lengst á opnum vélbát með Magnúsi bróður sinum. Sóttu þeir bræður sjóinn fast, enda hraustmenni báðir. í lok stríðsins fór saman að fisk- afli brást mjog á Austfjörðum — og um sama leyti varð mun meira um vinnu í Reykjavik og ná- grenní —. Fór á þeim árum margt af ungu fólki að austan suður á land til margs konar starfa. Var það mikið áfall fyrir Stöðvarfjörð, að missa á þeim árum margt af ágætu ungu fólki suður á land og sem ekki kom aftur. Árið 1947 fluttust þau hjónin Tryggvi og Guðlaug suður til Keflavíkur. Hafði Tryggvi þá ákveðið að hefja smíðanám, sem hugur hans mun lengi hafa staðið til. Lauk hann iðnnámi í skipasmiði og vann í Slippnum í Keflavík um nokkurt árabil. En siðar bætti hann við sig tilskildu aukanámi til að hljóta réttindi til húsasmíði. Og sem meistari við húsbyggingar vann Tryggvi mörg síðustu árin eða allt til síðustu áramóta, að hann kenndi þessa alvarlega sjúkdóms, sem ekki varð bættur. Erfiður hlýtur baráttutíminn á sjúkrahús- inu að hafa verið þessu hraust- menni, sem aldrei vildi gefast upp. En áreiðanlega hefir honum verið það meiri huggun og styrk- ur en orð fá lýst, að Guðlaug, konan hans elskulega, dvaldi nær alltaf við sjúkrahvílu hans á spítalanum þar til yfir lauk. Þegar vinir og samferðamenn hverfa sjónum okkar — verður okkur ósjálfrátt hugsað til baka. Mér er ljúfar minningarnar um vin minn Tryggva Kristjánsson, því þær eru allar á einn veg. Engan skugga ber á samskipti okkar, þvi frá honum einkennd- ust þau af góðvild hans og sér- stakri tryggð til alls og allra, sem hann einu sinni batt vináttu við. Auk þess, sem við Tryggvi áttum samleið á Stöðvarfirði í 9 ár — þá kom ég oft á heimili þeirra hjónanna í Keflavík. Alltaf var mér tekið af þeirri einlægu gleði, sem einkennir sanna gestrisni. Og það var ótrúlega notalegt að finna á þessum tímum, þegar manni finnst stundum enginn megi vera að því að lifa hér í þéttbýlinu — að Tryggvi gaf sér alltaf góðan tfma til að sinna gestinum. Stundum kom ég í mat til þeirra hjónanna á vinnudögum — og þegar tíminn leið í spjalli fram yfir eitt — fór ég að hafa áhyggj- ur að ég væri að valda óþæg- indum. En þá kom gjarnan fallega brosið hans Tryggva og hann bað mig ekki hafa áhyggjur, því þó hann kæmi e.t.v. aðeins of seint í vinnuna, þá hlyti hann að hafa mögu'.eika á að bæta það upp. Þó að karlmennska Tryggva og raunsæi sætti hann við búsetuna í Keflavík — þar sem þeim hjónum vegnaði vel — þá var auðfundið að hugur hans leitaði oft austur og tilfinningalega var hann bund- inn æskustöóvunum. Þegar fund- um okkar bar saman, var oftast minnst á Stöðvarfjörð — og ég fann að hann bar mjög hag og veg þess byggðarlags fyrir brjósti — og setti sig ekki úr færi að veita málefnum Stöðvarfjarðar stuðn- ing þegar ta;kifæri gáfust. Mér finnst því eðlilegt, að æsku- byggðin, Stöðvarfjörður, skuli eiga að geyma í faðmi sér jarð- neskar leifar Tryggva Kristjáns- sonar nú að leiðarlokum. Guðlaugu og mannvænlegum Margir helztu listamenn Svía í kjölfar Bergmans? Bergman skildi eftir aleigu sína skattyfirvöldum til ráðstöfunar Stokkhólmi 23. apríl AP — NTB 0 HINN heimskunni sænski leikstjóri Ingmar Bergman, til- kvnnti f gær að hann gæti ekki lengur búið í Svfþjóð og færi nú úr landi til að starfa er- lendis. Bergman, sem allra manna mest hefur lagt að mörkum til að gera Svíþjóð að stórveldi í kvikmyndagerð, sagði að hann hefði verið hrakinn og auðmýktur af „æru- lausum pókerspilurum" í skrif- finnskuveldi sænskra skattvfir- valda. Hann sagði einnig, að þeir hefðu revnt að kuga hann til að geta bjargað eigin skinni f skattamálinu sem kom öllu þessu af stað og varð að heims- frétt. 0 Búizt er við því að för Bergmans frá Svfþjóð muni leiða til meiri háttar landflótta ýmissa helztu listamanna Svfa. Þ.á m. nokkurra þeirra leikara sem hann gerði fræga, eins og Bibi Anderson, Max von Sydow og Liv Ullmann. Herma fréttir að Bergman sem er 58 ára að aldri, hafi farið flugleiðis á miðvikudag til Parfsar og dvelji nú hjá vinum í Frakk- landi, en ekki hefur þetta verið staðfest. Þá er sagt að hann muni fara til New York á næst- unni vegna nýrrar myndar. Olof Palme forsætisráðherra, sagði í dag: „Ég harma að Ing- mar Bergman skuli fara frá Svíþjóð, sumpart vegna þess að hann er mikill listamaður og sumpart vegna þess að hann er persónulegur vinur minn. Ég vona innilega að hann komi til baka.“ Hann kvaðst ekki telja Bergman gagnrýna sænsku ríkisstjórnina, heldur beindist gagnrýni að einstökum emb- ættismönnum. Væru þessir embættismenn sekir um mis- ferli yrðu þeir sóttir til saka samkvæmt eðlilegum réttar- farsreglum. Ákvörðun sina um að fara frá Svíþjóð birti Bergman í opnu bréfi í dagblaðinu Expressen. Þar lýsir hann því yfir að hann hafi verið sannfærður sósíal- demókrati og talið Sviþjóð bezta land í heimi unz skatta- mál þetta hafi leitt honum fyrir sjónir „að hver sem er í þessu landi, hvenær sem er og hvernig sem er, getur orðið fyrir árásum og auðmýkingu sérstakrar tegundar skrif- finnskuveldis sem vex eins og krabbamein“. Það var 30. janúar s.l. sem Bergman var handtekinn af skattalög- reglunni og ákærður um að hafa svikið stórar fjárhæðir undan skatti. Saksóknari rfkis- ins komst loks að þeirri niður- stöðu að enginn fótur væri fyrir sakargiftum þessum, en í milli tíðinni hafði Bergman fengið taugaáfall vegna málsins. Ríkisstjórnin hélt því þó enn fram að hann skuldaði skatta. Bergman sakaði hins vegar tvo embættismenn skattyfirvalda um að hafa reynt að fá sig til að komast að einhvers konar sam- komulagi eftir að hafa fyrst krafizt þess að hann greiddi 139% í skatt. Bergman segir að hann hafi neitað að standa i samningamakki við embættis- mennina, sem „að þvf er virtist héldu að ég, vegna þunglyndis míns og ótta við frekari ofsókn- ir, myndi láta undan slíkri kúgun". Bergman segir að hann hefði greitt skatta sem hefðu numið meir en 454.000 dollurum síð- ustu ár og hann hafði alla tíð lagt kapp á að vera nákvæmur og heiðarlegur í slíkum málum. Hann tilkynnti að hann skildi eftir allan auð sinn í Svíþjóð „skattstofunni til ráðstöfunar" til þess að sanna að hann væri ekki ,,að flýja ábyrgð vegna að- ferða skattalögreglunnar". Annar þeirra embættis- manna sem nefndir eru í bréfi Bergmans vildi ekki láta hafa neitt eftir sér um það „vegna þess að málinu hefur enn ekki verið lokað og gögnin eru leyni- leg“. Hann bætti því við að hann teldi sig ekki á nokkurn hátt ábyrgan fyrir brottför kvikmyndaleikstjórans. Gösta Ekman, yfirmaður skattstof- unnar, sagði: „Samningamakk á ekki heima i okkar starfi ... Við hörmum þá stefnu sem þetta mál hefur tekið.“ Bergman lét þess ekki getið hvar hann hygðist setjast að, en vinir hans telja líklegast að Frakkland eða ítalía verði fyrir valinu, og Bergman hefur áður lýst ást sinni á ítalíu og hafði í bígerð samstarf við Federico Fellini Framhald á bls. 19 Vinur prínsins tók við mútufé Haag. 23. apríl. AP. Carter verður keppinauturinn — segir Ford Indianapolis 23. apríl — Reuter FORD Bandaríkjaforseti telur miklar líkur á því að andstæð- ingur hans i forsetakosningun- um verði Jimmy Carter, og í útvarpsviðtali í gær kvaðst for- setinn mjög hissa á hversu mikið fylgi Carter hefur fengið í forkosningunum að undan- förnu. Ef Carter sigraði í for- kosningunum i Pennsylváníu á þriðjudag yrði afar erfitt að stöðva hann úr því, sagði Ford. „Jafnvel Hubert Humphrey myndi þá eiga erfitt með að öðlast útnefninguna." í sama Jfmmy Carter útvarpsviðtaii kallaði Ford Fidel Castro, forsætisráðherra Kúbu, „alþjóðlegan þorpara" og varaði hann eindregið við íhlutun á borð við þá sem her- sveitir hans gerðu í borgara- styrjöldinni í Angóla. ' ÞRJU stærstu blöð Hollands segja að fyrrverandi blaðafull- trúi Fokkerflugvélaverksmiðj- anna, G. Aalbertsberg, hafi tek- ið við mútufé frá Lockheed- fvrirtækinu sem hafi verið ætl- að Bernharð prins. Hollenzkir embættismenn hafa undir höndum greinar- gerð, sem sýnir að sögn blað- anna, að Aalbertsberg hafi tek- ið við greiðslu að upphæð 867.327 dollarar á árinu 1962. Aalbertsberg er kallaður vinur Bernharðs prins, en ekki kem- ur fram í fréttunum hvort prinsinn hefur fengið féð. Talsmaður hollenzka stjórn- arinnar staðfesti að þriggja manna nefnd, sem kannar ásak- anir um að prinsinn hafi þegið mútufé af Lockheed, hefði greinargerðina undir höndum. En hann lagði áherzlu á, að þetta væri ekki opinbert skjal og hefði ekki verið meðal gagna Framhald á bls. 19 sonum þeirra hjónanna svo og öðrum vandamönnum vottum við hjónin innilegustu samúð okkar. Biessuð sé minning Tryggva Kristjánssonar. Björn Stefánsson. — Fermingar Framhald af bls. 6 Fermingarbörn í Njarðvík kl. 10.30 árd„ Keflavíkurkirkja, Ytri- Njarðvíkursókn DRENGIR: Björn Viðar Ellertsson, Grundarvegi 21, Y- Nj. Eirfkur Sigurðsson, Brekkustfg 17. Y-Nj. Elfas L. Jóhannsson, Ilraunsvegi 2, Y-Nj. Harry Robert Kendall. Hlfðarvegi 15, Y-Nj. Helgi Eyjólfsson, Tunguvegi 2. Y-Nj. Karl A. Samders, Hraunsv. 19 Kristján ifc. Tómasson, lljallavegi 1, Y-Nj. Magnús Hafsteinsson, Þórustfg 5, Y-Nj. ólafur Garðarsson, Höskuldarkoti 1, Y-Nj. óskar Hreinsson, Hólagötu 3, Y-Nj. Rúnar Magnússon, Gónhól 3, Y-Nj. Tyrfingur Tyrfingsson, Móavegi 7, Y-Nj. Þórir Eirfksson, Hólagötu 5, Y-Nj. STÓLKUR: Adda Þ. Sigurjónsdóttir, Hraunsvegi 6, Y-Nj. Anna Gunnarsdóttir, Holtsgötu 8, Y-Nj. Bryndfs Hjelm, Hlfðarvegi 12, Y-Nj. * Guðrún Þorleifsdóttir, Norðurstfg 3, Y-Nj. Jóna Friðriksdóttir, Hlfðarvegi 16, Y-Nj. Jónfna K. Jónsdóttir, Hlfðarvegi 36, Y-Nj. Kolhrún Kristinsdóttir, Hlfðarvegi 56, Y-Nj. Margrét Eðvaldsdóttir, Hlíðarvegi 58, Y-Nj. Margrét Jónsdóttír, Ilraunsvegi 14, Y-Nj. Sjöfn Olgeirsdóttir, Brekkustfg 17, Y-Nj. Soffía Guttormsdóttir, Reykjanesvegi 16, Y-Nj. Þórey B. Jónsdóttir, Borgarvegi 38, Y-Nj. Kl. 2 síðd. Innri-Njarðvíkurkirkja DRENGIR: Atli Ingólfsson, Borgarvegi 28, Y-Nj. Bjarni Ágúst Jónsson. Njarðvíkurbr. 4 Innri-Njarðvfk Eyjólfur ö. Gunnarsson, Njarðvíkurbraut 31, I-Nj. Garðar Reynisson, Narðvfkurbraut 11, I-Nj. ilaraldur Jakobsson, Kirkjubraut 1, I-Nj. Hlynur ó. Pálsson, Njarðvíkurbraut 2, I-Nj. STÚLKUR: Ágústa K. Bragadóttir, Njarðvfkurbraut 13, I-Nj. Guðrún Bjarnadóttir Hooks, Bunker IIill 1033B, Keflavfkurflugvellf Helga Guðjónsdóttir, Akurbraut 9, I-Nj. Helga B. Ragnarsdóttir, Njarðvfkurbraut 44,1-Nj. Sigrún Eyjólfsdóttir, lloltsgötu 22, Y-Nj. Sveinbjörg Hrafnsdóttir, Narfakoti Guðríður Sigurðardóttir, Grænási 1, Keflavfkurflugvelli Hulda örlygsdóttir, (•rænási 2, Keflavfkurflugvelli Kristfn Einarsdóttir, Ilraunsvegi 10, Y-Nj. Marfa Magdalena Birgisdóttir ölsen, Þórustfg 1. Y-Njarðvík kl. 4.30 Innri-Njarðvíkurkirkja DRENGIR Ari Einarsson, Grænási 1. Keflavfkurflugvelli Árni Einarsson, Hlfðarvegi 14, Y-NJ. Danfel Guðmundsson, Brekkustfg 31, Y-Nj. Haukur Einarsson, Ileiðarvegi 48, Y-NJ. Krist ján Gestsson, Grænási 1, Keflavfkurflugvelli Ómar Birgisson Áspar, Brekkustfg 36, Y-Nj. Rúnar Ólafsson, Borgarvegi 30, Y-Nj. Sveinbjörn Guðmundsson, Borgarvegi 36, Y-Nj. Tryggvi D. Jónsson, Hraunsvegi 15, Y-Nj. STULKUR: Erla Finnsdfttir, Grænási 3, Keflavfkurflugvelli Fanney M. Jósefsdóttir, Holtsgötu 21, Y-Nj. Keflavíkurkirkja: Ferming kl. 2 síðd. STÚLKUR: Agnes Ármannsdóttir, Greniteig 4, Keflavfk Ánna M. Kristjánsdóttir, Háaleiti 3C, Keflavfk Arnhildur Arnbjörnsdóttir, Sólvallagötu 28, Keflavík Ásdfs Gunnlaugsdóttir, Smáratúni 27, Keflavfk Berglind Ó. Sigurðardóttir, Garðavegi 6, Keflavfk Brynhildur Pétursdóttir, Hringbraut 106, Keflavfk Guðbjörg Bjarnadóttir, Hringbraut 56, Keflavík IngaG. Halldórsdóttir, Hringbraut 92, Keflavfk Jónfna Guðjónsdóttir, Þverholti 18. Keflavfk Karólfna Margrét Þorleifsdóttir, Skólavegi 9, Keflavfk Kristfn R. Guðlaugsdóttir, Háteigi 11, Keflavfk Margrét II. Eirfksdóttir, Smáratúni 10, Keflavfk ólöf M. Ingólfsdóttir, Hólabraut 14. Keflavfk Sigurbjörg Björnsdóttir, Faxabraut 78, Keflavfk Sigurborg Garðarsdóttir, Vesturgötu 10, Keflavfk Sólbrún Björk Sigurðardóttir. Baugholti 14. Keflavfk Þóranna Árdrésdóttir, Vatnsnesvcgi 30, Keflavfk PILTAR: Benedikt Jónsson, Heiðarbrún 5, Keflavfk Birgir Þ. Runólfsson, Langholti 13, Keflavfk Bjarni Kristjánsson, Háholti 8, Keflavfk ElfasGeorgsson, Greniteig 11, Keflavfk Guðbjörn Garðarsson, Greniteig 16, Keflavfk Guðmundur Már Kristinsson, Miðgarði 11, Keflavfk Hafliði Kristjánsson, lláholti 8, Kcflavfk Hafþór Óskarsson, Njarðargötu 7, Keflavík Páll Hilmar Ketilsson, Túngötu 5, Keflavfk Ragnar Margeirsson, Háholti 19, Keflavfk Sigurður tsleifsson, Hringbraut 65, Keflavfk Stefán Arnarson, Lyngholti 4, Keflavfk Stefán Hjálmarsson, Hátúni 39, Keflavfk Viðar Magnússon, Greniteig 8, Keflavfk Ferming í Utskálakirkju ki. 2 slðd. Garður. STÚLKUR: Guðlaug Þóra Sveinsdóttir, Garðbraut 56 Ingveldur Einarsdóttir, Sunnubraut 1 Kristfn Guðmundsdóttir, Gerðavegi 4 Pálfna Gunnarsdóttir, Móakoti Þórhildur Ida Þórarinsdóttir. Melbraut 8 DRENGIR: Ágúst Árnar Jakobsson, Sólbergi Bjarni Jóhannsson, Sunnubraut 4 Bragi Andrésson, Bala Kjartan Mar Eirfksson, Garðhraut 70 Markús Karl Valsson, Eyjaholti 11 Vilberg Jóhann Þorvaldsson, Vörum Þorsteinn Kristinn Einarsson, Garðhraut 51 Ævar Ingi Guðbergsson, Gerðavegi 16 Ferming I Þykkvabæjarkirkju. Prestur: Séra Kristján Rúberts- son. STtLKUR: Björk Berglind Gylfadóttir, Dynskógum 5, Hellu c Halldóra Gunnarsdóttir, Vatnskoti Kristfn Kristjánsdóttir, Gerði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.