Morgunblaðið - 24.04.1976, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1976
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
__________>_________________________ '________________________________-
12 ára telpa
sem vön er allri sveitavinnu
og hefur gott lag á öllum
dýrum, er mikið viljug að
vinna, óskar eftir sveitaplássi.
Uppl. í síma 99-1967, Sel-
fossi.
Bændur og búalið
Óska eftir að kaupa mykju-
dreifara, helst nýlegan. Uppl.
að Auðsholtshjáleigu, Ölfusi,
simi 99-4111.
Ökukennsla
Æfingartímar, kennt á Datsun
140, R. 1015. Uppl. i sima
84489. Björn Björnsson.
Bill — Skuldabréf
Óska eftir bil, 400—800
þús. sem má greiðast með
3ja ára skuldabréfi. Uppl. i s.
92-8332.
Sjómenn
vantar meðeiganda til kaups
á 1 5—20 tonna bát. Simi
92-6515.
Prjónakonur óskast
sem hafa handprjónavélar
sem geta prjónað úr lopa.
Uppl. i sima 1 3433.
16 ára stúlku
vantar vinnu i sumar. Hringið
i sima 20057.
Málarar — trésmiðir
Tilboð óskast i eftirtalin verk i
fjölbýlishúsi. 1. Málningu á
þaki. 2. Viðgerð á ganga-
gluggum. Nánari uppl. i sima
37771 og 85899 á kvöldin.
fliúsnæöí^:
r í boöi \
t--aaA-a—A_a_/1_A_aM_J
Til leigu
Nýleg 5 herb. ibúð i mjög
góðu standi. Aðeins reglu-
samt fólk kemur til greina.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 1.
mai merkt: Fyrirframgreiðsla
— 2430.
Raflagnir
Sími 14890.
Dömur — Herrar
Stytti, þrengi, sikka kápur og
dragtir. Sauma skinn á oln-
boga á peysur og jakka.
Margir litir. Herrar margs-
konar breytingar. Tekið á
móti fötum og svarað í sima
37683 mánudags- og
fimmtudagskvöld frá 7—9.
Hænuungar til sölu
2ja mánaða og húsdýra-
áburður í pokum og lausu.
Uppl. í síma 84221 næstu
kvöld kl. 7— 1 0.
Loftpressa 12 kg.
Til sölu einnig mótor 3. fasa.
1 ’/? hestafl og sprautukanna.
Uppl. í síma 14004 laugard.
og sunnudag.
Til sölu
saltfiskvöskunarvél, þurrk-
húsgrindur, þurrkblásari,
búkkar ög gamall vörubill.
Iðnaðar eða geymsluhús o.fl.
tæki. Uppl. i s. 50668.
Hestur til sölu
brún blesótt meri 7 v. litið
tamin. Uppl. i síma 51 524.
Til sölu
er fallegt borðstofuborð með
4 stólum. Einnig borðstofu-
skápur i stíl og sófaborð.
Kostar nýtt 135 þús. Selst á
80 þús. Uppl. i sima 43898.
Tilboð óskast
í jörðina Torfustaði i Svart-
árdal, A-Hún. Á jörðinni er
nýlegt íbúðarhús og ný 400
kinda fjárhús með vél-
gengum kjallara, ásamt
hlöðu ca 1500 hestburði.
Bústofn og vélar geta fylgt.
Nánari upplýsingar i sima
95-4319. Tilboðum skal
skilað til Kristjáns Jósefs-
sonar, Torfustöðum fyrir 10.
mai 1976. Réttur áskilinn til
að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Ljósmyndafyrirtæki
Til sölu af sérstökum ástæð-
um gamalt og rótgróið Ijós-
myndafyrirtaeki i borginni.
Fullkomin litstækkunartæki
ásamt öllum öðrum útbúnaði
sem þarf til Ijósmyndunar.
Verð 3,5 millj.
Tilboð sem greindi útborg-
unarmöguleika sendist Mbl
fyrir 30. april merkt: ..Hag-
kvæmt — 2073". Möguleiki
að taka litla ibúð upp i
kaupin.
□ GIMLI 59764267 — Lf.
Laugardagur
24. apríl kl. 13.30
Skoðunarferð um Reykjavík
undir leiðsögn Lýðs Björns-
sonar cand.mag. Fræðist um
sögu borgarinnar og kynnist
lífi hins liðna tíma.
Lagt upp frá Umferðamið-
stöðinni (að austanverðu).
Fargjald kr. 500 gr.v/bílinn.
Sunnudagur
25. apríl kl. 9.30
1. Gönguferð á Keili, um Sog
í Krísuvík. Fararstjóri: Hjálm-
ar Guðmundsson. Verð kr.
900 gr.v/ bílinn.
Kl. 13.00
2. Gönguferð um Sveifluháls
í Krisuvík. Fararstjóri: Einar
Ólafsson. Verð kr. 700
gr.v/ bílinn
Lagt upp frá Umferðarmið-
stöðinni (að austanverðu).
Ferðafélag íslands.
Fíladelfía
Almenn guðsþjónusta kl. 20.
Ræðumenn Óli Ágústsson og
Peter Inchcombe. Einsöngur
Svavar G uðmundsson.
Hjálpræðisherinn
Laugardag kl. 14 laugar-
dagaskóli i Hólabrekkuskóla.
Sunnudag kl. 1 1 helgunar-
samkoma. Kl. 14 sunnu-
dagaskóli, kl. 20.30 hjálp-
ræðissamkoma. Ofursti
Mollerim og frú frá Noregi,
deildarstjórahjónin ásamt for-
ingjum og hermönnum taka
þátt með ræðu og söng.
Allir velkomnir.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að
Óðinsgötu 6a á morgun kl.
20:30. Allir velkomnir.
ÚTIVISTARFERÐIR
Laugard. 24/4. kf. 13
ÁLFTANESFJÖRUR. Farar-
stj. Einar Þ. Guðjohnsen.
Verð 500 kr.
Sunnud. 25/4. kl. 13
1. MÓSKARÐSHNÚKAR-
TRANA. Fararstj. Einar Þ.
Guðjohnsen. 2. TRÖLLA-
FOSS og nágr., létt ganga.
Fararstj. Jón I. Bjarnason.
Verð 600 kr. Brottför frá
B.S.Í., vestanverðu.
Útivist.
K.F.U.M. Reykjavík
Almenn samkoma verður í
húsi félagsins við Amtmanns-
stig kl. 20.30, annað kvöld.
Hjalti Hugason Stud. Theol.
talar. Allir velkomnir.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
tilkynningar
Norræni búsýsluháskólinn
Innritaðir verða stúdentar i tvær deildir skólans fyrir haustönn
1 976. Umsóknarfrestur rennur út 1 5. júni 1 976.
Stúdentar sem lokið hafa kennaraprófi i hússtjórn eða handíð-
um sitja fyrir um skólavist. Námstíminn er 216 ár.
1. NÆRINGARFRÆÐIDEILD starfar við Háskólann i Osló, 16
stúdentar eru innritaðir árlega. Upplýsingar og umsóknareyðu-
blöð fást hjá : ERNÆRINGSLINJEN, NORDISK HUSHOLDS-
HÖGSKOLE, UNIVERSITETET ( OSLO, POSTBOKS 1046,
BLINDERN, OSLO 3.
2. TEXTILFRÆÐIDEILD starfar við Chalmers tækniháskólann í
Gautaborg, 8 stúdentar eru innritaðir árlega. Hafa ber sam-
band við: TEXTILLINJEN, NORDISKA HUSHÁLLSHÖGSKOL-
AN, CHALMERS TEKNISKA HÖGSKOLA, GÖTEBORG.
Beina má einnig fyrirspurnum til Vigdísar Jónsdóttur, skóla-
stjóra i sima 1 61 45 og 20299.
Menntamálaráðuneytið,
14. april 1976.
Auglýsing
um ferðastyrk til rithöf-
undar
í lögum nr. 28/1967, um breyting á og
viðauka við lög um almenningsbókasöfn
nr. 22/1963 er svofellt bráðabirgða-
ákvæði:
„Þar til gagnkvæmar höfundagreiðslur
vegna afnota í bókasöfnum innan Norður-
landa verða lögteknar er heimilt, ef sér-
stök fjárveiting er til þess veitt í fjárlög-
um, að veita rithöfundum styrki árlega til
dvalar á Norðurlöndum."
í fjárlögum fyrir árið 1 976 er 1 00 þús.
kr. fjárveiting handa rithöfundi til dvalar á
Norðurlöndum.
Umsóknir um styrk þennan óskast sendar
stjórn Rithöfundasjóðs íslands, Skóla-
vörðustíg 12, fyrir 10. maí 1976.
Umsóknum skulu fylgja greinargerðir
um, hvernig umsækjendur hyggjast verja
styrknum.
Reykjavík, 14. apríl 1976
Rithöfundasjóðir íslands.
1
Hafnarfjörður
Hvammar
Þeir aðilar sem telja sig eiga rétt, til lands
í Hvömmunum neðan Reykjanesbrautar
milli Kvíholts og Smárahvamms eru vin-
samlegast beðnir að gefa sig fram við
undirritaðan á skrifstofu bæjarverkfræð-
ings með heimildargögn sín.
Hafnarfirði 1. apríl 1976
Friðþjófur Sigurðsson
lóð arskrárritari.
Matreiðslumenn
á kaupskipum
Munið atkvæðagreiðslu um nýgerða
kjarasamninga við skipafélögin sem fer
fram að Óðinsgötu 7, Reykjavík. Skrif-
stofan er opin alla virka daqa frá kl
14—16.
Kosning fer fram frá 20. apríl — 14.
maí.
Stjórn Féiags Matreiðslumanna
Auglýsing
um bifreiðastöður
í Hafnarfirði
Að fengnum tillögum bæjarstjórnar Hafn-
arfjarðar og samkvæmt heimild í 65. gr.
umferðarlaga nr. 40/1968 er hér með
ákveðið að bifreiðastöður skuli bannaðar
að norðanverðu á Unnarstíg í Hafnarfirði,
frá og með 1 0. apríl 1976.
Þetta tilkynnist hér með öllum sem hlut
eiga að máli.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
7. apríl 1976.
Einar Ingimundarson.
Lóðaúthlutun
Sveitarstjórn Kjalarneshrepps hefur ákveðið að auglýsa eftir
umsóknum um lóðir undir einbýlishús, raðhús og iðnaðarhús i
nýskipulögðu byggðarhverfi i landi Grundar i Kjalarneshreppi
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá oddvita Kjalarnes-
hrepps, Fólkvangi. sími 66100 á mánudögum og laugardög-
um kl. 2—5 e.h. og fimmtudögum kl. 8 —10 e.h., og hjá
Verkfræðiskrifstofunni Ráðgjöf, Bolholti 4, Reykjavik kl. 5 — 7
e.h. nema fimmtudaga og laugardaga, simi 85720.
Fyrri umsóknir um lóðir verður að endurnýja.
Umsóknarfrestur er til 15. mai.
Sveitarstjórn.
Skipstjórar
útgerðarmenn
Get tekið að mér smíði og viðgerðir á
vatnatrömmum, krossviðarbátum, árabát-
um, trillubátum af öllum stærðum og
einnig dekkbátum allt að 20 tonnum.
Bátaverkstæði Birgis Þórhallssonar,
Óseyri 20, Akureyri, sími (96) 21231.
Getum bætt við okkur
allri innanhússsmíði skápum, eldhúsinn-
réttingum, sólbekkjum og baðherbergis-
innréttingum
Birki s.f.,
Hjallahrauni 10, Hafnarfirði,
sími 5 1402.
Mosfellssveit —
Kjalarnes — Kjós
Sjálfstæðisfélagið „Þorsteinn Ingólfsson" i Kjósarsýslu heldur
almennan félagsfund i Hlégarði, mánudaginn 26. april kl. 21.
Tekin verður ákvörðun um stofnun sjálfstæðisfélags i Mosfells-
hreppi.
Allt sjálfstæðisfólk i Kjósarsýslu er kvatt til að mæta.
Stjórnin.