Morgunblaðið - 24.04.1976, Page 28

Morgunblaðið - 24.04.1976, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRIL 1976 r A hættu- slóðum í IsraelE' S Sigurður Gunnarsson þýddi þess, að ég er á förum..Hann var dálítið þvermóðskulegur á svip og virti fyrir sér landslagið. . . Já, einmitt það, var þá Míron svona inni við beinið. En svo bætti Míron við, eins og hann væri í öðrum heimi: „Já, sjáðu til, — ég ætla að fara að gifta mig.. „Hvað segirðu?" Ætlar að fara að gifta sig,.. . hugsaði Óskar, ... Nei, honum gat ekki verið alvara,... Það voru aðeins hinir eldri, sem gerðu það. En Míron var nú eldri en hann,... og í þessu landi var einmitt algengt, að fólk gifti sig ungt. Og nú horföi hann undrandi á Míron, eins og hann gæti ekki trúað því, sem hann sagði. Þau hin heyrðu ekki það, sem Míron og Óskar töluðu um. r COSPER-------------\ Finnurðu ekki mömmu þína. — Hvernig Iflur hún út? „Já, nú hef ég tekið ákvörðun,“ sagði Míron. „Og þegar ég hafði gert það, var eins og fortíðin hyrfi að fullu,... Finnst þér það ekki skrítið,... allt það illa, sem ég hafði reynt og lifað,... flóttinn frá landi til lands,... Það hvarf allt úr vitund minni. Nú veit ég, að ég sezt að í þessu landi, og hér ætla ég alltaf að búa. Og þá varð líka sú breyting á mér, að ég þoldi að aka í bíl.“ Óskar sagðist skilja þetta, og það gerði hann í raun og veru, því að hann var sjalfur vesall flóttamaður. Hann þrýsti hönd Mírons innilega og óskaði honum til hamingju. Hann hallaði sér fram til þess aö ná til Esterar, því að hann ætlaði að óska henni líka til hamingju. Hann vissi, að það var Ester, sem hér átti hlut aó máli. En Míron hvíslaði ákafur: „Nei,... nei,... þú mátt alls ekki segja henni frá því. Hún veit ekkert um það enn þá... „Hvaö er nú þetta?“ kallaði Óskar hátt og í þetta sinn á norsku, sem varð til þess, að þau hin hrukku öll við í sætum sínum. „Nei, kallaðu ekki svona hátt, Óskar,“ sagði Míron,... „ég hef ákveðið að segja henni þetta í kvöld.“ En Óskar gat alls ekki stillt sig. Hann hló svo hátt, að hann var alveg að springa. Þau hin vildu aö sjálfsögðu vita, að hverju hann væri að hlæja, en Óskar varðist allra frétta... hann skyldi sýna Míroni, að þetta væri einnig leyndarmálið hans. Og svo var ekkert meira um það talað. Þau óku viðstöðulaust, sólin skein á heiðum himni, og fólk var alls staðar að vinna á ökrum og í aldinreitum meðfram veginum. Og hvarvetna sáust börn að leik. Allt þetta fólk var komið víðsvegar að úr heiminum, til þess að setjast að í landi feðra sinna, Israel. Og svo óku þau allt í einu inn í Haífa. Óskar varð gagntekinn einhverri ónota- tilfinningu: Eftir örfáar mínútur átti hann að fara um borð í skipið, sem hann hafði strokið frá. Og þarna var brytinn og skipstjórinn og allir hinir,—og hvað mundi eiginlega gerast? Honum leið svo illa, að hann gleymdi næstum því sorginni, sem því fylgdi að þurfa að skilja við vini sína í jeppanum. Hann var þögull og þungbúinn, þegar þau óku um hinar fjölförnu götur niður til hafnarinn- ar, þar sem skipið var. Já, þarna lá FÁLKINN bundinn við hafnarbakkann, með fánann við hún og nafnið málað með hvítum stöfum á bláan kinnunginn. En hann sá hvergi neinn mann á skipinu. MORddKf-íj^K’ KAtPINIi \\ r® Þú ert nýi maðurinn — ekki satt? Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að hvergi mun vatn að hafa á þessari eyju. Nei, ekki þessa sprautu. — Ég sagði stóru sprautuna. Kennarinn: — Jonni, til hvaða dýraflokks heldurðu að ég telj- ist? Jonni: — Ég veit það ekki. Pabbi segir, að þú sért gamall hani, en mamma segir, að þú sért slægur refur. X Frúin: — Getið þér ekki fengið eitthvað að gera? Flakkarinn: — Nei, það heimta allir að ég komi með meðmæli frá sfðasta atvinnurekanda. Frúin: — Og getið þér ekki fengið þau? Flakkarinn: Nei, það er nú ein- mitt það. Þér sjáið, hann dó fyrir 28 árum. X Lögregluþjónninn: — Hvernig vildi slysið til? Bflstjórinn: — Konan mfn sofnaði f aftursætinu. — Geturðu sagt mér hvað þarf mikið til þess að lifa af? — Já, legðu saman tekjur þfnar — hve miklar sem þær eru — og bættu svo við 25%. X Kennarinn: Þetta er f fimmta skiptið í þessari viku, sem þú kemur ólesinn f skólann. Hvað segirðu við þvf? Nemandinn: — Ég gleðst yfir þvf að það skuli vera kominn föstudagur. X Kennarinn: — t hvað mörgum styrjöldum tóku Spán- verjar þátt á 17. öld? Tommi: — Sjö. Kennarinn: — Sjö? Teldu þær upp. Tommi: — Fyrsta, önnur, þriðja, fjórða, fimmta, sjötta og sjöunda. Arfurinn í Frakklandi Framhaldssaga eftir Anne Stevenson Jóhanna Knstjónsdóttir þyd.d' 48 leyti. Þetta er harmleikur f vikt- orfönskum stfl. Ég er hinn glataði óskilgetni erfingi allra auðæf- anna. Minn nýfengni faðir ætlaði að ausa mig allri þeirri ást sem hann hafði ekki fengið að auó- sýna mér f þrjátfu ár. Elskuleg móðir mfn — sem er vfst allt önnur en ég hef talið hingað til — lézt þegar ég fæddist og svo ákvað hann frændi minn að myrða mig eins rösklega og fljótt og þvf yrði komið f kring. Þau voru kominn á aðalveginn inn f bæinn og hann notaði tfm- ann og sagði henni allt af létta sem Nicole hafði frætt hann um. — Og þú hélst þig vera að koma hingað til að ganga frá sölu á húsinu þfnu, sagði Helen. Hann hló. — Það er einmitt lóðið. — Trúirðu þvf sem hún sagði? — Ég veit ekki. Ég er hræddur um að ég geri það að ákveðnu marki. Ég er farinn að hallast að þvf að ekkert sé eíns og það virtist við fyrstu sýn. Þrjátfu æviárin mín eru að leysast upp og ég veit ekki lengur hver ég er. — Það er bara sárið, sagði Hel- en sefandi. — Þú ert sennilega að fá sótthita. — Nei, það er ekki sárið. Það er sú uppgötvun að ýmislegt f sam- bandi við mig og móður mfna, eða ætti ég kannski að kalla hana Simone, gæti skýrzt við þetta. — Það skýrir ekki dánu konuna f húsinu þfnu, sagði hún. — Mér var að detta svolftið f hug, sagði hann. — Aktu að hús- inu mínu. — Ég ætla að fara til gistihúss- ins fyrst, sagði hún. — Nei, sagði hann. — Ég man ég sá myndir uppi á loftinu. Ég þarf að athuga þær. Hún leit efagjörn á hann. — Helen. Ég verð að ganga úr skugga um þetta. Þau tala öll um sterkt svipmót sem ég beri af móður minni. Ég vil fá að sjá það sjálfur. — Allt f lagi, sagði hún. — Við skulum fara og athuga það. Þau óku áfram f tunglbjartri nóttinní gegnum þorpið sem þau höfðu áð f kvöldið áður. David sagði f samræðutón þeg- ar þau fóru hjá kránni. — Ég sat þarna á þessum guð- dómlega bar. Og vissi þá að ég clskaði þig. Éftir andartaks hik sagði hún: — Það var f skrifstofu umboðs- manns mfns f Parfs að Ijós rann upp fyrir mér og ég skildi að einhver hafði sent mig héðan til að hafa betri tök á þér. Þá vissi ég að ég elskaði þig. Ég hef aldrei verið jafn miður mfn af kvfða eins og ég var á leiðinni hingað aftur. — Ég vildi óska ég hefði vitað það. — Og þegar ég kom til hallar- innar og vinnufólkið sagðl mér hvað gerzt hefði, fannst mér að nú gæti ég drepið mann. Ég held ég geri það, ef önnur tilraun verður gerð. — Það var Paul sem skaut á mig, sagði David. — Ég held ekki að reynt verði aftur. Hættan er að öllum Ifkindum liðin hjá. — Þú hefur ekki keltneskt blóð sem streymir um æðar þfnar, sagði Helen. — Ef svo væri mvnd- frðu ekki tala svona. David brosti. — Ég vildi bara að ég hefði tvo heilbrigða handleggi og nægan tfma. Ég vildi ég hefði vitað að þú elskaðir mig áður en þú fórst til Parfsar. — Ég vissi það ekki. — Ertu viss um að þú getir elskað mann sem veit ekki einu sinni hvað hann heitir. Hún hló við. — Verður þú ekki afskaplega rfkur. Gerirðu þér ekki grein fyrir að ég er bara að ágirnast peningana þfna? — Ég skal segja þér, að ég er að velta fyrir mér, hvort Paul hafi ekki tekið skakkan pól f hæðina. Ég dreg mjög f efa að óskilgetinn sonur eigi erfðarétt. — Ég er sannfærð um að þvf má kippa f lag. Að minnsta kosti ef ég þekki Marcel rétt. Hann verður húinn að ganga frá þvf áður en minnst vonum varir. — Ahrifamikill aðili, hann Marcel vinur okkar, sagði David dreymandi. Éinkennilegur sljóleiki var að gagntaka hann. Nú fann hann ekki sársaukann eins nfstandi og áður. Hann lokaði augunum og sofnaði. Hann hrökk upp, þegar Helen lagði bflnum úti fyrir húsinu. En hann varð þess þá einnig vfsari að honum leið miklu verr en áður. Hann gat varla hreyft sára hand- legginn og kvalirnar höfðu vaxið og sársaukann lagði nú alveg upp f öxlina. — Hvernig líður þér, hvfslaði Helen. — Prýðilega. Geturðu hjálpað mér út úr hflnum. — Hún kom og hann hallaði sér að henni um leið og hann reyndi að mjaka sér með erfiðismunum út úr bflnum. Þegar hann stóð loks uppréttur herti hann takið utan um hana og fann svima yfir höfðinu. — Þú ert brennandi heitur, sagði hún. — Nóttin cr heit. — O, ekki aldeilis. Veðrið er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.