Morgunblaðið - 24.04.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1976
29
VELVAKArJCDI
Velvakandi svarar í slma 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Samkvæmisdansa
í sjónvarpið
G.K., sem er áhugasöm um
samkvæmisdansa skrifar:
Ég ætla að skrifa nokkrar línur,
sem ég hefi ekki gert fyrr. Mig
langar til að beina fáeinum orðum
til þeirra, sem stjórna dagskrá
sjónvarpsins. Hvernig stendur á
því að dans er aldrei, ég endurtek
aldrei, sýndur í sjónvarpi? Við
dansunnendur fáum ekki einu
sinni að sjá þætti með nemendum
og kennurum úr okkar skólum,
hvað þá að maður fari fram á að
sjá heimsmeistara- og evrópu-
meistarakeppnirnar, sem voru þó
alltaf sýndar, þar til fyrir
nokkrum árum. Ég veit að heims-
meistarakeppnin var sýnd í fyrra
úti í Kaupmannahöfn, einmitt um
þetta leyti. Nánar til tekið helgina
á undan pálmasunnudeginum.
Svo ekki er hægt að afsaka sig
með því að segja, að hún sé hætt.
Og eins eru alltaf keppnir á milli
Norðurlandanna, bæði áhuga- og
atvinnudansara. Og mér er spurn:
af hverju er ekki hægt að fá þessa
þætti til landsins, eins og t.d.
ensku knattspyrnuna, sem alltaf
er á laugardögum. Þó það komi
nú frá okkar mesta óvini „Eng^
landi“.
Það er furðulegt að íþróttaunn-
endur fá IV4 klst. þátt á hverjum
laugardegi og 'A klst. þátt á
hverjum mánudegi, fyrir utan nú
knattspyrnuna, sem er 1 klst.
þáttur. En dansunnendur fá
aldrei neina þætti. Væri nú ekki
hægt að kippa þessu í lag?
% Vinnurof
lítið
Grétar Þ. Hjaltason á Sel-
fossi skrifar?
Alveg er ég hjartanlega sam-
mála konunni, sem skrifaði í dálk
þinn þann 13. þ.m. Fólk vinnur
alltof lítið. Það er engin afsökun,
að ekki sé hægt að vinna lengur
en myrkranna á milli þegar allur
þessi ljósabúnaður er við höfum
yfir að ráða nú til dags, gerir
okkur kleift að vinna stanzlaust,
þar til við dettum niður af þreytu.
Og allt þetta fótboltaspark, sem
nú er stundað i landinu, er hrein
þjóðarskömm. Væri þessum
sparklýð nær að hundskast upp til
afdala, á eyðibýlin, með gaffal í
hönd og fara að pæla. Því ólíkt er
skemmtilegra að sjá sjötuga
manneskju sleikja fyrirhafnar-
laust á sér tærnar en horfa á
þessa fótboltagaura, sem ganga
uppréttir og eru ekki nema örlítið
hjólbeinóttir.
Ég veit vel hvað ég er að segja,
þvi ég stundaði fótbolta í 40—50
ár, án þess svo mikið sem að verða
orðaður við landsliðið. Nei, föt-
boltalýðurinn ætti í mesta lagi að
fá 16 krónur úr landsjóði. Sextán
milljónir eru hrein landráð.
# Sprengingaleyfi
Kona ein, sem býr nærri
nýja miðbænum svokallaða i
Reykjavik, hafði samband við
Velvakanda og var að velta fyrir
sér hvort eftirlit væri með spreng-
ingum, eins og þeim, sem fara
fram vegna nýbygginga og gatna-
gerðar á þessum stað. Fannst
henni sprengingarnar æði miklar.
Velvakandi fékk þær upplýs-
ingar hjá öryggiseftirlitinu, að
ekki mættu aðrir annast spreng-
ingar en þeir, sem hefðu til þess
tilskilin leyfi. Um útgáfu þeirra
sjá sýslumenn, bæjarfógetar og
lögreglustjórar í Reykjavík. Þess-
ir menn, sem eiga að kunna með
sprengiefni að fara, bera svo
ábyrgðina á verkinu. Og hjá borg-
inni fékk Velvakandi þær upplýs-
ingar að ekki væru aðrir menn til
þess hafðir að annast sprengingar
en þeir, sem hefðu sprengileyfi.
Þessir menn ættu því að kunna
með sprengiefni að fara og vita
hvaða styrkleika þarf í einstökum
tilvikum, hvernig á að meðhöndla
sprengiefnið og hve sterkar
spreningar eru hæfilegar frá
öryggissjónarmiði
% Að gifta
sig ungur
í nútímaþjóðfélagi færist
giftingaraldurinn alltaf niður,
segir í frétt frá Köln i Þýzkalandi,
sem fylgir þessari mynd, sem Vel-
vakanda fannst skemmtileg. í
skoðanakönnun, sem fram fór í
Vestur-Þýzkalandi nýlega, kom
fram að ungt fólk, á aldrinum 13
til 24ra ára, þráir það að fara að
heiman og lifa eigin lífi og lætur
sifellt yngra af því verða. Þegar
aldur fullveðja var í fyrra færður
þar í Iandi úr 21 árs niður í 18 ár,
fylltust allar kirkjur og bæjar-
fógetaskrifstofur af brúðhjónum.
Hjónabandið virðist því ekkert
hafa misst aðdráttaraflið. Brúð-
kaup þar sem brúðurinn klæðist
hvítu og brúguminn fer í tilsvar-
andi spariföt — þó pípuhattur
þurfi ekki að fylgja — viðast al-
veg jafn eftirsóknarverð og fyrr.
En myndina og textann birtir Vel-
vakandi hér til gamans.
napurt. Þú ættir að vera f rúminu
með margar sængur ofan á þér.
— Alveg sammála.
Hann sneri höfðinu og fann
varir hennar. Kossinn var langur
og hann andvarpaði af vellfðan
þegar hann færði sig frá henni.
Loks sagði Helen.
— Ef við ætlum að fara inn f
húsið ættum við að gera það strax.
Hann var tregur til þess og
fannst hann ekki hafa þrek til að
hreyfa sig.
— Biddu meðan ég finn lykil-
inn sagði hann. — Ég cr með
lyklakippuna einhvers staðar
hérna.
Þau gengu hægt eftir stéttinni
og upp að húsinu. David hélt
dauðahaldi um Helen. t nátt-
myrkrinu gnæfði húsið eins og
draugahús — eða cins og köttur í
viðbragðsstöðu hugsaði hann með
sér.
— IVtér er farið að þykja vænt
um þetta Ijóta hús, sagði hann.
Helen sagði kurteislega.
— Eg býst við það hafi sinn
sjarma.
Hann hló. Hvernig væri hann á
sig kominn án hennar, hugsaði
hann. Allt þetta einkennilega
sem hafði verið að gerast sfðustu
sólarhringana og hafði snúið Iffi
HÖGNI HREKKVÍSI
eggjaleit!“
Grásleppuveiðimenn
Erum kaupendur eða tökum í umboðssölu
söltuð grásleppuhrogn, ennfremur kaupum við
grásleppu eða óverkuð grásleppuhrogn á
Reykjanessvæðinu
Borgartúni 29 Pósth. 1128
Símar: 23955, 26950 Rvik
GRÆNLANDSVIKA
í Norræna húsinu
Dagskrá 24.4. — 26.4.
Laugardagur 24. apríl
17:00 Listsýning í sýningarsölum í kjallara og bóka-
sýning i bókasafni — opnar almenningi
17:15 Fyrirlestur — KARL ELIAS OLSEN, skóla-
stjóri: „Grönlands plads i nordisk samarbejde''
20:30 Kvikmyndasýning: „Palos brudefærd"
22:00 Kvikmyndasýning: „Knud" (um Knud Ras-
mussen)
Sunnudagur 25. apríl
kl. 14:30 HANS LYNGE og KRISTIAN OLSEN kynna
bókasýninguna í bókasafni
16:00 Kvikmyndasýning
17:15 Fyrirlestur um náttúru Grænlands. H.C.
PETERSEN, f.v. lýðháskólastjóri.
20:30 Grænlenzkar bókmenntir:
HANS LYNGE, KRISTIAN OLSEN, AQUIGISSIAQ
MÖLLER og ARKALUK LYNGE lesa úr eigin verkum,
KARL KRUSE kynnir. EINAR BRAGI kynnir græn-
lenzk Ijóð i íslenzkri þýðingu.
Mánudagur 26. apríl
kl. 15:00 Kvikmyndasýning
17:15 Fyrirlestur: „Den grönlandske sag", H.C.
Petersen, f.v. lýðháskólastjóri
20:30 Sýningarsalir í kjallara:
Karl Kruse og Martha Labansen kynna og ræða um
listsýninguna.
22:00 Kvikmyndasýning
NORR'ENA HUSIO POHjOLAN TAIO NORDENS HUS
kl.
kl.
kl.
kl.
kl
kl.