Morgunblaðið - 24.04.1976, Side 30

Morgunblaðið - 24.04.1976, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1976 Tíu keppa um Grettisbeltið l I 1 Unglingasundmót Unglingasundmót Ægis fer fram F Sundholl Reykjavikur sunnudaginn 25. aprFI n.k. og hefst kl. 15.30. Keppnisgreinar verða eftirtaldar: 50 metra bringusund telpna. 50 metra flugsund sveina. 100 metra skrið- sund stúlkna, 100 metra bringusund sveina, 100 metra bringusund telpna. 100 metra skriðsund drengja, 50 metra skriðsund telpna, 50 metra skriðsund sveina 50 metra baksund telpna, 50 metra baksund sveina, 4x50 metra skriðsund stúlkna og 4X50 metra fjórsund Myndin fil hægri sýnir Agúst Asgeirsson koma f mark sem sigurvegara f Vfðavangshlaupi IR, en á mvndinni til vinstri berjast tveir ungir kappar harðri baráttu á lokasprettinum. ÁGllST VAil MED IKKRli VFIIiJillHHM OG íli IILUT WIÁ lilKARA VÍBAVMGSHLAllPSH ÍSLANDSGLlMAN 1976 fer fram f Iþróttahúsi Kennaraháskóla tslands á morgun, sunnudaginn 25. aprfl, og hefst keppni kl. 14.00. Keppendur f glfmunni eru tíu talsins og helmingur keppenda, kemur frá Héraðssam- bandi S-Þingeyinga. Má segja að Þingeyingarnir haldi merki íþróttarinnar hátt á ioft með þátt- töku sinni f glímunni og ekki er heldur ólfklegt að Grettisbeltið einn veglegasti verðlaunagripur, sem keppt er um hérlendis, fari norður að þessu sinni. Keppendurnir i Islandsglím- unni verða eftirtaldir: Eyþór Pétursson, HSÞ. Guðmundur Freyr Halldórsson, A, Guðmund- ur Ólafsson, Á, Guðni Sigfússon, Á, Halldór Konráðsson, V, Hjör- leifur Sigurðsson, HSÞ, Ingi Þ. Yngvason, HSÞ, Kristján Yngva- son, HSÞ, Pétur Yngvason, HSÞ, og Þorsteinn Sigurjónsson, V. Meðal sterkra glímumanna sem vantar í keppnina að þessu sinni eru þeir Sigurður Jónsson, V, Hjálmur Sigurðsson, V, og Jón Unndórsson, KR. Ætla má að Islandsglíman verði óvenjulega tvísýn að þessu sinni, en búast má við að baráttan standi milli núverandi glímu- kóngs, Péturs Yngvasonar, Tví- burabróður hans Inga, Guðmundur Ólafssonar og Þor- steins Sigurjónssonar, en einnig kann svo að fara að hinn efnilegi glímumaður Eyþór Pétursson blandi sér nú í baráttuna. í íslandsglímunni eru einnig veitt verðlaun fyrir fagra glímu, og er handhafi þeirra verðlauna frá síðustu Islandsglímu Pétur Yngvason. Pétur hefur nú um nokkurt skeið keppt fyrir Ung- mennafélagið Víkverja, en hefur nú flutzt norður til sinnar heima- byggðar og keppir fyrir sitt gamla félag að nýju í íslandsglímunni. EINS OG vænta mátti varð Ágúst Asgeirsson öruggur sigurvegari I vfðavangshlaupi ÍR sem fór fram að venju á sumardaginn fyrsta. Tók Ágúst þegar forystu f hlaup- inu og hélt henni allt til loka, og hljóp hann geysilega vel. Er greinilegt að Ágúst er f hörkuæf- ingu um þessar mundir, og ef að Ifkum lætur nær hann markmiði sfnu að komast á Ólympfuleikana f Montreal. Rösklega 100 hlauparar voru skráðir til leiks í víðavangshlaup- ið að þessu sinni, en ekki reynd- ust nema 65 mættir þegar hlaupið hófst I Hljómskálagarðinum. Hefðu allir þessar hlauparar lokið keppni hefði það verið meira en nokkru sinni fyrr í víðavangs- hlaupi IR, en fimm hættu hlaup- inu, þannig að 60 komu í mark — fjórum færri en bezt hefur gerzt áður. Sem fyrr segir hafði Agúst Ás- geirsson tekið forystu í hlaupinu áður en komið var út úr Hljóm- skálagarðinum, en þaðan var hlaupið suður í vatnsmýrina og til baka um Aðalstræti og hlaupi lok- ið í Austurstræti við Landsbank- ann, þar sem mikill mannfjöldi hafði safnazt saman til þess að fylgjast með úrslitum í hlaupinu. Varð áhorfendafjöldinn til þess að sumir keppendurnir luku ekki hlaupinu. Nokkrir ungir drengir sem voru aftarlega í hópnum misstu kjarkinn er þeir sáu áhorf- endafjöldann og létu sig hverfa, fremur en að ljúka síðustu metr- um hlaupsins. Það vakti athygli að þessu sinni hversu mikill munur var á hlaup- urunum þegar í markið kom. Þannig var Jón Diðriksson, sem varð annar, 13 sekúndum á eftir Ágústi og Ágúst Þorsteinsson, fé- iagi Jóns úr UMSB, sem varð þriðji, var rösklega hálfri mínútu á eftir Jóni. Var ekki um keppni um sæti að ræða fyrr en síðar i hlaupinu, og þá milli ungu mann- anna, sem sannarlega gáfu ekkert eftir, enda þarna líka verið að berjast um sigur i sveitakeppni. Margir hlauparar vöktu sér- staka athygli í þessu hlaupi og ber þar að nefna Guðmund Geirdal úr Kópavogi sem hljóp geysilega vel og kom 8. i mark. Þarna er mikið efni á ferðinni, en Guðmundur er kornungur piltur. Þá vakti ekki síður athygli frammistaða yngsta keppandans, Alberts Imslands úr Leikni. Hann er aðeins 10 ára, en varð í 17. sæti. Mikið má vera ef ekki á eftir að heyrast verulega frá þeim pilti eftir svo sem ára- tug. Það var sannkallaður ÍR-dagur á fimmtudaginn, er stigin í sveita- keppninni voru gerð upp, þar sem ÍR-ingar hlutu nú alla þá bikara sem keppt var um f Víðavangs- hlaupinu. I 3 manna sveitar- keppni hlaut A-sveit ÍR 6 stig, B-sveit IR 19 stig, A-sveit UBK 21 stig og C-sveit ÍR 34 stig. I fimm manna sveitakeppninni þar sem keppt var um FIAT-bikarinn hlaut A-sveit ÍR 17 stig, A-sveit UBK 54 stig, B-sveit lR 56 stig og C-sveit ÍR 114 stig. I 10 manna sveitakeppninni hlaut A-sveit ÍR Morgunblaðsbik- arinn sem nú var keppt um í fyrsta sinni, hlaut 70 stig, sveit UBK hlaut 159 stig og B-sveit IR 237 stig. I sveit þriggja kvenna var einnig keppt um nýjan Morg- unblaðsbikar og hlaut iR-sveitin þar lægstu hugsanlega stigatölu, 6 stig. Veitt voru verðlaun fyrir elztu fimm manna sveitina og hlaut IR þann bikar þar sem sam- anlagður aldur fimm elztu kepp- enda félagsins var 132 ár. Elzti keppandinn i hlaupinu var hins vegar Jón Guðlaugsson, HSK, sem hljóp mjög vel að þessu sinni og varð í 22. sæti. Jón er rösklega fimmtugur. Ragnhildur Pálsdóttir úr KR varð fyrst þeirra kvenna sem kepptu í hlaupinu, en tvær ungar og mjög efnilegar stúlkur, Inga Lena Bjarnadóttir úr IR og Thelma Björnsdóttir, UBK, voru ekki langt á eftir henni. Urslit í víðavangshlaupinu urðu sem hér segir: Ágúst Ásgeirsson IR 12:21,8 Jón Diðriksson UMSB 12:34,4 Ágúst Þorsteinsson UMSB 13:10,0 Gunnar Páll Jóakimssson IR 13:26,0 Júlíus Hjörleifsson iR 13:33,0 Hafsteinn Óskarsson ÍR 13:36,0 Ágúst Gunnarsson UBK 13:40,0 Guðmundur Geirdal UBK 13:50,0 Einar P. Gúmundsson, FH 13:52,0 Þorgeir Óskarsson IR 14:04,0 Gunnar Ó. Gunnarsson UNÞ 14:33,0 Þórður Gunnarsson HSK 14:36,0 Hartman Bragason UMFS 14:44,0 Sumarliði Óskarsson IR 15:17,0 Jörundur Jónsson ÍR 15:24,0 Haukur Sveinsson UBK 15:25,0 Albert Imsland Leikni 15:30,0 Guðjón Ragnarsson ÍR 15:32,0 Sigurjón Andrésson ÍR 15:46,0 Sveinn Guðmundsson ÍR 15:49,0 Reynir Þorsteinsson Leikni 15:51,0 Jón Guðlaugsson HSK 15:56,0 Óskar Pálsson KR 16:09,0 Helgi Hauksson UBK 16:12,0 Hafsteinn Jóhannesson UBK 16:21,0 Ásbjörn Sigurgeirsson IR 16:25,0 Guðni Sigfússon UBK 16:29,0 Ragnhildur Pálsdóttir KR 16:34,0 Kristján Jónsson Leikni 16:35,0 Ulfar Guðmundsson UBK 16:45,0 Atli Þór Þorvaldsson IR 16:46,0 Inga Lena Bjarnadóttir IR 16:50,0 Thelma Björnsdóttir UBK 16:53,0 Óli G. Kristjánsson ÍR 16:56,0 Markús Einarsson UBK 16:57,0 Skúli Guðbjartsson IR 17:03,0 Stefán Stefánsson IR 17:24,0 Sigurður Erlingsson IR 17:24,0 Guðmundur Valdimarsson lR 17:28,0 Karl West Fredriksen UBK 17:40,0 Jón Guðiaugsson, elzti keppandinn f vfðavangshlaupinu, rúmlega fimmtugur. Þórarinn Bjarnason UBK 17:40,0 Lilja Steingrímsdóttir USVS 17:41,0 Sigurjón Björnsson IR 18:22,0 Agnes Guðmundsdóttir UMSB 18:26,0 Ragnar Baldursson IR 18:42,0 Kristín Sigurbjörnsdóttir ÍR 18:45,0 Aðalsteinn Björnsson IR 18:51,0 Steinn Pétursson UBK 19:04,0 Hálfdan Ingason ÍR 19:06,0 Oddur Oddsson, Leikni 19:08,0 Sólveig Pálsdóttir KR 19:10,0 'ltristrún Gunnarsdóttir Leikni 19:16,0 Margrét Óskarsdóttir IR 19:48,0 Engilbert Imsland Leikni 19:53,0 Guðmundur Ásbjörnsson, IR 19:53,0 Andrés Sigurjónsson IR 19:53,0 Margrét Reynisdóttir IR 20:25,0 Sigurður Þór Sigurðsson ÍR 20:29,0 Jakob Stefánsson ÍR 20:33,0 Leikið í Keflavík Kl. 14.00 f dag fer fram einn leikur f Litlu-bikarkeppninni f knattspyrnu. Keflavfk og FH leika f Keflavík. Haukar hafa nú forystu f keppninni með 4 stig, UBK er með 4 stig, FH er með 1 stig, lA með 1 stig og IBK með 0 stig. Með sigorbros á vör ÞAÐ er tæpast hægt að segja annað en að þessar tvær ungu stúlkur séu með sigurbros á vör, enda ástæða til. Þær höfðu, er myndin var tekin, nýlega tekið við eftirsóknarverðustu verðiaunagripum sem keppt er um í fslenzkum kvennahandknattleik. Það er Oddný Sigsteínsdóttir sem er til vinstri og er hún með tslandsbikarinn, en til hægri er Erla Sverrisdóttir fyrirliði Ármannsliðsins sem sigurlaunin f bikarkeppni HSl, verðlaunagrip sem Morgunblaðið gaf til þessarar keppni. Hand- knattieiksfólk hélt uppskeruhátfð sfna s.l. miðvikudagskvöld og þar tóku við verðlaunum sfnum Islandsmeistarar og bíkarmeistarar karla og kvenna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.