Morgunblaðið - 24.04.1976, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 24.04.1976, Qupperneq 32
Landsmenn heilsuðu sumri í sumarveðri og var hiti á landinu vfða 10—15 stig. Mikil þátttaka var f hátfðahöldum dagsins og fjölmenntu börn f skrúðgöngu, f Reykjavík sem annars staðar á landinu. Sjá nánar frá hátíðahöldum í Reykjavík á bls 10 og 11. Ljðsmynd Friðþjófur „Ef ekkert verð- ur gert er sjálffar- ið úr Skógum” — segir Margrét Guðmundsdóttir hús- freyja. Ekki fært í útihús nema á báti „Það er gæfan ein sem ræður hvað verður um okkur hér í Skóg- um," sagði Margrét, „ég veit ekki enn hvort við gefumst upp hér. Ef ekkert verður gert til varnar flóðum er sjálffarið, en það er hægt að ryðja upp varnargörðum Framhalcl á bls. 19 Rithöfundaráð * Islands býður Solzhenitsyn til Islands í sumar „ÞAÐ er vægast sagt hörmulegt að búa hér f Skógum núna og það er ekki hægt að komast nálægt fjár- húsunum, nema á báti. Nú orðið sjáum við ekki út úr þessu og ég veit ekki hvað er til ráða ef veður versnar, en þá þarf að flytja ærnar eitthvað sem komnar eru að burði og fólkið verður að fylgja með“, sagði Margrét Guðmundsdóttir f Skógum f öxarfirði f samtali við Morgunblaðið f gær, en öll útihús í Skógum eru nú mikið til á kafi f vatni vegna flóða f Jökulsá í Öxar- firði. Ekki er flóðið f ánni þó meira en oft á vorin, en vegna landsigsins f jarðskjálftunum s.l. vetur liggur Skógalandið nú lægra en áður. Brezki flotinn treystir sér ekki til að veria 2 veiðisvæði r r . Osk um opnun nýs svæðis við lsland senni- . . i ri *• , 11 • * • — segir J6n Ulgeirsson lega hatnað þar sem tlotinn á ekki skip _° Ösk um opnun nýs svæðis við lsland senni- lega hafnað þar sem flotinn á ekki skip BREZKIR togaraeigendur og I ráðuneytið að opnað verði annað sjómenn á togurum, sem stunda veiðisvæði fyrir brezka togara á veiðar á Islandsmiðum, hafa farið fslandsmiðum, þannig að þau þess á leit við brezka varnarmála- | verði tvö, en fram til þessa hefur Nýr jarðbor í boði lSLENDINGUM hefur verið boð- inn til kaups nýr, kraftmikill jarðbor frá Houston f Bandarfkj- unum. Er borinn tilbúinn til af- hendingar strax. Þessi bor getur borað niður á 15 þúsund feta dýpi, eða 5 kflómetra, en til sam- anburðar má geta þess að stóri borinn, Jötunn, getur borað niður á 12 þús. feta dýpi eða 4 kfló- metra. Jón Sólnes formaður Kröflu- nefndar, sagði í samtali við Morg- unblaðið i gær, að tilboð um þenn- an bor hefði borizt fyrir nokkrum dögum. Ætti hann að kosta 2.6 millj. dollara eða 465 millj. króna og væri borinn boðinn á góðum kjörum með lánum til langs tíma. Þá sagði Jón Sólnes að tæki i Kröfluvirkjun streymdu nú til landsins og stæðust allar afhend- ingar á þeim. Fyrir nokkrum dög- um komu hlutar af kæliturnum sem verða við virkjunina. Eru það mikil mar'nvirki og verða þeir reistir utandyra. Þá kom skeyti frá Japan i fyrradag um að búið væri að setja fyrri túrbinu virkj- unarinnar i skip, sem færi áleiðis til Evrópu. Er gert ráð fyrir að Varð fyrir skoti UM kl. 23 í gær var komið að manni sem lá við strætisvagnabið- skýlið á Grensásvegi. Var þegar kallað á lögreglu og í ljós kom, að skot hafði hlaupið i höfuð manns- ins, og var hann fluttur rænulaus á sjúkrahús. Maðurinn mun hafa verið með riffil innan klæða og skot hlaupið úr honum á einhvern hátt. Þegar Morgunblaðið fór í prentun var málið enn í rann- sókn. túrbínunni verði skipað á land á Húsavík i júní. „En það er til lítils að fá öll þessi tæki, ef ekkert verður bor- að, þvi þá kemur aldrei nein gufa," sagði Jón Sólnes að lokum. flotinn eingöngu treyst sér til að verja eitt svæði. Bill Smartt, fréttarritari Mbl. i Hull, segir í skeyti í gær, að togaraeigendur hafi óskað þess sama s.l. vetur, en þá hafi svarið verið neikvætt. Bæði vantaði verndarskip og ekki væri hægt að verja mörg svæði yfir vetrar- tímann. Talið er að viðræður um þetta mál fari fram i næstu viku. Morgunblaðið hafði samband við Jón Olgeirsson ræðismann í Grimsby i gær og spurði hann álits á þessari beiði útgerðarmanna og sjómanna. Jón Olgeirsson sagði, að togara- eigendur og sjómenn væru mjög óánægðir með að fá aðeins að veiða á einum stað og legðu nú fast að stjórnvöldum að opna nýtt veiðisvæði. Yfirstjórn brezka flotans bæri þvi hins vegar við, að flotinn gæti ekki látið i té fleiri skip til starfa á íslandsmiðum, þau væru þar nógu mörg fyrir. — Mér heyrist líka á útgerðarn/ðnnum, að þeir séu vondaufir um að þessi krafa þeirra nái fram að ganga. Rithöfundaráð lslands ákvað á stjórnarfundi f gær að bjóða sovézka skáldinu Alex- ander Solzhenitsyn til Islands f sumar, ef skáldið sér sér fært að koma hingað. Indriði G. Þorsteinsson, for- maður Rithöfundaráðsins, sagði í samtali við Morgunblað- ið í gærkvöldi, að sér hefði verið falið á fundi Rithöfunda- ráðsins að skrifa umboðs- manni Solzhenitsyn, Claud Durand í Paris bréf og spyrjast fyrir um hvort Solzhenitsyn gæti þegið boð um að koma til tslands í sumar. Sagði Indriði, að sér hefði einnig verið falið að annast undirbúning að komu skálds- ins, ef úr þvi gæti orðið að það kæmi og myndi hann hafa strax samband við rithöfunda- samtökin, en þau myndu vafa- laust taka þátt i frekari undir- búningi. Solzhenitsyn býr um þessar mundir í Sviss, en þar hefur hann búið frá þvi að hann var rekinn í útlegð. Björn Pálsson: Kæri sýslumann fyrir inn- brot og röskun heimilisfriðar Styðst við nýja reglugerð, segir Jón ísberg sýslumaður TIL sviptinga kom f gær, þegar baða átti fé Björns bónda Pálssonar á Ytri-Löngumýrl með valdi. Átta baðmenn undir forystu Eggerts Lárussonar f Hjarðartungu komu ásamt lögreglu- mönnum að Löngumýri f gærmorgun og hófu að baða féð. Björn Pálsson var ekki beint hrifinn af þessu og skömmu sfðar komu um 20 manns frá Skagaströnd og stöðvuðu böðunina, en er þeir komu var búið að baða rétt rúmlega 200 fjár en alls á Björn um 1100 fjár. Björn Pálsson ákvað f gær að kæra sýslumann Húnvetninga fyrir innbrot f fjárhús sfn og röskun á heimilisfriði. Siðastliðiö haust ákvað Land- bæði lögleysu og vitleysu að baða féð tvisvar. Björn telur sig hafa baðað féð einu sinni og það sé nóg. „Ég sendi Birni bæði sím- skeyti og bréf á sínum tima og fór til hans sjálfur," sagði Jón tsberg sýslumaður á Blönduósi í gær þegar Morgunblaðið ræddi við hann. „Að endingu setti ég upp sakadóm hjá honum og spurði hann búnaðarráðuneytið að baða skyldi allt fé tvisvar sinnum milli Miðfjarðargirðingar og Héraðsvatna, en síðan var þessari ákvörðun breytt i milli Héraðsvatna og Blöndu. Var það gert vegna margra kláðatil- fella sem höfðu komið upp. Menn böðuðu fé sitt yfirleitt tvisvar, nema hvað Björn Fáls- son þráaðist við og taldi það hvort hann ætlaði að baða aftur. Hann hvorki neitaði né játaði, svo ég úrskurðaði i rikis- sakadómi, að því að það er sagt í lögum um fjárbaðanir að fara eigi að hætti opinberra mála að heimilt væri að baða hjá honum. Þá var nýbúið að gefa út nýja reglugerð, eða viðbót við fyrri reglugerð, með hlið- Sjón af fénu hans Björns. Sú reglugerð kom út 17. eða 18. marz. Svo gerðist það að Björn kær- ir þennan úrskurð til Hæsta- réttar og á meðan lét ég fresta framkvæmd úrskurðarins, en siðan telur meirihluti Hæsta- réttar þennan úrskurð ekki gildan. Byggðist það á því að Landbúnaðarráðuneytið hafði ekki tilkynnt þessa böðun í Lögbirtingarblaðinu, eins og því bæri. En það eru engin ákvæði um þetta i lögum um f járbaðanir heldur bara almenn ákvæði um birtingu opinberra tilkynninga. Björn hafði viðurkennt fyrir mér, að hann hefði vitað um þetta, heyrt þetta lesið i útvarpi. Þá segir í dómi Hæstaréttar, að þetta falli ekki undir sýslu- mann sem dómara heldur sem lögreglustjóra. í krafti þess fór ég af stað í morgun til baða og var búinn að baða eitthvað 211 fjár, þegar hópur manna kom utan af Skagaströnd og torveld- aði okjjjur starfið og við vildum ekki lenda í handalögmálum við þá og-hættum böðun," sagði Jón tsberg að lokum. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við Björn Pálsson bónda á Ytri-Löngumýri og spurði hvað hann vildi segja um böðunar- málið í gær. „Jú, sýslumaður kom að Ytri- Löngumýri í morgun við tíunda mann og hóf að baða fé Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.