Morgunblaðið - 24.06.1976, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 24.06.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JUNl 1976 3 Fulltrúar Stórstúkunnar á blaðamannafundinum. Frá vinstri: Kristinn Vil hjálmsson, Hilmar Jónsson, Ari Gislason, Bergþóra Jóhannsdóttir, Ólafur Þ. Kristjánsson og Ólafur Haukur Árnason. Ljósmynd Mbl. Friðþjófur. 90. þing Stórstúku íslands sett í dag Hátíðarfundur í Alþingishúsinu þar sem reglan var stofnuð „GÓÐTEMPLARAREGLUNNI var mjög vel tekið á sínum tíma," sagði Ólafur Þ. Kristjánsson stórtemplar á fundi með fréttamönnum i tilefni 90. þings stórstúkunnar, sem hefst i dag með setningu i Alþingishúsinu, en þar var stórstúkan stofnuð fyrir 90 árum. „Margir framámenn i landinu á þeim tima," hélt Ólafur áfram, „gengu til liðs við regluna og þetta var fyrsti félagsskapurinn á Íslandi þar sem konur voru fullgildir félagar. Reyndar töldu nú sumir á þeim tfma að það hlyti þess vegna að vera eitthvað bogið við starfsemina og að siðgæðið á fundum væri ekki upp á það bezta, en þannig var reglan brautryðjandi í mörgu er litur að félagsstarfsemi á íslandi og t.d. voru barnastúkurnar fyrstu félögin á land- inu sem voru stofnuð fyrir börn." Stórstúka íslands var stofnuð 24 júní 1886 í Alþingishúsinu. Stofnend- ur voru 17 fulltrúar frá 14 stúkum, er töldu alls 542 félagsmenn, konur og karla, en stúkurnar voru fyrsti félags- skapur é íslandi þar sem konur höfðu jöfn réttindi og karlar Fyrsta stúkan hér á landi var stofnuð 10. janúar 1884, stúkan ísafold á Akureyri, og starfar hún enn Stofn- endurnir voru 12. Fyrsta stúkan sunn anlands var Verðandi í Reykjavik, stofnuð 3 júlí 1885 Hún hélt upp á 90 ára afmæli sitt í fyrra og einnig tvær aðrar stúkur, Morgunstjarnan í Hafnarfirði og Einingin í Reykjavík. En unglmgareglan — barnastúkurnar — sem starfar á vegum Góðtemplararegl urlnar, átti 90 ára afmæli nú í vor; þá varð barnastúkan Æskan i Reykjavik 90 ára (stofnuð 9. maí 1 886). Félagsmenn Reglunnar eru nú um hálft þriðja þúsund og að auki félagar í barnastúkunum, en þeir eru um þrjú þúsund, samtals hálft sjötta þúsund Stórstúkan hefur i meira en 75 ár gefið út barnablaðið Æskuna Á vegum blaðsins er rekin verzlun með bækur og ritföng á Laugavegi 56 í Reykjavik Tilgangur Góðtemplarareglunnar hefur alla tíð verið og er enn að vinna gegn áfengisneyzlu og jafnframt að efla heilbrigt menningar- og félagslíf Reglan hóf starfsemi sína hér á landi þegar drykkjuskapur var hér bæði mik ill og almennur. Ástandið nú er einnig á þann veg, að ærin þörf er fyrir starfsemi hennar og annarra bindindis samtaka Stórstúkan telur að bezta og áhrifa- mesta bindindisboðunin sé að vera sjálfur bindindismaður og í orði og verki Sérhver bindindismaður gerir al- Framhald á bls. 20 Ráðherrar ræddu fjár- málin á fundi í Álaborg Morgunblaðinu barst í gær eft- irfarandi fréttatilkynning frá fjármálaráðuneytinu: DAGANA 16. og 17. júní var fundur fjármálaráð- herra Norðurlanda hald- inn í Álaborg í Danmörku. Fundinn sátu ráðherrarnir Per Kleppe frá Noregi, Gunnar Stráng frá Svíþjóð, Esko Rekola frá Finnlandi, Knud Heinesen og Svend Jakobsen frá Danmörku. Af íslands hálfu sat Matthías Á. Mathiesen fjármálaráðherra fundinn ásamt Gísla Blöndal hag- sýslustjóra, en auk ráð- herranna tóku ýmsir emb- ættismenn fjármálaráðu- neytanna þátt í fundinum. Á ráðherrafundum þessum, sem venjulega eru haldnir tvisvar á ári, eru rædd sameiginleg mál- efni á sviði ríkisfjármála. Sem fyrr gerðu ráðherrarnir á þessum fundi grein fyrir efnahagsþróun- inni hver i sínu landi og horfum í þeim málum. Auk þess voru að þessu sinni tekin fyrir ýmis sér- stök málefni, svo sem fyrirhugað rannsóknarverkefni á vegum OECD um þróunartilhneigingar í efnahags- og félagsmálum, norr- æni fjárfestingarbankinn og væntanleg starfsemi hans, norr- ænt samstarf við gerð þjóðhags- líkana og tvísköttun á útgreiddum arði félaga. Akveðið var, að næsti fundur fjármálaráðherranna yrði hald- inn í Stokkhólmi 16. og 17. nóv- ember n.k. HANS G. Andersen hélt til Washington s.l. þriðjudag, þar sem hann tekur við störfum sendiherra og afhendir trúnaðar- skilrfki sfn þar innan skamms. Hans G. Andersen á að baki þriggja áratuga starf í íslenzku utanríkisþjónustunni. Hann hef- ur verið sérlegur ráðunautur rík- isstjórnarinnar í þjóðréttar- og Hans G. Andersen landhelgismálum. Hans hefur verið formaður íslenzku sendi- nefndarinnar á fundum hafrétt- arráðstefnu Sameinuðu þjóðanna frá upphafi. Mun hann gegna því starfi áfram og sitja þriðja fund ráðstefnunnar, sem hefst í New York í ágústmánuði n.k. Kona Hans G. Andersens er Ástríður Andersen. Hans G. Andersen farinn til Washington Nýr sendiherra Bandaríkjanna á íslandi útnefndur JAMES J. Blake hefur verið útnefndur nýr sendi- herra Bandarfkjanna á Is- landi af Ford Bandaríkja- forseta, að því er skýrt var frá í Hvíta húsinu í gær. Blake á langan feril að baki í bandarísku utan- ríkisþjónustunni en hann gegnir nú stöðu aðstoðar- ráðherra með málefni Afríku í utanrfkisráðu- neytinu í Washington. James J. Blake er 54 ára að aldri og fæddur í New York. Hann hefur B. A. próf frá Queens College og M. A próf frá George Washington University. Hann gegndi herþjónustj i siðari heim- styrjöldinni, en gekk í utanríkis- þjónustuna árið 1947. Hann hefur starfað i Belgíu, Indlandi, Libýu og gegnt ýmsum trúnaðarstörf- um í utanríkisráðuneytinu i Washington, þ.ám. yfirmanns Norður-Afríkumáladeildar þess áður en hann tók við núverandi embætti. Hann fékk æðstu heiðursverðlaun ráðuneytisins árið 1969. Hann er kvæntur. Ut- nefning Blakes á eftir að hljóta James J. Blake staðfestingu öldungadeildar- innar. Hann mun taka við af Frederick Irving, sem sendiherra á Islandi, en komutimi hans hefur ekki verið ákveðinn. ekki ólæknandi Rætt við prófessor John Calabro ÞINGI norrænna gigtar- lækna lauk i Reykjavík í gær. Það var haldið á Hótel Loftleiðum og voru þar samankomnir yfir 200 læknar sem ræddu niður- stöður rannsókna, sem gerðar hafa verið á síðustu árum. Einnig sýndu nokkur lyfjafy rirtæki framleiðslu sína meðan á ráðstefnunni stóð. I gærmorgun hélt fyrir- lestur prófessor John J. Calabro frá Bandaríkj- unum, en hann er yfirlækn- ir lyf- og gigtarlækninga- deildar Worcester City Hospital og prófessor i Uni- versity of Massachusetts. Er hann einn af færustu sérfræðingum i þessari grein. Aðspurður sagði hann m a að i Bandaríkjunum væru um 5 milljónir gigtarsjúklinga og væru um 5% þeirra, eða 250 þúsund, börn Ekki vissi hann um fjölda barna á Norður löndum með gigtarsjúkdóma en taldi hlutfall vera svipað og i Banda- ríkjunum Lengi hefur verið vitað að börn fengju þennan sjúkdóm, en nú er það sifellt að koma betur i Ijós vegna nýrra rannsókna, tíðni sjúk dómsins hefur ekki aukizt, en rann- sóknir eru betri. Oft hefur liðagigt í börnum álitin vera einhver annar sjúkdómur svo sem vaxtarverkir. Prófessor Calabro rakti siðan helztu atriði fyrirlesturs sins, en hann fjallaði um liðagigt í börnum Liðagigt byrjar yfirleitt á þrjá mis- munandi vegu, um 20%, fá hana með háum hita og útbrotum en engum einkennum við liðamót og oft alvarlegum; fylgikvillum út frá hjartanu Annar hópurinn, um 50%, fá bólgu i mörgum liðamótum, út limum og kjálkaliðum Þriðji hópur- inn, um 30% fá bógu í fáum liðum, t d hnjáliðum. Aðalvandamálið er hættulegir fylgikvillar i augum og krefjast þeir enn nákvæmari rann- sóknar og er nauðsynlegt að læknir hafi það i huga og liti sifellt eftir honum Calabro sagði að Jiðagigt væri sjúkdómur, sem legðfst á marga vefi líkamans og byggðist meðferðin oft á samvinnu fjölda lækna, gigtar lækna, barnalækna, augnlækna. orku- og endurhæfingarlækna. Þá aðstoða og fleiri hópar við meðferð því gigtarsjúklingar þurfa oft félags- legan stuðning — Aspirin er bezta lyfið og önnur geta hjálpað mikið En það er ekki nóg að gefa lyf, athuga þarf aðra þætti sjúkdómsins og meðhöndla á réttan hátt Legg ég áherzlu á þátt orku og endurhæfingarlækna, sem miðar að þvi að halda fullum hreyf- ingarferli W Carson Dick læknir frá Skotlandi nefndi það á fyrirlestri hér á ráðstefnunni að fylgjast þyrfti vel meðandlegri liðan sjúklinga því þeir væru oft þunglyndir vegna þess hve þeir væru háðir öðrum Þá lagði Calabro á það áherzlu að foreldrar vissu skil á sjúkdómnum og fylgdust vel með markmiði með- ferðarinnar á honum Hann hefur s.l. 1 5 ár unnið að umfangsmiklum rannsóknum Athugaði hann 100 manna hóp, 62 karlmenn og 38 konur og eru þau elztu nú 33 ára og yngstu um 1 5 ára Eftir þessa 15 ára rannsókn og meðferð lifa um 87% þeirra eðlilegu lífi og aðeins 3% hafa látizt. — í flestum börnum getur liða- gigt byrjað á aldrinum 1 — 3 ára en einnig á aldrinum 8— 1 2 ára Jafn- vel er vitað um að liðagigt hafi byrjað i 6 vikna gömlu barni Sjúkl ingar með liðagigt þurfa ekki að horfa of dökkum augum á framtíð- ina, framfarir eru orðnar stórstigar og batahorfur eru miklar þegar farið er eftir þeim leiðum sem eru þekkt- ar Orsök liðagigtar er að visu ekki þekkt ennþá en ég álit að hún verði kunn innan 1 0 ára. Prófessor Calabro lauk miklu lofs orði á ráðstefnuna Fyrir fáum árum voru engir gigtarlæknar til á íslandi en nú eru þeir orðnir fjórir og þeir hafa undirbúið þessa ráðstefnu mjög vel. fengið fyrirlesara frá mörgum löndum Ráðstefnur sem þessar eru mjög gagnlegar, menn skiptast á skoðunum og athuga nið urstöður nýjustu rannsókna John Calabro prófessor Kári Sigurbergsson læknir, einn af stjórnendum ráðstefnunnar, sagði að Prófessor Calabro væri heims þekktur visindamaður og einn sá þekktasti i sinni grein Um þingið sagði Kári að það væri hér i fyrsta sinn og þau væru nú haldin reglu lega Nú er unnið að því að koma á fót hér styrktarfélagi gigtarsjúklinga en slik félög eru til annarsstaðar á Norðurlöndum Þau styðja gigtar- sjúka á ýmsan hátt m a með fjár framlögum og eru eins konar bak hjarl lækna og annarra, sem hafa þá til meðferðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.