Morgunblaðið - 07.07.1976, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULÍ 1976
LOFTLEIDIR
n 2 1190 2 11 88
FERÐABILAR hf.
Bílaleiga, sími 81260.
Fólksbílar, stationbílar, sendibíl-
ar, hópferðabilar og jeppar.
Hugheilar þakkir færi ég öllum
ættingjum og vinum sem glöddu
mig á áttræðisafmæli mínu 24.
júní sl. með heimsóknum gjöfum
og kveðjum og gerðu daginn að
þeirri sólskinsstund sem mun
ylja mér um ókomnu árin.
Guð blessi ykkur öll
Guðrún V. Guðjóns-
dóttir
aI)(;lysiní;asiminn er.-
22480
2K«ri}un(>l«bib
Bjarnanes-
kirkja vígð
við hátíð-
lega athöfn
Hornafirrti, 5. júll.
BJARNANESKIRKJA í Horna-
firði var vígð í gær af biskupnum
yfir tslandi, séra Sigurbirni
Einarssyni. Athöfnin hófst mcð
skrúðgöngu sex presta, auk bisk-
ups, vfgluvotta, sóknarnefndar-
manna og sjö fermingarbarna,
sem voru fermd við athöfnina.
Sóknarpresturinn, séra Gylfi
Jónsson, prédikaði, söngkór
Bjarnaneskirkju söng undir
stjórn Bjarna Bjarnasonar,
Brekkubæ, sem um þessar mund-
ir á 60 ára afmæli sem söngstjóri
og organisti I Bjarnarneskirkju.
Kirkjan rúmar um 100 manns í
sæti. Bygging hennar hófst fyrir
allmörgum árum, arkitekt var
Hannes Davíðsson og bygginga-
meistari Guðmundur Jónsson,
Höfn. Kirkjunni bárust margar
góðar gjafir m.a. má nefna nýtt
orgel, sem Kvenfélag Nesja-
hrepps gaf. Þá var og gefinn nýr
messuhökutl til minningar um
séra Skarphéðinn Pétursson
sóknarprest í Bjarnarnesi.
Að lokinni athöfninni buðu hús-
mæður i Nesjum öllum viðstödd-
um til kaffidrykkju i Nesjaskóla.
Öll var þessi athöfn mjög virðuleg
og veður hagstætt.
—Fréttaritari.
Hér sjáum við Kristbjörn
Árnason aflakóng og skip-
stjóra á Sigurði. Hann hef-
ur undanfarið stundað grá-
sleppuveiðar frá Húsavík á
trillunni sinni, en nú er
þeirri vertíð lokið og ætlar
hann að fara á handfæra-
veiðar.
Útvarp Reykjavík
vHIDMIKUDKGUR
7. júlí
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrún Valbergsdóttir
endar lestur sögunnar
„Leynigarðsins" eftir
ina De Gabarain syngur ein-
söng; Ernest Ansermet
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilky nningar.
Á frivaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Farðu
burt, skuggi“ eftir Steinar
Sigurjónsson.
Karl Guðmundsson leikari
lýkur lestri sögunnar (6).
SIÐDEGIÐ
15.00 Miðdegistónleikar
Börje Márelius og félagar úr
Sinfóníuhljómsveit sænska
útvarpsins leika Pastoral-
svítu fyrir flautu og strengja-
sveit eftir Gunnar de Fru-
merie; Stig Westerberg
stjórnar.
Janos Starker og hljómsveit-
in Fílharmónfa leika Selló-
konsert nr. 1 I a-moll op. 33
eftir Camilla Saint-Saéns;
Carlo Naria Giulini stjórnar.
Félagar úr Fflharmónfusveit
Lundúna leika tvö verk fyrir
strengjasveit eftir Edward
Elgar; Introduction og
Allegro op. 47 og Serenöðu f
e-moll op. 20; Sir Adrian
Boult stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatfmina
Finnborg Scheving hefur
umsjón með höndum.
17.00 Tónleikar
17.30 Bækur, sem breyttu
heiminum — IV
„Uppruni tegundanna" eftir
Charles Darwin.
Bárður Jakobsson lögfræð-
ingur tekur saman og flytur.
18.00 Tónleikar. Tilkvnning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVOLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Nasasjón
Arni Þórarinsson og Björn
Vignir Sigurpálsson ræða við
Svövu Jakobsdóttur rithöf-
und og alþingismann.
20.10 Samleikur f útvarpssal:
Christina Tryk og Sigrfður
Sveinsdóttir leika saman á
horn og pfanó.
a. Allemande eftir Purcell.
b. Air eftir Bach.
c. Preludia eftir Liadoff.
d. Intermezzó eftir Gliére.
e. Aprés um réve eftir
Fauré.
f. Rómansa eftir Davidoff.
g. Fantasfuþáttur eftir
Heise.
20.35 Leikrit „Hefðarfrúin"
eftir Valentin Chorell.
Þýðandi: Sigurjón Guðjóns-
son. Leikstjóri: Gfsli Hall-
dórsson.
Persónur og leikendur:
Itona Silver Sigríður Hagalfn
Boubou.....................
........Guðrún Stephensen
Læknirinn....Gfsli Alfreðsson
21.40 Kórsöngur: Sunnukór-
inn syngur fslenzk og erlend
lög
Sigrfður Ragnarsdóttir leik-
ur með á pfanó og Jónas
Tómasson á altflautu. Hjálm-
ar Helgi Ragnarsson stjórn-
ar.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Litli dýrling-
urinn" eftir Georges
Simenon.
Kristinn Reyr les þýðingu
Ásmundar Jónssonar (7).
22.40 Á sumarkvöldi
Guðmundur Jónsson kynnir
tónlist úr ýmsum áttum.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Bœkur, sem
breyttu heiminum
Sagt er frá f járrekstri og fjárglöggum mönnum á sumarvöku.
Sungið um sumar og
sól á Sumarvöku
Kl. 20.20.
SUMARVAKAN verður á dag-
skrá útvarpsins f kvöld. Kennir
þar margra grasa og er þar
fyrst að nefna frásöguþátt eftir
Játvarð Jökul Júlfusson á
Miðjanesi, sem Pétur Péturs-
son flytur.
Að sögn Péturs segir Játvarð-
&r hér frá viðburðarríkum fjár-
rekstri og búferlaflutningi árið
1927. „Það var um langan veg
að fara,“ sagði Pétur, „og það
eru mörg skemmtileg atvik,
sem Játvarður segir frá, og
þarna erú geysilega skemmti-
legar fjárlýsingar, því Játvarð-
ur var einn þeirra fjárglöggu
manna, sem verða brátt ekki til
lengur í hraða nútímans, en
þessi frásögn er að þessu leyti
og öðru mjög þjóðleg."
Fimm kunnir kvæðamenn úr
Kvæðamannafélagi Hafnar-
fjarðar munu kveða bundið mál
eftir þrjú íslenzk skáld. Skáldin
eru Sigurður Breiðfjörð, eitt
kunnasta rímnaskáld okkar,
Stephan G. Stephansson og
Ölafur Jóhann Sigurðsson, sem
er norrænn verðlaunahöfund-
ur. Af þessu sést að þarna er
blandað saman nýju og gömlu
baðstofumenningunni.
Hjörtur Pálsson mun lesa frá-
sögu eftir Þorstein Björnsson,
sem nefnist Endurminningar
frá Miklabæ. Fjallar frásaga
þessi að mestu um hrossarekst-
ur og gæzlu og leit að hrossum
en auk þess er dregin upp
mynd af Miklabæ, þessu fræga
þjóðsagnasetri, að kvöldi.
Síðast á dagskrá sumarvök-
unnar er söngur Rangæingafé-
lagsins í Reykjavfk en kórinn
tekur fyrir létt og glaðleg sum-
arlög. Kórfélagarnir munu
syngja um blíðu og heyskap og
sumarið í borg og bæ, sem við
erum farin að þrá, a.m.k. Sunn-
lendingar.
í DAG kl. 17.30 verður
flutt 3. erindi greina-
flokksins um bækur, sem
breyttu heiminum. Það
er Bárður Jakobsson lög-
fræðingur, sem hefur
tekið saman og flytur
þessa þætti.
„Hugmyndin með þess-
um þáttum var að fjalla
um nokkur rit, sem hafa
breytt hugsunarhætti og
viðhorfum manna svo al-
gjörlega, að hægt er að
segja að þau hafi breytt
heiminum."
Þannig fórust Bárði
orð um þessa þætti,
þegar hann var inntur
eftir efni þeirra og
tilgangi.
„t kvöld mun ég fjalla um
Albert Einstein og afstæðis-
kenninguna, en ein niðurstaðan
af þeirri kenningu var
Ð
gr HEVRH
Albert Einstein.
kjarnorkusprengjan, eins og
við vitum. Það er óhætt að segja
að þessi kenning breytti geysi-
lega hugsunarhætti mannkyns-
ins og við vitum í rauninni ekki
hvert stefnir, eða hvert við er-
um að fara.“
Eins og áður sagði verður 3.
erindið flutt í kvöld, en alls eru
þau 6 að tölu. Á morgun, á sama
tíma, verður það 4. flutt og mun
það fjalla um „Uppruna
tegundanna" eftir Darwin. I
tveim síðustu erindunum mun
Bárður taka fyrir skozk-
franskan mann að nafni
Phoreu, sem var prédikari ein-
staklingshyggjunnar og Freud
og sálfræði hans.
Lög viö Ijóð
Steins Steinars
ÁSTA Thorstensen mun syngja
einsöng f útvarpi f kvöld kl.
20.00. Hún flytur lagaflokkinn
„Undanhald samkvæmt áætl-
un“, eftir mann sinn, Gunnar
Reyni Sveinsson. Undirleikari
er Jónas Ingimundarson.
„Þetta er verk fyrir altrödd
og píanó“, sagði Gunnar
Reynir, „og ég samdi þetta verk
s.l. vetur. Það var frumflutt á
Háskólatónleikum í febrúar s.l.
fyrir fullu húsi.“
Gunnar samdi þetta verk við
ljóð eftir Stein Steinarr: Eld,
Tileinkun, Vögguvísu, Lág-
mynd o.fl.
Ásta Thorstensen stundaði
tónlistarnám í skóla Engels
Lund og síðan framhaldsnám
hjá Carlo Bino i Hollandi. Hún
hefur um árabil sungið í Pólý-
fonkórnum og er m.a. radd-
þjálfari kórsins.