Morgunblaðið - 07.07.1976, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.07.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 1976 29 fclk í fréttum + Þessir stæltu stafnbúar eru þátttakendur f einhverri fegurðarsamkeppninni, sem nú er haldin hjá andfætlingum okkar f Hong Kong, og það er ungfrú Þýzkaland, sem er yzt til vinstri á myndinni. Næst henni er ungfrú Holland, sfðan ungfrú Noregur, þá ungfrú tsland, Guðmuhda Jóhannsdóttir, og loks ungfrú Svfþjóð. + Uri Geller, sem getið hefur sér frægðarorð fyrir að beygja lykla og hnffapör með hugar- orku einni saman, gerir það ekk'i endasleppt. Nú rótast hann um f gömlum rústum f Mexfkó og grefur upp gull og silfur sem hans yfirnáttúru- legu hæfileikar benda honum á. + Barbra Steisand og Liza Minnelli eru sem stendur þær leikkonur sem eru hvað tekjuhæst- ar f Bandarfkjunum. t þriðja sæti er svo Char- lotte Rampling og Sophia Loren verður að gera sér f jórða sætið að góðu. Hafið, bláa hafið... + Það þykir ekki lengur tfðind- um sæta þó að menn fari sem fuglinn fljúgandi um fjöll og firnindi á vélsleðum en nú er nýtt tæki komið til sögunnar — eins konar marköttur — sem flengist um fiskaslóðir á 80 km hraða á klukkustund. Það er áhugasamur upp- finningamaður að nafni Nelson Tyler sem á allan heiður af tilurð þessa tækis sem er tekið til við að framleiða. Marköttur- inn vegur 140 kiló, gengur f 3—4 tfma á sjö gallonum af bensfni og getur flutt einn far- þega auk ökumanns. Þetta tæki kynni ef til vill að geta komið að góðum notum hér við land — eínkum innanfjarða og annars staðar þar sem sjólag er gott. Hundar og aðrir hundar TIL borgaryfirvalda í tilefni aug-. lýsingar frá heilbrigðisnefnd í gær, 4. júlí. Það er áskorun mín og ugglaust fleiri skikkanlegra þjóðfélags- þegna, sem fullan hug hafa á að þrífa til kringum sig, að heilbrigð- isnefnd Reykjavíkur verði skipuð til starfa á öðrum vettvangi en þeim að eyða tíma sinum og orku í að eltast við nokkra veluppalda hunda, umgengisgóða ketti, söng- glaða búrfugla og skrautfiska- hrogn. Maður er orðinn gersamlega gáttaður á þeirri heimskulegu reglugerð, sem þessari nefnd er gert að fara eftir. Eða hvernig má það ske, að veluppalin dýr, flest hver í eigu sómakærustu borgara bæjarins, hundar, eru réttdræpir meðan vaðandi mannhundar ganga beizlislausir, skemmandi allt i kringum sig? Hvað veldur þeim ósköpum, að hér í borginni er aðeins ein dýra- búð, sem fær þó ekki að selja annað en TÓM FUGLABUR? Er kanarífugl eitthvað óhollari Is- lendingum en öðrum þjóðum? Hvað kemur til, að æ ofan í æ dynja á landsmönnum auglýsing- ar frá heilbrigðisyfirvöldunum um bann við hinu og þessu, eins og til dæmis hundi í dag, fugli á morgun eða skrautfisk hinn dag- inn, þegar sæmilegir borgarar geta vart þverfótað fyrir ælandi, svikjandi, stelandi, skemmandi, öskrandi drukknum skril; því fólki ungu, sem ekkert aðhald virðist hafa drukkið í sig með móðurmjólkinni, það áframhald- andi aðhald samhliða uppvextin- um að bera sjálft ábyrgð á því, hvað það lætur ofan i sig, og þá öllu fremur að bera ábyrgð á því sem út af því fer? 17. júní fór smáhópur ung- menna eftir strætinu, sem ég bý við, með ópum og óhljóðum, reyndi að opna hvern kyrrstæðan bfl sem á vegi hans varð, eða komast inn í húsin. Hópurinn fór svo fljótt yfir að ekki vannst timi til að kalla í löggæzluna, enda vitatilgangslaust eins og málum er komið gagnvart manninum í dýrinu og dýrinu í manninum. Við friðsamir borgarar sem vilj- um eyða ellinni í bænum okkar i sátt við umhverfið, biðjum hvorki né óskum eftir nýju lögmáli — VIÐ KREFJUMST ÞESS! Ég krefst þess að hollum heil- brigðisreglum verði komið á blað vegna okkar sem alltaf erum að basla við að byggja upp i kringum okkur! Og eitthvað er það skemmti- legri sjón að ganga fram á hæ- verskan nágrannakött, eða þá bara einhvern annan stundvisan kött, sem upp úr hálf-tólf á mið- nætti sezt i fordyri fyrirmyndar- hótels, bíðandi þar þögull og þol- inmóður eftir næturverðinum, og á sinum tíma þakkar fyrir kræs- ingaleifar, og hljóðlega heldur til síns heima, — en illa gefið partý- fólk, sparkandi og bölvandi utan við annarra manna hús. Og betur kann ég við hamingjusaman, brosandi hund, þótt í bandi sé, en orðljótan piltung og klámyrta stúlku. Hér verður einhver breyting að koma til eigi sæmilega hugsandi fólk að geta tileinkað sér lagaboð og heilbrigðisreglur, — því þær eiga jú að vera fyrir fólkið en ekki fólkið fyrir reglurnar. Og svo á lika að vera með meinlausu gleðigjafa —DYRIN! 5/7 1976 Guðrún Jacobsen Bergstaðarstræti 34 Reykjavik. — Lokatónleikar Framhald af bls. 10 heim og Nu fyrir kór og hljóm- sveit eftir Milveden. í framhaldi af framanskráðu um fsl. tónlistarlíf, er þátttaka íslendinga á þessum tónleikum athyglisverð. Þarna eru flutt tvö islenzk verk, sem bæði eru vel gerð og standa erlendum samtímaverkum fyllilega á sporði. Fyrir undirritaðan var flutningurinn að þessu sinni á Langnætti Jóns Nordals einum of asafenginn og ekki af þeirri ætt sem kenna má við hægferð- ugt íslenzkt langnætti þjóð- sagna og baðstofulffs. Fiðlukon- sertinn eftir Leif Þórarinsson er margslungin tónsmíð en á köflum óhamin eða réttara sagt ofhlaðin, einkum i samspili hljómsveitar og einleiksfiðlu. Beztu kaflarnir, fyrir smekk undirritaðs, voru einleikskafl- arnir, sumir þeirra frábærir. Einleikishlutverkið í konsertin- um var f höndum Einars Svein- björnssonar. Hann er frábær fiðluleikari, af þeirri kynslóð, sem naut tilsagnar Björns Ólafssonar, sem er einn af frumkvöðlum ísl. fiðlumenn- ingar. Einar er einn þeirra tón- listarmanna, sem leitaði til „út- landa" og starfar hann nú sem konsertmeistari i Svíþjóð. Hann hefur reynzt íslenzku tón- listarlífi þarfur maður og tekið þátt í mörgum tónleikum hér heima. Passfukórinn frá Akur- eyri tók þátt í þessum tónleik- um í verkinu Nu eftir Milved- en. Fyrir nokkrum árum taldist flutningur nútímatónlistar til undantekninga og tónflytjend- ur voru yfirleitt ekki fúsir til þátttöku í slíku. Nú hefur svo skipazt að samtímaverk eru eft- irsótt til flutnings og eru áhugatónfiytjendur úti á landi farnir að fást við flutning á nýrri tónlist. Passiukórinn, undir stjórn Roar Kvam stóð sig með mestu prýði. Verkið er víða erfitt i söng og færi reynd- ar betur I meðferð stærri kórs, en það er önnur saga. Undirrit- aður ósk«- Akureyringum til hamingju og hvetur þá til að láta hér ekki staðar numið. Karlakór og Guðmundur Jónsson óperusöngvari tóku og þátt I uppfærslu verksins og gerðu þeir sitt, eins og reynd- um söngmönnum sæmir. Þeir aðilar, sem oft gleymast, en mest mæðir á, eru hljóð- færaleikararnir i Sinfóníu- hljómsveit islands. Mennirnir sem hafa klifið þrítugan hamar- inn og þrátt fyrir vanþakklæti og ósanngjarnan samanburð, staðið sína vakt og leikið mögl- unarlaust það sem fyrir þá hef- ur verið lagt. Þeirra framlag minnir á þátt nafnlausrar al- þýðunnar i sköpun menningar, sem framgjarnir einstaklingar eigna sér og hljóta lof og nafn- giftir fyrir. Hljómsveitarverk II eftir John Persen og Spur eftir Nordheim teljast til þeirra verka, sem eru fróðleg til að fylgjast með við flutning en enginn vill hafa með sér heim. Jón Ásgeirsson. — Um landsins gagn Framhald á bls. 29 og jafnrétti einstaklinganna er bezta leiðin til þessa. En frelsi getur maðurinn aðeins haldið i félagsskap annarra frjálsra manna. Þess vegna erum við í Nato. Kotungurinn er fjötraður niður á koti sinu og má hvorki bjargast né menntast. Hinn efna- lega frjálsi getur skapað sína eig- in framtið. 24.6.1976 Halldór Jónsson verkfr. — Lögin um... Framhald af bls. 13 og sett sérstaka trúnaðarmenn um borð f veiðískip eftír hví sem þurfa þykir og er skipstjórum veiðiskipa skylt að veita eftirlits- mönnum þessum aðstoð og að- stöðu um borð í skipum sínum. Skipstjórar eftirlitsskipa, leiðang- ursstjórar og trúnaðarmenn, sem verða varir við verulegt magn smáfisks í afla geta bannað veiðar á ákveðnu svæði í allt að þrjá sólarhringa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.