Morgunblaðið - 07.07.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULÍ 1976
25
Kl. 21.15 hinn 28. marz
sýndi mannfjöldaklukkan í
Chicaco 4 milljarða íbúa
á jörðinni. Þetta er
sjálfsmorðsstefna,
en hvernig á að
stöðva hana?
Grein úr franska
blaðinu Express
Við erum
fjonr
milljarðar
KLUKKAN var 21.15 í
Chicago laugardaginn
28. marz. Þad var búið að
loka í Vísinda- og
iðnaðarsafninu. Nætur-
vörðurinn dottaði í varð-
klefanum sínum. Enginn
varð því vitni að atburð-
inum. Enginn sá skráða
töluna 4 milljarðar —
4.000.000.000.— — á
ljðsaborðið á rafmagns-
klukkunni, sem telur af
mikilli nákvæmni mann-
fjöldann f heiminum og
skráir hann á mínútu
fresti. Þegar safnið opn-
aði næst síðdegis á
sunnudag, hafði þessi
einstæða klukka haldið
óslitið áfram að bæta við
mannslífum. Hún sýndi
4.000.106.397 manns. Á
einni nóttú og einum
morgni höfðu bætzt við
yfir 100 þúsund manns,
fleiri en allir íbúar
Reykjavíkur.
Fyrir tvö þúsund árum voru
ekki á.jörðinni fleiri en 200
milljónir manna. Mannfjöldinn
náði fyrsta milljarðinum um
1850, öðrum 1930 og þeim
þriðja á árinu 1961. Ef ekki
verður róttæk breyting á mann-
fjölgunarkúrfunni, þá náum
við 6 milljarða-markinu í lok
aldarinnar. Eftir aðeins 24 ár.
Um það leyti sem nýfæddu
börnin eru komin á giftingar-
aldur.
Sláandi dæmi setti franski
hagfræðingurinn Robert
Lattés, félagi í „Rómarklúbbn-
um“ svonefnda, upp: Hann lík-
ir jörðinni við tjörn með vatna-
liljum, sem tvöfalda stærð sína
á einum degi. Þessi lilja þyrfti
ekki nema 30 daga til að breiða
sig yfir alla tjörnina. Við erum
nú á 29. degi. Vatnaliljan þekur
helming jarðarinnar. Á morgun
Þetta er fyrst og fremst
vandamál mannkynsins, sem
rafmagnsklukkan 1 Chicago
minnti í myrkri og þögn á nótt-
ina góðu. Auðvitað má deila um
nákvæmni hennar. Bruce
Michell, varaforseti safnsins,
svaraði blaðamanni með þess-
um orðum: „Viss skekkja getur
komið fyrir. En grunntölurnar
og margfelditalan eru endur-
skoðaðar einu sinni til tvisvar
sinnum á ári. Mismunurinn á
tölu klukkunnar og raunveru-
legri tölu getur ekki orðið meiri
en fáir dagar.“
í sumum löndum, eins og
t.d. i Eþiópiu, fer ekki fram
neitt manntal. Annars staðar er
það ekki nákvæmt. En jafnvel
þar sem fólkið er samvizkusam-
lega talið, er alltaf nokkur
ónákvæmni. Venjulega er raun-
verulegur mannfjöldi meiri en
tölur sýna. Kannanir benda til
að í Bandaríkjunum t.d. muni
að minnsta kosti 3 af hundraði
og í Marokkó 15 af hundraði, en
þar á að skrá börn við fæðingu.
1 sumum tilfellum er mann-
fjöldi viljandi mistalinn eða
hafður óljós, af stjórnmála-
ástæðum. Þannig er það yfir-
lýst, að í Nígeriu búi um 70
milljónir manna, en eru
kannski ekki nema 55 milljónir.
Nigeríustjórn vill hafa þetta
stærstu þjóð í Afriku. 1 þétt-
býlasta landi heims, Kina, er
óvissutalan gífuriega há.
Siðasta manntal fór fram 1953
og sýndi 583 milljónir Kinverja.
Sérfræðingarnir draga þá tölu
mjög í efa. Sumir staðhæfa að
hún sé 19 milljónum of lág,
aðrir að borgarar Kina séu
a.m.k. 30 milljónum fleiri.
Þarna getur munað upp í 150
milljónir manna. Á mann-
fjölgunarráðstefnunni í
Búkarest árið 1974 tilkynnti
fulltrúi Kinverja, að í hans
landi væru 830 milljónir íbúar.
En önnur sendinefnd hefur til-
kynnt um 930 milljónir. Fjölg-
un mannfólksins hefur sem
sagt tekið þvílikt stökk, að
varla tekur því að vera að
þrátta um nokkyr hundruð
milljónir.
í þeim tilgangi að gefa betri
mynd af sambandinu milli
jarðsögunnar og mann-
fjölgunarinnar hefur stjörnu-
fræðingurinn Heinrich
Siedentopf dregið í huganum 5
milljarða ára sögu jarðarinnar
saman í eitt ímyndað ár. Ut-
koman verður þá þessi: I
janúarmánuði skipti gasbolti
sér í milljarða af smærri ögn-
um, en ein þeirra varð að sól-
inni okkar. í febrúarmánuði
mynduðust hnettirnir, þar á
meðal Jörðin. i apríl
aðgreindust höf og lönd. Síðan
höfum við verið að þróast hægt
og sígandi. Það var komið fram
í nóvember, þegar gróðurinn
tók að leggja undir sig jörðina.
í síðustu viku fyrir jól var
blómatími risaeðlanna, sem
liðu undir lok á aðfangadag. Og
um 11 leytið um kvöldið sá
fyrsti Pekingmaðurinn
dagsins ljós, og í kjölfar hans
Neanderdalsmaðurinn um 10
mínútur fyrir miðnætti. Það
sem vió köllum mannkynssögu
hefur þá staðið síðustu hálfa
mínútuna á þessu upphugsaða
ári. Á siðustu sekúndunni
þrefaldaðist mannkynið og þá
erum við komin að nútimanum.
Ef fjölgunin fer með sama
hraða, þá munu á fyrstu 10
sekúndum næsta árs (sam-
svarandi 15 öldum á okkar
mælikvarða) lifandi manns-
líkamarnir verða orðnir jafn
þungir sjálfri jörðinni.
Þetta skelfilega mannfjölg-
unarvandamál heimsins opin-
beraðist á ráðstefnunni i Búka-
rest 1974. En fulltrúarnir þar
sáu fljótt, að vandinn er af ann-
arri ástæðu tvöfalt meiri en
þetta. Það kalla sérfræðingar
Sameinuðu þjóðanna „stétta-
baráttuna um stigaþrepin í ver-
öldinni."
Þetta má draga saman með
nokkrum tölum. 228 milljón
íbúar Norður-Ameríku neyta
daglega 71 gramms eggjahvitu-
efna úr dýraríkinu. Hinir 319
milljón íbúar Vestur-Evrópu
og Miðjarðarhafslandanna láta
í sig 50 grömm á dag og íbúar
Austur-Evrópu og Japans nærri
eins mikið. Magn eggjahvítu-
efna á mann hraðminnkar, þeg-
ar röðin kemur að 282 milljón
Suður-Amerlkumönnum sem fá
24 grömm, 290 milljón Afríku-
mönnum með 12 grömm, 806
milljón Kínverja með 920
grömm og" 670 milljón Indverj-
um og Pakistönum með 6,78
grömm af eggjahvítuefnum á
mann.
Þéttbýliskort sýnir vel
hversu flókin þessi vandi er.
Enn eru stór óbyggð landsvæði
í Ameriku, Afríku og jafnvel
milli Evrópu og Asíu. En ótölu-
legar hersveitir nýrra íbúa
heimsins flykkjast allar til stór-
borganna.
„Allir eru þeir að leita að
vinnu, sem ekki er þar að
finna," segir sr. Bruno Ribes,
jesúitapresturinn, sem er að
skrifa bók um þetta efni. „Á
áratugnum frá 1960 til 1970
hafa stórborgir Afriku vaxið
þrefalt sinnum hraðar en
Evrópuborgirnar."
Sérfræðingar Sameinuðu
þjóðanna segja, að einasta
skynsemin sé að stöðva mann-
fjölda heimsins við 12 milljarða
manna. En fjölmargar þjóðir,
sem þetta varðar mestu, setja
sig upp á móti þeirri lausn, sem
þær segja að sé sprottin af eig-
ingimi iðnaðarþjóðanna. Sum-
ar þeirra, svo sem Argentína og
Saudi-Arabia, eru opinskátt á
móti hvers kyns takmörkun
barneigna. — Slikt er uppfund-
ið af óvinum Múhameðstrúar-
manna, segja Saudi-Arabar, en
þar búa 4 milljónir manna í
landi, sem er fimm sinnum
stærra en Kalifornia. Og þetta
bergmála stjórnendur Buenos
Aires, sem bönnuðu hvers kon-
ar takmörkun á stærð fjölskyld-
unnar á árinu 1974: „Þeir sem
eru andsnúnir hagsmunum
Argentínu, eru að reyna að
koma á lífsskoðun, sem kemur i
veg fyrir að við verðum stór-
veldi“, segja þeir.
Loks sjá vissar rikisstjórnir í
þessu dulda neó-
nýlendustefnu. Brasilíumenn,
sem ekki hafa bolmagn til að
nýta hina geysivíðáttumiklu
frumskóga við Amazon, and-
mæla Bandaríkjamönnum, sem
ráðleggja þeim takmörkun
barneigna ef þeir vilji hafa von
um að ráða við eymdina i
fátækrahverfunum.
Sumar þjóðir hafa þó enga
möguleika til að spyrna á móti
vilja auðugri landa í þessu efni.
Alþjóðastofnanir hafa sett það
að skilyrði fyrir efnahagsaðstoð
og fjárframlögum frá vestræn-
um ríkjum, að skipulögð verði
áætlun um takmörkun barn-
eigna.
Indverjar hafa sjálfviljugir
reynt að takmarka fólks-
fjölgunina. 1 ráðstöfunum sín-
um hafa þeir rekið sig á sam-
félagslegar og trúartegar
hindranir, sem hafa komið í veg
fyrir að þetta tækist. Eftir 10
árá átak heldur meðalfjölskyld-
an áfram að vera 6,4 einstakl-
ingar. I örvæntingu sinni vegna
sívaxandi vanda, hafa stjórn-
völd í Pendjab-héraði i vetur
samþykkt að þau hjón, sem
eignist fleiri en tvö börn, geti
átt á hættu að fá fangelsisdóm,
eða háa sekt. Afleiðingin er sú,
að fæðing barna er falin fyrir
yfirvöldum. Trúarleiðtogar og
stjórnarandstaða hafa sett sig
upp á móti þessu.
Flestir hafa nokkuð til síns
máls í þessari alheims-baráttu.
Einkenni hennar er á síðustu
árum eigingirni, ótti og van-
máttur til að tengja efnahags-
legar og félagslegar breytingar
lækkun fæðingartölunnar.
Þróun raála í heiminum bendir
til afturfarar. Allt bendir til
þess, að þetta leggist sífellt
þyngra á fátæku og þéttbýlu
löndin.
í þeim tilgangi að reyna að
stöðva þessa sjálfsmorðsstefnu
hefur Robert McNamara, for-
seti Alþjóðabankans, lagt til
algera stefnubreytingu á
aðstoðinni við þá, sem minnst
hafa. — Fyrir þá er hér um lif
eða dauða að tefla, segir hann.
Og örlög rika heimsins eru
bundin örlögum þeirra.