Morgunblaðið - 07.07.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULÍ 1976
19
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JULÍ 1976
Frjáls eða þvinguð
framlög til
stjórnmálaflokka
Fésýsla stjórnmálaflokka
er umræðuefni, sem al-
menningi er tamt að fjalla um
og af og til skýtur upp kolli í
fjölmiðlum, Hvert mannsbarn i
landinu viðurkennir fjárþörf
flokkanna til að halda uppi eðli-
legri og óhjákvæmilegri starf-
semi. Fjáröflunarleiðir islenzkra
stjórnmálaflokka eru og að
mestu leyti hinar sömu og fara
fram með svipuðum hætti. Það
sem á skortir, að mati almenn-
ings, er að þessi fésýsla fari
fram fyrir opnum tjöldum og
augum alþjóðar. Gagnrýni af
þessu tagi var orðin það hávær
á sl. hausti, að almennt var við
því búizt að þingflokkarnir
beittu sér fyrir löggjöf um þetta
efni á sl. þingi. Sú almannavon
brást.
Virðingarverð tilraun var þó
gerð til að hreyfa þessu máli á
Alþingi. Eyjólfur Konráð Jóns-
son, 4. þingmaður Norður-
lands vestra, flutti frumvarp til
laga um breytingu á lögum um
tekjuskatt og eignarskatt, sem
að meginefni fjallaði um fjár-
reiður stjórnmálaflokka. Frum-
varpið gerði ráð fyrir því að
stjórnmátaflokkar yrðu með
ótvlræðum hætti gerðir bók-
halds- og framtalsskyldir, þó
ekki yrðu þeir skattskyldir. Þá
gerði frumvarpið ráð fyrir því,
að stjórnmálaflokkum yrði auð-
veldað að afla sér nokkurs fjár
með frjálsum framlögum al-
mennings.
Gert var ráð fyrir því að fram-
lög einstaklinga yrðu skatt-
frjáls, þó með þröngum mörk-
um, þ.e. að þau yrðu bundin
við 5% af skattskyldum tekjum
viðkomanda. Flutningsmaður
tók og skýrt fram i framsögu,
að hann væri til viðræðu um
enn þrengri mörk eða aðra fyr-
irvara, sem betur kynnu að’
henta. Þetta takmarkaða skatt-
frelsi framlaga átti þó einvörð-
ungu að ná til einstaklinga en
hinsvegar ekki til fyrirtækja eða
stofnana.
Frumvarp þetta, sem um
flest er hyggilegt, kann þó að
orka tvímælis í framkvæmd um
vissa þætti flokksstarfseminn-
ar Þannig myndi slík löggjöf í
framkvæmd naumast ná til
hlutafélaga, sem sumir flokkar,
máski sér í lagi Alþýðubanda
lagið, virðast hafa reist fésýslu
sína á.
Frumvarp Eyjólfs Konráðs
Jónssonar var, þrátt fyrir
greindan annmarka, virðingar-
vert spor í rétta átt. Það var
þess eðlis og efnis, að um það
hefði átt að geta náðst einhver
sú málamiðlun, sem þingmenn
og almenningur hefðu getað
sætzt á, sem reynslulöggjöf, er
síðar yrði endurskoðuð í Ijósi þá
fenginnar reynslu eins og titt er
um löggjöf á nýjum vettvangi,
Frumvarp þetta leiddi til
þess, þó ekki fengi fullnaðaraf-
greiðslu, að allsherjarnefnd
sameinaðs þings flutti og fékk
samþykkta tillögu til þings-
ályktunar þess efnis, að kjörin
var 7 manna nefnd til að undir-
búa frumvarp til laga um rétt-
indi og skyldur stjórnmála-
flokka. Skal nefndin hraða
störfum, eins og segir i tillög-
unni, og í greinargerð eru því
gerðir skórnir, að nefndin leggi
fram frumvarp um þetta efni á
næsta þingi.
Við undirbúning þessa máls
þarf að standa gegn háværum
kröfum vissra aðila um ríkis-
framlög til stjórnmálaflokka.
Þessi krafa kom m.a. fram í
tillögu til þingsályktunar, er
formaður Alþýðubandalagsins
flutti, þarsem þeim sjórnarmið-
um er haldið á loft, að lögfesta
þurfi opinberan, fjárhagslegan
stuðning við stjórnmálaflokka,
sem „ætla þurfi ákveðnar tekj-
ur i hlutfalli við fylgi sitt meðal
kjósenda". Samkvæmt þessum
tillöguflutningi er ekki stefnt að
frjálsum framlögum, þar sem
hver og einn ræður sínum fjár-
hagsstuðningi, heldur þvinguð-
um framlögum, sem sækja á i
vasa almennings, hvort
sem honum líkar betur eða
verr, og ráðstafa fyrir hans
hönd til starfsemi stjórnmála-
flokkanna. Þessi þvingunarleið
fellur ekki vel að íslenzkum
hugsunarhætti.
Ljóst er, að í nútíma þjóðfé-
lagi þurfa stjórnmálaflokkar á
talsverðu fé að halda til starf-
semi sinnar. Heilbrigðast og
eðlilegast er, að þeir afli fjár
með frjálsum framlögum al-
mennings, í eínu eða öðru
formi, eins og þeir raunar gera
þegar í ríkum mæli. Sú fjáröfl-
un á hinsvegar að fara fram
fyrir opnum tjöldum. Hóflegt,
takmarkað skattfrelsi, sem
setja má þröngar skorður, opn-
ar möguleika til þess. Bók-
halds- og framtalsskylda stjórn-
málaflokka fylgir einnig fram
sjónarmiðum almennings í
þessu efni.
Ekki er að efa að allur þorri
íslendinga væntir þess að kjör-
in þingnefnd til að semja frum-
varp til laga um þetta efni hraði
störfum eftir því sem aðstæður
leyfa, vandi vel verk sitt og lagi
það að íslenzkum aðstæðum
og hugsunarhætti.
„SJAKALINN, alræmd-
asti hryðjuverkamaður
heimsins, stóð á bak við
rán frönsku flugvélar-
innar með fsraelsku
gfslunum sem vfkinga-
sveitir björguðu á Ent-
ebbe-flugvelli f Uganda
en fðl stjórn þess nán-
um samstarfsmanni sfn-
um að sögn starfs-
manna vestur-þýzkui
öryggisþjónustunnar.
Fyrir aðeins rúmu
hálfu ári stjórnaði
„Sjakalinn" eða Carlos
(27 ára gamall venezú-
elskur félagsfræðistúd-
ent, sem heitir réttu
nafni Ilich Ramirez
Sanchez) árásinni á
aðalstöðvar Samtaka
olíuútflutningslanda
(OPEC) í Vín þegar 11
olíuráðherrum var
rænt, en að þessu sinní
lét hann sér nægja að
skipuleggja rá'n flug-
vélarinnar með isra-
elsku gislunum.
Stjórnina fól hann í
hendur bezta vini sín-
um, vestur-þýzka
hryðjuverkamanninum
Wilfried Boese sem er
kallaður hægri hönd
hans. Vestur-þýzkir
öryggisþjónustustarfs-
menn hafa staðfest að
talið sé að Boese hafa
stjórnað flugvélarrán-
inu og að sögn Idi Am-
ins Ugandaforseta var
hinn Vestur-Þjóðverj-
inn sem tók þátt í rán-
inu Astrid Proll, sem
er félagi í Gaader-
Meinhof-samtökunum
eins og Boese.
Gislarnir hafa sagt
frá því að foringjar
palestinsku hryðju-
verkamannanna hafi
verið karl og kona sem
töluðu ensku með
greinilegum þýzkum
hreim. „Maðurinn
reyndi að vera kurteis
við okkur en framkoma
konunnar minnti okk-
ur á nazista-timann,"
sagði einn gíslanna.
Hryðjuverkamennirn-
ir kröfðust þess að sjö
félagar úr vestur-þýzku
hryðjuverkasamtökun-
um Baader-Meinhof og
7. júní yrðu látnir lausir
og það bendir einnig til
þess að Sjakalinn hafi
verið heilinn á bak við
ránið.
Franska leyniþjónust-
an DST sagði eftir árás-
ina í Vin að næsta tak-
mark Sjakalans yrði að
bjarga fjórum félögum
I úr Baader-Meinhof í
, Stuttgart. Þegar Ulrika
Meinhof framdi sjálfs-
morð nýlega var þess
krafizt að sleppt yrði úr
haldi 31 árs gömlum
1 venezúelskum fjölda-
morðingja, Juan Carlos
Raspes. Þegar hann og
félagar hans heyrðu í
útvarpi að frönsku flug-
vélinni hefði verið rænt
vissu þeir strax að þess
yrði krafizt að þeir yrðu
iátnir lausir.
„Við vitum allt
bjánarnir ykkar,“ hróp-
uðu þeir að fangavörð-
um sínum þegar þeir
komu og fjarlægðu út-
varpsviðtækin úr klef-
um þeirra. Seinna
fundu fangaverðirnir
ýmislegt í klefunum
sem benti til þess að
þeir vissu hvað til stóð.
Stóð „Sjakalinn”
á bak við ránið?
Opinberum hátlðarhöldum I New York tauk með stórbrotinni flugeldasýn-
ingu. Hér er Frelsisstyttan innan I Ijósakórónu og eldglæsingarnar standa upp
úr kyndlinum.
Carlos
Nýr forsætisráð-
herra Spánar
Lítt þekktur heima og erlendis
Flugvélarræn-
ingi gafst upp
Paima, Mallorka — 6. júli — Reuter —
NTB.
ÞRITUGUR Líbýumaður búinn
tveimur leikfangabyssum og
tveimur hnífum náði i gær á sitt
vald líbýskri farþegaflugvél, sem
var á leið frá Trípóli til Banghazi.
Hann skipaði flugmönnunum að
lenda í Alsír þar sem flugvélin
stóð við í 10 mínútur en siðan var
ferðinni haldið áfram og lent á
flugvellinum i Palma. Þar gaf
flugvélarræninginn sig sjálfvilj-
ugur fram við lögregluna.
„Faðir Rauða
hersins iátinn”
Peking, 6. júlí — Reuter
CHU TEH marskálkur, þekktasti
herforingi Kína, lézt i Peking i
dag, að þvf er segir f frétt kfn-
verska útvarpsins. Sagði f út-
varpsfréttinni að „faðir Rauða
hersins", og sá sem stjórnaði
göngunni miklu fvrir 40 árum
hafi látizt klukkan 3 sfðdegis að
staðartíma. Hann var nfræður.
Chu Teh gekk í lið með komm-
únistum á þriðja tug aldarinnar,
og skipulagði síðar marga af
stærstu sigrum Rauða hersins.
Eftir að Mao Tse-tung hætti að
taka á móti erlendum þjóðhöfð-
ingjum vegna heilsubrests nú ný-
lega, varð Chu staðgengill for-
mannsins. Síðast kom Chu opin-
berlega fram er hann tók á móti
Malcolm Fraser forsætisráðherra
Astraliu fyrir tæpum hálfum
mánuði.
Chu Teh var forseti þingsins, og
átti sæti i Æðsta ráðinu, en hafði
undanfarin ár lítil afskipti af
stjórnmálum. Hann var nokkurs
konar föður-ímynd i augum þjóð-
arinnar, og I áliti gekk hann næst-
ur Mao sjálfum.
Fagnaðarfundur við heimkomu gfslanna til Tel Aviv
Leiðtogafundur OAU
leystist upp í ringulreið
Port-Louis, Mauritius —
6. júlí — Reuter.
RINGULREIÐ og áberandi klofn-
ingur ríkti í lok leiðtogafundar
Einingarsamtaka Afrfkurfkja
(OAU) f gær, ekki einungis milli
fulltrúa frá Afrfkurfkjunum,
heldur einnig fulltrúa Araba-
landanna.
Á fundinum kom fram krafa
tveggja aðildarríkja um að
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefði afskipti af deilumálum
þeirra. Ugandamenn hafa krafizt
fundar ráðsins vegna árásar ísra-
elsmanna á Entebbe-flugvöll nú
um helgina, og Súdanir krefjast
fundar vegna meintrar aðildar
Libýu að tilrauninni til að steypa
stjórn Súdans af stóli i síðustu
viku.
Af 20 ríkjum Arababandalags-
ins eiga 8 jafnframt aðild að Ein-
ingarsamtökum Afríkurikja. 5
þessara rikja eiga i innbyrðis deil-
um.
Deilur Eþiópíu og Sómalíu
settu sinn svip á fundinn. Þar
gengu brigzlyrðin á milli allt til
loka fundarins um framtíð
Djibouti, sem nú er franskt yfir-
ráðasvæði. Samstaða náðist ekki
um einföld mál, sem ætlunin var
að taka afstöðu til. Þannig kom
fram tillaga um, að aðildarríkin
sameinuðust um að taka ekki þátt
í Olympíuleikunum í Montreal, ef
alþjóðlega Olympíunefndin sam-
þykkti þáttöku Ný-Sjálendinga,
sem sendu keppnislið til S-Afríku
nýlega. Fundurinn samþykkti að-
Framhald á bls. 20
JUAN Carlos Spánarkonungur
ákvaS á laugardagskvöld aS út-
nefna Adolfo Suarez Gonzalez for-
sætisráSherra Spánar I staS Carlos
Arias Navarros, sem sagSi af sér I
fyrri viku. Kom þessi ákvörSun
konungs vægast sagt mjög á
óvart. þvl Suarez er lltt þekktur I
heimalandi sinu og svo til ekkert
utan Spánar. Ýmsar getgátur
höfSu veriS uppi um þaS hver hlyti
embættiS, en hvergi var þar
minnzt á Suarez. ÁSur en konung-
ur tók ákvörSun slna hafSi 17
manna ráSgjafanefnd hans gert
tillögur um þrjá menn I embættiS.
og var Suarez einn þeirra, og af
flestum talinn óllklegastur.
Adolfo Suarez er 43 ára, og
yngstur þeirra, sem gegnst hafa
embætti forsætisráðherra Spánar á
þessari öld Hann er af sömu kyn-
slóð og Juan Carlos konungur, sem
er 38 árar og átti þvi enga aðild að
borgarastyrjöldinni á Spáni árin
1936—39. Hann er kvæntur og
fimm barna faðir, og alinn upp i
Movimiento, eða Hreyfingunni, eins
og Falangistaflokkur Francos heitins
einræðisherra nefnist.
Adolfo Suarez er lögfræðingur að
mennt, en skömmu eftir að hann
útskrifaðist frá Salamanca háskólan-
um sneri hann sér að Hreyfingunni
og var kjörinn formaður flokksdeild-
arinnar í heimasveit sinni, Avila hér-
aði. Hann náði skjótum frama,
gegndi um tíma störfum hjá rlkisút-
varpi og sjónvarpi, siðar var hann
um skeið héraðsstjóri I Segovia unz
hann tók við embætti aðalfram-
kvæmdastjóra hljóðvarps og sjón-
varps árið 1969. Því embætti
gegndi hann I fjögur ár, en árið
1973 var hann skipaður aðstoðar-
framkvæmdastjóri Hreyfingarinnar.
Eftir lát Francos gerði Carlos Arias
Navarro talsverðar breytingará rikis-
Suarez.
stjórn sinni, og hlaut Suarez þá
ráðherraembætti sem aðalritari
Hreyfingarinnar Því embætti hefur
hann gegnt siðan
Þegar Suarez tók sæti i rikisstjórn-
inni, sagði blaðið Nuevo Dtario i
Madrid að hann væri „blár", og átti
þá við blástakkasveitir Falangista.
Þetta hefur Suarez að nokkru leyti
afsannað, meðal annars með eftir-
tektarverðri ræðu, sem hann flutti á
þingi i fyrra mánuði, þar sem hann
mælti fyrir þvi að afnumið yrði 37
ára langt bann við starfsemi stjórn-
málaflokka i landinu. Við það tæki-
færi sagði hann meðal annars að sú
ábyrgð hvíldi nú á herðum ríkis-
stjórnarinnar að sjá svo ,um að
tryggja nútima lýðræði á Spáni.
„Það getur ekkert stjórnmálafrelsi
rlkt ef Spánverjum er bannað funda
hald, málfrelsi og félagsfrelsi." sagði
Suarez. Hann segist sjálfur vera lýð-
ræðissinni, og trúa þvi að þróunin i
þá átt geti orðið sársaukalaus
Svipmyndir
Skip af öllum stærSum og gerðum söfnuSust saman I höfninni I New York.
Seglskipin til vinstri á myndinni eru Esmeralda frá Chile (t.v.) og Glúcksburg
frá V-Þýzkalandi (t.h.).
frá hátíðahöldum 4. júlí
Charlie Smith er elzti
borgari Bandarikjanna.
Hann er 1 34 ára og ekur
hér I opnum vagni til að
sýna sig og sjá aðra á
þjóðhátiðinni.
Viða var dansað á götum úti 4.
júli. Hér dunar dansinn við ráð-
húsið í elzta hluta New York-
borgar.
Stórskotalið skýtur heiðursskotum af fallbyssum i skemmtigarði i New York.
Þetta er hvorki eldflaugapallur né
hringekja, heldur súkkulaðiterta,
sem bökuð var í Filadelfiu I tilefni
200 ára afmælisins. Tertan er 15
metra há. þakin sykurhúð, sem
nægja mundi til að þekja heilan
iþróttavöll. 200 þúsund manns
áttu að fá sneið af tertunni.
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Aðalstræti 6, simi 10100
Aðalstræti 6. simi 22480.
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjöm Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiðsla
Auglýsingar
Áskriftargjald 1000.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 50.00 kr. eintakið.
— segir
The Times
200 mílna löggjöf und-
irbúin í Bretlandi
BREZKA stjórnin vinnur nú að
sameiningu frumvarps um út-
færslu Breta f 200 mflur, en frum-
varpið verður þvi aðeins lagt fyrir
þingið, að stjðrninni takist ekki
að fá Efnahagsbandalagið til að
koma sér saman um sameiginlega
fiskveiðistefnu aðildarríkja
bandalagsins, að því er Lundúna-
blaðið The Times hefur eftir
áreiðanlegum heimildum f
Whitehall.
Enda þótt skoðanir séu skiptar
um framtíðarstefnu í fiskveiði-
málum er ljóst, að brezka ríkis-
stjórnin stefnir að einkalögsögu
við strendur Bretlands, sem yrði
mörkuð einhvers staðar milli 12
og 50 mílna frá ströndinni.
í frétt þessari kemur fram sú
skoðun, að líklega yrði afstaða
tekin til þess síðar, að hve miklu
leyti fiskveiðiskip frá öðrum lönd-
um bandalagsins, svo og skip frá
löndum utan EBE, fengju aðgang
að miðum Breta, en líkur eru tald-
ar á því, að hefðbundnar veiðar
yrðu útilokaðar.
Eins og fram hefur komið yrðu
Framhald á bls. 20