Morgunblaðið - 07.07.1976, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JUH 1976
Foreldrarnir skotnir og
barnið stungið til bana
Hallbjörg Bjarnadóttir listakona færði 2. júll s.l. Kjarvalsstöðum að
gjöf teikningu eftir Jóhannes Kjarval. Teikningin er af Hallbjörgu
sjálfri, gerð árið 1957. Viðstaddir afhendinguna voru auk Hallbjargar
Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri, Fischer Nielsen listmálari og
Alfreð Gunnarsson, forstöðumaður Kjarvalsstaða.
Windhoek. SV-Afriku —6 júlí — AP.
YFIRVÖLD I S-Afríku skvrðu frá
því í dag, að skæruliðar, sem kom-
ið hafi vfir landamærin frá Ang-
óla, hefðu skotið blökkuhjón til
bana í árás á þorpið Mundja, og
hafi hrvðjuverkamennirnir að
því búnu stungið barn þeirra til
bana með bvssusting. Að árásinni
lokinni fóru hryðjuverkamenn-
irnir aftur yfir til Angóla.
Að undanförnu hafa skæruliðar
úr svonefndri Þjóðarhreyfingu
Suður-Afríku, sem hefur bæki-
stöðvar sínar í Angóla sunnan-
Herstöðvar-
andstæðingar:
NATO-fáninn
óviðkomandi
MIÐNEFND Herstöðvarandstæð-
ínga hefur sent blaðinu eftirfar-
andi yfirlýsingu; sem dagsett er 5.
júlí:
Miðnefnd Herstöðvarandstæð-
inga lýsir yfir því, að niðurskurð-
ur NATO-fánans við Loftleiðahót-
elið var á engan hátt tengdur að-
gerðum miðnefndar í dag og er
miðnefnd óviðkomandi.
Ritaukaskrá Rann-
sóknarbókasafna
UT er komin frá Landsbókasafni
lslands Samskrá um enendan rit-
auka íslenzkra rannsóknarbóka-
safna. Skráþessi kem*urút tvisvar
á ári, hún nær til erlendra bóka
en ekki tímarita og er skipt í
tvennt, hugvísindi og raunvísindi.
Skráin er send ókeypis þeim, er
þess óska, og skal beiðnum beint
til Landsbókasafns Islands.
— Viðbúnaður
Framhald af bls. 1
ófarirnar í Uganda. „Þeir eru
brjálaðir fjandmenn með morð í
huga, sem grípa til ofbeldisað-
gerða vitandi að ef þeir nást, bíð-
ur þeirra aðeins fangelsisdómur,“
sagði Rabin.
ÚTFÖR ÞEIRRA FÖLLNU
Bæði í tsrael og Uganda voru í
dag gerðar útfarir fallinna í átök-
unum um helgina. 1 ísrael var
gerð útför Yonatans Netanyahus
ofursta sem stjórnaði víkinga-
sveitunum á Entebbe flugvelli, og
voru þúsundir ísraela viðstaddir
athöfnina. Meðal viðstaddra voru
Rabin forsætisráðherra, Ephrain
Katzir forseti, ráðherrar og yfir-
menn hersins. Shimon Peres
varnarmálaráðherra flutti ávarp
við útförina og sagði meðal
annars: „Á einni stuttri klukku-
stund styrkti herförin til Uganda
þrek Gyðingaþjóðarinnar og allra
þjóða hins frjálsa heims. Örlög
fámennrar þjóðar okkar voru ráð-
in á einni klukkustund með
aðgerðum fámenns hóps hraustra
drengja."
I Uganda var gerð útför skæru-
liðanna sjö, sem felldir voru í
árásinni, og þeirra 20 hermanna
Uganda, sem einnig mistu lífið.
Voru þeir allir grafnir hlið við
hlið, og var Idi Amin forseti við-
staddur. Fyrirskipaði forsetinn
tveggja daga þjóðarsorg í landinu,
og að þessa tvo daga skyldi ekkert
unnið, en fánar dregnir í hálfa
stöng.
Að sögn útvarpsins í Uganda
hótaði Amin því að Israelum
skyldi fá að blæða fyrir aðgerðir
sínar, hvort heldur væri innan
landamæra Israels eða utan
þeirra.
KENYA DEILIR
ABYRGÐINNI
Amin sagði að Kenya yrði að
deila ábyrgðinni með ísrael, því
yfirvöld þar hefðu heimilað ísra-
elsku árásarflugvélunum að milli-
lenda þar. Hann sagði að ekki
væri ætlunin að gera árás á
verðu, herjað á landamæraþorp í
S-Afríku, en s-afrískir hermenn
hafa ráðið niðurlögum 26 skæru-
liða síðan um miðjan júní, að því
er fulltrúi stjórnar S-Afriku hef-
ur skýrt frá.
fyrir eldri
borgara
FELAGSSTARF eldri borgara í
Reykjavlk hefur verið mjög fjöl-
breytt í sumar. Nefna má dags-
ferðir um nágrenni Reykjavíkur,
sem hafa verið vel sóttar, en um
þær hefur verið getið I Morgun-
hlaðinu. Þá hafa verið skipu-
lagðar orlofsferðir að Löngumýri
í Skagafirði í sumar, að Hall-
veigarstöðum er starfað tvo daga í
viku og í Norðurbrún 1 fimm
daga í viku.
106 sjálfboðaliðar frá 12 félög-
um aðstoðuðu við félagsstarf á
tímabilinu frá 1. maí 1975 til 1.
maí 1976. Starfsemin á þessum
stöðum liggur niðri í sumar en
hefst á nýjan leik í byrjun
september. 1 sumar eru hins
vegar skipulögð stutt ferðalög og
orlofsferðir.
Fimm orlofsferðir verða í
sumar farnar að Löngumýri í
Skagafirði með eldri borgara
Reykjavíkur. Eru þetta allt 11
daga ferðir, fyrsta ferðin var
farin 21. júní og kom sá hópur
heim 2. júlí. Síðasta ferðin verður
svo farin 16. ágúst.
Kenya, því Uganda ætti engar
stórar sprengjuflugvélar til árás-
arinnar, en svo bætti hann við:
„En önnur ríki, sem eru fjand-
samleg Kenya, eiga slíkar flug-
vélar.“
Dagblöð í Kenya hafa fagnað
árangri Israela í árásinni, og þau
hafa birt efasemdir um heilindi
Amins gagnvart gíslunum. Yfir-
völd í Kenya hafa hins vegar forð-
ast öll ummæli um árásina eða
hótanir Amins.
TVENNSKONAR VIÐBRÖGÐ
Viðbrögð í öðrum ríkjum við
árás víkingasveitarinnar á
Entebbe flugvöll eru æði misjöfn.
I vestrænum ríkjum eru við-
brögðin svo til einhliða stuðning-
ur við aðgerðir ísraelsmanna, en í
ýmsum ríkjum Asíu, Afríku og
kommúnistaríkjunum eru að-
gerðir ísraela fordæmdar. Þannig
segir til dæmis blaðið The New
York Times f ritstjórnargrein í
dag að allur hinn siðmenntaði
heimur standi í djúpri þakkar-
skuld við Israel vegna árásar-
innar, sem leysti rúmlega 100
gísla úr haldi skæruliða. Segir
blaðið að árásin eigi að gefa öðr-
um ríkjum fordæmi og sýna þeim
að þegar þörf krefur og staðfesta
og vilji eru fyrir hendi, geti þau
einnig afrekað jafn miklu.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins í Júgóslavíu var annars sinnis.
Hann boðaði til blaðamanna-
fundar í dag þar sem hann for-
dæmdí árás ísraela á Entebbe, og
sagði hann árásina vera algjört
einsdæmi í samskiptum ríkja. í
þessum dúr skiptast viðbrögðin
algerlega í tvær stefnur, og ljóst
er að erfitt verður að ná einingu
um málið á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna.
— Suarez
Framhald af bls. 1
kost á sér til starfa 1 nýrri ríkis-
stjórn undir forsæti Suarez. Segja
ráðherrarnir að Suarez, sem er 43
ára, sé of reynslulaus auk þess
sem þeim mislíkar það hve hægri-
sinnaður hann er og tengdur
kaþólsku samtökunum Opus Dei,
sem höfðu mikil ftök á dögum
Francos heitins einvalds.
Suarez hefur borið á móti
meintum tengslum sínum við
Opus Dei, og leitað til talsmanna
ýmissa fyrrum stjórnarandstöðu-
flokka um samvinnu við stjórnar-
myndun á breiðum grundvelli.
Sagði hann í viðtali i dag að hann
vildi mynda rikisstjórn skipaða
mönnum, er talizt gætu fulltrúar
þverskurðar stjórnmálahreyfinga
landsins.
Eini flokkurinn, sem virðist
reiðubúinn að ganga til samvinnu
við Suarez sem stendur er flokkur
sósíal-demókrata undir forustu
hagfræðingsins Antonio Garcia
Lopes. Segir Garcia Lopez að
hann hafi þegar rætt við Suarez,
og sé reiðubúinn að taka að sér
málamiðlun við fulltrúa annarra
flokka. Varðandi yfirlýsingar
þeirra Areilza og Fraga um að
þeir geti ekki starfað með Suarez,
sagði Garcia Lopez: „Enginn er
ómissandi. Hagsmunir ríkisins
eru of mikilvægir til að láta per-
sónulega- eða flokkshagsmuni
ráða."
Talsmenn sósíalista segjast
ekki telja Garcia Lopez heppileg-
an milligöngumann. Hins vegar
hafa þeir ekki afneitað samstarfi
við Suarez, en segjast vilja bíða og
sjá hvernig ríkisstjórn hann
hyggst mynda.
Fernando Alvarez de Miranda,
leiðtogi kristilegra demókrata,
skýrði frá því að maður, sem
stendur forsætisráðherranum
nær, hafi rætt við sig um stjórn-
málaástandið. Hann bætti því við
að endanleg ákvörðun um
hugsanlegt stjórnarsamstarf yrði
að koma frá flokksstjórninni, sem
setti það skilyrði að fullu lýðræði
yrði komið á og að allir pólitískir
fangar yrðu náðaðir.
— Súdan
Framhald af bls. 1
dag dró Súdan þessa ósk sína til
baka, en hins vegar var frá því
skýrt að sérstakur fundur full-
trúa Arabaríkjanna hjá Samein-
uðu þjóðunum yrði boðaður í New
York til að ræða málið undir for-
sæti fulltrúa Qatar.
Egyptar urðu fyrstir Araba-
þjóða til að lýsa stuðningi við
Nemery forseta strax og fréttist
um byltingartilraunina á föstu-
dag. i dag gefur blaðið A1 Ahram,
sem er hálf-opinbert málgagn
stjórnarinnar í Kaíró, í skyn að
Sovétríkin kunni að hafa staðið að
baki byltingunni. „Vladimir Vino-
gradov, sérlegur sendiherra Sov-
étrikjanna, heimsótti Libýu í
fyrri viku og átti fund með Gadd-
afi forseta," segir blaðið, og bætir
við: „Getur verið samband milli
heimsóknarinnar og byltingarinn-
ar í Súdan? SeljaSovétrikin Gadd
afi vopn til að koma á sundrungu
og óeirðum víða í Arabalöndun-
um, með því að leggja byltingar-
sinnum til vopn og skipuleggja
innrásir í önnur Arabalönd?"
Birtist þessi ásökun i ritstjórnar-
grein á forsiðu blaðsins, og þar
segir ennfremur að sannað sé að
Gaddafi hafi staðið fyrir skemmd-
arverkum í Egyptalandi, Túnis,
Marokkó og fleiri ríkjum, og að
hann sé „hættulegri Arabarikjun-
um en sjálft israel.“
— Dómstólar
geta
Framhald af bls. 2
ist hann staðfestingar héraðs-
dóms.
í úrskurði Hæstaréttar kemur
fram, aó skilja verði ákvæði 48.
gr. laga nr. 60/1972 svo, að dóm-
stólar geti eigi breytt úrskurði
dómsmálaráðuneytisins um for-
ræði barns enda sé meðferð máls
rétt og úrlausn beitt efnislegu
mati. Samkvæmt þessu og þar
sem ekki verði séð, að meðferð
málsins hjá dómsmálaráðuneyti
og ákvörðun sjálf sé haldin nokkr-
um þeim göllum að ógildingu
hennar varði, beri þvi að ómerkja
hinn áfrýjaða dóm og vísa málinu
sjálfkrafa frá héraðsdómi. Máls-
kostnaður í héraði og Hæstarétti
var felldur niður.
Hæstaréttardómararnir Magn-
ús Þ. Torfason og Logi Einarsson
skiluðu sératkvæði, þar sem þeir
telja að réttarágreiningur máisað-
ilja eigi undir dómstóla en ekki
dómsmálaráðuneyti en telja að
sýkna beri konuna af kröfum
mannsins í málinu. Niðurstaðan
er þannig hin sama — konan
heldur báðúm börnunum.
— Carter
Framhald af bls. 1
Edmund Brown ríkisstjóri í
Kaliforníu, sem sjálfur sækist
eftir útnefningu flokksþings
demókrata, og stuðningsmaður
hans, Edwin Edwards ríkis-
stjóri í Louisiana.
Fundarmenn lýstu því yfir,
að Carter hefði sýnt, að hann
væri fær um að sameina demó-
krataflokkinn.
Miklar vangaveltur eru nú
um það hver verði varaforseta-
efni Carters. Hann sagði á
fundi með fréttamönnum i
Hershey í Pennsylvaníu í dag,
að næst mundi hann eiga við-
ræður við Walter Mondale öld-
ungadeildarþingmann frá
Minnesota og yrði fundur
þeirra n.k. fimmtudag. Carter
hefur áður rætt málið við
Edmund Muskie og hittir fleiri
hugsanleg varaforsetaefni á
næstunni.
— 200 mílur
Framhald af bls. 19
milli 55 og 60 af hundraði allra
fiskimiða við strendur EBE-
landanna innan 200 mílnanna við
Bretland, og þetta er ein aðal-
ástæðan fyrir því, að Bretar krefj-
ast allt að 50 mílna einkalögsögu
þar sem aðgangur annarra þjóða
yrði takmarkaður mjög. Stefna
Breta í þessu máli stangast á við
ákvæði í stofnsamningi EBE, þar
sem gert er ráð fyrir því, að aðild-
arríkin hafi jafnan aðgang að
fiskimiðum hvers annars.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við fulltrúa brezka sjávarút-
vegsráðherrans og innti frétta af
undirbúningi 200 milna frum-
varpsins. Hann vildi ekki tjá sig
um málió að svo stöddu, en ítrek-
aði, að Bretar stefndu fyrst og
fremst að því að samningar tækj-
ust um sameiginlega fiskveiði-
stefnu EBE áður en hafréttarráð-
stefna SÞ hæfist í næsta mánuði.
— OAU
Framhald af bls. 19
eins að beina þvi til aðildarríkj-
anna, að grípa til „viðhlítandi ráð-
stafana" ef Nýja-Sjáland fengi að
taka þátt í leikunum.
Eina afdráttarlausa niðurstaða
fundarins kom fram i þvi að veita
öllum aðildarrikjunum umboð til
að viðurkenna ekki Transkei, sem
i október n.k. hlýtur fyrst allra
upprunalegra heimkynna blökku-
manna í Suður-Afríku fullkomið
sjálfstæði.
Á leiðtogafundinum á Maurití-
us var allmörgum málum slegið á
frest. Fundur verður haldinn i
Ghana i næsta mánuði um framtíð
Djibouti og deilan um V-Sahara
verður tekin fyrir á sérstökum
fundi, sem óákveðið er hvenær
halda skal eða hvar.
— Hart barizt
Framhald af bls. 1
byggð kristnum mönnum. Einnig
tókst þeim að ná á sitt vald mörg-
um þorpum og bæjum þar norður-
frá, en undir kvöld skýrðu hægri-
sinnar frá þvi að þeir væru í gagn-
sókn, og að þeim hefði tekizt að ná
aftur nokkrum hluta herteknu
svæðanna.
Talsmenn hægrisinna segja að
sóknin hafi verið gerð til að draga
úr átökunum við flóttamannabúð-
irnar i Tel Zaatar, sem barizt hef-
ur verið um í hálfan mánuð af
mikilli hörku. Segja þeir að þar
hafi verið tiltölulega kyrrt í dag.
Báðir aðilar játa að mikið
mannfall hafi orðið i átökunum,
og útvarpsstöð Falangista segir að
hægrisinnar hafi valdið gifurlegu
mannfalli í sveitum óvinarins.
Segir útvarpið að hægrisinnar
hafi víða sótt fram, og meðal ann-
ars náð hluta borgarinnar
Amioun á sitt vald, en þar eru
höfuðstöðvar sósíalistaflokksins
PPS. Utvarpsstöðin „Rödd Palest-
inu“ segir hins vegar að öllum
árásum á borgina hafi verið
hrundið, en viðurkenndi að
hægrisinnar hefðu háð tveimur
þorpum með stuðningi hersveita
frá Sýrlandi.
— Fannst látinn
Framhald af bls. 36
kaup á, og litlu síðar hafðist upp á
bifreiðinni, þar sem hún stóð við
Kapaskjólsveg. Að sögn Hauks
Bjarnasonar rannsóknarlögreglu-
manns, sem ásamt Nirði Snæhólm
aðalvarðstjóra og tæknideildar-
mönnum rannsóknarlögreglunn-
ar, hafa liðsinnt lögregluyfirvöld-
um í Kópavogi vió rannsókn þessa
máls, voru ummerki í bifreiðinni
slík, að ljóst er að hún hefur verið
notuð við verknaðinn.
Bifreiðin er gul sendibifreið af
Moskvits-gerð, G-8244 og eru það
tilmæli lögreglunnar að allir þeir
sem geta gefið einhverjar upplýs-
ingar um ferðir bifreiðarinnar á
mánudagskvöld eða aðfararnótt
gærdagsins í Reykjavík eða Kópa-
vogi, gefi sig fram.
Einnig biður rannsóknalögregl-
an alla þá, sem eitthvað vita um
ferðir Guðjóns Atla Árnasonar
frá því um sjöleytið á mánudags-
kvöld og um nóttina, svo og ef
vitað er um einhverja sem höfðu
samneyti við Guðjón á þessu tíma-
bili, að gefa sig fram við lögregl-
una.
Aú því er Njörður Snæhólm
tjáði Morgunblaðinu í gærkvöldi
hafði enginn verið handtekinn
vegna þessa máls en áfram er
unnið að rannsókn þess.
— Borgarsjóður
greiði
Frainhald af bls. 3
skipa lögreglumenn, aðra en
ríkislögreglumenn, greiða laun
þeirra og annan kostnað við lög-
gæzlu, en fá hluta þess kostnaðar
endurgreiddan úr ríkissjóði.
í sératkvæði Magnúsar Torfa-
sonar kemur fram að hann er
ósammála ýmsum efnisatriðum i
dóminum, en hins vegar sammála
því að borgarsjóður skuli greiða
fyrrnefndar upphæðir. Þór Vil-
hjálmsson skilar einnig sérat-
kvæði og telur að ríkissjóður eigi
að greiða hluta bótaupphæðarinn-
ae.